Morgunblaðið - 11.11.1995, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 35
AÐSENDAR GREINAR
Athugasemdir við fullyrðing-
ar Þórarins V. Þórarinssonar
Gunnlaugur Kr.
Gunnlaugsson
UM FATT hefur
verið meira rætt und-
anfarið en launamál
æðstu embættis-
manna ríkisins, þing-
manna og ráðherra,
skattfrfðindi þeirra og
hlunnindi, og sýnist
sitt hverjum. Þórarinn
V. Þórarinsson, fram-
kvæmdarstjóri VSÍ,
hefur ekki legið á
skoðunum sínum frek-
ar en venjulega og
stutt niðurstöður
kjaradóms fullum fet-
um. Það, að Þórarinn
styðji launahækkanir
þingmanna, kemur
mér ekkert á óvart heldur þau rök
sem hann notar máli sínu til stuðn-
ings. Ekki einu sinni heldur oft mið-
ar Þórarinn laun þingmanna við laun
flugfreyja og flugþjóna sem sam-
kvæmt orðum Þórarins knúðu fram
80% launahækkun með verkfallsað-
gerðum í síðustu kjarasamningum
og hafa mun hærri laun en þing-
menn (DV 16.10. 1995). í umræðu-
þættinum Almannrómi á Stöð 2 (5.
10.1995) skammaði Þórarinn verka-
lýðshreyfinguna fyrir að hafa staðið
með flugfreyjum og flugþjónum í
aðgerðum þeirra og stutt launakröf-
ur upp á 60%. Þarna munar nú ekki
nema 20% í málflutningi Þórarins —
en hveiju skiptir það ef tilgangurinn
helgar meðalið! En hver er tilgangur-
inn? Fyrir leikmann eins og mig er
hann augljós. Að gera verkalýðs-
hreyfinguna tortiyggilega í augum
almennings og ekki síður að fá al-
menning til að trúa því að flugfreyjur
og flugþjónar séu hálaunastétt sem
beri að virða að vettugi og síst af
öllu að semja við enda stóðu samn-
ingaviðræður milli Flugfreyjufélags
íslands (FFÍ) og VSÍ yfir í rúm tvö ár.
Stuðningur verkalýðsfélaga
Hið sanna er að verkalýðsfélögin,
þ.e. ASÍ, VR, Dagsbrún o.fl., studdu
aldrei launakröfur flugfreyja og
flugþjóna og kynntu sér aldrei þær
kröfur og það veit Þórarinn mæta
vel. Verkalýðsfélögin studdu hins
vegar við bakið á litlu stéttarfélagi,
þ.e. FFÍ, sem VSÍ ætlaði að ganga
af dauðu. Það voru aðferðir VSÍ sem
kölluðu fram hörð viðbrögð flestra
stéttarfélaga á íslandi enda sögðu
þrautreyndir samningamenn að þeir
hefðu ekki séð slíkar aðfarir í ára-
tugi. Það fóru fleiri stéttarfélög í
löglega boðuð verkföll en hvergi var
þeim mætt af öðrum eins hroka og
verkfalli flugfreyja og flugþjóna. Það
að láta ófélagsbundna „yfirmenn"
Flugleiða ganga í störf flugfreyja
og flugþjóna á meðan verkfallið stóð
var ekki „fullkomnlega löglegt“ þótt
Þórarinn segi svo. Þar voru lögfræð-
ingar ASÍ á öðru máli og þess vegna
studdu þeir okkur. Stuðningur
verkalýðsfélaganna
sýndi sig einnig þegar
VSÍ reyndi með öllum
ráðum að stöðva verk-
fallsvörslu FFÍ á Reykja-
víkurflugvelli. Þar var
öllum brögðum beitt.
Lögfræðingar VSÍ
gengu um flugstöðina,
fóru mikinn og reyndu
árangurslaust að fá far-
þega til að kæra FFÍ.
Loftferðaeftirlitinu var
sigað á verkfallsverði og
að síðustu lögreglunni
en eins og vitað er má
lögreglan ekki hafa af-
skipti af löglegri verk-
fallsvörslu. Rétt er að
taka fram að samskipti lögreglu og
verkfallsvarða voru í alla staði vin-
samleg. Fullyrðingar Þórarins í fyrr-
nefndum umræðuþætti á Stöð tvö
eru því rangar og honum ber að leið-
rétta þær.
Hafa skal það
er sannara reynist
Hvað varðar fullyrðingar Þórarins
um 80% kauphækkunarkröfur flug-
freyja og flugþjóna er rétt að eftir-
farandi komi fram. Eins og fyrr _seg-
ir stóðu samningaviðræður FFf og
VSÍ yfir í rúm tvö ár. Viðræður fyrra
árið snerust fýrst og fremst um
óraunhæfan niðurskurð á launum
flugfreyja og flugþjóna. Þegar
samningur ASÍ og VSÍ lá fyrir var
hann samþykktur af hálfu FFÍ. Eft-
ir voru þá sérkröfur um aukið
vaktaálag, tilfærslur á frídögum og
hið margumrædda eftirlaunamál.
Öllum sérkröfum FFÍ var hafnað
sem endranær en loks náðist sam-
komulag um eftirlaunamálið. Flug-
freyjur og flugþjónar tóku á sig
aukna vinnu á jörðu niðri og með
því náðist fram sparnaður fyrir Flug-
leiðir. Þessum spamaði var skipt
bróðurlega og fer hlutur flugfreyja
og flugþjóna inn á eftirlaunareikn-
inga. Þetta kallast hlutdeild í spam-
aði. Einnig var samið um breytt fyr-
irkomulag á hlutastörfum og þau
gerð opnari. Hvernig Þórarni tekst
að fá út úr þessu 60-80% launa-
hækkun skil ég ekki og er ekki einn
um það! Til fróðleiks má geta þess
Allir velkomnir í oöruvisi skólu
Alllr eru
elnstaklr!
í Norræna húsinu
um helgina.
að hjá ríkissáttasemjara var farið
fram á það við VSÍ að reiknings-
meistarar beggja aðila færu yfir
útreikinga á kröfum en VSÍ hafnaði
þeirri beiðni.
Hvað er verið að bera saman?
Laun flugfreyja og flugþjóna eru
ekki í líkingu við laun þingmanna —
svo mikið veit ég. Ég tel óraunhæft
að bera saman á þennan hátt laun
ríkisstarfsmanna sem þiggja laun
frá skattgreiðendum og laun starfs-
manna hjá einkafyrirtæki sem er í
blómlegum rekstri. Hagnaður einka-
fyrirtækis á í sem mestum mæli að
skila sér til starfsmanna og þannig
áfram inn í samneyslu þjóðfélagsins
með sköttum þeirra. Flugfreyjur og
flugþjónar skila vinnuveitanda sín-
Hagnaður einkafyrir-
tækis, segir Gunn-
laugnr Kr. Gunn-
laugsson, á í sem
mestum mæli að skila
sér til starfsmanna.
um um 200 klst. á mánuði allt árið
og á öllum tímum sólarhringsins og
ættu að þiggja laun samkvæmt því.
Að lokum
Að lokum er rétt að það komi
fram að verkfall FFÍ var ekki ein-
göngu boðað til að þrýsta á um kröf-
ur heldur ejnnig til að ná samninga-
nefnd VSÍ að samningaborðinu.
Samninganefnd FFÍ var orðin lang-
þreytt á sumarleyfum, páskafríum,
jólafríum, helgarfríum og kvöldfr-
íum samningamanna VSI.
Flugfreyjur og flugþjónar eru ein
af mörgum harðduglegum starfs-
stéttum sem vinná að ferðamálum á
íslandi og eiga á engan hátt skilið
þá ömurlegu umræðu sem á sér stað
þegar samningaviðræður standa yfír
og löngu eftir að þeim lýkur. Allar
starfsstéttir verða að vinna ötullega
að sínum málum og þegar þokast í
rétta átt ætti það að verða öðrum
gleðiefni og til fyrirmyndar en ekki
öfundar og illsku. Ef til vill ná flug-
freyjur og flugþjónar því einhvern
tímann að verða hálaunastétt og
væri það hið besta mál! Undirskrift
Þórarins prýðir síðasta samning FFÍ
og hann samþykkti samninginn fyrir
hönd VSÍ. Það eru því vinsamleg
tilmæli til Þórarins að hann vandi
betur málflutning sinn og rökstyðji
fullyrðingar sínar eins og manni í
hans stöðu sæmir. Flugfreyjur og
flugþjónar óska eftir því að hann
haldi sig við staðreyndir varðandi
kjaramál þeirra í fjölmiðlum.
Höfundur er flugþjónn.
CKotce cr|j Ckamplonó®
loose fit“
hettupeysur
LITIR:
Dökkblátt
Vínrautt
Grátt
Dökkgrænt
Þykk og mjúk bómull
kr. 2.990
Ckotce ol, CkomptonA*
joggingbuxur
kr. 2.690
Hamraborg 20A, sími 564 1000 =
j • i s • •
n
á eldhúsið
á stofiina
áliaðheiiieigið áinnréttíngaroghúsgögn ískraut
á panel
á glugga og hurðir
HÚSASMIÐJAN
sem
þúsimd litatóna
auðveld í notkun
áferðarfalleg
slitþolin og auðþrifin
akrflmálning og lakk