Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 23
Clark fær
stórfé
fyrir bók
MARCIA Clark, aðstoðarsak-
sóknari í Los Angeles, hefur
undirritað
samning við
Viking-for-
lagið í New
York um út-
gáfu bókar
um máls-
sóknina á
hendur O.J.
Simpson.
Talið er að þóknun hennar
nemi þremur milljónum doll-
ara, jafnvirði 195 milljóna
króna. Gert er ráð fyrir út-
komu bókarinnar næsta vor.
Réttað verð-
uríMílanó
SILVIO Berlusconi, fyrrver-
andi forsætisráðherra Italíu,
tapaði í gær deilu um hvar
réttarhöld yfir honum vegna
spillingarmála skuli fara fram.
Æðsti dómstóll Ítalíu úrskurð-
aði að réttað skyldi í Mílanó
svo sem gert hafði verið gert
ráð fyrir og verður réttur sett-
ur 17. janúar.
Ný sókn hafin
til Jaffna
STJÓRNARHER Sri Lanka
sagðist í gær hafa fellt 78
skæruliða tamíla og sært rúm-
lega 200 er herinn hóf sókn
gegn helstu borg uppreisnar-
manna, Jaffna, að nýju. Féllu
12 stjórnarhermenn en ekki
var skýrt frá tölu særðra.
Um 50.000 hafa fallið frá
því að tamílar í norðurhluta
landsins hófu að beijast fyrir
sjálfsstjórn skömmu eftir
1980.
Ukraína og
Makedonía
í Evrópuráðið
ÚKRAÍNA og Makedonía
fengu á fimmtudag aðild að
Evrópuráðinu og eru aðildar-
ríkin því orðin 38. Við athöfn
í höfuðstöðvum ráðsins i
Strassborg í Frakklandi undir-
rituðu utanríkisráðherrar ríkj-
anna tveggja mannréttinda-
sáttmála Evrópu og skjal um
lögsögu Mannréttindadóm-
stóls Evrópu.
Rússar hafa einnig sótt um
aðild en ákveðið var að fresta
ákvörðun í þeim efnum vegna
stríðsins í Tsjetsjníju.
Vopnabúr
finnst
á N-írlandi
LÖGREGLA á Norður-írlandi
fann í gær sendibíl með um
135 kíló af sprengiefni og
handtók tvo menn úr röðum
kaþólikka og eru þeir taldir
tengjast litlum, sjálfstæðum
hópi sem ekki er sáttur við
friðartilraunir sem gerðar
hafa verið að undanförnu.
Ekki var ljóst hvort búið var
að gera nothæfar sprengjur
úr efninu.
Vopnahlé hefur ríkt í hérað-
inu um rúmlega árs skeið en
hvorki gengur né rekur í
samningaviðræðum og óttast
margir að upp úr sjóði á ný.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hyggst reyna að blása nýju
lífi í viðræðurnar með því að
heimsækja N-írland í lok mán-
aðarins.
Borís Jeltsín, forseti Rússlands, myndin var tekin fyrr á árinu.
Óljóst hver er í náðinni hjá Jeltsín
Kremlarfræð-
ingar rýna í
gestalistann
Moskvu. Reuter.
KREMLARFRÆÐINGAR, sem
fylgdust áður með því hveijir stæðu
næstir leiðtoga sovéska kommúnista-
flokksins á hersýningum á Rauða
torginu, gaumgæfa nú hveijir fái
áheyrn hjá Borís Jeltsín forseta. á
sjúkrahúsinu í Moskvu. Þannig draga
þeir ályktanir um hveijir séu í náð-
inni hjá forsetanum.
Tvær vikur eru liðnar frá því for-
setinn var fluttur á sjúkrahúsið
vegna vægs hjartaáfalls og embætt-
ismönnum hans hefur ekki tekist að
sannfæra Kremlarfræðingana um að
Jeltsi'n sé enn fær um að stjórna land-
inu. Þeir velta því einkum fyrir sér
hver taki við af Jeltsín eða hver kunni
að stjórna bak við tjöldin í Kreml í
fjarveru hans.
Embættismenn hafa takmarkað
upplýsingastreymið frá Kreml og það
hefur kynt undir vangaveltum
Kremlarfræðinganna, sem ýmsir
töldu að myndu heyra sögunni til
eftir hrun kommúnismans.
„Fjölmiðlarnir reyna að komast
að eins miklu og þeir geta en embætt-
ismennirnir segja aðeins það sem
þeir þurfa,“ sagði rússneska dagblað-
ið Kommersant í gær. „Þetta er ein-
faldlega einokun á upplýsingum -
þegar fundum Jeltsíns fækkar
snarminnkar upplýsingaflæðið."
Lífvörðurinn fyrstur
Kremlarfræðingarnir nota svipað-
ar aðferðir og tíðkuðust þegar fylgst
var með röðun forystumannanna sov-
ésku á Rauða torginu. Nú draga
þeir ályktanir sínar af því hvaða
embættismenn fái áheyrn hjá'Jeltsín
og í hvaða röð. Þeir rýna einnig í
orðalag fréttatilkynninga um líðan
forsetans og hinar ýmsu tilskipanir
sem hann gefur út frá sjúkrahúsinu.
Alexander Korzhakov, yfirmaður
li'fvarðasveitar forsetans, varð fyrst-
ur til að ræða við Jeltsín, fyrir utan
skyldrhenni og lækna. Korzhakov
virðist hafa góðan aðgang að Jeltsín
vegna starfsins og vangaveltur eru
um að hann sé í miklum metum hjá
forsetanum og sé einn af áhrifa-
mestu mönnunum í Kreml.
Aðeins einn annar embættismaður
hefur rætt reglulega við Jeltsín á
sjúkrahúsinu og það er helsti ráð-
gjafi hans, Viktor Iljúshín. Tíðir
fundir forsetans með þessum mönn-
um, á sama tíma og fijálslyndir ráð-
gjafar hans hafa aldrei rætt við hann,
hafa kynt undir vangaveltum um að
þeir kynnu að notfæra sér fjarveru
hans til að framfylgja eigin stefnu
fyrir þingkosningarnar í desember.
Umbótasinni sniðgenginn
Viktor Tsjernomyrdín forsætisráð-
herra ræddi ekki við Jeltsín fyrr en
á föstudag í vikunni sem leið. Eftir
fundinn sagðist hann taka við yfir-
stjórn varnarmála-, innanríkis- og
utanríkisráðuneytanna. Embættis-
menn í Kreml voru fljótir að neita
því að þetta merkti að forsetinn hefði
afsalað sér völdum. Talið er að þessi
atburður verði ekki til þess að bæta
samskipti Tsjernomyrdíns og Jelts-
íns, en þau þykja hafa einkennst af
tortryggni þar sem forsætisráðherr-
ann er líklegur til að bjóða sig fram
í næstu forsetakosningum.
Andrej Kozyrev utanríkisráðherra,
sem hefur sætt gagnrýni Jeltsíns,
var á meðal fyrstu ráðherranna sem
ræddu við forsetann, en fundur
þeirra var ekki fyrr en í gær, tveim-
ur vikum eftir að Jeltsín var fluttur
á sjúkrahúsið. Akveðið var á fund-
inum að Kozyrev fengi nýjan aðstoð-
arutanríkisráðherra.
Jeltsín tók á móti öðrum aðstoðar-
forsætisráðherranum, Oleg Sosko-
vets, á mánudag og fundur þeirra
var tvöfalt lengri en sá sem forsetinn
átti með Tsjernomyrdín. Jeltsín hefur
hins vegar ekki rætt við hinn aðstoð-
arforsætisráðaherrann, Anatolíj
Tsjúbajs, sem er fijálslyndur um-
bótasinni.
Tatsmenn forsetans hafa ennfrem-
ur skýrt frá því að Jeltsín hafi veitt
Anatolíj Kúlíkov innanríkisráðherra
og Míkhaíl Barsúkov, yfmnanni
leyniþjónustunnar, hershöfðingja-
tign.
1
Frekari skattalækkun
íhuguð í Bretlandi?
London. Reuter.
KENNETH Clarke, fjármálaráð-
herra Bretlands, liefur til athug-
unar að skera opinber útgjöld nið-
ur um fimm milljarða punda til
að unnt verði að lækka skatta á
meðal- og lágtekjufólki, að sögn
The Daily Telegraph í gær.
Þessi lækkun kæmi til viðbótar
þeim sem hugsanlega verða
boðaðar í fjárlagafrumvarpinu en
Clarke leggur það fram 28. nóv-
ember. Búist hafði verið við, að
stjórnin gripi til aðgerða af þessu
tagi til að auka vinsældir sínar
en samkvæmt síðustu könnunum
hefur Verkamannaflokkurinn 17
prósentustig umfram Iháldsflokk-
inn.
Apple-umboðið hf
Skipholti 21 • 105 Reykjavík
Sími: 511 5111 • Fax: 511 5115
Heimasíða: http://www. apple. is