Morgunblaðið - 01.09.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.09.1995, Blaðsíða 12
12 C FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG Fuglar sýna listir og hús hafa roman HIMINNINN yfir ísafjarðardjúpi er þungbúinn en veðrið er þurrt og milt þar sem báturinn Eyjalín strikar hafflötinn á leið til Vigur. Sjávarloftið hleypir roða í kinnarnar og frísk- ar. Siglt er meðfram ströndinni frá ísafirði og bílarnir sjást skjótast í fjöllunum eins og litlar flugur. Vigur birtist sem lítil stækkandi rönd í fjarska. Mávamir sýna dirfsku í kappi sínu við bátinn og horfast í augu við bátsveija og sumir beygja glannalega rétt fyrir stefnið. Vigur nálgast óðfluga og ^ næst þegar sjófaramir ranka o við sér eftir að hafa horft !» dáleiddir á flug mávanna, angistarfullan flótta teist- anna og lundanna frá stefni báts- ins þar sem hann klýfur öldumar, birtist húsaþyrpingin í Vigur og falleg fjaran. Vlndmylla frá1830 Enn drynur í vélinni og mótorinn rótar upp sjónum. Landfestar. Svo er stigið í land. Vigur var opnuð ferðamönnum árið 1990 og em þangað daglegar ferðir með bátn- um Eyjalín. Ferðamönnum er boðið upp á kaffí eftir að hafa staldrað 2-3 tíma við í eynni. Það fyrsta sem ferðamenn reka augun í er Vigurmyllan, lítil korn- mylla sem komið var upp árið 1830 þegar Vigurbændur ákváðu að mala sitt eigið korn. Myllan er lít- il og vel haldið við og er eitt helsta stolt eyjarinnar. Spaðar hennar em ekki lengur klæddir, enda snúast þeir ekki í golunni. Myllan nýtur nú vemdar Þjóðminjasafns íslands. Yfír höfði mínu heyrist þytur og skrækur sem ég þekki. Árvökul- ar kríur fljúga yfir höfði ferða- mannanna og reka upp ógnandi hljóð af og til. Þegar lengra er gengið inn á eyjuna litast loftið kríugeri. Sumar steypa sér og em frekar ógnandi. Gestimir þurfa ekki að kvíða í bili því að prakkara- legur' heimilisseppinn á alla at- hygli kríanna. Stoltur dillar hann skottinu og horfír ögrandi á þær og glefsar á móti. Eyjan er stór, um tveir kíló metrar á lengd og tæpir fjögur hundmð metrar á breidd og er þar mjög mikið fuglalíf í skjóli manna og kríu. Þúsundir lunda og mikic af öðmm svartfugli halda þar til, auk þess er þar mikið æðarvarp. Vigur- bændur fyrr og nú hafa nýtt sér hlunnindi eyjarinnar meðfram því að stunda þar búskap. Nokkur þús- und lundar em veiddir þar á hverju sumri. Lundinn hefur grafið holur sínar um alla eyjuna og virðist vera að grafa hana smám saman í sundur, holurnar em mjög þéttar og þarf að gæta sín að hrasa ekki um þær. Vigurhvuttinn fangar einn lund- ann sem brýst örvæntingarfullur um. Bjöm Baldursson bóndi í Vig- ur er fljótur að frelsa skelfdan lundann úr hundskjaftinum. SÉRSTÖK stemning er í Vig- ur. Hér má sjá reykhúsið sem liggur í fjöru og fjallið Hestur er í baksýn. Lundagreyið er ómeiddur en hræddur og hundurinn horfir spenntur á þegar eigandi hans sýnir ferðamönnunum lundann. Bömin fá að klappa honum og þegar fuglinum virðist vera nóg boðið sleppir Björn honum og hundurinn hleypur fagnandi á eftir flýjandi prófastinum. 200 ára bátur enn í notkun Eftir að hafa notið góða veðurs- ins og hafgolunnar á miðju djúpinu er rölt í kaffi í Viktoríuhús. Á leið- inni er Vigur-Breiður skoðaður í fjörunni fyrir framan húsið. Vigur- Breiður er 200 ára myndarlegur áttæringur, líklega smíðaður um aldamótin 1800 og er með vest- firsku lagi, svokölluðu Djúplagi. Hann er enn notaður til fjárflutn- KORNMYLLAN í Vigur er vel á annað hundrað ára gömul og er sú eina sinnar tegundar hér- lendis. Langt norður í tangfi NORÐLÆGA borgin Helsinki er einhver suðrænasta borg Norðurlanda, þar sem flestir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Fyrir nú utan að Helsinki er líklega með skemmtilegri borgum sem hægt er að heimsækja, einkum á sumrin. Hún er ein af þessum borgum sem hægt er að ganga um daga langa - til þess er hún nógu lítil - og alltaf ber eitthvað nýtt fyrir sjónir - til þess er hún nógu stór. ___________________- /llitalia 20 milljfinir með Aiitalia 1994 ÁRIÐ 1994 voru 4,7 milljónir mál- tíða etnar um borð hjá Alitalia, far- þegar drukku 103 þúsund lítra af mjólk, 15 þús. kg af reyktum laxi og 2.500 kg af humri og 270 þús. kg af brauði. Með þessu skoluðu farþegar niður 3,7 milljónum flaskna af víni ‘A og þurrkuðu sér um munninn með 53 milljónum pappírsþurrkna. Farþegar notuðu 2,3 milljónir af tepokum og 1,5 milljón flöskur af vatni. Þessar upplýsingar koma fram í fréttabréfi Alitalia fyrir sl. ár. Þá er einnig tekið fram að 18.676 starfsmenn væru hjá fyrirtækinu þar af 1.754 flugmenn, stundvísi félagsins var 85,3% og flogið var til 28 staða innan Ítalíu og 117 utan landsins. Með félaginu flugu 20.312.554 farþegar. ■ Hondaverksmiðja í Víetnam JAPANSKA fyrirtækið Honda áformar að byggja mótorhjólaverk- smiðju í norðurhluta Víetnam og "■ heíjast framkvæmdir innan tíðar. Honda mun eiga 70% í verksmiðj- unni og áformað er að fyrstu hjólin verði komin á markað eftir tvö ár. Án efa mælist þetta vel fyrir meðal Víetnama enda eru mótorhjól þau farartæki sem menn sækjast hvað mest eftir þar í landi og Japan- ir hugsa sér því gott til glóðarinnar að ná góðri markaðshlutdeild. ■ Land Ferkílómetrar Alsir 2.381.741 Angóla 1.246.700 Bahamaeyjar 13.395 Bahrein 622 Belize 22.965 Búrma 670.552 Djibuti 23.200 Ekvador 283.561 Egyptaland 997.739 Ghana 238.537 Guadeloupe 1.779 Hondúras 112.088 Indónesia 2.042.012 Kína 9.590.961 Kúba 114.524 Líbýa 1.755.500 Panama 77.082 Senegal 190.192 Singapúr 581 Súdan 2.505.813 Súrinam 163.000 Swaziland 17.363 Tógó 156.785 FYRIR utan það hvað borgin er hrein og falleg, skartar hún ótöluleg- um fjölda fallegra bygginga og má þar nefna nýja Óperuhúsið, Finnlan- diahúsið, að ógleymdu Þingtorginu í nýklassískum stíl, þar sem hin fagra lúterska dómkirkja, trónir hæst. Ólympíutuminn handan götunnar frá Óperuhúsinu segir sitt um áherslur í finnsku þjóðlífi, þar sem listin er jafnháttskrifuð og íþróttirnar. Það var árið 1952 sem Olympíuleikamir voru haldnir í Helsinki. Hefðu átt að vera átta árum áður en þá var seinni heimsstyrjöldin í algleymingi. En svo fór að þeir fengu sína Ólympíuleika og þeim fylgdi ný inn- rás: Coca cola innrásin mikla. Finnar sem áttu sína afreksmenn töldu sig í ágætis sambandi við umheiminn þótt land þeirra væri í útjaðri Evr- ópu, höfðu ekki séð ástæðu til að flytja inn þennan mikla menningar- drykk. Hollenskt fyrirtæki ákvað að gera það fyrir þá og sendi inn 750.000 flöskur af Coca cola í tilefni af leikunum. Og þar með varð ekki aftur snúið. Helsinki er umkringd sjó á þijá vegu: Sá fjórði er leiðin inn til lands- ins. En fyrir bragðið er hægt að aka meðfram strandlínunni og lesa sögu borgarinnar úr því sem fyrir augu ber. Þar má sjá hverfi í rússneskum stíl frá seinustu öld, önnur í Jug- endstíl, aðallega við aðalhöfnina, hefðbundin skandinavísk hverfi og öll hafa átt sitt tímabil, sem segja til um hver stjórnaði landinu hve- nær. Um það bera rússneskur keisa- rastíll og sænskur hermagarðsstíll glöggt vitni. Finnland var eilíft bit- bein Rússa og Svía allt til 1917, þegar Finnar lýstu yfir sjálfstæði Iandsins. Markaðslíf og hönnun En svo komu finnsku arkitektarn- ir og byggingar þeirra líkjast sagn- fræðinni fremur lítið. Þær eru stíl- hreinar og geta oft virst kaldar þar sem Finnar kjósa helst að nota þá steina sem þeirra eigin náttúra skart- ar, til að ákveða liti og útlit bygg- inga sinna. Hvítt, grátt, gráblátt, svart og ryðrautt eru litir sem leika á móti vötnunum bláu og hinu auð- uga græna gróðurlífi Helsinki. UV. ***** ** SÆLKERAMAT er hvarvetna að fá. í borginni eru tveir bráðskemmti- legir markaðir. Annar þeirra er list- markaður niðri við höfnina, þar sem feijan til listaeyjunnar Suomenlinna leggur að og gefur þar að líta fatn- að, skartgripi, ieirlist, glerlist, trélist og hvaðeina frá ungum hönnuðum og listamönnum sem eru að byija að koma sér á framfæri, auk þess

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.