Morgunblaðið - 06.10.1995, Side 2
2 D FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Fasteigna-
salan
Hátún
skiptir um
eigendur
EIGEINDASKIPTI hafa orðið á
fasteignasölunni Hátúni í Reykja-
vík en í síðasta mánuði keypti hana
Lárus H. Lárusson. Lárus hefur
starfað við fasteignasölu undanfar-
in ár og situr nú námskeið til að
öðlast löggildingu til að annast
fasteigna- og skipasölu.
Fasteignasalan Hátún stendur á
gömlum merg, var stofnuð 14. júlí
1966 af þeim Hilmari Valdimars-
syni og Jóni Bjarnasyni hrl. Fast-
eignasalan var lengi til húsa við
Hátún 4A en fyrir um það bil ára-
tug flutti hún sig um set og er nú
staðsett að Suðurlandsbraut 10 í
Reykjavík, sama húsi og Blóma-
stofa Friðfmns. Auk Lárusar starfa
við söluna þeir Brynjar Fransson
löggiltur fasteignasali og Hilmar,
fyrrverandi eigandi sem starfað
hefur að fasteignaviðskiptum í 35
ár. Lárus segist stefna að því í
framtíðinni að allir sölumenn séu
jafnan löggildir fasteignasalar,
enda sé best að sami aðili geti
annast viðskiptavininn frá upphafi
til enda.
Undanfarið hefur verið unnið að
breytingum á Hátúni, tölvukostur
endurbættur og hannað nýtt útlit
auglýsinga. Lárus segist bjartsýnn
á framtíðina, hann taki við góðu
búi af Hilmari. Hann ætlar þó að
auka umsvif fyrirtækisins nokkuð
en segist vanta eignir á skrá en
það komi auðvitað með tímanum.
NÝR eigandi fasteignasölunn-
ar Hátúns er Lárus H. Lárus-
son en samstarfsmenn hans
eru Hilmar Valdimarsson
fyrri eigandi sem starfað hef-
ur að fasteignasölu i áratugi
og Brynjar Fransson iöggiltur
fasteignasali.
MorgunDiaoio/Ain vigiusson
GAMLA verbúðin og verslunarhúsið á leið suður í Reykjahverfi.
Húsá
Laxamýri. Morgunbiaðið.
Gamalt hús var flutt í heilu lagi frá
Húsavík og suður í Reykjahverfi
með gámaflutningabíl frá Skipaaf-
greiðslu Húsavíkur um helgina sem
getur talist nýtískuleg tækni við
flutninga sem þessa. Þar var húsið
sett á nýjan grunn í landi Stekkjar-
holts sem er 21 ha lands út úr jörð-
inni Heiðarbót.
Það voru Örlygur Hnefill Jónsson
lögfræðingur og kona hans Valgerð-
ur Gunnarsdóttir sem stóðu að þess-
um flutningum en þau hafa fest
kaup á jarðarpartinum sem áður var
eign Reykjahrepps. Þar hyggjast
þau hafa sumarbúsetu auk þess að
stunda skógrækt o.fl.
Húsið er upprunnið í Flatey á
Skjálfanda, en þar var það reist sem
verslunarhús 1904 á vegum 0rum
og Wulff fyrir frumkvæði Jónasar
Jónssonar oddvita í Útbæ, sem var
langafi Örlygs.
Afí hans, Siguijón Jónsson, tók
við verslunarstjórn 1920 og varð
þá húsið eign Guðjohnsensverslunar
um tima eða þar til 1937 að Sigur-
jón keypti húsið. Tók hann húsið
niður og flutti hann það með sér til
Húsavíkur 1944 og notaði sem ver-
búð um árabil.
Fyrir tveimur árum keypti Örlyg-
ur húsið með það að markmiði að
bjarga því frá glötun. Saga þess er
að mörgu leyti merkileg og nú bíða
þess nýir tímar í allt öðru umhverfí
en Flatey og Húsavík forðum.
faraldsfæti
HÚSIÐ komið á áfangastað. Örlygur Hnefill með syni sína
Gunnar Hnefil t.v. og Orlyg Hnefil t.h.
Einbýlishús við Nýiendugötu
TIL SÖLU er hjá fasteignasölunni
Hóli húseignin Nýlendugata 45 í
Reykjavík. Húsið er timburhús,
byggt 1938 og stendur á steypt-
um kjallara. Að sögn Ásmundar
Skeggjasonar hjá Hóli skiptist
einbýlishús þetta í kjallara, hséð
og ris.
„Húsið er 163,2 fermetrar auk
tuttugu fermetra bílskúrs, sem
er nýbyggður," sagði Ásmundur.
„Sérinngangur er í kjallarann og
mætti þar útbúa þriggja her-
bergja íbúð. Gengt er á milli
hæða og eru í kjallaranum þijú
svefnherbergi, stórt baðherbergi,
forstofa og hol. Á aðalhæðinni er
flísalögð forstofa, hol, snyrting,
stofa, borðstofa og eldhús. Timb-
urverönd mót suðri í fallega rækt-
uðum garði er út af stofu. í risi
eru þijú svefnherbergi í dag og
möguleiki er á fjórða svefnher-
berginu.
Hús þetta er allt endurnýjað,
m.a. er nýleg klæðning úr báru-
járni utan á því. Nýtt gler og
nýir gluggar hafa verið sett í
húsið, einnig er búið að endurnýja
raflagnir og pípulagnir. Stofurnar
á aðalhæðinni eru með parketi á
gólfum og klæddar panelvið á
veggjum og lofti. Lóðin fyrir utan
húsið er afgirt, hellulögð inn-
keyrslan er með hitalögnum.
Hús þetta var flutt á Nýlendu-
götuna árið 1938, áður stóð það
niðri í Daníelsslipp við Bakkastíg.
Það var upphaflega ein hæð, en
skipstjórinn sem flutti húsið á
Nýlendugötuna lét steypa undir
það kjallara, hækka risið og
byggja við húsið. Vélsmiðjan Héð-
inn átti húsið um tíma en seldi
það Valdemar Eiríkssyni árið
1983. Valdemar klæddi húsið og
einangraði það utan og setti nýja
klæðningu að innan. Auk þess lét
hann setja kvist á risið og byggði
bílskúr. Arkitekt þessara breyt-
inga er Leifur Blumenstein húsa-
fræðingur.“
VIÐ NÝLENDUGÖTU er til sölu endurnýjað 163
fermetra timburhús á steyptum kjallara.
Húsnæðisstofnun
Erindi um
aðgerðir í
húsnæðis-
málumá
ársfundi
ÁRSFUNDUR Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins verður haldinn í
Reykjavík næstkomandi þriðju-
dag Í0. október og þar mun Há-
kon Hákonarson formaður stjórn-
arinnar í upphafi segja frá mark-
miðum og sýn nýrrar stjórnar
stofnunarinnar. Þá mun Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra gera
grein fyrir stefnu og væntanleg-
um aðgerðum ríkisstjórnarinnar í
húsnæðismálum á komandi vetri.
Ársfundurinn hefst kl. 15 og
verður haldinn að Hótel Loftleið-
um, í efri þingsal og er gert ráð
fyrir að honum ljúki nokkru eftir
klukkan 18. Auk fyrrgreindra
erinda mun Sigurður E. Guð-
mundsson framkvæmdastjóri
Húsnæðisstofnunar fara yfir
rekstur stofnunarinnar síðasta ár
og horfur framundan. Stefán
Thors skipulagsstjóri ríkisins
greinir frá framtíðaráætlun í
skipulagsmálum.
Fundinum lýkur síðan með
frumsýningu nýrrar myndar um
húsnæðismál á íslandi. Nefnist
myndin „Húsnæðisbyltingin" og
er framleidd í tilefni af 40 ára
afmæli stofnunarinnar 20. maí sl.
Fasteigna- sölur
í blabinu
í dag
Agnar Gústafsson bls. 4
Almenna fasteignasalan bls. 17
Ás bls. 27
Ásbyrgi bls. 25
Berg bis 24
Bifröst bis.26
Borgareign bls 13
Borgir bls. 5
Brú bls. 5
Eignamiðlun bls. 12 og 13
Eignasalan bls. 9 og 7
Fasteignamarkaður bls 11
Fasteignamiðlun bls. 28
Fasteignamiðstöðin bls. 7
Finnbogi Kristjánss. bls- 7
Fjárfesting bls. 20
Fold Éi bls. 21
Framtíðin bls. 6
Gimli bl 19
Hátún bls. 5
Hóll bls. 8 og 9
Hraunhamar bls. 18
Húsakaup bls 22
Húsvangur bls. 15
Kjöreign bls. 10
Kjörbýli bls. 9
Laufás •' í bls. 28
Óðal bls. 4
Sef bls. 1 7
Skeifan bls. 14
Valhús bis. 6
Valhöll bls. 23
Þingholt bls. 3