Morgunblaðið - 11.11.1995, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
, Morgunblaðiö/ÞorkeU
LEIKARINN - Eg er ánægður með eftiið og stílinn...
Ehhi aíitaf
staltur:..
HANN beið mín í
„stofunni" í veit-
ingahúsinu Við
Tjörnina, karl-
mannlegur á velli,
og manni verður
ósjálfrátt hugsað
til Fernandos
Krapp á sviði
Þjóðleikhússins í
Sannur karlmaður. Sumar konur
fullyrða að hann sé mesti sjarmör
sinnar kynslóðar. Hann kveðst
ekki hafa fundið fyrir því eða orðið
íyrir átroðningi af völdum kvenna.
í stofunni er þægilegt andrúms-
loft, „eins og í sjötugsafmæli hjá
fjarskyldum ættingja þar sem
maður þekkir engan,“ svo notuð
séu orð leikarans. Ingvar E. Sig-
urðsson virðist vera á réttri hillu í
lífinu. Að minnsta kosti hafa gagn-
rýnendur farið um hann mildum
höndum. Ég minnist þess ekki að
hafa nokkurn tíma lesið um hann
neikvæðan dóm. Samt er hann
ekki alveg sáttur við allt sem
gagnrýnendur skrifa um íslenskt
leikhús.
„Ég er ekki alltaf stoltur af því
að fá góða dóma, þótt það hljómi
kannski þversagnakennt. Auðvit-
að fmnst mér gott að fá hrós eins
og öðrum. Mér finnst bara gagn-
rýnendur skorta viðsýni í leiklist.
Stundum gera þeir lítinn greinar-
mun á leikverki og leiksýningu,
sem í sumum tilvikum geta verið
tveir óskyldir hlutir.
Ég fer oft í leik'hús og hef mis-
jafnar skoðanir eins og
aðrir. Svo les maður
gagnrýni í blöðunum
og spyr sjálfan sig:
Hver er viðmiðun
gagnrýnandans? Leik-
húsgagnrýni er
ábyrgðarhlutverk og
fæstir íslenskir leik-
húsgagnrýendur eru
starfi sínu vaxnir, að
mínu mati. Leiklistar-
gagnrýnandi verður
að hafa snefil af virð-
ingu gagnvart list-
greininni, viða að sér
erlendu og innlendu
leiklistarlesefni og sjá
sýningar, ekki bara “““—
hér heima heldur einnig erlendis.
Leikhúsgagm'ýni á að vera fullt
starf en ekki eitthvert dudd í hjá-
verkum. Og það er ekki fyrr en
gagnrýnandinn hefur öðlast nauð-
synlega víðsýni og þekkingu, sem
hann getur farið að hakka í sig
sýningar og tala niðrandi, eða vel,
um leikhús.
Gagnrýnendur hafa meðal ann-
arsúialdið því fram, að Sannur
karlmaður sé ekki gott leikrit. Ég
er þeim algerlega ósammála og við
öll serp stöndum að þessari sýn-
ingu, enda engin tilviljun að þetta
leikrit hefur farið sigurför um
Evrópu. Gagnrýnandi Morgun-
blaðsins sagði til dæmis að sýning-
in hefði verið unnin með hangandi
hendi og þessu hafí verið slumpað
svona einhvern veginn fram. Þessi
ummæli fóru rosalega í taugarnar
á mér því við unnum þessa sýn-
Kokkurinn góöur, en
gagnrýnendur slæmir.
Sveinn Guöjónsson
dregur þá ályktun eftir
samtal við sannan
karlmann og verðandi
Don Carlos á veitinga-
húsinu Við Tjörnina.
KJÖTSOD, PÚRTVfN,
GRÁÐOSTUR,
PIQANTO (GRÆN-
METISSALT) EÐA
SALT, FERSKT TIMI-
AN, RIFSBER-
JAHLAUP OG SVAR-
TUR PIPAR, ALLT
SOÐIÐ SAMAN.
SÍDAN ER RJÓMA
BÆTT ÚT í.
ingu mjög ná-
kvæmlega og með
langiá yfirlegu.
Ég hef lesið þetta
verk niður í kjöl-
inn og það þarf
enginn að segja
mér að þetta sé
lélegt íeikrit.
Höfundurinn
brýtur að visu upp þetta hefð-
bundna form og gerir það af mikilli
snilld að mínu mati. Eg er ánægö-
ur með efnið og stílinn, sjálfan mig
og mitt fólk. Eg er ekki vanur að
hæla því opinberlega sem ég er að
gera en í þessu tilviki get ég með
góðri samvisku hvatt alla til að sjá
þessa sýningu."
Sharfur ag
skötusElur
„Maturinn er til,“ segir þjónn-
inn og við satjumst til borðs. Ingv-
ar hafði pantað sér hunangssteikt-
ar skarfabringur með gráðosti og
portvíni en ég fékk smjörsteiktar
skötuselskinnar með humri og
púrtvínssósu. Með skarfabringun-
um fær hann sér rauðvín, Monte
Cillo Crianza frá Rioja á Spáni, ár-
gerð 1990. Með skötuselskinnun-
um er borið fram hvítvín, þurrt
Poully Fnussie frá Bourgogne í
Frakklandi, árgerð 1994.
„Ég hef aldrei verið sérfræðing-
ur í mat eða vínum. Læt yfirleitt
aðra um að panta vín,“ segir hann.
„Ég hef heldur aldrei borðað skarf
áður. Fór reyndar
einu sinni á svart-
fuglsskyttirí með vin-
um mínum og við
fengum tvo skarfa.
En ég tók ekki sjens á
að borða hann þá og
hef alltaf séð eftir því.
Þess vegna ætla ég að
skella mér á hann
núna.“
Við borðhaldið seg-
ir hann mér frá hlut-
verkinu sem hann er
að æfa í Don Juan,
sem frumsýnt verður
á annan í jólum.
„Ég leik Don Car-
los, sem á að bjarga
heiðri fjölskyldunnar eftir að Don
Juan svíkur systur hans. Carlos
virðist við fyrsta lestur vera hetja
og stríðsmaður, en við höfum velt
því fyrir okkur hvort það sé nokk-
uð varið í að leika hann svoleiðis ...
— Hvemig bragöast skarfar-
inn?
„Það er nefnilega oft freistandi
að gera aumingja úr hetjum og
hetjur úr aumingjum á leiksviði.
Ég er heldur ekkert viss um að höf-
undurinn, Moliére, hafi ætlast til
þess að leikritið yi-ði leikið eins og
það er skrifað. En það eru komnir
elskulegir menn frá Litháen til að
pæla í þessu með okkur. Þeir eru
stórkostlegh', þeir heita..."
— En hvað með skarfinn ... ?
„Hann er mjög góður, alveg
afbragð, vínið ljúffengt ogpassar
vel við og sósan frábær. Ég ætla
að fá uppskriftina að henni.“
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 25
Leikur nr. 44 í Lengjunni: Ungverjaland - ísland
verður í beinni útsendingu á RÚV í dag!
lfkurnar!
ö
<73
Mestar líkur (lægsti stuðullinn) eru taldar á að landslið
Ungverjalands vinni leikinn. En þú getur valið að tippa á
ólíklegri úrslit og þannig hækkað upphæð vinningsins sem
þú færð ef spá þín reynist rétt!
STUÐLAR
AHIAM
ÍSLAND!
43 Lau. 11/11 14:30 Sunderland - Tranmere 1,75 2,80 3,15 Knatt.
44 Lau. 11/11 15:30 Ungverjaland - ísland 1,40 3,20 4,50 Knatt.
45 Lau. 11/11 16:30 KA - Kosíce ^ "“Hand.