Morgunblaðið - 11.11.1995, Síða 10

Morgunblaðið - 11.11.1995, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Glæsileg sýning TONLIST íslcnska ópcran MADAMA BUTTERFLY Eftir Giacomo Puccini. Einsöngvarar í aðalhlutverkum: Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Ólafur Árni Bjama- son, Bergþór Pálsson, Rannveig Fríða Bragadóttir, Sigurður Bjöm- son. Leikstjóri: Halldór E. Laxness. Hljómsveitarstjóri: Robin Stableton. Föstudagiu-10. nóvember. ÍTÖLSK óperusaga er merkileg, allt frá því að vera alls ráðandi um efni og tónstíl í nærri tvær aldir, svo algerlega, að jafnvel Mozart, með aðeins einni undantekningu, byggði sínar óperur á hefðbundnu ítölsku efni og tónstíl, sem stóð mjög nærri ítalskri óperusmíð, þó með þeim frávikum, að þær voru betur gerðar en flestar þær ítölsku. Meistari ítalskrar óperugerðar var án efa Verdi og það var býsna erf- itt að hugsa sér einhvetja þróun eða framhald af listsköpun þessa mikla meistara. Sú hugmyndafræði sem nefnd er „Verismo" og byggðist á því að taka til meðferðar samtíðarefni, var mikið til umræðu nokkru fyrir alda- mótin 1900 og eru óperumar Caval- leria rusticana og Pagliacci besta dæmi slíkrar raunsæisstefnu í ópemgerð. Þessi hugmyndafræði hafði áhrif á tónskáld eins og Verdi og þá ekki síður á Puccini, í verkum eins og Bohéme og Maddama Butt- erfly. Puccini leitaði sér fyrirmynda í tónstíl Debussys og frá Wagner notaði hann þá aðferð að láta ákveðin stef, persónutengd, birtast og einnig til að gefa tónlistinni ákveðna heildarskipan notar hann japönsk stef, sem hann mun hafa aflað sér með því að hlusta á vest- rænar upptökur af japanskri tón- list. Þá þykir hann hafa haft sér- lega sterka tilfinningu fyrir því leik- ræna og náði oft í tónsköpun sinni að skapa áhrifamikil og tilfinninga- þmngin augnablik. Þetta á ekki hvað síst við ópemna Maddama Butterfly, sem er sérkennileg túlk- un á þeirri tilfinningalegu sam- tvennd, sem er tryggð og sviksemi. Óperan Madama Butterfly er í raun verk um eina persónu, geiss- una Cio-Cio-San og þarf afburða söngkonu til að túlka þessa ógæfu- sömu en tryggu persónu, sem allt verkið snýst um. Ólöf Kolbrún Harðardóttir bætir þama heldur betur við sinn glæsilega feril sem ópemsöngkona og nær að túlka í söng og leik þessa hrekklausu og tryggu persónu og náði túlkun hennar og söngur hvað hæst í ar- íunni Un bel di vedremo, sem er frægasta aría verksins. Ólafur Árni Bjamason syngur hlutverk Pinkert- ons mjög vel og sérstaklega í ást- ardúettinum 0 quanto occhi fisi, sem hann og Ólöf syngja af glæsi- brag. Þeman Suzuki er sungin af Rannveigu Fríðu Bragadóttur, sem á sitt besta í blómadúettinum en Morgunblaðið/Kristinn ÓLAFUR Árni Bjarnason sem Pinkerton og Ólöf Kolbrún Harðardóttir sem Cio-Cio-San. einnig í þriðja þætti í samskiptum sínum við konsúlinn Sharpless, sem Bergþór Pálsson túlkar af einstakri næmi, sérstaklega þegar yfirlæti hans breytist í djúpstæða samúð með Butterfly og syni hennar, eftir að hafa reynt að segja henni sann- leikann um Pinkerton og lesa henni bréf sem hann ritaði honum. Hjúskaparmiðlarinn er sunginn af Sigurði Bjömssyni og nær hann að gæða hlutverkið gamansemi, sem þó hefði mátt vera svolítið grimmara, til að hægt væri að trúa á sterk viðbrögð Butterfly, er hún hótar að drepa hann. Loftur Erl- ingsson syngur Prinz Yamadori mjög vel, en þetta kátlega hlutverk er ekki viðamikið, svo lítið reyndi á þennan efnilega söngvara. Ásrún Davíðsdóttir er í hlutverki eigin- konu Pinkertons og Sigurður Skag- fjörð Steingrímsson fer með hlut- verk prestsins Bonze er þylur Butt- erfly bölbænir fyrir að hafna trú forfeðranna. Eiður Á Gunnarsson leikur keisarlegan fulltúa, er les upp giftingarskilmálann og löggildir giftingu Butterfly og Pinkertons. Allir gerðu sínu góð skil og sömu- leiðis kór ættmenna og vina og var innkoma geisanna t.d. mjög falleg. Uppfærslan í heild er glæsileg og mikil sigur fyrir íslensku óper- una og sérstaklega fyrir leikstjór- ann, Halldór E. Laxness, sem í fyrsta skipti stjórnar uppsetningu á ópem hjá ísl. óperunni. Leikræn skipan er að mörgu leyti sannfær- andi nema ef væri síðustu augna- blik ópemnnar, en þar er gert ráð fyrir að Pinkerton komi inn og kijúpi grátandi við dánarbeð Butt- erfly en Sharpless leiði drenginn burtu. Að láta Butterfly liggja eina og drenginn ekki virða hana viðlits, er að mati undirritaðs svolítið veik- ur endir. Um þetta atriði má deila, en samt sem áður var niðurlag óper- unnar mjög áhrifamikið. Sviðsmynd (J. Michael Deegan og Sarah G. Conly) og búningar (Hulda Kristín Magnúsdóttir) og lýsing (J.M. De- egan) fellur allt vel að. sýningunni, sem auðvitað byggist fyrst og síð- ast á flutningi tónlistarinnar, söng og ekki síst leik hljómsveitarinnar, sem var framfærður af öryggi und- ir stjórn Robins Stabletons. Uppfærsla íslensku ópemnnar á Madcina Butterfly er stór sigur fyrir Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og af öðrum ólöstuðum var Bergþór Pálsson sérlega trúverðugur sem Sharpless konsúll. Jón Ásgeirsson Dropinn sem fyllir mælinn Morgunblaðið/Kristinn ARNAR Jónsson og Guðrún S. Gísladóttir í hlutverkum sinum. lÆIKUSI Þ jóðleikhúsið GLERBROT Höfundur: Arthur Miller. Þýðing: Birgir Sig- urðssön. Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóttir. Leikmynd og búningan Sigmjón Jóhannsson. Lýsing: Páll Ragnarsson. Tónar og hljóð: Hjálmar H. Ragnarsson og Sveinn Kjartans- son. Leikarar: Amar Jónsson, Guðrún S. Gísla- dóttir, Helgi Skúlason, Li(ja Guðrún Þorvalds- dóttir, Ragnheiður Steindórsdóttir, Sigurður Siguijónsson. Föstudagur 10. nóvember. í GÆRKVÖLD var fmmsýnt í Þjóðleikhús- inu nýtt verk eftir bandaríska leikritahöfund- inn Árthur Miller. Það hlýtur að teljast til tíðinda að höfundur sem samdi sín mestu stórvirki á áratugnum eftir síðari heimsstyij- öldina skuli enn vera jafn fijór og skyldi. í þessu verki veltir Miller fyrir sér ýmsum spumingum tengdum því hvaða mynd ein- staklingurinn gerir sér af sjálfum sér auk pælinga um sjálfskennd hópsins. Þótt þessum spurningum sé ekki endilega svarað - enda ekki auðhlaupið að slíku - þá eru þessar vangaveltur fagmannlega skrifaðar inn í ein- falda föflu verksins. Verkið er hefðbundið að formi og sú saga sem er sögð á sviðinu gengur meistaralega upp. Þótt höfundur sæki efni sitt aftur í milli- stríðsárin er leikritið alls ekki gamaldags. Þessar spumingar, þótt þær séu í leikritinu einskorðaðar við ákveðna stund og stað í sögunni, eiga mikið erindi við okkur í dag. Ástæða þess að Miller velur sér þetta ákveðna sögusvið er án efa það að auk þess að gjör- þekkja það sjálfur þá getur hann gengið út frá því að áhorfendur viti hvernig sögunni vatt fram og hvort áhyggjur aðalpersónunnar séu ástæðulausar eða ekki. Auk þessa er söguþráðurinn nátengdur ákveðnum atriðum sem hafa verið mikið til umræðu á nýliðnum árum; þ.e. kúgun og ofbeldi innan hjónabands. Það er ekkert eins- dæmi að höfundar noti ótvíræðan kunnug- leika áhorfenda á þessu umræðuefni til að varpa nýju Ijósi á leikverk sem á að gerast fyrr á tímum. Nærtækt dæmi er leikritið „Þrek og tár“ sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Verk sem þetta, þar sem spunnið er úr hárfínum þráðum, þarf viðeigandi umgjörð. Á þessu er brotalöm. Hveiju atriði er markað rými af stórum og hvössum glerbrotum og leikaramir neyðast til að basla með.plastskil- rúmin þegar færa á þau til. Skilrúmin gegna einnig vissu hlutverki sem speglar en spegil- myndimar orka tvímælis þar sem þær hljóta að draga athygli áhorfenda frá því sem fram fer fremst á sviðinu. í texta verksins er sífellt vísað til þeirra atburða sem nafn leikritsins er dregið af.og skil milli atriða eru mörkuð með viðeigandi áhrifshljóðum og frekar illa hljóðrituðu semb- aispili. Það er því óþarfí að minna áhorfand- ann sífellt á þetta atriði með þessari ágengu sviðsmynd. Vera má að hugmyndin sé komin frá höfundi, en þá ber að athuga að nákvæm- ar sviðslýsingar hans eru einungis ætlaðar sem leiðbeiningar við uppsetningu en á ekki að taka sem fyrirskipanir. Annað atriði sem hefði mátt athuga betur eru húsgögnin sem valin voru. Það er ekki nokkur leið að leggja á það trúnað að rúmið sem gegnir svona stóru hlutverki hafi verið í notkun í tuttugu og fimm ár. Hiri húsgögn- in eru kostulegur samtíningur sem eru í æpandi ósamræmi við þá natni sem lögð er í búningaval og -hönnun. Ljósin gegndu ágætlega því hlutverki að afmarka rými. Þau fylgdu leikurum vel eftir og studdu rás at- burða og skil. Það sem gerir þessa sýningu jafn góða og raun ber vitni er leikurinn. Það er mikið gleði- efni að sjá þennan hóp leikara vera að kom- ast á miðjan aldur og til fulls þroska sem listamenn. Guðrún Gísladóttir er frábær í hlutverki Sylvíu. Það skiptir varla máli hvar borið er niður; framsögn, hreyfingar, augna- tillit, það er unun að horfa á slíkan leik. Arnar Jónsson á einnig stórleik sem Hy- man læknir. Textameðferð er öguð og sviðs- framkoma glæsileg. Ragnheiður Steindórs- dóttir nær að skapa mjög skemmtilega pers- ónu úr læknisfrúnni, sem er algjör andstæða flestra hinna persónanna, blátt áfram og líf- leg. Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir málar systur Sylvíu skírum og einföldum dráttum og nær með hnitmiðaðri tímasetningu að skapa hlát- ur þegar við á án þess að það komi niður á merkingu textans. Ákaflega vel unnið hlut- verk. Sigurður Siguijónsson átti í smávægileg- um erfiðleikum við að ná utan um textann, sem á stundum hljómar alltof bóklegur. Hann átti til að slá á léttari strengi i túlkun hlut- verksins en ástæða var til, en auðvitað áttu viðbrögð áhorfenda nokkra sök. á þessu. En eftir því sem leið á sýninguna sótti hann í sig veðrið og er ekki að efa að þessir vankant- ar slípast af á nokkrum sýningum. Áreynslu- leysi Helga Skúlasonar var í nokkurri and- stöðu við leikmáta hinna leikaranna en varla er hægt að setja út á einstök atriði í leik hans. Þá staðreynd að leikurinn er jafn heild- stæður og góður og raun ber vitni hlýtur að bera að þakka leikstjóranum, Þórhildi Þor- leifsdóttur. Vissulega eru hnökrar á vissum staðsetningum, t.d. að leikurum sé gert að híma bakatil á meðan leikritinu vindur fram nær áhorfendum. Leikrit þetta er í uppsetningu Þórhildar Þorleifsdóttur stöðug glíma við andstæður. Leikarar sem eru rúmfastir eða sitjandi bak við skrifborð eiga andhverfu sína í þeim er hafa fótaferð, svartklæddir við skrautklædda, gyðingakona við ljóshærða miðvesturríkjadís, gáfuð kona við einfalda, og svo mætti enda- laust upp telja. Mesta mótsögnin er falin í því sem til einkalífsins heyrir annars vegar og hins veg- ar opinberir pólitískir atburðir handan hafs- ins. Þau orsakatengsl sem valda því að hið opinbera veldur straumhvörfum í einkalífi aðalpersónanna reynist einungis vera dropinn sem fyllir mælinn. Ég hvet leikhúsáhugafólk endilega til þess að láta þessa einstöku sýn- ingu ekki fram hjá sér fara. Það gæti liðið langur tíma þar til að jafn merkt leikverk verður frumsýnt hér á landi. Sveinn Haraldsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.