Morgunblaðið - 11.11.1995, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 9
FRÉTTIR
Unnið að stofnun lýðskóla
ÁKVEÐIÐ hefur verið að stofna
félag um lýðskóla á íslandi og eru
áform uppi um að hefja slíkt starf
hið fyrsta, að sögn Odds Alberts-
sonar sem er í forsvari fyrir hóp
áhugamanna um þennan málstað.
í tilraunaskyni á að efna til þriggja
mánaða námskeiðs sem hefst í febr-
úarmánuði nk. og segir Oddur að
leitað verði eftir viðurkenningu
menntamálaráðuneytisins á því.
„Það er mikill hugur í mér og
nokkrum tugum öðrum, sem vilja
standa að stofnun lýðskóla. Fyrir
mánuði var haldið málþing í Nor-
ræna húsinu þar sem m.a. var boð-
ið fulltrúum menntamálanefndar
Alþingis, menntamálaráðuneytis-
ins, atvinnumálaskrifstofu Reykja-
víkur og samtaka á borð við Heim-
ili og skóli.
Fólk
Prestur í
Svíþjóð
•SERA Þórhallur Heimisson
var 6. nóvember sl. kosinn til
prestþjónustu í Gryta pastorat í
Uppsala stifti í Svíþjóð.
Undanfarin ár
hefur Þórhallur
stundað fram-
haldsnám í guð-
fræði við Háskól-
ann í Uppsölum,
nánar tiltekið í
almennum trúar-
bragðafræðum.
Samtímis námi hefur hann þjónað
sem prestur í Sænsku kirkjunni í
einum af nágrannabæjum Stokk-
hólms, þar sem heitir í Marsta.
Áður en sr. Þórhallur fór utan,
starfaði hann sem framkvæmda-
stjóri Æskulýðssambands kirkj-
unnar í Reykjavíkurprófastsdæm-
um, en prestvígslu hlaut hanii
vorið 1989 til Langholtssafnaðar
í Reykjavík, þar sem hann þjónaði
í eitt ár í fjarveru sóknarprests.
Hár-
greiðslu-
sýning á
morgun
SÝNING hárgreiðslumeistara í Int-
er Coiffure-samtökunum verður á
Hótel íslandi á morgun, sunnudag,
en ekki í dag, eins og mishermt var
í blaðinu í gær.
Ágóði af aðgangseyri rennur til
Barnaspítala Hringsins, en alls gefa
tæplega 100 manns vinnu sína við
sýninguna. Auk þess sem sýnd
verður haust- og vetrartíska í hár-
greiðslu, sýna fatahönnuðirnir
Kristín Þórólfsdóttir og Margrét
Þórðardóttir hönnun sína. Ennfrem-
ur sýna Jón Pétur og Kara dans.
Sýningin hefst kl. 16 og verða að-
göngumiðar seldir í miðasölu Hót-
els Islands á morgun, sunnudag.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
smáskór
Fóðraðir barnaskór.
Sutrðir 19-23, prír litir.
VerS 3.790.
Á þessu þingi voru lagðar fram
allskýrar myndir af stöðu mála,
þ.e. að ákveðinn hluti íslendinga
getur ekki nýtt sér núverandi skóla-
kerfi á sama tíma og á öðrum Norð-
urlöndum er að finna starfsemi sem
svarar þörfum þessa fólks að hluta
eða öllu leyti,“ segir Oddur.
Leitað til ÍTR
Stefnt er að því að á fyrsta nám-
skeiðinu verði leitast við að mæta
þörfum atvinnulausra unglinga á
aldrinum 16-19 ára. Gert er ráð
fýrir að einn aðalkennari verði með
hép þátttakenda en fái til liðs við
sig ýmsa utanaðkomandi aðila til
að fjalla um þau málefni sem á
dagskrá verða.
Leitað hefur verið á náðir íþrótta-
og tómstundaráðs Reykjavíkurborg-
ÍSLENSKA sendiráðið í Washing-
ton hefur ráðið sérstakan ráðgjafa
um samskipti íslands og Bandaríkj-
anna. Ráðgjafinn heitir Stephen J.
Boynton og er lögfræðingur í Was-
hington.
Einar Benediktsson, sendiherra
íslands í Bandaríkjunum, sagði al-
gengt að sendiráð notuðu ráðgjafa,
en kvaðst ekki vita til þess að ís-
lenska sendiráðið hefði áður keypt
sér ráðgjöf af þessu tagi og það
hefði ekki verið gert þau tvö ár,
sem hann hefði verið sendiherra.
Óákveðið um áframhald
Hann sagði að Boynton hefði
verið ráðinn í haust. „Það hefur
ekkert verið ákveðið um það hvort
hann verði áfram,“ bætti Einar við.
Hann kvað ekki hafa verið leitað
til Boyntons til að hafa áhrif eða
gefa ráð í einstökum málaflokkum,
heldur væri þáttur hans almenns
eðlis.
ar um fjárhagslegan stuðning við
rekstur og launakostnað við nám-
skeiðið, að sögn Odds. Hann segir
fulltrúa ÍTR jákvæða. og að þeir
muni kynna hugmyndir um lýðskóla
fyrir stjómendum borgarinnar.
Verði af stuðningi fái lýðskólinn
aðsetur i Norræna húsinu næsta vor
en hann geri sér síðan vonir um eig-
ið húsnæði í kjölfarið.
Til að kynna fyrirhugaða stofnun
félags um lýðskóla verður efnt til
dagskrár í Norræna húsinu í dag,
laugardag kl. 13,30, þar sem m.a.
fyrirlesarar og tónlistarmenn koma
fram. Oddur segir það markmið
aðstandenda að um 100 ungmenni
á aldrinum 16-25 ára komi til skrafs
og skemmtunar um helgina. Stofn-
fundur lýðskólans verður í Norræna
húsinu kl. 13,30 sunnudag.
Það er alsiða að sendiráð og
þrýstihópar í Washington, höfuð-
borg Bandaríkjanna, ráði sér ráð-
gjafa til þess að hafa áhrif og
þrýsta á bandarísk stjórnvöld og
þing.
Sem dæmi má taka að stjórn
Kúveit leitaði til ráðgjafarfyrirtæk-
is til þess að telja Bandaríkjastjórn
á að hrekja íraka brott frá Kúveit
og Jonas Savimbi, leiðtogi skærul-
iðahreyfingarinnar UNITA í An-
góla, átti ekki upp á pallborðið hjá
ráðamönnum í Washington fyrr en
hann hafði ráðið virt kynningarfyr-
irtæki, sem tryggði honum áheyrn
Bandaríkjaforseta.
Bandarísk lög kveða á um birt-
ingu þess hver rekur erindi hvers
í Washington og samkvæmt til-
kynningu var Boynton skráður 10.
október og fær eitt þúsund Banda-
ríkjadollara (um 65 þúsund krónur)
greidda mánaðarlega og útlagðan
kostnað að auki.
Sendiráðið í Washing-
ton ræður ráðgjafa
ULY CF FRANCg3
Satín-brjóstahaldarar á kr. 1.650.
Litir: Hvítt, svart og Ivory.
Stœrðir: 34—42 B, C, D og DD.
Buxur í stíl kr. 595.
Fallegar gjafapakkningar
efóskað er.
SHauýKZvep/Z, ó/Zt/■J- JZ //Z?
Næring og heilsa
David Calvillo gefur viðskiptavinum
góð ráð um vítamín og notkun
lækningajurta laugardag og sunnudag
____MaxMara
Glœsilegur vetrarfatnaður
Opið í dagfrá kl.12-15
____Mari_
Hverfisgötu 52-101 Reykjavík - s. 562-2862.
Nýjar húsgagnasendingar
Nýkomin eldhúsborö og stólar. Mikiö úrval.
Borö og 4 stólar Pisa-borð 120x80 stækkun 2x30
Aðeins kr. 29.900 allt settið.
Teg. Star Teg. Vega Teg. Optima
Stgr. 3.980 Stgr. 7.400 Stgr. 13.900
Mikið úrval af skrifborðsstólum. Margir litir.
Ath. mikið úrval af hjólaborðum.
Opið í dag til kl. 16 - sunnudag kl. 14-16
W
36 mán.
□□□□□□
HUSGAGNAVERSLUN
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100