Morgunblaðið - 11.11.1995, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 11.11.1995, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ l.\U,\ RDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 31 fHttgmiMfiMfe STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ÁLVER Á ÁRI í FERÐAÞJÓNUSTU? FERÐAÞJÓNUSTAN er sú atvinnugrein, sem er í einna ör- ustum vexti á íslandi. Tala ferðamanna, sem til landsins koma, hefur tvöfaldazt á síðastliðnum tíu árum og er talið að á þessu ári skili ferðaþjónustan um 20 milljarða króna útflutnings- tekjum. Það er um fjórðungur af þeim tekjum, sem sjávarútvegur- inn aflar að utan, svo dæmi sé nefnt. Alþjóðaferðamálaráðið spáir tvöföldun í ferðaþjónustunni á næstu fimmtán árum. Það gæti haft í för með sér að störfum í greininni fjölgaði um 2.500-3.500, að því er fram kom fyrr í vik- unni. Með öðrum orðum gætu orðið til um 200 störf á ári í atvinnu- greininni. Séu þessar tölur bornar saman við þá fjölgun starfa, sem stækk- un álversins í Straumsvík er talin munu hafa í för með sér, sést hversu miklir hagsmunir eru í húfi. Við stækkunina, sem hefur verið kölluð vítamínsprauta fyrir atvinnulífið, munu líkást til verða til um 720 ársverk meðan á byggingu nýs kerskála í Straumsvík og stækkun virkjana stendur. Til lengri tíma skapar stækkunin hugsanlega um 200 ársverk — eða álíka og ferðaþjónustan gæti gert, samkvæmt spánni. Nauðsyn skýrrar stefnumótunar um uppbyggingu ferðaþjónustu ætti að vera augljós. Það er ánægjuefni að Halldór Blöndal sam- gönguráðherra hefur skipað nefnd, sem marka á stefnu í ferðamál- um. Við slíka stefnumótun er að mörgu að hyggja. Erlendir ferða- menn, sem heimsækja ísland, nálgast nú 200 þúsund á ári. Fj'ölgi þeim áfram álíka mikið og síðasta áratuginn, verða þeir orðnir mun fleiri en landsmenn allir eftir nokkur ár. Stefnumótun í ferða- málum verður meðal annars að taka mið af því hvernig hægt er að vernda hina viðkvæmu náttúru landsins, sem er jafnframt helzta auðlind ferðaþjónustunnar, fyrir átroðningi. Jafnframt blasir við þörf á rannsóknum og þróunarstarfi í ferða- þjónustu, en hún hefur verið afskipt í þeim efnum miðað við aðr- ar atvinnugreinar. Flutningur tveggja þingmála um ferðaþjónustu á Alþingi nú í vikunni, annars vegar um umhverfisvæna ferðamennsku og hins vegar um rannsóknir í ferðaþjónustu, ber, ásamt frumkvæði sam- gönguráðherra, vott um að stjórnmálamenn eru að vakna til vitund- ar um mikilvægi þessarar atvinnugreinar, sem með tímanum get- ur orðið einn helzti máttarstólpi atvinnulífsins. BRUÐL HJÁ BYGGÐASTOFNUN GUNNLAUGUR Sigmundsson, þingmaður Framsóknarflokks- ins, hefur gagnrýnt Byggðastofnun fyrir að nota miklu stærra húsnæði en stofnunin þurfi og fyrir að hafa við flutning í nýtt húsnæði fleygt út nýlegum og vel nothæfum innréttingum. í Morgunblaðinu i dag kemur fram að kostnaður vegna breytinga á nýju húsi stofnunarinnar hafi verið 55 milljónir króna, en kaup- verð hússins var 66 milljónir!. Eflaust má alltaf deila um það hversu stórt húsnæði fyrirtæki eða stofnanir þurfi. Það blasir þó við að opinberum stofnunum ber að sýna meira aðhald í húsnæðismálum, ef eitthvað er, en einkafyrirtækjum. Friðrik Sophusson Qármálaráðherra lagði ný- lega til að ríkisstofnanir greiddu markaðsverð fyrir það húsnæði, sem þær hefðu til umráða, enda væri það þekkt kenning að um- fang og starfsmannafjöldi réðist af stærð húsnæðisins, en ekki öfugt. Það er ríkisstofnunum hollt að fá gagnrýni af því tagi, sem Gunnlaugur Sigmundsson hafði uppi, og gjarnan mætti hrinda tillögu fjármáiaráðherra í framkvæmd. BLÓMASKEIÐ ÍSLENSKRA KVIKMYNDA LÍKLEGA hefur íslensk kvikmyndagerðarlist sjaldan staðið með jafnmiklum blóma og einmitt nú. Nýjasta rÖsin í hnappa- gat kvikmyndagerðar hér á landi er Benjamín dúfa, sem frumsýnd var í Stjörnubíói í fyrrakvöld, við feykilega góðar undirtektir sýn- ingargesta. Það er í raun stórmerkilegt, hversu íslenskri kvikmyndagerð hefur fleygt fram að undanförnu. Friðrik Þór Friðriksson náði þeim árangri, með gerð kvikmyndarinnar Börn náttúrunnar, að vera tilnefndur til Óskarsverðlauna og í haust var frumsýnt nýtt stórvirki íslenskrar kvijcmyndagerðar, kvikmynd Hilmars Oddsson- ar, Tár úr steini. Okkur ber að hlú að þessari ungu listgrein, sem getur borið hróður landsins víða. Því er miður, að til stendur samkvæmt fjár- lagafrumvarpi næsta árs, að skerða framlög til Kvikmyndasjóðs, frá því sem var á liðnu ári. Skynsamlegt hefði verið að auka fram- lögin, enda sýnir reynslan, að islensk framlög til kvikmyndagerð- ar skila sér margfalt til baka í fjármunum, sem fást erlendis frá, svo sem í framlögum frá evrópska kvikmyndasjóðnum Eurimages. PÁLL ÍSÓLFSSON - JÓN LEIFS „Tár úr steini“ NÝLEGA var frumsýnd kvikmynd Hilmars Oddssonar, „Tár úr steini", sem fjallar um þátt úr ævi Jóns Leifs tónskálds. Myndin hefur vakið verðuga athygli, enda er hér um að ræða kvikmynd sem er um margt vel gerð og áhrifamikii. Hún hefur glætt áhuga á tónskáldinu og verkum hans, og er það vel. Um sannfræði myndarinnar verður hins vegar að hafa fyrirvara. Þó ekki svo mjög vegna þess sem þar er sagt eða sýnt, heldur fremur vegna hins sem ósagt er látið. Hilmar hefur lagt á það áherslu að kvikmyndin sé skáldverk. Sú skilgreining veitir visst „skáldaleyfi" sem felur það í sér meðal ann- ars að einfalda megi efnið, hnika til áherslum og jafnvel fegra svolítið söguhetjuna, ef nauðsyn þykir til. Við þessu er ekkert að segja, og hefði ég ekki séð ástæðu til blaða- skrifa um þetta efni, nema þá til að lofa kvikmyndina og dást að þeim stórhug og listfengi sem hún ber vitni, ef ekki hefði komið annað til. Utvarpsþættir um Jón Leifs En nú hefur Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld, sem raunar er einn af handritshöfundum kvikmyndarinnar, flutt í Ríkisútvarpinu, Rás 1, röð fjögurra langra þátta um Jón Leifs og ævi hans (á sunnudögum 8.-29. október sl.) Hér er ekki um skáldverk að ræða. Þættir þessir hljóta að teljast sagnfræði, enda mikið um tilvitnanir, beinar og óbeinar, bæði í heimildir sem eru öllum aðgengilegar og einkum þó í eftirlátin einkaskjöl Jóns Leifs. Til þeirra verður því að gera aðrar kröfur um nákvæmni og hlut- lægni en til kvikmyndarinnar. í þáttunum koma fram nokkur atriði sem ég tel mig knúinn til að leiðrétta, eink- um varðandi skipti þeirra Jóns og Páls ísólfssonar. Það er að vonum, að Páls ísólfssonar sé getið þegar rakin er saga Jóns Leifs. í útvarpsþáttunum kemur fram, að það var á tónleikum hjá Páli, snemma í mars 1916, sem Jón tók þá ákvörðun, 16 ára gamall, að helga tón- listinni ævistarf sitt. Og þegar hann fór utan til náms í Leipzig um haustið, þá orðinn 17 ára, var hann í fylgd með Páli, sem var nærri sex árum eldri, hafði verið við nám í tónlistarháskólanum í Leipzig síðan 1913, var orðinn þar hagvanur og mjög vel mæltur á þýska tungu. Mátti heita að Jón væri í umsjá Páls fyrstu árin, enda bjuggu þeir báðir undir sama þaki. Síðar fléttaðist ferill þeirra með ýmsum hætti, og mætti tína til um það ýmislegan athyglisverðan fróðleik sem sleppt var í útvarpsþáttunum. En ekki verður það gert í þessari grein. íslandskantata Jóns Leifs og Alþingishátíðin 1930 Hér verður aðeins vikið að örfáum atriðum í þriðja útvarpsþættinum (22. okt.), þar sem annaðhvort er um augljósar missagnir að ræða eða frásagnir sem mjög orka tvímælis. Þar segir m.a.: Næsta stórvirki Jóns var íslands-kantatan Þjóð- hvöt... op. 13. Jón samdi þessa kantötu... líklega með það í huga upphaflega að senda hana inn í samkeppni um hátíðatónverk fyrir þjóðhátíðina á Þingvöllum 1930... Verkið er samið við hátíðaljóð Davíðs Stefánssonar og er í sjö aðskildum þáttum. Jón sýndi fornvini sínum, Páli ísólfssyni, tvo þætti úr kantötunni nokkru áður en skilafrestur í sam- keppnina rann út, en ákvað í kjölfar þess fundár að hætta við að senda hana til dómnefndarinnar. Hann taldi sig vita eftir þetta samtal við Pál að hann ætti enga möguleika á að vinna samkeppnina. Eins og kunnugt er fékk hátíðarkantata Páls fyrstu verðlaun dómnefndarinnar, og var hún síðan flutt með mikilli viðhöfn á Þingvöllum sumarið 1930, þar sem fjölmennur kór söng með undirleik danskrar sinfóníuhljómsveitar. Hér er látið að því liggja, að Páll ísólfsson hafi með einhveijum hætti komið í veg fyrir að Jón sendi „Þjóð- hvöt“ sína í samkeppnina um kantötu fyrir Alþingishátíð- ina. Þetta tel ég fjarri öllum sanni. í fyrsta lagi heyrði ég Jón sjálfan segja, að vísu um 20 árum eftir að þess- ir atburðir gerðust, að slíkt hefði aldrei verið ætlun sín. í öðru lagi má benda á, að enda þótt söngtexti Jóns sé tekinn úr hátíðarljóðum Davíðs Stefánssonar, er þar sleppt ýmsum veigamestu ljóðum kvæðaflokksins, t.d. lofsöngnum „Þú mikli, eilífi andi“, meginhluta kvæðisins „Sjá liðnar aldir líða hjá“, og öðrum fimm kvæðum er sleppt með öllu, þar á meðal lokasöngnum „Rís íslands fáni“. Ósennilegt er að þannig hefði verið að staðið, ef verkinu hefði verið ætlað að fara í samkeppnina. Og ekki sé ég neina ástæðu til að ætla að úrslit keppninnar hefðu orðið önnur en raun varð á, þótt kantata Jóns hefði verið send dómnefndinni. Fróðlegt væri að kynnast heimildum fyrir því, að það hafi verið „dönsk sinfóníuhljómsveit" sem aðstoðaði við flutning á verðlaunakantötu Páls á Alþingishátíðinni! Hið rétta er að það var Hljómsveit Reykjavíkur sem það gerði, að vísu með tilstyrk nokkurra manna úr Konung- legu hljómsveitinni í Kaupmannahöfn. Að öðru leyti var tjaldað því sem til var hér heima og undirbúningurinn vandaður svo sem tök voru á. M.a. var dr. Franz Mixa ráðinn hingað sérstaklega til að þjálfa hljómsveitina allan veturinn á undan hátíðinni. — Líklega gætir í þessu ein- kennilega ranghermi langvinnrar beiskju Jóns út af því að þjóðhátíðarnefndin hafði afþakkað boð hans um að koma með þýska hljómsveit til að annast hljóðfæraleik á Alþingishátíðinni 1930. Athugasemdir við útvarpsþætti Hjálmars H. Ragnarssonar frá Jóni Þórarinssyni PÁLL ÍSÓLFSSON Þularstarf í útvarpi Hugur Jóns stóð ávallt til fósturlandsins og hann dreymdi um að fá starf á íslandi við sitt hæfi sem hann gæti framfleytt sér og sinni fjölskyldu af. Hann reyndi mikið að fá starf við útvarpið við stofnun þess 1930, en sú tilraun bar ekki annan árangur en þann, að honurr var boðið starf þular við hina nýju stöð. En það starf þótti honum sér engan veginn vera samboðið... Jón leit svo á að Páll ísólfsson, hans gamli vinur, hefði staðið á bak við þetta tilboð um starf hjá Ríkisútvarpinu og ætlað með því að niðurlægja Jón í augum íslendinga. Jfann trúði því að Páll hefði lagt dæmið þannig upp: Með því að taka við þularstarfinu viðurkenndi Jón fyrir þjóðsinni að hann væri tilbúinn til þess að fóma köllun sinni fyrir veraldlega hagsmuni og fast starf hjá hinu opinbera. Ef Jón hins vegar hafnaði starfínu, sýndi hann með því oflæti og hroka og sannaði í eitt skipti fyrir allt að hann væri óalandi og óferjandi. Áður en Ríkisútvarpið tók til starfa í árslok 1930 hafði verið unnið að því vel og dyggilega að koma Jóni Leifs þar til starfa. Þegar ijárlagafrumvarp fyrir árið 1930 kom til efri deildar Alþingis bar Jón Baldvinsson fram tillögu um að Jóni yrðu veittar 5.000 kr., en til vara 4.000 kr., til undirbúnings starfsemi við væntanlegt ríkisútvarp, og var tillagan rökstudd með því m.a. að 30 þingmenn (af 42) hafi mælt með því að Jóni Leifs yrði falið starf við útvarpið. Varatillagan var samþykkt í efri deild með 7 atkv. gegn 6. En þegar fjárlagafrum- varpið kom aftur til neðri deildar var styrkurinn til Jóns Leifs felldur niður með 14 atkv. gegn 13. Um það bil sem útvarpið var að hefja starfsemi sína var Jóni síðan boðin þularstaðan, og meira að segja kom til tals að hann yrði jafnframt ráðinn fréttamaður. Mjög sennilega hafa það einmitt verið slík störf sem höfð voru í huga, þegar rætt var um í upghafi að styrkja hann til að kynna sér útvarpsstarfsemi. í umræðunni um útvarp á þessum tíma var lítið minnst á tónlist, en litið á útvarp- ið sem fréttamiðil fyrst og fremst, og ekki sést að nein- um hafi komið í hug að þar þyrfti að hafa tónlistar- stjóra. Ef til vill hafa einhveijir stuðningsmenn Jóns, t.d. úr hópi alþingismanna, beitt hér áhrifum sínum og talið tilboðið um þularstarf eðlilegt framhald af fyrri afskiptum sínum af málinu. Tónlistarstjóri útvarps Það er alger fjarstæða að Páll ísólfsson hafí „staðið á bak við“ lævíslegt ráðabrugg í því skyni að „niður- lægja“ Jón Leifs. Slík leikflétta gæti hafa þróast í huga Jóns, en Páll ísólfsson hugsaði ekki þannig, og því munu fáir trúa sem þekktu mennina báða. En þeim fækkar nú óðum. Höfundur útvarpsþáttanna virðist líka hafa áttað sig á að hann var hér á hálum ís, því að í beinu framhaldi af frásögninni um getsakir Jóns bætti hann þessu við: Hvort Jón hafði rétt fyrir sér í þessu eður ei, er hitt víst að það var hinn sami Páll sem tæpum fimm árum síðar stóð fyrir því að Jóni væri boðin staða tónlistarstjóra Ríkisútvarpsins. Jón þáði þetta boð... Hann tók við hinu nýja starfi í febrúar 1935, og var það ætlun hans að Annie og dæturnar flyttust skömmu síðar til Reykjavíkur. Ur því varð þó aldrei... Þegar þetta gerðist var Páll ísólfsson í hlutastarfi hjá útvarpinu, titlaður tónlistarráðunautur. Hann stóð upp úr þessu starfi fyrir Jóni, ótilneyddur, en að beiðni Jóns,, að því er fram kemur í eftirlátnum minnispunktum Páls. Jón Leifs var síðan ráðinn í fullt starf sem tónlist- JÓN LEIFS arstjóri, þótt ekki entist hann í því nema tæpt ár. Eftir það varð Páll tónlistarráðunautur aftur, og enn á hálfum launum. Um starfsaðferðir Jóns hjá útvarpinu og stuttan feril hans þar mætti margt segja, en því verður sleppt hér. Aðalatriðið í þessu sambandi, sem ekki kom fram í út- varpsþáttunum, er það að Páll ísólfsson vék úr starfi sínu hjá útvarpinu til þess að rýma þar fyrir Jóni Leifs, og skiptir þá í raun litlu, hvort Jóni var „boðin" staðan eins og þar var sagt, eða hvort hann hafði lotið svo lágt að biðja þann mann að víkja fyrir sér sem skömmu áður átti að hafa bruggað launráð til þess að „niðurlægja" hann. íslenskir tónleikar í Kaupmannahöfn 1938 Norræn tónlistajhátíð var haldin í Kaupmannahöfn í september 1938. íslendingar tóku nú þátt í hátíðinni í fyrsta sinn og var sýndur sá sómi að þeim voru helgaðir fyrstu tónleikamir. Viðhöfn var þar mikil, enda í og með verið að minnast hálfrar aldar afmælis þessa hátíðahalds, og viðstödd voru konungshjónin ásamt mörgu öðru tignar- fólki. Það var hljómsveit danska útvarpsins sem lék. Jón Leifs stjómaði fyrri hluta tónleikanna og vom þar flutt tvö verk hans, „Látil trílógía", op. 1, og tónlist við sjónleik Jóhanns Sigutjónssonar „Galdra-Loft“. Síð- amefnda verkið var í 9 þáttum, margir þeirra eins konar undirleikur við atriði úr leikritinu (melódrama), en textann flutti Svend Methling, leikari við Konunglega leikhúsið. Páll ísólfsson stjómaði síðari hlutanum, en þar vom á efnisskrá „Forleikur í klassískum stíl“ eftir Sigurð Þórðarson, sönglög eftir Markús Kristjánsson og Sigfús Einarsson sem María Markan söng, útsetningar íslenskra þjóðlaga eftir Karl O. Runólfsson og Sigfús Einarsson og loks „Introduktion og passacaglia" eftir Pál ísólfsson. Frá þessu var sagt í útvarpsþættinum og síðan bætt við: Var skrifað um þessa tónleika í öll helstu blöðin á Norðurlöndunum, og var þetta í fyrsta sinn sem íslensk tónlist fékk slíka athygli. Samkvæmt þessum skrifum voru gagnrýnendur á einu máli um, að tón- list Jóns væri bæði stórbrotin og dramatísk, og á lienni væri að finna sterkan karakter, frumstæðan en heillandi. Verk hinna íslensku tónskáldanna fengu hins vegar afleita dóma, þóttu gamaldags, klisjukennd og án minnstu persónulegra sérkenna. Fyrir Jón vom þessir tónleikar fágætur sigur, og hafa viðtökurnar eflaust gefið honum aukinn styrk til þeirra átaka sem biðu bæði í einkalífinu og í tónsmíðunum sjálfum. Fyrir þá Sigurð, Pál og hin íslensku tónskáldin hljóta þessir tónleikar hins veg- ar að hafa verið mikil auðmýking. Þess var ekki getið í útvarpsþættinum hvaða heimild- ir eru fyrir þeim staðhæfingum sem hér koma fram. En auðsætt virðist, að höfundur þáttanna hafi ekki sjálfur séð þau blaðaummæli, sem hann dregur saman með svo afgerandi hætti, söguhetju sinni í vil. Ég hef undir höndum ljósrit af gagnrýni um þessa tónleika úr fimm dönskum blöðum (Berlingske Tidende, Kristeligt Dagblad, Nationaltidende, Politiken og Social- Demokraten), þremur sænskum (Dagens Nyheter, Göte- borgs Handels- och Sjöfartstidning og Sydsvenska Dag- bladet) og einu fínnsku (Hufvudstadsbladet). Að slepptum almennum athugasemdum um þetta hátíðarhald og nokkrum hugleiðingum um stöðu Islands í því sambandi er mest ritað um þá Jón Leifs og Páls ísólfsson, enda stjórnuðu þeir tónleikunum og áttu auk þess metnaðar- fyllstu verkin sem flutt voru (Jón raunar hálfa efnis- skrána). Allt er þetta lengra mál en svo að það verði rakið hér eða endursagt nema að litlu leyti. Því verður aðeins gripið niður í það sem sagt er um þá Jón og Pál, stikiað á stóru, en þó reynt að gæta þess að ekki hallist á meir en greinamar sjálfar gefa efni til. Gagnrýni um tónleikana Berlingske Tidende kemst næst því að réttlæta þá samantekt sem vitnað var til að ofan. Þar segir að í tónlistinni við „Galdra-Loft“ sé ráðandi mikið og stundum mjög hrífandi hugarflug, og tónskáldið kunni líka mæta- vel að notfæra sér áhrifamátt hljómsveitarinnar. En melódramatíska formið sé óhæft í tónleikasal (og kemur sú athugasemd fram víðar). Einnig segir að Jón Leifs hafi stjórnað verki sínu líflega og með tilþrifum. — Páll er hins vegar sagður nokkuð stífur og akademískur stjómandi, en Passacaglia hans sé samin (og orkestrer- uð) af framúrskarandi kunnáttu. Kristeligt Dagblad telur efalaust að Jón Leifs búi yfir allmiklum hæfileikum, en líklega sé hann enn aðeins við upphaf listabrautar sinnar og enginn geti vitað hvað hann kunni að afreka í framtíðinni. — Páll hafí sýnt að hann sé góður hljóm- sveitarstjóri og tónskáld, og Passacaglia hans sé prýði- legt verk. Nationaltidende kveður verk Jóns bamaleg og inni- haldslítil en þó ótrúlega hávær og yfirlætisleg, og tón- skáldið hafí staðið vanmáttugt frammi fyrir 90 manna sinfóníuhljómsveit útvarpsins. — Páll fékk áheyrendur til að hlusta og hefur svo ömgg tök á hinu stóra formi passacaglíunnar að kynnin af honum urðu hin áhugaverð- ustu á þessu kvöldi. Politiken segir verk Jóns Leifs hafa verið eins og eyði- merkurgöngu, hugmyndir allar séu fengnar að láni, dramatíkin innantóm og fínleikinn falskur. — Páll ísólfs- son var það tónskáld sem mesta athygli vakti, og Passacaglia hans var frábært verk. Ef tónleikarnir sýna stöðu íslenskrar tónlistar í dag, þá er Páll ísólfsson þar í fararbroddi. Social-Demokraten telur Jón leggja hart að sér til að sýnast fmmlegur, djúpvitur og nýtískulegur, en það stökkvi enginn neisti af tinnu hans, tónlistin sé aðeins þijóskuleg og ljót. Þá sé hann afleitur hljómsveitarstjóri, og sé ekki fyrir það að synja að uppskrúfaður módemismi hans hefði hljómað heldur betur í meðfömm annars stjóm- anda. — Besta og mikilvægasta framlag íslands til nor- rænu tónlistarhátíðarinnar var verk Páls ísólfssonar. Dagens Nyheter segir Pál hafa kynnt nýtt tónverk sitt, samið í hressilegum klassísk-rómantískum stíl, og hafi það sýnt staðgóða menntun og þjálfun höfundarins. — Tónamál Jóns flækist nokkuð fyrir greinarhöfundi, en niðurstaða hans er sú að Jóni láti best myndskreyting- in, og tónlist hans við melódrama úr „Galdra-Lofti" hafi verið merkilega myndræn. Göteborgs Handels- och Sjöfartstidning telur Pál ísólfsson vera tónskáld sem hljóti að vera driffjöður ís- lenskrar tónlistar á þróunarbraut hennar. „Introduktion og passacaglia" sé sérlega vandað verk og mjög áhri- faríkt og hafí án efa verið það verk íslensku tónleikanna sem var veglegast og listrænt þyngst á metunum. — Jóni Leifs verði ekki bmgðið um skort á hugarflugi eða þekkingu á hljómsveitinni, en í verkum hans ríki slíkt formleysi að spurningin hljóti að vakna: hvers vegna allar þessar nótur, þessi gauragangur? Sydsvenska Dagbladet segir „Trílógíuna" eftir Jón Leifs búa yfír hörkulegum krafti en hana vanti heild- stætt form. Svipuð er niðurstaðan um tónlistina við „Galdra-Loft“ þótt að baki hennar sé alvarleg hugsun og viljinn augljóslega góður. Hljómsveitarstjórn Jóns er talin fremur viðvaningsleg. — Páll hafí hins vegar virst vera öruggur stjómandi, og hann hafi líka verið sá af íslensku tónskáldunum sem áhugaverðastur var. Hufvudstadsbladet talar um hressilegt fjör og dirfsku Jóns Leifs, sem hafi valdið því að hlýtt hafi verið á verk hans með opnum hug og eftirvæntingu, en því miður hafí vonirnar ekki ræst að fullu. „Trílógían“ sé einkum áhugaverð fyrir rýtmískar hugmyndir sem streymi fram svo ríkulega að formleysið verði þolanlegt. í tónlistinni við „Galdra-Loft“ hafí áhuginn einkum beinst að frábær- um upplestri Svends Methlings. Þó hafí forspil þriðja þáttar, sorgargöngulag, verið hrífandi „frumstæð" tón- list. — Passacaglia Páls ísólfssonar er hins vegar kölluð stórbrotið verk í góðum klassískum anda, og tónskáldið röggsamur og reyndur stjórnandi. Loks má bæta því við að í þýska tímaritinu Allge- meine Musikzeitung birtist stutt umsögn um þessa tón- leika. Þar standa þessi orð: „Land dróttkvæðanna og tvísöngsins sýndi í nýrri tónlist sinni aðeins lítil merki mikilfenglegrar fortíðar. Jón Leifs einn fyllti fyrri hluta efnisskrárinnar með tveimur löngum verkum. Því miður héldu þau ekki athygli áheyrenda til lengdar. — Hápunkt- ur kvöldsins kom síðast: snilldarlega uppbyggð Passacaglía eftir Pál Isólfsson, sem einnig stjórnaði flutn- ingnum með ágætum." Svo mörg eru þau orð. Að lokum Ég hef um langa ævi aðeins þekkt einn mann sem ég mundi trúa til að túlka ofanrituð blaðaummæli eitt- hvað í líkingu við það sem gert var í útvarpsþættinum sem fýrr var vitnað til. Sá maður hét Jón Leifs. Ef til vill hefur höfundur útvarpsþáttanna haft túlkun sína frá honum. En hann hefði þá átt að láta þess getið, þótt ekki væri nema til að koma í veg fyrir að vera sjálfur vændur um mjög óvandaða meðferð ef ekki beina fölsun heimilda. Morgunblaðið/Kristinn TIIT Vahi, forsætisráðherra íslands, situr í hægindastól i Ráðherrabústaðnum i Reykjavík. Forsætisráðherra Eistlands á Islandi • • Oryggiokkar hefur forgang Eistneskt efnahagslíf er í örum vexti og á þessu ári hafa fjárfestingar íslendinga í Eist- landi rúmlega þrefaldast. Tiit Váhi, forsætis- ráðheira Eistlands, kom hingað í þessari viku til að styrkja samskipti rílqanna og ræddi við Karl Blöndal um efnahags- og öryggismál THT Váhi, forsætisráðherra Eistlands, kom hingað í opinbera heimsókn á mið- vikudag til viðræðna við íslenska ráðamenn. Tilgangurinn var að efla samskipti Eista og íslend- inga. í viðræðum var fallist á að undirbúa samning um verndun ís- lenskra fjárfestinga í Eistlandi, en öryggismál skipuðu einnig stóran sess. Eistar eru enn í skugga Rússa, þótt þeir hafi hlotið sjálfstæði. Váhi sagði að öryggi Eistlands hefði for- gang og var mjög í mun að fá stuðn- ing Islendinga við inngöngu landsins í Atlantshafsbandalagið (NATO). Váhi sagði í viðtali við Morgun- blaðið að hann vildi leggja áherslu á góð samskipti ríkjanna með sérstöku tilliti til atburðanna í ágúst árið 1991 þegar Islendingar viðurkenndu sjálf- stæði Eistlands fyrstir þjóða. Árangursríkar viðræður „Samningaviðræðurnar hafa verið árangursríkar," sagði Váhi. „Helsta niðurstaðan er sú að undirbúinn skuli samningur um verndun íslenskra fjárfestinga í Eistlandi. Komið er á samband við fjölda íslenskra fyrir- tækja og þau þurfa að geta treyst á stöðugleika." Samkvæmt frétt eistnesku frétta- stofunnar BNS í gær hafa íslenskar fjárfestingar hækkað úr 8,5 milljón- um íslenskra króna í 29,4 milljónir á þessu ári. Afhentu drög Davíð Oddsson sagði á sameigin- legum blaðamannafundi hans og Váhis á fimmtudag að Eistar hefðu afhent drög að samkomulagi um að „tryggja umhverfí tjárfestinga með lögum og reglum" og kvað öran upp- gang eistnesks efnahags ýta undir aukin viðskipti. „Við lýstum þeirri skoðun að ís- land væri fylgjandi stækkun NATO,“ sagði Davíð á blaðamannafundinum með Váhi. Davíð sagði að sú stækk- un yrði að vera heildstæð, þannig að ekki yrðu til línur, sem skildu ein- stök ríki eftir utan vestræns áhrifa- svæðis. íslendingar yrðu að virða óskir þjóða, sem bæru þyngstu byrð- ar varnarsamstarfsins, en Rússar mættu ekki hafa neitunarvald. „Öryggi okkar hefur forgang og við þurfum stuðning íslands," sagði Váhi. „Stöðugleiki er lítill í efna- hags- og stjórnmálum í Rússlandi og því myndi NATO tryggja öryggi okkar. Ég get ekki sagt hvað langt er í aðild að NATO, en ég vona að það verði brátt.“ Váhi sagði að umsókn um fulla aðild að Evrópusambandinu, sem nú væri í undirbúningi og yrði lögð fram á þessu ári, væri einnig snar þáttur í þeirri viðleitni Eista að treysta sjálf- stæði sitt. Á fundi ráðherranna á fímmtu- dagsmorgun voru einnig rædd tví- hliða samskipti ríkjanna, Eystra-' saltsráðið, hald smáríkjaráðstefnu í Eistlandi á næsta ári, fríverslunar- samkomulag og niðurfelling vega- bréfsáritana milli ríkjanna. Váhi varð forsætisráðherra f janúar árið 1992, en hafði áður verið sam- gönguráðherra, og hefur setið við völd síðan. Ifyrir skömmu urðu stjóm- arslit í Eistlandi í Iqölfar hlerunar- hneykslis, en Váhi myndaði nýja stjóm, sem tók formlega við á þriðju- dag. Váhi hefur komið víða við í heim- sókn sinni og meðal annars hitt _að máli Davíð Oddsson, Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra, Ólaf G. Einarsson forseta Alþingis, Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur, borgar- sijóra Reykjavíkur, og fulltrúa ís- lenskra fyrirtækja. Heimsókn hans lauk í gær og í dag heldur hann af landi brott. Aldrei séð svo fallegt land Hann kvaðst margoft hafá flogið yfir ísland og alltaf viljað sjá hvemig fólk lifði á þessu landi. „Ég hef aldr- ei séð svo faliegt land fyrr,“ sagði Váhi. „Landið er nútímalegt og evr- ópskt, en langt í burtu frá öðrum lönd- um. Húsin virðast ný og gróska virð- ist hafa verið mikil undanfarin ár.“ Váhi riQaði upp að eistneski stór- meistarinn Paul Keres og Friðrik Ólafsson hefðu háð marga hildi á skákborðinu. Keres hefði sagt séi að þótt þeir hefðu verið andstæðing- ar í skákinni hefði vináttan verið mikilvægari og þannig sæi hanr samskipti Eista og íslendinga fyrii„ sér: reist á vináttu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.