Morgunblaðið - 29.01.1995, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. JANÚAR1995 B 21
RADAUGl YSINGAR
— )
Ráðhús Reykjavíkur
Tónleikar í Ráðhúsinu í dag, sunnudaginn
29. janúar, kl. 15.00.
Perlubandið, 14 manna danshljómsveit, leikur,
ásamt söngkonunni Rósu Ingólfsdóttur.
Dansarar frá Danskóla Jóns Péturs og Köru.
Ókeypis aðgangur.
Sólarkaffi Arnfirðinga
Sólarkaffi Arnfirðinga verður haldið á Engja-
teig 11 (við hliðina á Listhúsinu) föstudaginn
3. febrúar og hefst það kl. 20.30.
Miðar seldiF á Engjateigi 11 sama dag frá
kl. 16-18 og við innganginn.
Góðar veitingar og skemmtiatriði.
Mætum öll.
Stjórnin.
4. Rammaáætlun
Evrópusambandsins
Li'f- og læknisfræöi
Ifftækni
Almennur kynningarfundur á vegum Kynn-
ingarmiðstöðvar Evrópurannsókna verður
haldinn 30. janúar kl. 15.00-17.00 í Borgar-
túni 6.
Kynntar verða líf- og læknisfræðiáætlun
og líftækniáætlun ESB.
Umsóknarfrestur vegna Iff- og læknisfræði-
áætlunarinnar rennur út 31. mars nk.
Umsóknarfrestur vegna líftækniáætlunar-
innar rennur út 24. mars nk.
Kynntar verða:
4. rammaáætlun ESB;
Elísabet M. Andrésdóttir.
Líf- og læknisfræðiáætlun ESB;
Guðrún Agnarsdóttir.
Líftækniáætlun ESB;
Ingileif Jónsdóttir og Jakob K. Kristjánsson.
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Leiðbeiningar
við f ramtalsgerð
Verkamannafélagið Dagsbrún gefur félags-
mönnum sínum kost á leiðbeiningum við
gerð skattframtals helgina 4.-5. febrúar
1995 með sama hætti og undanfarin ár.
Þeir, sem hug hafa á þjónustu þessari, eru
beðnir um að hafa samband við skrifstofu
Dagsbrúnar, sími 25633, og láta skrá sig til
viðtals eigi síðar en 3. febrúar nk.
Ekki er unnt að taka við beiðnum eftir þann
tíma.
Verkamannafélagið Dagsbrún.
Nudd- og heilsusetur
Þórgunnu, Skúlagötu 26
auglýsir helgarnámskeið 4. og 5. febrúar og
11. og 12 febrúar. Unnið er að því að losa
um líkamlega og andlega spennu með heild
rænu nuddi og persónulegri ráðgjöf hjá fag-
aðilum. Upplýsingar og innritun í síma
624745 mánud. og fimmtud. milli kl. 19 og
20, aðra daga kl 9.30-10.30 í síma 21850.
Námskeið f ungbarnanuddi
fyrir foreldra með börn á aldrinum 1-10
mán. byrjar fimmtudaginn 2. febrúar. Sam-
kvæmt rannsóknum og reynslu hjálpar og
styrkir ungbarnanudd öll börn líkamlega, til-
finningalega og andlega og einnig tengsla-
myndun. Börnin sofa betur, þyngjast hraðar
og ónæmiskerfi þeirra styrkist m.m. Faglærðir
kennarar. Uppl. í símum 624745 og 21850.
Leiklistarskóli íslands
auglýsir
Inntökupróf í Leiklistarskóla íslands 1995
vegna skólaársins 1995-1996 munu fara
fram í mars og apríl nk.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans,
Sölvhólsgötu 13. Opið frá kl. 9-15.
Umsóknarfrestur er til 13. mars 1995.
Skóiastjóri.
Frá Tölvuskóla Stjórnun-
arfélagsins og Nýherja
Tölvunotkun ífyrirtækjarekstri -
fyrri hluti
Innritun er hafin í þetta vinsæla tölvunám,
fyrstu 11 námsvikurnar. Kennsla hefst 6.
febrúar. Unnt er að stunda námið með vinnu.
Seinni hluta námsins má taka næsta skóla-
ár. Þetta er einstakt tækifæri til að öðlast
yfirgripsmikla þekkingu á einkatölvuþúnaði
fyrirtækja fyrir mjög hagstætt verð.
Nánari upplýsingar í síma 697769, 697770
eða 621066.
STJÓRNUNARFÉLAGS (SLANDS
OG NÝHERJA
69 77 69
62 1 □ 66 NÝHERJI
Framreiðslumenn
Almennur félagsfundur verður haldinn á
Óðinsgötu 7 þriðjudaginn 31. janúar nk.
kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Úrsögn Félags framreiðslumanna úr
Þjónustusambandi íslands.
2. Væntanlegir kjarasamningar.
3. Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Menningarsjóður
Umsóknir um styrki
Hér með er auglýst eftir umsóknum um
styrki úr Menningarsjóði skv. 1. gr. reglu-
gerðar um sjóðinn nr. 707/1994.
Hlutverk Menningarsjóös er aö veita útgefendum og/eða höfundum
fjárhagslegan stuðning til útgáfu þeirra bóka á íslenskri tungu, sem
veröa mega til eflingar íslenskri menningu. Sérstök áhersla skal lögö
á að efla útgáfu fræðirita, handbóka, orðabóka og menningarsögu-
legra rita. Jafnframt getur sjóðurinn veitt fjárhagslegan stuðning
annarri skyldri starfsemi s.s. vegna hljóðbókagerðar.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðu-
blöðum til stjórnar Menningarsjóðs, mennta-
málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, fyrir 1. mars 1995.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu mennta-
málaráðuneytisins.
Stjórn Menningarsjóðs.
Borgarspítalinn - Landakot
(Sjúkrahús Reykjavíkur)
Tilkynning um breytingu
á afgreiðslutíma
Rannsóknadeild Borgarspítalans mun frá og
með 1. febrúar 1995 taka á móti utanspítala-
sjúklingum til sýnatöku frá kl. 8.00-18.00
alla virka daga. Athygli skal vakin á að sjúk-
lingar þurfa að vera fastandi við sýnatökur
fyrir vissar rannsóknir (t.d. s-þríglýseríðar).
Afgreiðsla rannsóknadeildar svarar frá kl.
8.00-16.00 í síma: 5696403/5696404.
Eftir kl. 16.00 þarf að hringja í síma: 5696600
og biðja um meinatækni með kalltæki
81-404.
Röntgendeild Borgarspítalans verður einnig
opin frá kl. 8.00-18.00 alla virka daga frá
og með 1. febrúar 1995.
Afgreiðsla sími: 5696440/5696441.
Bréfsími (fax): 5696458.
Röntgendeild Landakotsspítala verður áfram
með óbreyttan opnunartíma frá kl. 8.00-
16.00.
Afgreiðsla sími: 5604320.
A
iS&J
Lóðaúthlutun
íKópavogsdal
Kópavogsbær auglýsir eftirtaldar fjölbýlis-
húsalóðir í Kópavogsdal lausar til úthlutun-
ar. Með lóðarumsóknum skulu fylgja tillögur
að útfærslu deiliskipulags á lóðunum. Eftir-
farandi upplýsingar eru til viðmiðunar:
Reitur 13 við Lækjarsmára.
Stærð lóðar um 8.000 m2. Byggingarmagn
(bílageymsla neðanjarðar ekki meðtalin) um
10.000 m2. Fjöldi íbúða um 80. Fjöldi hæða
5-10. Bílastæði 1,8-2,0 á íbúð. Hluti bíla-
stæða neðanjarðar.
Reitur 14 við Lautarsmára.
Stærð lóðar um 13.000 m2. Byggingarmagn
(bílageymsla neðanjarðar ekki meðtalin) um
12.000 m2. Fjöldi íbúða um 100. Fjöldi hæða
3-10. Bílastæði á íbúð 1,8-2,0. Hluti bíla-
stæða neðanjarðar.
í tillögunum, sem farið er fram á að fylgi
umsóknum, skal eftirfarandi koma fram:
A.
Skipulag lóðar í mælikvarða 1:500, sem sýni
byggingarreiti, hæð bygginga, heildarbygg-
ingamagn, þakform, fjölda íþúða, stærðar-
dreifingu íbúða (án sameignar), bílastæði
(bæði ofan- og neðanjarðar), leiksvæði,
gönguleiðir, gróðursvæði og aðliggjandi
byggð.
B.
Sneiðmyndir í mælikvarða 1:500 og dæmi
um útlit í mælikvarða 1:200.
C.
Mikilvægt er að í tillögugerðinni sé gætt
fyllsta samræmis við aðliggjandi byggð og
útivistarsvæði og skal m.a. gera ítarlega
grein fyrir hugsanlegri skuggamyndun.
D.
Þá skal leggja fram hugmyndir um uppbygg-
ingarhraða.
Báðum lóðunum verður úthlutað til eins eða
fleiri aðila. Sé sá kostur valinn, að úthluta
lóðunum til fleiri en eins aðita, áskilur Kópa-
vogsbær sér rétt til að samræma hugmynd-
ir um deiliskipulag í samráði við lóðarhafa.
Lóðirnar eru byggingarhæfar.
Skipulagsgögn og umsóknareyðublöð
liggja frammi á Bæjarskipulagi Kópavogs,
Fannborg 2, 4. hæð, milli kl. 9-15 alla virka
daga.
Nánari upplýsingar veitir Birgir H. Sigurðs-
son, skipulagsstjóri, í síma 41570.
Umsóknum skal skila til Bæjarskipulags
fyrir kl. 15.00 miðvikudaginn 8. mars 1995.
Bæjarstjórinn f Kópavogi.