Morgunblaðið - 06.10.1995, Side 1

Morgunblaðið - 06.10.1995, Side 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓDUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • Prentsmiðja Morgunblaðsins Föstudagur 6. október 1995 Blað D Bylting f baðherbergi ÞEGAR breytingar innanhúss standa fyrir dyrum hættir húseigendum og hönnuðum til að hugsa eftir hefðbundnum línum, segir Sigurður Grétar Guðmundsson. Skýrir hann frá hugmyndum um endurnýj- un og nánast byltingu./ 27 ► Auðveldari útivera ÁTAK hefur staðið yfir í Reykjavík í aðbúnaði gang- andi sem og hjólandi fólks og þeirra sem eru hreyfihamlað- ir. Bjarni Ólafsson greinir nánar frá nokkrum göngu- og hjólaleiðum sem auðveldar alla útiveru./ 4 ► juzir h'“~,í/,* U T T E K T Hafa byggt 100 Perma- form-íbúðir ASÍÐUSTU tveimur árum hefur bygginga- fyrirtækið Ármannsfell hf. byggt og selt 100 Permaform-íbúðir í Reykjavík og Kópavogi og var 100. íbúð- in afhent síðasta föstudag. Björg Páisdóttir tók þá við lyklum og gjafabréfi að upp- hæð kr. 100.000 krónur frá Hauki Magnússyni fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins. Þá hefur fyrirtækið byrjað framkvæmdir við næsta bygg- ingaráfanga, 24 íbúðir við Berjarima í Grafarvogi. Permaform-íbúðirnar eru byggðar eftir norskri fyrir- mynd og afhendir Ármanns- fell hf. þær fullbúnar. Fyrir- tækið rekur eigið verkstæði þar sem smíðaðar eru innrétt- ingar fyrir íbúðirnar en það annast einnig smíði á öðrum innréttingum og eru þær seld- ar í verslun fyrirtækisins við Funahöfða í Reykjavfk. Verð á tveggja herbergja 66 fer- metra íbúð hjá Ármannsfelli hf. er tæpar 5,8 miHjónir króna og tæpar 6,8 milljónir á þriggja herbergja 86 fermetra íbúð. Haukur segir að algeng mánaðarleg greiðslubyrði lána íyrir þessar íbúðir sé kringum 30 þúsund krónur. Flestir fjármagna kaupin með hús- bréfum auk eigin framlags en Ármannsfell hf. getur einnig haft milligöngu um útvegun á allt að einnar milljón króna láni til 20 ára./ 16 ► Obreytt vísitala byggingakostnaðar samsvarar 0,6% ársverðbólgu VÍSITALA byggingakostnaðar eftir verðlagi um miðjan septem- ber hefur verið reiknuð út og reyndist hún vera 204,6 stig og er hin sama og fyrir ágústmánuð. Undanfama þrjá mánuði hefur vísitala byggingakostnaðar hækk- að um 0,1% en það jafngildir 0,6% verðbólgu á ári. Hagstofa íslands reiknar út vísi- tölu byggingakostnaðar eftir verð- lagi um miðjan niánuð. Hún hefur hækkað mjög lítið á þessu ári, um 0,1 til 0,3% milli mánaða, nema frá febrúar til mars þegar hækkunin var 1,5%. Væri slík hækkun milli allra mánuða ársins myndi það þýða alls 19,6% hækkun. Hækkun- in í mars skýrist einkum af þeim launahækkunum sem samið var um í febrúar en um helmingur vísi- tölunnar byggist á beinum og óbeinum launum en annað ræðst meðal annars af efniskostnaði og fleiru. Lítið hefur hins vegar verið um launahækkanir á síðari hluta ársins og því hefur vísitalan aðeins hækkað úr 203 stigum í mars og í 204,6 stig í september. Sé litið á þróun vísitölunnar yfir síðustu 12 mánuði hefur hún hækk- að um 3,2%. Allt árið 1993 hækkaði vísitalan um 2,2% og varð mest hækkún í júlí og ágúst þegar hún hækkaði um 1,3 og 1,2% en aðra mánuði var hækkunin aðeins 0,1 til 0,5%. Á síðasta ári hækkaði vísital- an um 2,5% og hækkaði einungis um 0,1 til 0,5% milli mánuöa, þá mánuði sem hún breyttist á annað borð. Breytingar á vísitölu £t byggingarkostnaðar frá Umreiknaðar til árshækkunar m.v. hækkun vísitölunnar: Síðasta mánuð, síðustu 3 mán. og síðustu 12 mán. ALVÍB: Eini séreignarsjóðurinn sem tryggir lífeyri til æviloka Nú er kominn út nýr bæklingur um ALVÍB meö góðum fréttum um lífeyrismál. t honum er aö finna upplýsingar um nvernig tryggja má tjárhagslegt öryggi alla ævina með því aö greiða i ALVÍB. Bæklingurinn liggur frammi í afgreiöslum VÍB, Tryggingamiöstöðvarinnar og Sjóvá-Almennra. FORYSTA í FJÁRMÁLUM! , VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR lSLANDSBANKA HF. • Aðili að Verðbréfaþingi Islands • Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 560-8900.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.