Morgunblaðið - 12.03.1996, Síða 1
FRJALSIÞROTTIR / EM I STOKKHOLMI
Morgunblaðið/Golli
JÓN ARNAR Magnússon í hástökkskeppninni í Evrópumeistaramótlnu í Globen-höllinni í Stokkhólmi.
Svekktur en sáttur
„AUÐVITAÐ er ég- svekktur, en
um leið sáttur með þriðja sætið
og bronsverðlaun. Þetta er það
besta sem ég hef gert á ferlin-
um,“ sagði Jón Arnar Magnús-
son eftir að hann varð í þriðja
sæti í sjöþrautinni. Hann sagðist
mjög ánægður með fimm grein-
ar, allar nema 60 metrana, bæði
60 metra sprettinn og 60 metra
grindahlaupið.
„Ég held ég hafi verið of ákaf-
ur, of æstur. Maður er alltaf að
reka sig á að maður verður að
vera afslappaður í þessu. Ég
fann mig mjög vel í upphitun-
inni og þetta virtist allt ætla að
vera í lagi. Startið var reyndar
ekki mjög gott en ég náði þeim
strax á fyrstu grind þannig að
það virtist allt vera eðlilegt. Svo
rak ég fótinn í grindina, hællinn
lenti á henni og fóturinn fór
ekki yfir. Við þetta datt ég nærri
því og náði síðan að bjarga mér
við næstu grind með þvi að
hoppa jafnfætis yfir hana og
kláraði siðan hlaupið. Það er
ekki margt sem maður hugsar
á svona stundu, annað en reyna
að klára hlaupið þrátt fyrir
áfallið. Ég er eiginlega hissa á
hversu góðan tíma ég fékk þrátt
fyrir allt.
Ef ég hefði hlaupið grindina
eins og maður hefði ég fengið
rúmlega 200 stigum meira og
þá hefði ég sigrað og sett
Norðurlandamet. En það er allt-
af hægt að segja ef og ef. Mað-
ur verður áð læra af þessum
mistökum og nýta sér það næst.
Ég ákvað að láta þetta óhapp
hvetja mig í stangarstökkinu og
það var í rauninni klaufaskapur
að fara ekki yfir 5,05 metra.
Annars er ég sáttur því ég bætti
árangur minn í stöng innanhúss,
átti áður 4,90 best. Við Gísli
reiknuðum síðan út að í 1.000
metra hlaupinu yrði ég að vera
kominn út úr síðustu beygju
þegar Pólverjinn kæmi í mark.
Ég reyndi að hanga í honum
eins og ég gat og það tókst,“
sagði Jón Arnar um sjöþrautar-
keppnina.
■ Martröö... / B9
VIÐTAL VIÐ EVRÓPUMEISTARANN VÖLU FLOSADÓTTUR / B8
VINNINGSTOLUR
MIÐVIKUDAGINN
AÐALTOLUR
BÓNUSTÖLUR
HeikJarvinningsupphæð:
82.390.140
Á ískmdi:
1.730.140
UPPLÝSINGAR
í aukaútdrœtti I Vlkingalottóínu síöastliðlnn
miðvikudag komu upp eftlrfarandl tölur: 2,8,13,
29,43, og 47. Fjórir skiptu með sér rúmlega 58
milljónum.
Tvöfaisiur
1. vinnirtgur
Vertu viðbúin(n) vinningi
!. vinningur er áætlaður 44 miiljónir kr