Morgunblaðið - 11.11.1995, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 49
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Uppogniður
Syfjaða
barnið
Sivjar
Frá Jóni Lárussyni:
ÞEGAR komið er að manni sem ótt
og títt lemur höfði sínu við stein,
þá hjálpar það að setja eitthvað
mjúkt á milli hans og steinsins.
Þetta er lausn, en
ekki góð lausn.
Betra væri að
ræða við manninn
og komast að því
hvað veldur þess-
ari athöfn hans.
Nú hefur mikið
borið á umræðu
um að gera
Hverfisgötuna að
tvístefnugötu og
standa nokkrir kaupmenn þar
fremstir í flokki. Hafa þeir lagt fram
þau rök að hér áður fyrr hafi Hverf-
isgatan verði blómleg verslunargata
og að breytingin muni_ draga nýtt
líf í verslun á svæðinu. í mínu minni
hefur Hverfisgatan aldrei verið tví-
stefnugata og tel ég akstursstefnu
á götunni ekkí skipta neinu máli
varðandi aðsókn í verslanir. Lauga-
vegurinn hefur verið einstefnugata
nú í langa tíð en samt er hann
meiri verslunargata en Hverfisgat-
an. í Kaupmannahöfn eru nokkrar
götur sem ganga undir nafninu
Strikið, en þær eru helstu verslunar-
götur þar í borg. Ekki eru þær tví-
stefnugötur, ekki heldur einstefnu-
götur, þær eru göngugötur.
Göngugötuhugmyndin var líka
reynd hér i borg og varð Austur-
stræti þeirrar ánægju aðnjótandi.
Þetta fyrirkomulag hélt í nokkuð
langan tíma, eða þar til kaupmenn
fóru að beija sér á bijóst og kvarta
undan lélegri aðsóknar að verslun-
um sínum. Töldu þeir að ef umferð
yrði hleypt á götuna, gætu þeir aft-
ur haldið gleðileg jól. Meðal annars
sögðu þeir að með akandi umferð
myndi aukast að fólk „stykki“ úr
bifreiðum og inn í verslanir.
Kaupmenn í Austurstræti fengu
sínu framgengt, en ég get ekki séð
að það hafí breytt neinu, alla veg-
ana hef ég ekki séð fólk „skjótast"
úr bílum í tíma og ótíma, nema þá
helst á rúntinum rétt áður en lög-
reglan lokar strætinu fyrir umferð
á helgarnóttum. Það er með þessa
lausn og hugmyndir Hverfisgötu-
kaupmanna, eins og lausnina að
vandamáli mannsins sem minnst var
á í upphafí, að hún er heldur rýr.
Verslun í miðbænum fór ekki að
dvína vegna breyttrar aksturs-
stefnu, heldur með breyttum við-
skiptaháttum. Kringlan opnaði, en
þar gat fólk verslað innandyra sem
er nokkuð sem vel hentar hér á landi
og vörumarkaðir með ódýra vöru
opnuðu víða í nágrenni Reykjavík-
ur. Þess ber einnig að geta að mið-
bær Reykjavíkur er frábrugðinn
mörgum öðrum miðbæjum að því
leyti að hann er ekki miðsvæðis.
Þetta allt gerir það að verkum að
fólk fer minna niður í miðbæ en
ella. Þetta mun ekki breytast með
tvístefnu á Hverfisgötu né öðrum
„púða“-lausnum, heldur þurfa menn
að setjast niður og ryna að finna
heilsteyptari lausn. Þeir gætu jafn-
vel þurft að sætta sig við að tími
stórverslana utan Laugavegar er lið-
in tíð, liðin eins og tíð hverfakaup-
manna sem ekkert minnir nú á fyr-
ir utan auð verslunarhúsnæði víða
um borg.
Er ekki tími skammtímalausna
liðinn og tími raunhæfra lausna og
viðurkenningar á staðreyndum
runninn upp?
JÓN LÁRUSSON,
Mímisvegi 4, Reykjavík.
Frá Valdimar Jóhannessyni:
FLESTIR sem láta sig barnavernd-
armál varða fyllast furðu þegar
þingkona gengur fram fyrir skjöldu
til að varpa rýrð á lög samfélagsins
um útivistartíma
barna og ungl-
inga. Siv Frið-
leifsdóttir alþing-
iskona lýsti því
yfír opinberlega
að hún hafi lög
um vernd barna
og ungmenna að
engu. Athyglivert
er þegar þingkona
leyfir sér að brjóta
lögin í stað þess að freista þess að
breyta þeim í samræmi við réttlætis-
kennd sína. Þingmenn eru beinlínis
kosnir til setja þjóðinni lög. Hvaða
fleiri iög hefur þingkonan hugsað
sér að hunsa, - áfengislögin, skatta-
lögin, lög um ávana- og fíkniefni,
umferðarlögin? Ætlast þingkonan til
þess að almenningur beri virðingu
fyrir lögunum og Alþingi ef hún sjálf
virðir hvorugt?
Þingkonan lýsti því yfir að 10 ára
barn hennar mætti vera úti til kl.
22 á kvöldin, enda ætti útivistartími
að vera samkomulag milli foreldra
og barna. Samkvæmt lögum um
vernd barna og ungmenna má þetta
barn ekki vera úti eftir kl 20 nema
við sérstakar aðstæður. Þjóðfélagið
á ekki að vera að skipta sér að börn-
um því þau eru einkamál foreldra,
segir þingkonan. Hún á þann kost
einan að beita sér fyrir afnámi laga
um vernd barna og ungmenna frá
1992. Ella samsvarar yfirlýsing
hennar því að almenningur eigi að-
eins að hlíta þeim lögum sem hann
sættir sig við.
Áður en Siv snýr sér að því að
auðvelda börnun næturlífið og hjálp-
ar foreldrum sem ekki treysta sér
til að hafa aðhald að börnum sínum
með aga og reglum til þess að finna
afsakanir fyrir að hlaupast undan
skyldum sínum, er rétt að skoða
hver ávinningur barna er af reglurn
um útivistartíma.
Hugum að svefnþörf 10 ára
barnsins hennar Sivjar. Börn á aldr-
inum 9-12 ára eru talinn þurfa 10-11
klukkustunda svefn á nóttu. Ef 10
ára barnið hennar Sivjar kemur inn
kl 22 er það sofnað kl 22.30 til 23.
Ef það á að fá nægan svefn getur
það fyrst mætt í skólann kl. 10-11
að morgni, ef því er ætlaður hæfileg-
ur tími til að vakna, hafa sig til og
snæða áður en það fer í skólann.
Reglur um útivistartíma barna eru
einnig hugsaðar til að vernda þau
fyrir ýmsum hættum sem þeim eru
búnar eftir að skyggja fer og ýmis
öfl fara á kreik. Við vitum t.d. að
börn sem hefja drykkju gera það
helst þegar þau eru eftirlitslaus úti
við um kvöld og nætur. Lög Alþing-
is um vernd barna og ungmenna
bera það með sér að það er ekki
einkamál foreldra hvernig þau sinna
börnum sínum. Foreldrar eru ekki
taldir „eiga“ bömin sín.-Foreldra-
hlutverkinu fylgir sú skylda að ann-
ast um börnin af kostgæfni, gæta
þess að þau líði ekki skort á verald-
legum hlutum, fái nauðsynlega að-
hlynningu auk þess sem tilfinninga-
legum þörfum þeirra sé fullnægt.
Tilfinningalegar þarfír barna, sem
góðir foreldrar gæta sérstaklega að,
eru:
• þörfin fyrir ást og blíðu
• þörfin fyrir umhyggju
• þörfin fyrir aðhald og reglur
• þörfin fyrir aga
• þörfin fyrir hvatningu
• þörfin fyrir lof og hrós
• þörfin fyrir fyrirmyndir
Eins og öll önnur börn þarf barn-
ið hennar Sivjar að njóta aðhalds
og aga. Það þarf að læra að bera
virðingu fyrir lögum þjóðfélagsins
og þroska með sér sjálfsaga til þess
að öðlast frelsi. Börn sem búa við
eðlilegan aga læra sjálfsaga sem er
hveijum manni nauðsynlegur til þess
að ná árangri í lífinu. Þeir sem hafa
heilbrigðan sjálfsaga eru fijálsir.
Hinir eru einatt leiksoppar skyndiá-
kvarðana og kunna ekki að láta á
móti sér, jafnvel þó að það hafi
slæmar afleiðingar.
VALDIMAR JÓHANNESSON,
framkvæmdastjóri átaksins Stöðvum
unglingadrykkju.
Jón Lárussoit
Valdimar
Jóhannesson
Kristinn gull- og silfur-
smíðamcistari
Tímadjásn er 17 ára í dag.
Ný og betri verslun á sama stað
og þú færð afmælisgjöfina, 17% afslátt!
í tilefni afmælisins höfum við stækkað við okkur og flutt starfsemina 10 metra frá gamla
staðnum á neðri hæðinni í verslunarmiðstöðinni Grímsbæ.
Tímadjásn er gullsmíðastofa sem hefur lagt áherslu á vöruval og hagstætt verð í 17 ár.
Það vita viðskiptavinir okkar, því án þeirra værum við ekki til.
A nýja staðnum er meira úrval en nokkru sinni fyrr. Skartgripir úr gulli, silfri, hvítágulli
og ýmsum listrænum efnablöndum, einnig úr og klukkur í mörgum verðflokkum.
Skírnargjafir okkar hafa fyrir löngu náð vinsæidum, enda á hagstæðu verði.
Við gerum við skartgripi, úr og klukkur af fagmennsku og öryggi.
Einnig smíðum skartgripi eftir hugmyndum eða teikningum viðskiptavina.
Afinælisgjöfina ætlum við að veita viðskiptavinum okkar, en það er
17% afsláttur af öllum vörum í 7 daga.
Líttu við og gerðu góð kaup, afinælisveislan byrjar í dag!
Gtinna gullsmiður
Friða verslunarstjóri
Amór guUsmiðanfmi
m
Helgi gullsmíðanemi
Tímadiásn
Efitalandi 26, Grímsbæ í Fossvogi, 108 Rvík, sími 553-9260.
Gullsmíðastofa Kristins Sigurðssonar stofnsett 11. nóvember 1978, gull- ogsilfurskartgripir, fylgihlutir, skírnargjafir, úrogklukkur, viðgerðarþjónusta