Morgunblaðið - 31.03.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. MARZ 1996 B 13
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Úrslitakeppni
íslandsmótsins hefst
á miðvikudaginn
ÚRSLITAKEPPNI 10 sveita í íslands-
mótinu í sveitakeppni hefst nk. mið-
vikudag í Bridshöllinni, Þönglabakka,
og hests spilamennskan kl. 15.20.
í fyrstu umferðinni spila saman VíB
gegn BangSímon, Aðalsteinn Jónsson
gegn Samvinnuferðum, Ólafur Lárus-
son gegn Antoni Haraldssyni, Lands-
bréf gegn Búlka hf. og Þormóður
Rammi spilar við Lyfjaverzlun Islands.
Önnur umferðin verður síðan á mið-
vikudagskvöldið, þrjár umferðir á skír-
dag, tvær á föstudaginn langa og tvær
síðustu umferðirnar verða spilaðar á
laugardag. Mótinu lýkur um kl. 19.
Stefnt er að því að koma á sýningar-
aðstöðu í miðsal hússins. Yfirkeppnis-
stjóri verður Sveinn R. Eiríksson en
Jakob Kristinsson töflustjóri. Gefið
verður út mótsblað sem Guðmundur
Pétursson blaðamaður sér um. Minnt
er á að skv. samþykkt ber spilurum
að vera snyrtilega til fara. Aðgangur
á úrslitakeppnina er ókeypis.
B-landslið
Ragnar Magnússon og Björn Ey-
steinsson hafa fengið það verkefni við
þriðja mann að koma á fót B-landsliði
í opnum flokki. Tillagan kom fram á
fundi bridssambandsins fyrir nokkru
og fékk góðan hljómgrunn. F'inna þarf
mót, sem liðið getur tekið þátt í. Þá
er spurnig hvernig liðið verður valið
og hveijar verða skyldur þess og rétt-
indi.
Þá kom fram á téðum fundi að
Landsbankinn er styrktaraðili Brids-
sambandsins þetta árið en íslands-
banki hefir vérið styrktaraðili mótisins
undanfarin 5 ár.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
2. kvöldið af 3 í Hraðsveitakeppni
félagsins var spilað mánudaginn 25.
mars. Hæsta skor kvöldsins náðu:
Halldór Einarsson 644
Ólafur Ingimundarson 637
Dröfn Guðmundsdóttir 617
Meðalskor kvölds er 576.
Efstu sveitir að loknum 2 kvöldum
af 3 eru:
Ólafur Ingimundarson 1311
Halldór Einarsson 1274
Dröfn Guðmundsdóttir 1191
Hulda Hjálmarsdóttir 1162
Bridsfélag Hafnarfjarðar spilar öll
mánudagskvöld í félagsálmu Hauka-
hússins með innkeyrslu frá Flata-
hrauni. Spilamennska hefst kl. 19.30.
Bridsfélag Reykjavíkur
Þriggja kvölda Monrad-barómeter
félagsins kláraðist miðvikudaginn 27.
mars. Sigurvegarar eftir góðan enda-
sprett síðasta kvöldið voru Örn Arn-
þórsson og Guðlaugur R. Jóhannsson.
Þeir enduðu með +393 sem jafngildir
58,7% skor. Úrslit urðu annars:
Örn Amþórss. - Guðl R. Jóhannss. +393 (58,7%)
Aðalst. Jörgensen - Ásmundur Pálss. +302 (56,7%)
Sverrir Ármannss. - Sævar Þorbjss. +220 (54,9%)
Sigurður B. Þorstss. - Haukur Ingas. +216 (54,8%)
Hjalti Elíasson - Eiríkur Hjaltason +211 (54,7%)
Valgarð Blöndal - RúnarMagnússon +186 (54,1%)
Hæsta skor kvöldsins náðu:
Örn Amþórsson - Guðlaugur R. Jóhannsson +240
Sigmundur Stefánsson - Jón Þór Daníelsson +190
Guðmundur P. Amarson - Þorlákur Jónsson +165
RagnarT. Jónasson - Tryggvi Ingason +157
Gefið verður frí miðvikudaginn 3.
apríl vegna úrslita íslandsmóts í
sveitakeppni 1996. Næsta keppni fé-
lagsins er Board a Match-sveita-
keppni. Hún byijar 10. apríl.
Bridsfélag' Kópavogs
Fjórða og síðasta kvöldið í Catalínu-
mótinu var spilað fimmtudaginn 28.
rhars. Keppt var um veglegan bikar
sem veitingahúsið Catalína gaf. Örugg-
ir sigurvegarar urðu Jón Steinar Ing-
ólfsson og Mural Serdar, með 126 stig.
Lokastaðan:
Jón Steinar Ingólfsson — Murat Serdar 126
Sigurur Siguijónsson — Ragnar Björnsson 97
Guðmundur Baldursson - Sævin Bjamason 94
ÞórðurBjörnsson —RagnarJónsson 86
ÞorsteinnBerg —JensJensson 73
Kvöldskor:
Hertha Þorsteinsd. - Arngrunnur Jónsd. 65
Guðmundur Baldursson — Sævin Bjamason 41
Freyja Sveinsdóttir - Sigríður Möller 34
Næsta keppni félagsins er tveggja
kvölda Board a Match-tvímenningur,
fimmtudaginn 11. apríl.
Peugeot406
Þaö er komiö að því að kynna trompiö í Peugeot flotanum, Peugeot 406,
einn glæsilegasta bíl sem þú hefur séö í langan tíma. Hann hefur verið kjörinn
bíll ársins víða í Evrópu og þaö er auðvitað ekkert sem kemur á óvart. Þú getur
valið um 1.8 I eða 2.0 I vél eða 1.9 I turbo diesel vél. En þú færð alltaf öryggi í glæsilegri
og klassískri hönnun, ABS bremsur og loftpúða fyrir bílstjóra og farþega í framsæti.
Nýbýlavegur 2
Sími: 554 2600
Komdu og reynsluaktu þessum glæsilegu bílum á Peugeot sýningunni um
helgina. Opið laugardag og sunnudag kl. 12 -17.
Peugeot306
Kynnum einnig litla bróður í nýrri útfærslu,
Peugeot 306 Style, sem er sniðinn að þörfúm
þeirra sem eru snarirí snúningum.