Morgunblaðið - 14.05.1995, Page 9

Morgunblaðið - 14.05.1995, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ HÚSID OG GARDURINN SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1995 D 9 HENGITRÉ ► HENGITRÉ hafa orðið æ vinsælli undanfarin ár og fjöl- breytni þeirra vaxið. Hengitré eru búin til með hugviti manna, þar sem tveimur skyldum ein- skaklingum (klónum) en ólíkum í útliti er skeytt saman efir kúnstarinnar reglum. Oftast er ódýrari rótarplanta notuð sem stofnplanta, á hana er oftast látin önnur planta í 1,0 -1,5 metra hæð með hang- andi útlit. Þannig fæst bein- stofna smátré með lafandi greinum efst á stofninum. Al- gengustu tegundirnar í sölu eru hengibaunatré og hengifjaður- kergi, sem er fíngerðara en fyrrnefnda, en keimlíkt, hengi- selja og nú síðustu ár hengigull- regn. Hengigullregn hefur reynst harðgert og blómviljugt. Einnig er talsvert selt af héngi- skriðmispli, sem er einstofna planta í um 50 sm hæð og með hengiskriðmispillinn græddan þar ofan á. Hafa þessar plöntur reynst nettar garðplöntur en þrífast best á skjólgóðum og sólríkum stöðum. SKRIÐLÆGAR VÍÐIPLÖNTUR ► TILVALIÐ er að nota skrið- ulan víði til að loka yfirborði jarðvegs og draga þannig úr foki sem og arfamyndun. í dag er hægt að kaupa mikinn fjölda slíkra plantna og sem dæmi um það eru jarðlægur eða skriðull loðvíðir - karlplantan er nær eingöngu í sölu vegna gulra rekla á vorin. Breiðuvíðir - verður eins og þétriðið teppi eða lágvaxin og breið þúfa. Japansvíðir - er með langar renglur og óreglulegan vöxt. Grasvíðir - er örsmár íslenskur víðir. Netvíðir - er alveg flatur og hefur fallegt blaðverk. Skriðvíðir - nettur brúskur Einnig eru aðrar áhugaverð- ar um metra háar víðitegundir eins og reklavíðir - með fallega rekla á vorin. Orravíðir - getur lagst alveg undan snjónum. Myrtuvíðir - heldur skrælnuðu laufinu allan veturinn. Bjartvíð- ir og Lappavíðir - mjög ljósar víðitegundir. Morgunblaðið/Jón Svavarsson SUMARBLOMIN ► ÞAÐ fer að koma að því að tímabært sé fyrir fólk að setja niður sumarblómin. Urvalið í verslunum er að aukast þessa dagana og allir eiga að geta fundið eitthvað við hæfi. Hér má sjá hluta úrvalsins sem kom- lð er Höfundur er píanóleikari. í Blómaval. Gardena...fyrir gróður og garða! Sama skaftið = t$!GARDENA Er auðvelt að finna sumarbústaðinn þinn? Það er stefna RARIK að veita sem besta þjónustu með þarfir og óskir viðskiptavina sinna að leiðarljósi. Forsenda þess að unnt sé að * þjóna eigendum sumarbústaða sem skyldi er að auðvelt sé að finna tiltekinn bústað og komast að honum. Erindið getur verið að leggja heimtaug, lesa af mæli eða koma til aðstoðar ef eitthvað fer úrskeiðis. Greiður aðgangur er ekki síst aðkallandi þegar þörf er á skjótri viðgerðarþjónustu. Því mælumst við til þess að eigendur sumarbústaða merki greinilega bústaði sína sem og götuheiti og númer. Þannig tryggja þeir að okkar menn komist rakleiðis á staðinn. Umsókn um heimtaug Umsókn um heimtaug þarf að berast með góðum fyrirvara, en að jafnaði eru heimtaugar aðeins afgreiddar að sumarlagi. Um- sóknareyðublöð fást á skrifstofu okkar í Reykjavík, á umdæmis- skrifstofum okkar og útibúum. Hafðu vinsamlega samband við þá skrifstofu okkar sem þér hentar best. Starfsfólk okkar veitir þér fúslega allar nánari upplýsingar. RARIK ^cýa&tcUaýt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.