Morgunblaðið - 11.11.1995, Side 22
22 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
ERLENT
Ciller segir Evr-
ópuþingmenn
hlutdræga
i
Bruges. Reuter.
TANSU Ciller, forsætisráðherra
Tyrklands, sagði á fimmtudag að
þingmenn á Evrópuþinginu væru
ekki færir um að taka óhlutdræga
afstöðu til samnings Evrópusam-
bandsfns og Tyrklands um tolla-
bandalag.
Ciller sagði í skriflegri yfir-
lýsngu að öll umræða um Tyrkland
í Evrópu væri of ýkt og æst. „Það
er komin tími til að láta skynsam-
ari og yfirvegaðri sjónarmið ráða
ferðinni ... Þessu staðfestingar-
ferli var aldrei ætlað að gera hvern
einasta Evrópuþingmann að hrað-
soðnum sérfræðingi varðandi tyrk-
nest þjóðfélag er hefði leyfí til að
leysa öll þau vandamál sem hann
telur sig finna,“ sagði Ciller.
Evrópuþingið hefur hótað að
beita neitunarvaldi þegar samn-
ingurinn verður borinn upp til at-
kvæða í næsta mánuði ef tyrknesk
stjórnvöld bæta ekki frammistöðu
sína í mannréttindamálum. Sér-
staklega hafa -Evrópuþingmenn
látið í ljós áhyggjur af málfrelsi í
Tyrklandi.
íhuga Evrópuþingmenn einnig
að fresta afgreiðslu samningsins
til að gefa Tyrkjum ráðrúm til að
bæta ráð sitt.
Frestun jafngildir höfnun
Ciller lýsti því yfir í síðustu viku
að ef afgreiðslu samningsins yrði
frestað jafngilti það höfnun og
myndi ýta undir stuðning við ísl-
amska heittrúarmenn fyrir þing-
kosningarnar er fara fram 24.
desember. Ef Evrópuþingið myndi
meta frammistöðu Tykja á óhlut-
drægan hátt myndi það hins vegar
komast að þeirri niðurstöðu að
Tyrkir ættu skilið að samningur-
inn yrði samþykktur.
„Að gefa í skyn að við höfum
gert lítið eða ekkert á þessu ein-
staka ári er óskynsamlegt. Það
dregur úr trúverðugleika Evrópu
en ekki okkar í Tyrklandi sem
höfum lagt á okkur mikla vinnu
og barist af hörku í tilfinninga-
þrungnum deilum til að ná þessum
árangri."
De Gaulle minnst
MIKIÐ fjölmenni var viðstatt
athöfn í París á fimmtudags-
kvöld þar sem þess var
minnst að 25 voru liðin frá
dauða Charles de Gaulle hers-
höfðingja. Sýna skoðana-
kannanir að De Gaulle, sem
var við völd 1944-46 og 1958-
1969, er vinsælasti forsetinn
í sögu Frakklands. Á mynd-
inni má sjá borgarbúa fylgj-
ast með ljósasýningu við Hot-
el des Invalides.
EngeU hafnar þátt-
töku sósíalista í und-
irbúningi fyrir ’96
Kaupmannahöfn. Morgrunblaöið.
HANS Engell formaður danska
íhaldsflokksins hefur beint þeim
tilmælum til dönsku stjórnarinnar
að Sósíalíski þjóðarflokkurinn
verði ekki hafður með í ráðum í
tillögugerð Dana fyrir ríkjaráð-
stefnu Evrópusambandsins 1996.
Stjórnin heldur hins vegar fast við
að sem flestir eigi aðild að tillögun-
um. Holger K. Nielsen formaður
Sósíalíska þjóðaflokksins varar við
afleiðingum þess að flokknum
verði ýtt út.
Rök Engells fyrir að útiloka
Sósíalíska þjóðarflokkinn eru að
með þátttöku bans verði tillögur
Dana ekki nógu skarpar, heldur
komi til með að snúast fyrst og
fremst um dönsku undanþágurnar
fjórar. Poul Nyrup Rasmussen for-
maður Jafnaðarmannaflokksins
og forsætisráðherra hafnar tillögu
Engells og undirstrikar sem fyrr
að mikilvægt sé að hafa sem flesta
með.
Holger K. Nielsen varar við
hugmynd Engells, sem taki ekki
tillit tii þess að meirihluti Dana
sé tortrygginn á ESB-aðildina.
Verði ekki tekið tillit til þessara
sjónarmiða, sem flokkur hans
standi vörð um, sé hætta á að
Danir hafni aftur í þjóðaratkvæða-
greiðslu frekari þróun og samann-
jörvun Dana og ESB.
Rannsóknin á tilræðinu gegn Yitzhak Rabin
Hafa litlar sannanir
fyrir morðsamsæri
Mikill meirihluti
Israela vill fram-
fylgja friðarsam-
komulaginu
Jerúsalem. Reuter.
MOSHE Shahal, lögreglumálaráð-
herra ísrael, sagði í gær að gerðar
hefðu verið að minnsta kosti þijár
tilraunir til að ráð_a Yitzhak Rabin,
forsætisráðherra ísrael, af dögum
áður en hann var skotinn til bana
í Tel Aviv sl. laugardag. Shahal tók
ekki fram hvort að það hefði verið
morðingi Rabins, laganeminn Yigal
Amir, er stóð á bak við fyrri tilræð-
in.
„Hópur fólks átti þetta sameigin-
lega markmið. Pjöldi þess og hvern-
ig þau tengdust þessu ér nú í rann-
sókn,“ sagði ráðherrann.
Amir hefur við yfírheyrslur
greint frá því að hann hafi myrt
Rabin til að stöðva friðarviðræður
ísraela og Palestínumanna. Hann
hefur haldið því fram að hann hafi
verið einn að verki en lögregla hef-
ur handtekið fimm menn til viðbót-
ar, þar á meðal Hagai bróður hans.
Við leit á heimili Amir-fjölskyldunn-
ar fannst vopnabúr.
Sjötti maðurinn, Michael Epstein,
var handtekinn í gær. Hann er 23
ára gamall og segir lögregla að
hann hafí líkt og aðrir þeir sem
grunaðir eru vitað af áformum
Amirs. Þá er hann sakaður um að
hafa skipulagt árásir á' araba.
Heimildir innan ísraelsku leyni-
þjónustunnar, Shin Bet, herma að
enn séu takmarkaðar sannanir fyrir
samsæri hægrimanna. „Hann kann
að hafa greint einhveijum frá
áformum sínum en til þessa höfum
við engar sannanir fyrir því að
skipulagður hópur hafi verið að
verki," sagði einn heimildarmaður.
Þó að sex séu í haldi er Amir sá
eini er hefur verið formlega kærður.
Fyrsti fundur opinberrar rann-
Bætur
vegna
geislunar
í Thule
Kaupmannahöfn. Morgunblaöiö.
DANSKA stjórnin hefur
ákveðið að greiða öllum þeim
Dönum sem unnu við að
hreinsa upp eftir flak banda-
rísku sprengjuvélarinnar við
Thule á Grænlandi 1968 sem
. samsvarar rúmri hálfri millj-
ón íslenskra króna á hvern.
Samtök Thule-verkamann-
anna hafa um árabil krafist
bóta fyrir að hafa verið látnir
hreinsa flakið, án þess að vita
um geislavirkan farm vélar-
innar. Því hefur danska
stjórnin mótmælt, en gaf þó
ádrátt um bætur fyrr á árinu
og tók langan tíma að ákveða
skilyrði sem uppfylla þyrfti.
Um 1.650 manns gætu
sótt um og búist er við að
stjórnin þurfi að leggja út 85
milljónir danskra króna, sem
er tíu milljónum meira en
stjórnin hafði reiknað með.
Vísindamenn, sem komu
að hreinsuninni, fá ekki bæt-
ur, þar sem álitið er að þeir
hafi vitað hver áhættan var.
Reuter
YASSER Arafat átti leynilegan einnar og hálfrar klukkustundar
fund með Leuh Rabin á fimmtudagskvöld. Á milli þeirra situr
Yossi Ginossar, sem var sérlegur fulltrúi Rabins í málum tengd-
um PLO.
sóknarnefndar um morðið á Rabin
var haldinn í gær.
Fagna heimsókn Arafats
ísraelska ríkisstjórnin fagnaði í
gær óvæntri heimsókn Yassers Ara-
fats, leiðtoga Palestínumanna, til
ekkju Rabins seint á fimmtudags-
kvöld. Var þetta í fyrsta skipti sem
Arafat heimsótti ísrael frá því að
hann dvaldist þar með leynd 1968.
„Það felst í friði að í stað þess
að líta á nágranna þinn sem óvin
kemur þú fram við hann sem mann-
eskju. Þegar eitthvað hræðilegt
gerist ferðu til fjölskyldu hans og
vottar henni samúð þína. Það var
nákvæmlega það sem Arafat
gerði,“ sagði Uri Dromi, yfirmaður
upplýsingaskrifstofu ísraelsstjórn-
ar.
Mikill stuðningur við frið
Mikill stuðningur er fyrir því í
ísrael að ríkisstjórnin framfylgi
friðarsamkomulaginu við Palestínu-
menn, samkvæmt nýrri skoðana-
könnun. Alls segjast 74% þjóðarinn-
ar hlynnt því að samkomulaginu
verði framfylgt áfram.
K^nnunin, er birtist í dagblaðinu
Yedioth Ahronoth var gerð á þriðju-
dag og miðvikudag.
Fyrir morðið á Rabin skiptist
ísraelska þjóðin í tvær jafnstórar
fylkingar í afstöðu til málsins.
Þegar spurt var hvort menn
myndu frekar styðja Shimon Peres,
arftaka Rabins, eða Benjamin Net-
anyahu, leiðtoga Líkúd-bandalags-
ins, sem forsætisráðherra, sögðust
54%_styðja Peres en 23% Netanya-
hu. í sk'oðanakönnun fyrir morðið
höfðu þeir hvor um sig stuðning
42% kjósenda.
Stjómmálaskýrendur sögðu þó að
taka yrði þessum niðurstöðum með
fyrirvara og ekki kæmi í ljós fyrr
en eftir nokkrar vikur hvort þessi
afstöðubreyting væri varanleg.
Sahlin dregur
sig í hlé
Segir af sér sem varaforsætisráðherra
Kaupmannahöfn. Morgunblaflið.
MONA Sahlin hættir bæði við fram-
boð sitt til formennsku í sænska
Jafnaðarmannaflokknum og segir
einnig af sér sem varaforsætisráð-
herra. Hún situr áfram á þingi og
í flokks- og framkvæmdastjórn
flokksins. A blaðamannafundi í gær
sagði hún ákvörðun sína vera við-
brögð við umræðunni um slóðaskap
hennar í fjármálum, sem skaðaði
flokkinn, en viðurkenndi ekki að
hún hefði gert neitt rangt.
Ingvar Carlsson forsætisráð-
herra og fráfarandi flokksformaður
sagði Sahlin trúverðuga eftir sem
áður. Ákvörðun hennar veldur létti
í flokknum, þar sem margir höfðu
skorað á hana að draga sig í hlé,
svo að hægt væri að taka til við
formannsleitina að nýju.
Og hver þá?
Þó möguleikar Monu Sahlin á að
ná kjöri hafí undanfarið verið dvín-
andi var hún þó enn til umræðu,
meðan hún hafði ekki gefið skýr
svör. Nú er sviðið því autt og leitin
getur hafist fyrir alvöru.
Tvennt virðist koma til greina.
Annars vegar að fyrir valinu verði
einhver af kynslóð Sahlin. Hins
vegar að það verði einhver af eldri
kynslóðinni og þá aðeins um hríð,
eða þar til einhver af yngri kynslóð-
inni verði orðinn skýrt leiðtogaefni.
Göran Persson fjármálaráðherra
hefur hingað til neitað afdráttar-
laust, en nú verður vafalaust gerð
atlaga að honum, því hann þykir
gott efni í sterkan leiðtoga. Jan
Nygren samræmingarráðherra var
lengst nefndur ásamt Sahlin. Hann
segist hins vegar hafa gert samning
við fjórtán ára son sinn um að gefa
ekki kost á sér, svo nú er spurning-
in hvort hann bregst syninum eða
flokksbræðrunum. Síðan eru ýmsar
konur af kynslóð Sahlin nefndar,
en engin þykir sérlega sannfærandi.
Af eldri kynslóðinni er Sven
Hulterström nefndur, hann hefur
umsjón með formannsleitinni, en
einnig Birgitta Dahl, talsmaður
stjórnarinnar, og Lena Hjelm-Wall-
én utanríkisráðherra. Einnig hafa
verið vangaveltur um hvort Sahlin
dragi sig í hlé nú, en komi síðar
fram sem leiðtogaefni.