Morgunblaðið - 11.11.1995, Side 28
28 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Er varasalvi vanabindandi?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning 1: Af hverju'stafar
varaþurrkur og af hverju er sum-
um hættara viö að fá hann en
öðrum? Er til einhver fyrirbyggj-
andi aðferð til að koma í veg fyrir
að hann myndist, önnur en að
nota varasalva? Ég hef nefnilega
heyrt að varasalvi sé vanabind-
andi fyrir varirnar, þ.e. að þær
verði háðar honum, ef svo má að
orði komast, þannig að alltaf þur-
fi að bera meira og meira af hon-
um á varimar til þess að hann
virki?
Svar: Fólk er misjaflega gert og
gildir það um tilhneigingu til
varaþurrks eins og allt annað.
Varaþurrkur stafar oftast af
þurru lofti. Þegar kalt er í veðri
er útiloftið þurrt og hættara við
þurm lofti í híbýlum manna en
venjulega. Ástandið er oft verst í
mars og apríl. Þurrt loft er ekki
bara slæmt fyrir varirnar heldur
þorna einnig slímhúðir í nefi,
augum og munni en þá minnka
vamir gegn sýklum og fólki er
hættara við alls kyns pestum.
Besta ráðið er að verða sér úti
um rakamæli, fylgjast með raka-
stiginu heima hjá sér eða á
undir 20%. Ágætt er að grípa til
varasalva eftir þörfum og ekkert
bendir til að hann sé vanabind-
andi.
Spurning 2: Undanfarnar vikur
hef ég verið slappur, fengið bein-
verki þegar líða fer á daginn, án
þess þó að hafa hita. Mér finnst
ég alltaf vera þreyttur, jafnvel
þegar ég vakna á morgnana,
enda sef ég laust og illa. Mér
finnst ég ekki yera stressaður,
enda hef ég enga ástæðu til. Það
er bara þetta þróttleysi, sem ég
hef enga skýringu á? Getur þetta
verið eitthvað í ætt viö þessa vei-
ki „síþreytu“, sem talsvert hefur
verið til umræðu að undanfömu.
Hveraig lýsir hún sér?
Svar: Lýsingin gæti að flestu
leyti passað við síþreytu. Sí-
þreyta lýsir sér venjulega sem
stöðug þreyta, lítið úthald,
vöðvaverkir, höfuðverkur, sjúk-
lingurinn svitnar talsvert án þess
að hafa sótthita og þarf að sofa
mikið. Orsakir þessa ástands era
lítt þekktar en í mörgum tilfell-
um kemur þetta í kjölfar sýking-
ar, venjulega veirasýkingar.
Þessir sjúklingar ættu að stunda
líkamsrækt, t.d. ganga og synda,
og þeir ættu að reyna að sofa vel
og eins lengi og þeir þurfa.
Stundum hjálpar að gefa lyf við
þunglyndi en oftast er það gagns-
lítið. Rétt er að leita til læknis til
að fá sjúkdómsgreiningu og ráð-
leggingar. Flestir losna við þessi
óþægindi á nokkram vikum,
stundum tekur það fáeina mánuði
en einstaka sinnum 1-2 ár.
Spurning 3: Tímarnir breytast
og mennirnir með og svo á einnig
við um mataræði. Mikið pizzu- og
pasta-æði hefur gengið yfir land-
ið og nú er svo komið að það þýð-
ir varla orðið að bjóða börnunum
upp á venjulegan íslenskan mat.
Þess vegna spyr ég: Hentar þet-
ta mataræði okkur íslendingum,
sem lifum í allt öðru loftslagi en
suðrænar þjóðir, þar sem þessi
pizzu- og pasta-matargerðarlist
er upprunnin? Er ekki eðlilegt að
við sækjum frekar fæðu okkar úr
umhverfinu, til að mynda úr sjón-
um?
Svar: Það er erfitt að svara
þessari spumingu í stuttu máli.
Margar pizzur og pastaréttii- era
alls ekki slæmur matur og sama
Þurrar vinnustað og gera ráðstafanir ef Þjáist af gildir um hamborgara ef við
varir það verður of lágt. Hæfilegt rakastig innanhúss er á bilinu 40- 60% og það ætti aldrei að fara þróttleysi sleppum frönsku kartöflunúm, hamborgarasósunni og kokk- teilsósunni. Það sem mestu varð- [1
Hættuleg
pilla?
ar er að þessir réttir innihalda
oftast tiltölulega lítið af mettaðri
fitu. Það er hins vegar rétt sem
spyrjandi segir að við fáum varla
hollari mat en sjávarrétti, eink-
um ef við neytum þeirra með
hæfilegu magni af góðu græn-
meti og ávöxtum. Það er gamalt
og nýtt vandamál að mörg böm
og unglingar era lítið hrifin af
fiskréttum en flestir vaxa þó upp
úr þessu. Hin gullna regla er að
borða sem fjölbreyttast fæði,
ekki mikið af neinu einu en eitt-
hvað af öllu.
Spurning 4: Um daginn var
greint frá því í fréttum að varaö
hefði verið viö notkun nokkurra
tegunda af getnaðarvamatöflum
sem rannsóknir hefðu sýnt að
•ykju líkumar á blóðtappa umfram
aðrar. Vísað er á fjórar tegund-
anna hérlendis, það er Marvelon,
Mercilon, Minulet og Gynera.
Hversu mikil ástæða er til þess
að forðast þessar tegundir?
Svar: Enn sem komið er er alls
engin ástæða til að forðast þessar
tegundir getnaðarvarnataflna.
Tilefni fréttanna var það að lyfja-
málayfirvöld í Bretlandi sendu
nýlega út tilmæli til breski-a
lækna að þéir skyldu takmarka
notkun þessara taflna vegna hæt-
tu á blóðtappa. Tilefni þessara til-
mæla voru þrjár rannsóknir sem
gáfu til kynna að þessi lyf væra
hættulegri en önnur, en engri
þessara rannsókna er að fullu lok-
ið. Það er almennt viðurkennt að
allar venjulegar getnaðarvarna-
töflur auki hættu á blóðtappa, þó
svo að þessi aukning sé mjög Htil.
Þess vegna er ástæða til að fylgj-
ast vel með aukaverkunum þess-
ara lyfja og framkvæma rann-
sóknir eins og þær sem nefndar
vora. Ábyrgðarmenn þessara
rannsókna hafa mótmælt við-
brögðunum í Bretlandi og telja
ekki tilefni til slíks, a.m.k. ekki
ennþá. Flestir telja þessi við-
brögð fljótfæmisleg, farsælla sé
að bíða eftir endanlegum niður-
stöðum rannsóknanna og taka þá
afstöðu að vel athuguðu máli.
• Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt lækninn um það sem þeim
liggur á hjarta og er tekið á
móti spurningum á virkum dög-
um milli klukkan 10 og 12 í sím-
um 5691224 og 5691229.
NFATNAÐUR
KLASSIS
T/ennor
GEGNT IÐNAÐARMANNAHUSINU
Hvað áttu George II B.retakóngur
og Elvis Presley
rokkkóngur sameiginlegt?
DAUÐINN er mikið alvörumál og sjálfsagt er mönnum ekki
sama hvemig þeir enda jarðvist sína. Hér er listi yfir nafn-
togaða menn sem áttu það sameiginlegt að deyja Drottni
sínum í baðherberginu.
HELIOGABALUS (204- 222). Keisari í Róm. Hann sat á
valdastóli í fjögur ár. Vegna kynvillu hans, sérvisku og dýrk-
unar á guðnum Baal snerust lífvarðasveitir hans gegn honum
og er þær létu til skarar skrýða flúði hann inn í baðher
bergi ásamt móður sinni. Þar voru þau bæði líflát
in.
ARIUS (256-336). Kristinn guðfræðingur og
trúvillingur. Kvalinn í ristli fór hann á bað
herbergið þar sem hann gaf upp öndina,
líklega af völdum eitrunar.
EDMUND II. (980-1016).
Konungur Englands. Eftir
því sem sögur herma var
hann myrtur þar sem hann
var að hlýða kaili náttúrunn-
ar.
JAMES I. (1394-1437). Kon-
ungur Skotlands. Þegar launmorðingjar reyndu að
brjótast inn í Perth Abbey leitaði konungur að felu-
stað og endaði á litlu salerni fyrir konur. Með hon-
um þar var Katharine Douglas og reyndi hún að
villa um fyrir morðingjunum en án árangurs.
James lést af völdum 16 svöðusára á brjósti.
HENRY III. (1551-1589). Konungur Frakklands.
Veginn af launmorðingja er hann var að ganga út
af salerni. Sjálfur var morðinginn drepinn skömmu
síðar og lík hans dregið fyrir rétt vegna laun-
morðsins á konungi.
ARTHUR CAPEL (1631-1683). Enskur stjórnmála-
maður og jarl af Essex. Framdi sjálfsmorð í bað-
herberginu í Lundúnaturni, þar sem hann var fan-
gi-
GEORGE II. (1683-1760). Konungur Stóra-Bret-
lands og írlands. Eftir morgunverð fór hann inn í
baðherbergi. Þýskur herbergisþjónn, sem beið
fyrir utan, heyrði skell og kom að konungi sínum
látnum á gólfinu.
LENNY BRUCE (1925-1966). Bandarískur grin-
leikari. Fannst látinn í baðherberginu eftir of stór-
an skammt af heróíni.
JIM MORRISON (1945-1969) Bandarískur
rokktónlistarmaður. Fannst látinn í baðherberginu
í íbúð sinni í París, eftir ofneyslu áfengis og lyfja.
ELVIS PRESLEY (1935-1977). Bandarískur
söngvari, oft nefndur konungur rokksins. Fannst
látinn á baðherbergisgólfinu á setri sínu Graceland í
Memphis. Elvis hafði átt við vanheilsu að stríða og
tók inn sterk lyf samkvæmt læknisráði. Margt bend-
ir til að hann hafi látist af völdum þeirra, þótt það hafi aldrei
verið upplýst að fullu. Reyndar trúa margir aðdáendur því að
rokkkóngurinn sé enn á lífi.