Morgunblaðið - 11.11.1995, Page 34
34 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Vanvirðing' Alþingis
við þjóðina
HRÁSKINNSLEIKUR Alþingis
varðandi kaup og kjör alþingis-
manns hefur sýnt landsmönnum að
vinnureglur Aiþingis geta kallað á
.stórslys. Sjálfum finnst mér ákvörð-
unin um 40.000 króna kauphækkun
alþingismanna ekki vera aðalmáiið,
heldur hvernig staðið var að laga-
setningunni sem leyfir forsætis-
nefnd Alþingis að taka slíka ákvörð-
un. Það sem almenningur hefur orð-
ið vitni að er einkennin af meinsemd
sem grafíð hefur um sig á Alþingi.
Meinsemdin sjálf er vinnubrögð Al-
þingis. Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem einkennin birtast og þau eiga
eftir gera það oftar, breyti Alþingi
ekki vinnubrögðum sínum.
Skoðum hvað átt er við: Lagt er
fyrir Alþingi frumvarp
til breytingar á lögum
um þingfararkaup og
þingfararkostnað.
Frumvarpið er þingtek-
ið, keyrt í gegnum þrjár
umræður á þingi, af-
■ greitt til þingnefndar
þess á milli og að lokum
fer fram atkvæða-
greiðsla, þar sem
breytingarnar eru sam-
þýkktar. Allt er þetta
gert á fjórum klst.
(samkvæmt frétt í
Morgunblaðinu). Á
haustmánuðum ákveð-
ur forsætisnefnd Al-
þingis 40.000 kr. kaup-
auka til þingmanna á grundvelli
laganna. Þá fer allt í bál og brand.
Við getum komið með alls konar
yfírlýsingar um forkastanleg vinnu-
brögð forsætisnefndar, að Alþingis-
menn séu að læðupokast með laga-
setningu um eigin kjor og sjálftöku
Iauna langt fram yfir það sem aðrir
hafa fengið. í sjálfu sér er þingfar-
arkaup ekki hátt miðað við þá
.ábyrgð sem þingmenn eiga að rísa
undir, þó það sé umdeilanlegt. Það
sem mér fínnst forkastanlegt eru
starfshættir þingsins. Allt annað er
afleiðing af þeim.
Því miður viðhefur Alþingi of oft
vinnubrögð, sem eru hvorki því né
þjóðinni samboðin. Þar er ég að
tala um þingfundi langt fram eftir
„ nóttu í kapphlaupinu við að ljúka
þingstörfum á eins stuttum tíma og
<hægt er. Síðustu dagana fyrir jól
og fyrir frestun þings á vorin er
Sins og þingmenn séu í akkorði.
Iarkmiðið virðist vera að komast
sem fyrst heim til sín í frí! Afleiðing
'af þessum vinnubrögðum eru alls
konar villur og mistök sem eiga sér
stað við lagasetningu. (Nokkuð sem
er ekki líðandi.) Það er eins og þing-
menn hafí ekki tíma til að sinna
starfi sínu.
Meðal annarra orða, getur verið
að það sé ekki fullt starf að vera
alþingismaður? A.m.k. eru alltof
mörg dæmi um það að þingmenn
sinni öðrum störfum með þing-
mennsku. Og sum störfin eru sko
engin hlutastörf. Þingmenn hafa
samhliða þingmennsku gegnt fram-
kvæmdastjórn fyrirtækja, for-
mennsku í launþegasamtökum, að
ég tali ekki um að vera ráðherra.
Hvert er vandamálið?
Ofangreind dæmi eru angi af mun
stærra vandamáli, sem snertir
vinnubrögð Alþingis almennt. Áður
, en hægt er að koma með lausnir
Marinó G. Njálsson
verður að skilgreina vandamálið
nánar. Eftirtalin atriði hljóta að
vera þar ofarlega:
• Þingstörfum er hraðað eins og
kostur er til að þingmenn komist
heim til sín. Það er meðal annars
gert með fundutn fram á morgun
dag eftir dag.
• Þingmenn eru í mörgum störfum
og hafa ekki tíma til að sinna
þingmennsku sem skyldi.
• Lagabreytingum er hraðað í
gegnum þing án þess að tryggð
sé málefnaleg umræða.
• Lög eru ekki nógu skýr og gefa
framkvæmdavaldinu of frjálsar
hendur um túlkun við útgáfu
reglugerða.
• Lögum, sem samþykkt eru á
Alþingi að kvöldi, er
ætlað að taka gildi að
morgni. Oft er það
óframkvæmanlegt eða
illframkvæmanlegt af
tæknilegum ástæðum.
Hægt væri að halda
áfram, en ætli þetta
dugi ekki.
Hvað er til ráða?
Vissulega er af-
mörkun sú, sem hér er
sett fram, hvorki ná-
kvæm né fullnægjandi
og bera lausnimar þess
vott. Auk þess hef ég
ekki öll hugtök á hreinu
og gæti því ruglað þeim
saman, en ég vona að hugmyndir
mínar komist í gegn.
í fyrsta lagi þarf að afnema þessi
auknu sumar- og jólafrí þingmanna.
Það er fyllilega viðurkennt að þing-
menn þurfa að eiga samskipti við
kjósendur sína, en það má einnig
gera með því að tryggja þingmönn-
Vinnubrögð Alþingis,
segir Marinó G. Njáls-
son, eru hvorki því né
þjóðinni samboðin.
um hálfa til eina viku í mánuði til
að sinna kjördæmum sínum. Það eru
engin rök sem segja að þingmenn
þurfí lengra jóla- eða sumarfrí en
aðnr launþegar í landinu.
í öðru lagi þarf að breyta reglum
um þingsköp þannig að Alþingi sé
gert skylt að hlíta lögum um hvíld-
artíma. Settar verði hömlur á lengd
þingfunda (t.d. fjórir tímar) og þar
með taka fyrir næturfundi. Óheimilt
verði að taka sama frumvarpið til
fleiri en einnar umræðu á sama deg-
inum nema brýna nauðsyn beri til
(þröngt skilgreint). Það er nauðsyn-
legt fyrir alþingismenn að hvíla sig
á umræðuefni, t.d. til að fínna rök-
villur í framsetningu, fínna ágrein-
ingsefni sem nauðsynlegt er að taka
á og kanna undirtektir almennings
á umdeildum frumvarpstextum.
í þriðja lagi verða þingmenn að
sjá sóma sinn í því að láta allar
ákvarðanir um starfskjör sín (laun,
kostnaðargreiðslur, dagpeninga og
fleira) í hendur kjaradóms eða ann-
ars aðila utan þingsins. Með þessu
eru þingmenn og Alþingi hafin yfir
allan efa um eiginhagsmunarekstur.
í fjórða lagi þarf að setja lög um
það að lög sem breyta stórlega (skil-
greina þarf hvað telst „stórlega")
réttindum landsmanna/lögaðila geti
ekki tekið gildi fyrr en einum til sex
mánuðum eftir að forseti íslands
hefur staðfest lögin. T.d. verði að
afgreiða frumvarp til fjárlaga (og
lagabreytingar sem þeim fylgja) í
síðasta lagi 30. nóvember ár hvert.
Þetta þarfnast að sjálfsögðu nánari
útfærslu. Setja þarf ákvæði um
neyðarrétt • (þröngt skilgreint) sem
heimilar að lög taki gildi um leið
og forseti hefur staðfest þau.
í fímmta lagi þarf að gera þá sjálf-
sögðu kröfu til þingmanna að þeir
séu ekki í fullu starfí hjá öðrum
aðila samhliða þingstörfum. Treysti
þingmenn sér ekki til að hlíta slíku
skilyrði þá glati þeir rétti sínum til
þingsetu og varamaður taki sæti
þeirra. Vissulega er þörf á því að
þingmenn hafí góð tengsl við aðila
utan Alþingis, en eftir að frambjóð-
endur hafa verið kosnir inn á þing
eru þeir í vinnu fyrir þjóðina en ekki
hagsmunaaðila. Raunar tilgreina
ákvæði stjómsýslulaga að einstakl-
ingur geti ekki tekið þátt í ákvörðun-
artöku sem tengjast hagsmunum
hans of mikið. Slíkar reglur eiga,
þar sem hægt er að koma því við,
að gilda um þingmenn einnig. (Þetta
þarf að skilgreina nánar.) Einnig
má færa rök fyrir því að ef þing-
mennska er ekki umfangsmeira starf
en raun ber vitni, væri hægt að
fækka þingmönnum og hafa þá í
fullu starfí!
í sjötta lagi þarf að tryggja að
framkvæmdavaldið geti ekki snið-
gengið vilja löggjafavaldsins við
útgáfu reglugerða eða hindri fram-
gang laga með því að draga úr
hömlum að gefa út reglugerðir sem
eru' nauðsynlegar til þess að lög
geti í raun tekið gildi.
I sjöunda lagi er nauðsynlegt að
greina betur milli löggjafavalds og
framkvæmdavalds. Eins og staða
mála er í dag er vart hægt að tala
um þrískiptingu valdsins. Löggjaf-
arvaldið og framkvæmdavaldið eru
að hluta til einn og sami aðilinn.
Hægt er að draga í efa að hér sé
í reynd þingræði. Nær væri að tala
um flokksræði. Þingmenn eru með
fáum undantekningum mjög hallir
undir flokkinn sem stofnun. Ákvörð-
un flokksins (oft flokksformannsins)
er það sem gildir. Þess fyrir utan
gegnir einn flokksformaður stöðu
forsætisráðherra, þannig að þing-
menn stjórnarflokka hlíta í raun
framkvæmdavaldinu. Vissulega
taka ýmis stefnumál ríkisstjórna
breytingum í meðferðum þing-
flokka, en aðskilnaður löggjaf-
arvalds og framkvæmdavalds verð-
ur í sumum tilfellum óskýrari fyrir
vikið. Þetta atriði kallar á grundvall-
arbreytingu á stjórnskipan lýðveld-
isins og þar með stjómarskrárbreyt-
ingu. Framkvæma má þessa breyt-
ingu í nokkrum skrefum og væri
fyrsta skrefíð að varamenn taki
sæti ráðherra á þingi. Þetta þarf
ekki að kalla á aukin útgjöld, því
samhliða þessu væri hægt að fækka
þingmönnum um tíu.
Höfundur er kennari og skipu-
lagsstjóri við Iðnskólann í Reykja-
vík.
ISLENSKT MAL
MIKILS virði er að fá vinsam-
leg Og vönduð bréf, þar sem mál
eru krufín til mergjar. Hér er
eitt slíkt, frá Jónu Rúnu Kvaran,
og leyfí ég mér að birta það nær
allt orðrétt:
„í pistli þínum 30. september
síðastliðinn var orðið áhlaupa-
sveit til umfjöllunar. Einhver
hafði stungið uppá því að nota
það orð í stað orðsins hraðsveit
yfír hugtakið Rapid Deploy-
ment Force. Guðmundur Hrafn
Brynjólfsson gerði athugasemd
við þessa niðurstöðu mála í 816.
pistli þínum. Hann stakk uppá
að mögulega mætti nota yfír fy’r-
irbærið orðið viðlagasveit eða við-
bragðssveit en honum þótti þau
orð heldur stirð en þó heppilegri
en hin.
Mér aftur á móti datt í hug í
kjölfar þessarar uppástungu
hans orðið skyndisveit yfír sama
fyrirbæri. Eins datt mér í hug
orðið snöggsveit. Síðara orðið
fylgir kannski ekki alveg hefð-
bundnum málvenjum, en engu
að síður þótti mér það koma til
álita. Bæði þessi orð eru óneitan-
lega undir nokkrum áhrifum af
orðunum sem þegar hafa komið
til greina fram að þessu.
Eg bar bæði þessi orð undir
BaldUr Jónsson, þann ágæta
málsnilling og orðsmið, eins og
ég geri iðulega ef ég óttast óná-
kvæmni í orðsmíðum mínum
varðandi hugsunina sem veldur
því að orðið verður til. Honum
þótti bæði orðin boðleg, en orðið
skyndisveit álitlegra. Hann
benti þó á að bæði orðin gætu
gengið yfír áðurnefnt fyrirbæri
ef að þannig vildi til. Baldur
gerði betur en að benda mér á
kosti og galla orðanna. í sam-
tali okkar Baldurs datt honum
umhugsunarlítið í hug orðið
skjótsveit yfír sama fyrirbæri.
Eg læt það fylgja með mínum
orðum sökum þess að ég tel
Baldur vera mér fremri í orð-
smíðunum.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
822. þáttur
Til gamans má geta þess að
okkur Baldri datt báðum í hug,
yfir sama fyrirbæri, orðið fljót-
sveit. Mér hafði dottið það í hug
um leið og hin tvö en hafði hafn-
að því. Baldri datt þetta sama
orð í hug á meðan við töluðum
saman útaf orðunum mínum
snöggsveit og skyndisveit en
lagði ekkert sérstakt mat á gildi
þessa nýyrðis.
Það sem gerist síðan í fram-
haldi af því, að ég kveð Baldur,
er að mér dettur í hug orðið
bráðasveit sem mögulega er
öllu heppilegra orð yfir Rapid
Deployment Force en öll hin.
Þetta orð er einfalt og gagn-
sætt. Vinur minn einn, sem er
framúrskarandi enskumaður og
góður íslenskumaður, hefur
staðfest þennan grun minn.
Hann eins og ég álítur að með
þessu orði séum við komin með
öllu nákvæmara og gagnsærra
orð, yfir þessa sérstöku sérsveit,
en hin orðin eru þó frambærileg
séu. Orðið bráðasveit er því það
orð sem ég sting upp á að verði
notað yfír þessa sveit á íslensku.
Vonandi getur þetta innlegg
komið að einhverjum notum. Ef
að orðið bráðasVeit er heppilegt
að þínu mati og lesenda yfir
áðurnefnt hugtak, þá má nota
hin orðin yfir einhver önnur fyr-
irbæri. Hugsanlega skyld eða
óskyld þar sem verið er að flokka
sérstakar sérsveitir, úr öðrum
tungumálum, eftir notagildi
þeirra og markmiðum.
Ég þakka þér fyrir frábæra
þætti og vona að þeir haldi
áfram að birtast í blaðinu um
ókomna framtíð.“
Vilfríður vestan kvað:
Winnie Santander hin velska
vissi ekki hvað var að elska,
uns í fjósið hún fór
með Friðriki Þór;
hann var fræðari af guðs náð, þessi elska.
Sögnin að lykja er veik (2.
flokkur, jð-beyging): lykja -
lukti - lukt. Þessi sögn er helst
notuð í námunda við um, og
getum við sagt hvort heldur sem
er: Fjöllin lykja um dalinn, eða:
Dalurinn er umluktur fjöllum.
Ég geri ráð fyrir að segja megi,
að Island sé umlukt sæ.
Ég vek athygli á þessari beyg-
ingu sagnarinnar, því að margir
virðast álíta hana sterka og
segja þá að eitthvað sé „umluk-
ið“ eða þess háttar. Reyndar
ættu menn fremur að segja *um-
lokið, ef þeir á annað borð vilja
hafa sögnina sterka, en hún er
það ekki. í alkunnum danslaga-
texta, sem mér þykir að ýmsu
ógóður, er þó sögnin rétt beygð
og sagt umlukt, og fyrir það fær
textahöfundur plús. Nú er hæg-
urinn hjá að forðast skekkjur
með því að fletta upp í Orðastað
Jóns Hilmars. Þar er skýrum
stöfum auðvitað tilfært rétt
dæmi um notkun sagnarinnar.
Þessu til frekari staðfestingar
greini ég orð látins sveitunga
míns sem stundum var bæði
ýkinn og gamansamur, en skeik-
aði ekki orðheppni. Hann sagði
frá félaga sínum sem átti að
hafa sprænt yfír Vallakirkju:
„Hann lagði það lukt yfir mænir-
inn.“
Sagan er betri með þeirri
beygingu á orðinu mænir sem
fram kom, en nú er andæft.
Halldór Briem taldi þó í sinni
málfræði ekkert athugavert við
beyginguna með stofnlægu r-i.
Og það hlýt ég að viðurkenna,
að myndarlegri eru fleirtölu-
myndirnar mænirar og drellir-
ar en mænar og drellar.
Hlymrekur handan kvað:
Var þetta þá allt saman eintómt blöff?
Var enginn í landinu nógu töff?
Er allt farið á haus?
Er fjandinn þá laus?
Eða fundu þeir Joks Boris Goodenough?
Byiting í haráthmm
viá hnikkurnar!
Melibiose
Á augu: Eye Contour
Á andlit: Light Texture og
Enrich Texture.
ÍITSÖLIISTAÐIR: Akranes Apótek. Akure>Tar Apótek, Apótek Austurbæjar. Apótek Austuriands. Árbæjar Apótek. Blönduós Apóték. Borgar Apótek. Borgames Apótek, Breiöliolts Apótek. Garöabæjar Apótek, Grafarvogs
Apólek. Ilóaleltls Apótek. Hafnar Apótek Höfn. ilafnarflaröar Apótek. Heba Sigluflröl. Ilolts Apótek, llrauubergs Apólek, Húsavíkur Apótek, llygea Reykjavíkur Apótekl. löunnar Apótek. Ingólfs Apótek. ísafjaröar Apótek.
Keflavíkur Apótek, Kópavogs Apótek. Laugamesapótek, Ifyfsala Hólmavíkur. Lyfsala Vopnafjaröar. I-yfsalan Stöövarfiröi. Mosfells Apótek, Nesapótek Eskifíröi. Nesapótek Neskaupstaö. Nes Apótek Seltjamam., Noröurbæjar
Apótek, Ólafsvíkur Apótek. Sauöárkróks Apótek. Selfoss Apótek. Stykkíshólms Apótck, Vestmannaeyja Apótek. Vesturbæ|ar Apótck.
RpC
LACðMRKSOFNÞEMI
ENCINILMEFNI