Morgunblaðið - 14.05.1995, Síða 12

Morgunblaðið - 14.05.1995, Síða 12
12 D SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1995 HUSIÐ OG GARÐURINN MORGUNBLAÐIÐ HLEÐSLU &KANT STEINAR Við eigum ávallt á lager hellur, þrep, kant- og hleðslusteina í ýmsum stærð- um og geröum. Hellur í gangstéttir, bílastæði, innkeyrslur, leiksvaeði, úti- vistarsvæði o.fl. Hleðsluefni í úrvali til ýmissa nota. Þrepin og kantsteinninn henta hvar sem er. Hyrjarhöffta 8,110 Reykjavík - Sfmi 686211. LÍFRÆNAR VARNIR GEGN MEINDYRUM TOBAK, ÞANG, KÚAHLAND OG JURTASEYDI SKIPTAR skoðanir eru um hvort úða á garðinn til að eitra fyrir ýmsum meindýrum. Ef fólki er illa við ýmis eiturefni, sem not- uð eru til slíkra úðana, er engin ástæða til að sitja með hendur í skauti og horfa á meindýr éta garðinn upp til agna, því ýmsar lífrænar vamir standa til boða. í bókinni Trjáklippingar eftir Stein Kárason em néfnd ýmis ráð gegn meindýrum, en algengust þeirra eru fiðrildalirfur, svokallað- ir haustfetar og ýmsar blaðlúsa- tegundir. Þá getur ranabjalla, sem er áþekk járnsmiðum, valdið skaða á rót og laufblöðum. Best er að klippa trén áður en úðað er, því meindýrum fækkar með færri greinum. Meðal þeirra mörgu ráða, sem Steinn gefur í bók sinni, eru m.a. að nota seyði af klóelftingu gegn ýmsum sveppasjúkdómum, til dæmis riðsvepp og rótarhálsrotn- un. Notaður er einn bolli af elfting- unni í 4 lítra vatns og soðið í 20 mínútur. Kældur vökvinn er síðan notaður til vökvunar og úðunar. Vökvinn verkar einnig fyrirbyggj- andi við sáningu. Gegn blaðlús og öðrum skordýr- um sem sjúga er notað seyði af stórunetlu. Notaður er einn bolli af netlu, 4 1 af sjóðandi vatni hellt yfir og kældur vökvinn notaður til úðunar, einkum á neðra borð blaða. Tókakslög má einnig brúka gegn blaðlús. Þá er einn pakki af píputóbaki soðinn í 15 mínútur í 3 1 af vatni. Að því loknu er tóbakið sigtað frá og allur vökvi kreistur vel úr því. Lögurinn er svo bland- aður með vatni í hlutföllunum 1 hluti tóbakslögur á móti 9 hlutum vatns. Þangvökvi, sem fæst í verslun- um, hefur einnig gefist vel gegn blaðlúsum og er notaður i hlutföll- unum 1 á móti 200-400. Þegar þangvökvi er notaður má búast við að þurfa að endurtaka úðun á 10 daga fresti yfir vaxtarskeiðið. Auk þess að verka sem lúsafæla inni- heldur þangvökvinn aragrúa snefil- efna og annarra næringarefna sem nýtast plöntunni til viðurværis, bæði með úðun og við íblöndun í vökvunarvatn á hefðbundinn hátt. Notkun þangvökvans eykur einnig fijómyndun og frostþol plantna og þær verða harðgerðari. Við langvarandi notkun þang- vökvans dregur úr sveppasýking- um og ásókn meindýra. Kúahland, 1 hluti á móti 10 hlut- um vatns, hefur verið notað gegn blaðlús með úðun og hlandfor og kúamykja hefur verið notuð kring- um rótarháls kálplantna sem vöm gegn kálmaðki. LITRÍKU ólfornir hjá Gróðurvörum eru úr plasfi, en þeir ómáluðu eru úr leir. .Verðið á álfunum á myndinni er frá um 1.000 krónum uppí um 6.000. Morgunblaðið/Jón Svavarsson ÞESSAR styttur og ker eru úr járnbundinni steinsteypu og fást í Gróðurvörum. Verðió er á bilinu 3.000 og uppí 15.000 krónur. Hlutirnir þola að standa úti allt árið. ALFABYGGÐIGÖRÐUM SÍFELLT fleiri garðeigendur velja þá leið að nota styttur í ýmsu formi til þess að punta upp á garða sína. Helst er um að ræða styttur í formi álfa, annaðhvort úr leir eða plasti, og einnig er algengt að sjá stytt- ur úr járnbundinni steypu sem þola að standa úti allan ársins hring. Þá eru kerin alltaf vin- sæl. Álfastyttur geta sett skemmtilegan svip á garða yfir sumartímann þegar allt er í blóma. Þær eru venjulega í skærum litum eins og sést á meðfylgjandi myndum og fást í mismunandi stærðum. Morgun- GARDASKRAUT blaðið skoðaði álfa hjá tveimur verslunum, Blómavali og Gróð- urvörum sf. Annars vegar er um að ræða plastálfa, sem þá eru fylltir af sandi, og hins vegar leirálfa. Algengt verð á álfum er frá 1.000 krónum, þá eru þeir mjög litlir, og upp í 6-7.000. Álfamir em til nokkuð dýrari, en þá em þeir orðnir töluvert stórir og myndarlegir. Þeir stærstu fara alveg upp í rúmar 18.000 krón- ur, eins og einn vígalegur sem náðist á mynd í Blómavali. Styttur og ker úr jámbund- inni steinsteypu er líka vinsælt í garða. Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta úrvalsins hjá Gróðurvömm. Ódýmstu stytt- urnar og kerin em á um 3.000 krónur og dýrastu kosta 15.000. Flestar eru undir tíu þúsundum. Samkvæmt upplýsingum frá Gróðurvörum er von á nýrri sendingu í byijun júní þegar fólk verður búið að ganga frá hagnýtum hlutum eins og að bera á áburð og þess háttar og fer að huga að því að skreyta garðana. Svo var einnig með Blómaval, sem á von á leirstytt- um alveg á næstu dögum. Algluggar Álhurðir Rennihurðir Fellihurðir Glerveggir Sólstofur Gróðurhús Framleiðum allar gerðir áleininga, hurðir og glugga. Bjóðum vandaða vöru á verði fyrir þig. Við komum á staðinn, tökum mál og sjáum um uppsetningu. Ekkert verk er of lítið og ekkert of stórt. Leitið tilboða Finestra Skútuvogi 4,124 Reykjavík, S. 581-2140, Fax 568-0380 Báruplast úr 1,5 mm höggþolnu Acryl plastgleri. j ] .. u :zzz^ 16 mm Sólarplast í gróðurhús og sólskála ásamt festingum Sólarplast og Báruplast er úr tæru Acryl plastgleri sem er með gott rispu- og verðuþol, upplitast ekki, þolir mikið snjó og vindálag. Acryl plastgler hleypir í gegn sólargeislum og veitir góða hitaeinangrun. Háborg HÉR sést sýnishorn af álfastyttum og kerum sem fást í Blómavali. Stytturnar eru úr þlasti, en leirstytt- urnar koma [ verslunina síóar í mánuðinum. Alfarnir á bekknum kosta frá 1.000 krónum og upp l l .000, en stóra styttan í bak- grunninum kostar rúmlega l 8.000. Veróió á kerunum fyrir framan bekkinn er frá tæpum 700 upp í 1.600 krónur. Skútuvogi 4, 124 Reykjavík, S. 568-7898, Fax 568-0380 muuil ^ n íí*íi Sjábu hlutina í víbara samhcngi! - kjarni málsim! 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.