Morgunblaðið - 11.11.1995, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Björn Blöndal
MARWAN Omat flugstjóri rétt fyrir brottför í gærmorgun.
Astand sem allir
flugstjórar óttast
Keflavík - „Þetta var skelfilegt
og örugglega ástand sem allir
flugstjórar óttast, en þetta fór
allt vel og ég er þakklátur öllum
sem að málinu komu á íslandi,"
sagði Marwan Omat, flugstjóri
jórdönsku breiðþotunnar, áður
en hann hélttil Bandaríkjanna
í gærmorgun.
Marwan sagði að þegar
svona ástand kæmi upp væri
farið eftir ákveðnum reglum
og þannig hefði viljað til að
næsti flugvöllur þegar hótunin
barst hefði verið í Keflavík. Sér
hefði fundist að fagmannlega
hefði verð staðið að málum og
hann hefði yfir engu að kvarta
í þeim efnum. Þetta hefði orðið
til þess að kveikja áhuga sinn
á íslandi og hann vonaðist til
að géta heimsótt landið aftur
við aðrar aðstæður. „Ég er vita-
skuld mjög ánægð með að þetta
skyldi allt hafa farið vel, en nótt-
in í flugstöðinni var hræðileg.
Við urðum flest að liggja á gólf-
inu og mér varð ekki svefnsamt.
Einnig fannst mér kalt,“ sagði
Sandra Dabaja sem er bandarísk
en gift Jórdana og var á heim-
leið.
„Þegar við lögðum af stað frá
Amsterdam átti ég ekki von á
því að hafa viðdvöl á íslandi og
ég vissi og veit reyndar lítið sem
ekkert um þessa eyju í norðri,"
sagði Mohammad Ishwait sem
er frá Jórdaníu. „Þetta var neyð-
arástand og nóttin hér í flugstöð-
inni var ekki skemmtileg. Við
reyndum þó að sjá björtu hliðarn-
ar og ég held að við höfum bara
verið heppin að lenda hér,“ sagði
Mohammad Ishwait.
Sprengjuhótun í jórdanskri breiðþotu
Vildi afstýra heim-
sókn tengdamóður
Bandarísk yfirvöld setja hjón í gæsluvarðhald fyrir gabb
JÓRDANSKA breiðþotan, sem lenti
á Keflavíkurflugvelli á fimmtudags-
kvöld eftir að tilkynning barst um
sprengju um borð, hélt af landi brott
í gærmorgun ásamt áhöfn og öllum
farþegum. Tilkynningin reyndist
gabb. Samkvæmt upplýsingum flug-
félagsins, Royal Jordanian Airlines
(RJA), var þama að verki kona í
Chicago, sem ekki vildi fá tengda-
móður sína í heimsókn.
Morgunblaðið aflaði sér þeirra
upplýsinga frá Bandarísku alríkis-
lögreglunni(FBI) í gær, að stofnun-
inni hefði verið gerð grein fyrir
málinu og búast mætti við því að
kæra yrði lögð fram á konuna og
hugsanlega mann hennar einnig, í
næstu viku.
Hussein Debbas, framkvæmda-
stjóri jórdanska flugfélagsins í New
York, sagði í gær að nokkur vissa
hefði ríkt um að ekki væri sprengja
I vélinni, en öruggara hefði verið
talið að lenda á miðri leið.
„í gær hringdi kona á skrifstofu
okkar í Chicago og nafngreindi
kvenmann um borð í flugi 263 frá
Amsterdam til Chicago, sem væri
með sprengju," sagði Debbas. „Þess-
um skilaboðum var komið til stjórn-
stöðvar okkar í Amman, sem lét
kalla vélina upp yfir Atlantshafi.
Flugstjórinn fór og talaði við konuna
og samferðafólk hennar og fannst
eftir það augljóst að um gabb væri
að ræða. Hins vegar var ekki hægt
að virða þetta að vettugi og því varð
að lenda vélinni."
Að sögn Debbas barst önnur upp-
hringing síðar í gær og var þar kom-
in systir tengdadótturinnar.
Baðst afsökunar
„Hún sagði að systir sín væri
eyðilögð og bæðist afsökunar," sagði
Debbas. „Hún hefði ekki viljað fá
tengdamóður sína í heimsókn og
gripið til þessa bragðs til að hefta
för hennar."
Að sögn Debbasar handtók
bandaríska alríkislögreglan, FBI,
konuna, sem tilkynnti að sprengja
væri um borð í vélinni, í gærkvöldi.
Hún væri enn í haldi FBI, sennilega
ásamt manni sínum. Debbas sagði
að Royal Jordanian hygðist ákæra
og fara fram á þyngstu refsingu.
Hann kvað tjón flugfélagsins mikið.
Kostnaður væri af því að þurfa að
lenda á miðri leið og einnig hefði
þetta komið illa niður á farþegum.
Debbas sagði að RJA legði mikla
áherslu á öryggisgæslu og allur far-
angur væri rækilega skoðaður. „Við
vissum að ekki væri sprengja í vél-
inni, en tókum enga áhættu," sagði
Debbas.
Þetta var í annað skipti á tveimur
dögum, sem lenda varð vél frá RJA
vegna sprengjutilkynningar. Á
þriðjudag var vél á leið frá Amster-
dam til Amman lent í Vínarborg.
Debbas sagði að þessir atburðir
kæmu sér illa. Öryggisgæsla hefði
verið hert hjá flugfélaginu og allt
væri gert til þess að tryggja öryggi.
Þorgeir Þorsteinsson, sýslumaður
á Keflavíkurflugvelli, sagði að hringt
hefði verið á flugvöllinn í Chicago
síðdegis í gær, nafngreindir þrír far-
þegar Lockheed Tristar-breiðþotu
konunglega jórdanska flugfélagsins
og sagt að þeir væru með sprengju
um borð. „Flugmaður breiðþotunnar
ákvað að lenda á næsta flugvelli,
sem var Keflavíkurflugvöllur. Við
yfirheyrðum farþegana þtjá, sem
voru ung hjón í brúðkaupsferð og
móðir brúðarinnar, en þetta fólk var
nú síst líklegt til illvirkja. Það kom
enda í ljós að fólkið var alsaklaust,
en einhver hefur viljað baka því og
öðrum farþegum þotunnar vandræði
með tilkynningunni. Fólkið sagði
hins vegar að það vissi ekki til að
það ætti neina óvildarmenn."
Leituðu af sér allan grun
Þorgeir sagði að lögreglan hefði
leitað af sér allan grun í þotunni og
farangur allra farþega verið skoðað-
ur nákvæmlega. „Eftir svo ítarlega
leit voru menn vissir um að engin
sprengja leyndist í þotunni og því
hélt hún af landi brott um kl. 9.30
á föstudagsmorgun. Allir farþegar
voru um borð, en töfin hafði að sjálf-
sögðu bakað þeim ómæld óþægindi.
Þá hefur gabb af þessu tagi mikinn
kostnað í för með sér, til dæmis
fyrir flugfélagið sjálft, embætti
sýslrmannsins á Keflavíkurflugvelli
og fleiri sem að því koma,“ sagði
Þorgeir Þorsteinsson.
Vélin, sem lenti á Keflavíkurflug-
velli, tekur 240 farþega. Um borð
voru 203. Flugfélagið er með 18
farþegavélar og flýgur til 50 staða
um allan heim.
Stól kastað af svölum á Hótel íslandi í höfuð stúlku á dansgólfinu
Alblóðug á
skammri stundu
Morgunblaðið/Ásdís
ÁGÚSTA Björk Haarde var að jafna sig í gær eftir höfuðhöggið
á fimmtudagskvöld.
RLR óskar eftir
þinghaldi fyrir
luktum dyrum
„ÉG FÉKK allt í einu mjög þungt
högg á höfuðið. Svo sá ég stólinn
skella á dansgólfinu. Ég lyfti hendi
upp að höfði og þegar ég leit á hana
var hún blóðug. Það blæddi svo mik-
ið að ég varð öll alblóðug á skammri
stundu. Ég varð fljótt svo máttfarin
að það leið tvisvar sinnum yfir mig
á meðan ég beið eftir sjúkrabílnum,“
segir Ágústa Björk Haarde, 17 ára
menntaskólanemi. Hún fékk stól í
höfuðið á balli Menntaskólans í
Reykjavík á Hótel íslandi á flmmtu-
dagskvöld.
Stólnum kastaði piltur ofan af
svölum. Hálftíma síðar kastaði pilt-
urinn öðrum stól og lenti hann á
annarri stúlku, sem slasaðist minna.
Ágústa Björk fékk sex sentimetra
skurð á höfuðið eftir stólinn. Höggið
var þungt, því stóllinn vegur 5-6 kíló
og hann féll 5-6 metra niður á gólf-
ið. „Það fossblæddi og kunningjar
mínir þekktu mig ekki, því það sá
ekki í mig fyrir blóði,“ segir Ágústa
Björk. „Eg var rosalega hrædd, því
ég vissi ekki hvað meiðslin voru mik-
il.“ Á Borgarspítalanum kom í ljós
að slagæð í höfði Ágústu Bjarkar
hafði farið í sundur við höggið.
„Skurðinum var lokað með tíu spor-
um og ég fékk að fara heim snemma
um morguninn. Ég er ekki búin að
jafna mig til fulls, til dæmis leið yfir
mig eftir að ég kom heim.“
18 ára piltur játaði verknaðinn
Þegar Ágústa Björk varð fyrir
stólnum sást ekki hver hafði kastað
honum, en hálftíma síðar var öðrum
stól kastað niður á dansgólflð. Hann
skall á ungri stúlku og fékk hún einn-
ig skurð á höfuð. Meiðsli hennar
voru þó minni en Ágústu Bjarkar og
fékk hún að fara heim af slysadeild
eftir að gert hafði verið að meiðslum
hennar.
Þegar lögregla kom á staðinn í
síðara skipti var henni bent á 18 ára
ölvaðan pilt, en vitni kváðust hafa
séð hann kasta stólnum og eitt þeirra
kvaðst hafa séð hann kasta stólnum
fyrr um kvöldið.
Pilturinn, sem ekki er nemandi í
MR, var fluttur á lögreglustöðina,
þar sem hann svaf úr sér. Við yfir-
heyrslur í gær viðurkenndi hann
verknaðinn, en sagði að vegna ölvun-
ar hefði hann ekki gert sér grein
fyrir alvöru málsins.
Áfengisbann á skólaböllum
Ágústa Björk segir að þessi at-
burður sé ekki til marks um almenna
hegðun á menntaskólaböllum. Ómar
Smári Ármannsson, aðstoðaryfírlög-
regluþjónn, segir að skilyrði fyrir
slíku balli sé m.a. áfengisbann,
ströng gæsla með því að áfengi sé
ekki haft um hönd og loks sé ætlast
til að aðeins nemendum skólans séu
seldir miðar. „Ég hef ekki séð skýrslu
eftirlitsmanns um þennan dansleik,
en þó er ljóst að talsverð ölvun var
á staðnum."
í ERINDI Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins til Héraðsdóms Reykjavíkur, um
að tekin verði skýrsla af Agnesi
Bragadóttur, blaðamanni Morgun-
blaðsins, vegna greinaflokks sem hún
skrifaði í mars sl. um málefni Sam-
bandsins, er þess óskað að þinghald-
ið verði haldið fyrir luktum dyrum.
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.,
sem ritstjórn Morgunblaðsins hefur
falið að gæta hagsmuna sinna í þessu
máli, segist ekki sjá neina ástæðu
til þess að þinghaldið verði haldið
fyrir luktum dyrum.
„ÉG TEK eindregið undir það með
Þórði Friðjónssyni, forstjóra Þjóð-
hagsstofnunar, að stækkun álvers
gerir meiri kröfur til okkar í ríkis-
fjármálunum en ella. Ef til vill þarf
að binda fastari hnúta til þess að
markmiðið rakni ekki upp,“ segir
Friðrik Sophusson íjármálaráðherra.
„Frá mínum sjónarhóli séð er
bráðnauðsynlegt að ná hallanum
niður, þegar nú liggur fyrir spá um
að hagvöxtur hér á landi verði 3%
þijú ár í röð,“ segir Friðrik og bend-
„Meginregla laganna um meðferð
opinberra mála, er sú að þinghöld
skuli háð í heyranda hljóði, og það
þurfa auðvitað að vera gild rök og
skýr lagaheimild til þess að frá þeirri
meginreglu sé vikið. Ákvæðið sem
rannsóknarlögreglustjóri vitnar í
kveður á um að dómari megi ákveða
að dómþing skuli haldið fyrir luktum
dyrum, til hlífðar vitnum, brotaþolum
eða öðrum sem málið varðar, og ég
fæ ekki með nokkru móti séð að
þetta ákvæði réttlæti lokun á þessu
þinghaldi," sagði Jón Steinar.
ir jafnframt á að menn megi ekki
gleyma því að í þjóðhagsspá fyrir
næsta ár, sé byggt á nokkuð veikum
forsendum varðandi áfrámhald
Smuguveiðanna.
„Mér fínnst einnig koma til greina
að það verði kannað sérstaklega
hvort hægt sé að fresta framkvæmd-
um opinberra aðila til áranna 1998
og 1999, til þess að ekki komi fram
óæskilegur slaki þegar framkvæmd-
um við álver og tilheyrandi virkjanir
lýkur,“ segir fjármálaráðherra.
Fjármálaráðherra um áhrif stækkunar álvers
Frestun opin-
berra framkvæmda
verði könnuð
t
l
l
X
X
\
\
i
L
1
I
I
I
l
:
I
I
í
I
I