Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 39 .
manns var um margt óvenjulegt.
Hann vann við iðn sína framan af
í almennu múrverki og var eftirsótt-
ur til vinnu ásamt Guðlaugi bróður
sínum. Á seinni stríðsárunum fór
Marteinn að húða hús með skel,
íslensku kvarsi og hrafntinnu sem
var algengt um þær mundir. Eftir
stríðið þegar opnaðist fyrir innflutn-
ing flytur hann efni inn frá Noregi
og Ítalíu sem hann notaði í utanhús-
setningu, og var með menn í vinnu
við þau verk. Þá fór Marteinn til
Danmerkur og kynnti sér þar ter-
rasso-lagnir. Fékk hann danskan
múrara sem var hér um tíma til
að hjálpa sér við fyrrnefndar lagn-
ir. Síðan en ekki síst fluttist hingað
ítölsk fjölskylda fyrir hans atbeina
og settist hér að til að vinna við
terrasso-lagnir. Walter Jónsson sem
er afkomandi þessarar fjölskyldu
var í miklu uppáhaldi hjá Marteini.
Má um Martein segja, að hann
hafi verið á undan sinni samtíð
hvað snertir utanhússetningu og
terrasso-lagnir.
Snemma fékk Marteinn áhuga á
að vinna úr steinum og grjóti. List-’
rænir hæfileikar hans sem þroskuð-
ust með tímanum nutu sín sannar-
lega við þessa vinnu. Hann vann
steina eins og trésmiður vinnur við,
hann gat sagað steina í örþunnar
flísar sem hann notaði til dæmis í
ljósker. Mig langar að vitna í orð
séra Sigurðar Pálssonar við kistu-
lagningu Marteins, en þar nefnir
hann að úr þessu harða og erfiða
efni hafi hann búið til fegurð og
mjúkar línur og þar með skapað
hlýju. Fór svo þegar árin liðu að
hann helgaði sig eingöngu þessu
hugðarefni sínu. Var hann mjög
eftirsóttur til að hlaða steinveggi
innanhúss sem utan og arna, sem
hann er ef til vill þekktastur fyrir.
Sjá má verk hans víða um land,
hjá dætrum hans, á Þingvöllum og
við Geysi í Haukadal og er þá fátt
upptalið.
Síðustu árin, þegar þrekið fór að
dvína, fékkst hann við að skapa
ýmis „minni“ listaverk úr gijóti.
Bera þar hæst steinborð af ýmsu
tagi, lítil og stór.
I tengslum við alla þessa vinnu
þurfti auðvitað mikið af allskonar
efni. Því fylgdu mikil ferðalög víðs-
vegar um landið. Með honum í þess-
um ferðum var gjarnan dóttursonur
hans, Marteinn Sveinsson, sem var
honum til mikillar hjálpar. Að öðr-
um ólöstuðum var Gísli bóndi Sigur-
bergsson frá Svínafelli í Nesjum
honum mest innan handar við gijót-
öflun. Það var einmitt í einum þess-
ara gijótleiðangra, sem Marteinn
lést, en þá var hann að leita að
steinum til að prýða enn nýlegt
verk hans við Geysi í Haukadal.
Fyrir verk sín sæmdi forseti ís-
lands Martein Fálkaorðunni 17. júní
árið 1991.
Þau hjónin bjuggu lengst af á
Kambsvegi 1, en fyrir 12 árum
reistu þau veglegt hús í Neðstaleiti
26 og verður það að teljast talsvert
afrek. Þetta hús má segja að hafí
verið síðan miðstöð fjölskyldunnar
með Martein og hans ágætu konu
í broddi fylkingar. Eins og prestur-
inn sagði þá minnti hann á hið
harða efni sem hann vann úr, var
svipað eðlis og kletturinn sem fjöl-
skyldan sameinaðist um.
Marteinn var um margt óvenju-
legur maður. Hann skar sig úr fjöld-
anum og var ekki neinn meðalmað-
ur. Það var tekið eftir honum hvar
sem hann fór. Fólk laðaðist að hon-
um og ekki síst börn, en hann var
einstaklega barngóður. Þá var hann
mjög músíkalskur og hafa dætur
hans og barnabörn erft þá gáfu frá
honum. Fimleikamaður góður var
hann á yngri árum, skákmaður var
hann seigur og kom mörgum á
óvart í þeirri íþrótt. Aldrei lagði
hann til nokkurs manns, en væri
honum misboðið af mönnum sem
hann treysti og taldi vini sína gat
hann ekki leynt þeim vonbrigðum
til dauðadags.
Þegar ég kynntist þessari fjöl-
skyldu fyrir um það bil tuttugu
árum var það mér mikils virði
hversu vel var á móti mér tekið og
er ég ævinlega þakklátur fyrir. Vin-
arbönd okkar treystust smám sam-
MIIMNINGAR
an og nokkrar ferðir voru farnar
bæði innanlands og utan með fjöl-
skyldum okkar. Marteinn var óska-
ferðafélagi, alltaf til í tuskið, alltaf
í góðu skapi og skemmtilegur. Mr.
Deividsson, eins og við kölluðum
hann á góðri stundu, brást aldrei.
Nú hefur Marteinn teflt sína síð-
ustu skák, þá skák sem við erum
öll dæmd til að tapa. Að leiðarlokum
er honum þökkuð samfylgdin af
mér og minni fjölskyldu. Þú kvadd-
ir með sæmd eins og þér var líkt,
og haf þökk fyrir allt og allt. Megi
góður Guð geyma þig.
Genginn er góður drengur.
Hörður Sævaldsson.
Elskulegur eiginmaður Sigríðar,
föðursystur minnar, er horfinn af
sjónarsviðinu. Eftir er skarð sem
ekki verður fyllt.
Þau hjónin Sigríður og Marteinn
áttu yndislegt, ástríkt og vinsælt
heimili, fyrst á Kambsvegi og síð-
ustu árin í Neðstaleiti.
Eg var svo lánsöm að vera heima-
gangur á heimili þeirra á uppvaxt-
arárunum og reyndar enn í dag.
Hjá Siggu og Marteini hafa allir
alltaf verið velkomnir, jafnt ættingj-
ar, vinir og aðrir gestkomandi og
alltaf hefur verið nóg pláss fyrir
aila.
Það var ekki síst hlýlegt, glettið
og vingjarnlegt viðmót húsbóndans
sem réð því hve öllum leið vel í
húsum þeirra hjóna. Margar æsku-
minningar eru tengdar heimilinu á
Kambsvegi 1. Þar bjuggu Sigga
frænka og Marteinn ásamt dætrum
sínum fjórum, og það var sem mitt
annað heimili á æskuárunum.
Það fór ekki hjá því að oft væri
mikið fjör á bænum þegar allar
frænkurnar voru samankomnar.
Marteini var margt til lista lagt.
Það var ekki einungis snilli hans
við að setja saman steina, ógleym-
anlegt er hvernig hann skreytti jóla-
tréð á heimilirtu með hjálp stelpn-
anna. Það var svona óvenjulegt jóla-
skraut. Á hvítri bómullinni í kring-
um jólatréð skapaðist lítil jóla-
sveinaveröld. Skemmtilegust voru
gamlárskvöldin. Þá söfnuðust oft
saman hjá fjölskyldunni á Kambs-
veginum pabbi, mamma, við syst-
umar og Alma, Jói og Davíð.
Þá var óskaplega gaman að vera
krakki. Mér er minnisstætt þegar
ég kom einu sinni inn í helgidóm
Marteins sem var herbergi í kjallar-
anum. Þar geymdi hann sýnishorn
af steinum, útskorna listmuni eftir
föður sinn og allskyns verkfæri
sem hann notaði við vinnu sína.
Ég gleymi aldrei hve allt var þar
firna fágað og í stökustu röð og
reglu. Það sama gilti reyndar líka
um vinnustofu hans á Korpúlfs-
stöðum.
Marteinn hafði afar skemmtilega
kímnigáfu og notaði þá gjarnan
sinn eigin orðaforða þegar hann var
að glettast. Hann gat átt það til
að spyija mann, „er nokkuð „hildis"
í þér“ og svo gat honum orðið tíð-
rætt um „hildiskvíguna". Þetta
skildu náttúrulega bara þeir sem
voru kunnugir. Marteinn var mikið
náttúmbarn og naut þess að safna
steinum úti í náttúrunni. í slíkar
ferðir fór hann gjarnan með dóttur-
syni sínum Marteini Sveinssyni en
þeir voru sérstaklega nánir vinir.
Einnig naut hann þess að ferðast
með konu sinni, dætrum og tengda-
sonum. Þau hjónin voru reyndar
nýkomin úr skemmtiferð frá
Dyflinni með tveimur dætrum sín-
um og barnabörnum þegar Mar-
teinn féll frá.
Marteinn var skemmtilegur fé-
lagi. Ég minnist ferðar sem við fór-
um eitt sinn á gömlu öskuhaugana
þegar ég var unglingsstelpa. Þá bað
hann mig að koma með sér að henda
drasli. Á heimleiðinni bauð hann
upp á hressingu í gamla Nesti við
Suðurlandsbraut. Við lúguna hugs-
aði hann sig um stundarkorn, leit
svo á mig sposkur á svip og sagði:
„Banani og kók, er það ekki sterk-
ur leikur". Jú, ég hélt það nú og
svo gæddum við okkur bæði á ban-
ana og kók. Já, honum Marteini
gat dottið margt óvenjulegt í hug.
Ég þakka alla gestrisnina á liðnum
árum. Ég bið Guð að styrkja Siggu
frænku mína, dæturnar og öll
barnabömin. Við Kjartan sendum
Siggu minni samúðarkveðjur. Guð
blessi minningu Marteins Davíðs-
sonar.
Rós Ingadóttir.
Foreldrar - námskeið - samræmd próf
Hvað þrufa krakkarnir að kunna
fyrir samræmdu prófin?
Námskeið fyrir foreldra nemenda í 9. og 10. bekk hefjast nk. mánudags-,
þriðjudags- og miðvikudagskvöld.
Danska: 13. og 20. nóv. kl. 20.30-22.30.
Stærðfræði: 14., 21. og 28. nóv. kl. 20.30-22.30.
Islenska: 15., 22. og 29. nóv. kl. 20.30-22.30.
Kennt verður í húsakynnum Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur á Hallveigarstöðum.Túngötu 14.
Þátttökugjald á hvert námskeið er kr. 1.500.
Innritun hjá Fræðsluskrifstofu í síma 562 1550.
Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur og SAMFOK.
Grafarvogur
Sýnum í dag, laugardag, frá 13.00 til 16.00
nýjar og bjartar íbúðir í Vallengi. Allar íbúðir
afhendast fullbúnar með öllum innréttingum,
hreinlætistækjum, gólfefnum, sérinngangi,
þvottahúsi í íbúð og fullfrágenginni lóð.
2ja herb GG m
Kaupverð 5.780.000
Undirritun samnings 200.000
Húsbróf 70% 4.046.000
Lán seljanda* 1.000.000
Við afhendingu 534.000
Meðal greiðslubyrði á mán. ** 31.776;
4ra hcrh 96 m
Kaupverð 7.180.000
Undirritun samnings 200.000
Húsbréf 70% 5.026.000
Lán seljanda* 1.000.000
Við afhendingu 954.000
Meðal greiðslubyrði á mán .** 37.656
4ra hcrb 1 OS m *
Kaupverð 7.780.000
Undirritun samnings 200.000
Húsbréf 70% 5.446.000
Lán seljanda* 1.000.000
Við afhendingu 1.134.000 j
Meðal greiðstubyrði á mán .** 40.176 i
3j« herb 86 rr*
Kaupverð 6.780.000
Undirritun samnings 200.000
Húsbréf 70% 4.746.000
Lán seljanda* 1.000.000
Við afhendingu 834.000
Meðal greiðslubyrði á mán.** 35.976 ;
Teikníngar og nánari upplýsingar á staðnum
Ármannsfell hf.
Funahöföa 19 • slmi 587 3599