Morgunblaðið - 11.11.1995, Side 36
36 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
*
Hvemig em vinnuaðstæður þínar við tölvuna? Hulda Olafsdóttir
úr faghópi um vinnuvemd skrifar um vinnu við tölvur.
Sjúkra-
þjálfarinn
segir . . .
Vinna
við
tölvur
UNDANFARNAR þijár vikur
hafa birst í blaðinu greinar um
vinnuvernd skrifaðar af sjúkra-
þjálfurum í faghópi um vinnu-
vemd. Þessi grein, sem er sú síðasta í
þessum flokki, Qallar um vinnu við tölvu.
Áhrif vinnuaðstöðu
á líðan
Það er allt of algengt að á vinnustöð-
um, sem hafa fullkominn tölvubúnað og
bestu fáanleg forrit, gleymist að huga
að vinnuaðstæðum starfsmanna. Hvar
eru skjárinn, hnappaborðið, músin og
vinnuskjölin staðsett? Er hægt að sitja í
þægilegri vinnustellingu við tölvuna?
Vinnuaðstaðan er víða ófullnægjandi þar
sem rými við tölvuna er of lítið eða illa
nýtt. Algeng uppsetning á tölvu er að
hnappaborðið er fellt niður í borðplötuna
á skrifborði eða sett á útdraganlega plötu
undir borðinu. Það gleymist hins vegar
oft að hugsa fyrir staðsetningu músarinn-
ar og lendir hún því oft fyrir ofan/aftan
Slæm vinnustelling
veldur þreytu.
Staðsetjið skjáinn
þannig að ekki
glampi á hann.
hnappaborðið eða til hliðar í
töluverðri fjarlægð frá starfs-
manninum. Þetta veldur stöð-
ugri vöðvaspennu í öxlum
starfsmannsins sem með tím-
anum getur orsakað óþægindi
frá öxlum, olnbogum og/eða
úlnliðum vegna ofálags. Þessi
óþægindi eru stundum nefnd
„músaveiki" og virðist vera
vaxandi vandamál víða í
heiminum. Til þess að fyrir-
byggja slík óþægindi þarf að
athuga bæði vinnuaðstæður
og vinnuskipulag.
Reglur
Hulda Ólafsdóttir
Reglur um skjávinnu voru
samþykktar af félagsmálaráðherra í sept-
ember 1994. Þar er fjallað um hvaða lág-
markskröfur eru gerðar til vinnustaða þar
sem unnið er við tölvur að staðaldri. í
viðauka reglnanna kemur fram hvaða
kröfur eru gerðar til búnaðar, umhverfis
og aðlögunar starfsmanns og
búnaðar. I nýjum bæklingi
Vinnueftirlits ríkisins, Vinna
við tölvu, er fjallað um ýmis
atriði sem hafa áhrif á starfs-
umhverfið þar sem unnið er
við tölvur og bent á lausnir
til úrbóta.
Góð vinnuaðstaða
Við erum öll ólík, með mis-
munandi líkamsbyggingu og
því ólíkar þarfir til vinnuað-
stöðu eins og fjallað var um
í fyrstu greininni í þessum
greinaflokki, þann 21. okt.
sl.: „Hönnun starfsumhverf-
is.“ Þar sem hægt er að að-
laga búnað og starfsumhverfi að starfs-
fólki er vinnuaðstaða góð. Við skipulag
vinnuaðstöðu við tölvu þarf að huga að
eftirfarandi atriðum; hæð skjásins, stað-
setningu hnappaborðs og músar, lýsingu,
rými fyrir vinnuskjöl, og vinnustól, svo
eitthvað sé nefnt.
Hæð skjásins þarf að vera þannig að
hægt sé að horfa á hann án þess að lúta
höfði svo einhveiju nemi. Hnappaborð á
að vera hægt að nota með slakar axlir.
Músin á að vera staðsett við hlið hnappa-
borðs. Gott er að hafa músina vinstra
megin, óháð því hvort starfsmaður er rétt-
hentur eða ekki. Ef músin er hægra meg-
in er hún fjær starsfmanni vegna tölu-
stafa og annarra hnappa sem staðsettir
eru á hægri hluta hnattaborðsins. Borð-
rými fýrir hnappaborð og mús skal vera
það mikið að hægt sé að hvíla hendur á
borðplötunni fyrir framan eða á sérstökum
púðum sem hægt er að setja fyrir framan
hnappaborð og mús til stuðnings fyrir
hendur. Einnig skal vera nægt iými fyrir
vinnuskjöl sem best er að hafa á þar til
gerðum skjalahöldurum. Lýsingu þarf að
vanda þegar vinnusvæði er skipulagt.
Lýsing eða birta frá gluggum má ekki
endurkastast í skjánum. I sumum tilfellum
þarf sérlýsingu til lesturs vinnuskjala. Það
er nauðsynlegt að sitja á góðum vinnustól
þar sem hægt er að stilla hæð og halla
setu og baks. Þeir sem þurfa eiga rétt á
fótskemlum við vinnu við tölvu. Skjásíur
eru ekki nefndar í umræddum reglum en
það getur verið kostur að nota þær ef þær
auðvelda aflestur á skjánum og draga úr
glampa. Þær geta einnig dregið úr raf-
sviði ef þær eru jarðtengdar.
Vinnuskipulag -
fjölbreytni
Það er mikils um vert að hafa sem
mesta fjölbreytni í starfi þannig að ekki
sé setið við tölvuna allan daginn. Með
góðum vilja er oftast hægt að skipuleggja
störfin þannig að sami starfsmaður hafi
ólík verkefni. Aukin fjölbreytni er líkleg
til að draga úr álagseinkennum starfs-
manna.
Vinnuvernd borgar sig
Starfsmenn og atvinnurekendur ættu
að taka höndum saman um að efla vinnu-
vernd innan fyrirtækjanna og vinna saman
að markvissum úrbótum þar sem þess
gerist þörf. Þar sem starfsmönnum líður
vel minnka fjarvistir og afköst áukast.
Höfundur er sjúkraþjálfari hjá Vinnueftir-
liti ríkisins
NYJAR LUXUSIBUÐIR A NONHÆÐ KOPAVOGS
Sölusýning laugardag og sunnudag - Opið milli kl. 14 og 16
Arnarsmóri 20
Allar íbúðir meb óvenju íburóarmiklum og vönduóum mahóni-innréttingum.
6 íbúöa hús
IBUÐIR AFHENDAST .
FULLBUNAR
EN ÁN GÓLFEFNA
IBaðherbergi með
fallegum flísum.
Sérþvottaherbergi.
Stórar svalir eða sólverönd.
Húsin eru fullfrógengin
að utan.
Fullfrógengnar lóðir ásamt
malbikuðum bílastæðum.
BYGGINGAFELAG GYLFA & GUNNABS
BORGARTÚNI 31, SÍMI 562 2991
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA <
Borgartúni 31,105 Rvík, s. 562 4250.
Lögfr.: Pétur Þór Sigurðsson, hdl.
Dagur
harmonikunn-
ar á morgun
HARMONIKUFÉLAG íslands
stendur fyrir ijölskylduskemmtun í
Danshúsinu í Glæsibæ við Álfheima
nk. sunnudag 12. nóvember kl. 15.
Leikin verður létt tónlist úr ýms-
um áttum og flytjendur eru á öllum
aldri. Fram koma m.a. Oddur Þ.
Jóakimsson, 9 ára, Marinó Sigurðs-
son, tríóið Bláu augun, tríó GG,
kvintett SS, Léttsveit Harmoniku-
félags Reykjavíkur o.fl.
Eftir kaffihlé gefst gestum kost-
ur á að stíga léttan dans undir
harmonikutónlist Léttsveitar LR og
fleiri spilara.
Fjölskylduskemmtun Harmon-
ikufélags Reykjavíkur verður síðan
haldin í Danshúsinu í Glæsibæ ann-
an hvern sunnudag á sama tíma
fram til 10. desember.
♦ ♦ ♦
■ FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Djúpið
á Isafirði á sex ára afmæli um
þessar mundir og af því tilefni verð-
ur haldið hátíðarhóf laugardaginn
11. nóvember. Tekið verður á móti
gestum milli kl. 13 og 16.
Blab allra landsmanna!
-kjarnimálsins!
AHir velkomnir í ööruvísi skóla
Lýðskóli
er
Ifkilllnn
í Norræna húsinu um helgina.