Morgunblaðið - 31.03.1996, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 31.03.1996, Blaðsíða 30
30 B SUNNUDAGUR 31. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ • • Ograndi návígi sem lætur engan í friði Kaffileikhúsið þykir ein skemmtilegasta nýjungin í reykvísku leikhúslífi og nýtur sívaxandi vinsælda. Hildur Einarsdóttir ræðir við Ásu Richardsdóttur, framkvæmdastjóra Kaffíleikhússins. SEGJA má að áhorfandinn gangi beint inn í leikmyndina þegar hann stígur inn í Kaffileikhúsið í Hlaðvarpanum. Sýningarsalurinn er eins og stór, gamaldags stofa með þungum viðarhúsgögn- um. Skreyttur munum sem eru sóttir upp á háaloft Hlaðvarpans og í næstu antikverslun. Nema hvað hér stendur ekki eitt borðstofu- borð á gólfinu eins og í venjulegri stofu held- ur mörg lítil borð með útskornum tréstólum í kring sem standa þétt upp við upphækkað svið í einu horni salarins. Ljósin eru slökkt og blásið á logandi kertin á borðunum. Gesturinn heldur ef til vill að nú fái hann að vera í friði en sú ér ekki raun- in. Hann má eiga von á því að hafna í kjöltu einhvers leikarans eða honum er rekinn óvænt- ur rembingskoss á kinnina. I Kaffileikhúsinu er ögrandi návígi sem lætur engan í friði, hvorki áhorfandann né leikarann. Kaffileikhúsið, sem var stofnað fyrir einu og hálfu ári, laðar sífellt að sér fleiri áhorfend- ur og sýnt er fimm kvöld í viku. Nafnið á leikhúsinu skírskotar til þess að boðið er upp á veitingar fyrir og eftir sýningar. Hægt er að fá léttan kvöldverð ásamt lífrænt ræktuðu víni, kökubita og kaffí. Vínið gefur vísbend- ingu um heilbrigðan matarsmekk þeirra Krist- ínar Pálsdóttur og Kristlaugar Sigurðardóttur sem ráða ríkjum í eldhúsinu en þær bjóða einkum upp á grænmetisrétti. Ekki er þjónað til borðs í Kaffileikhúsinu heldur sækja gestirnir sjálfir veitingar sínar og skila aftur óhreinum matarílátum að kvöld- verðinum loknum. Þetta fyrirkomulag gefur leikhúsinu óformlegt og fijálslegt yfirbragð og heldur niðri kostnaðinum. Fjöllistahús þar sem gefst tækifæri til tilrauna Mörgum þykir þetta litla leikhús vera ein skemmtilegasta nýjungin í reykvísku leikhús- lífí um þessar mundir. Þar gefst tækifæri til tilrauna og íslensk leikverk skipa þar veglegan sess. „Af átján sýningum sem settar hafa verið upp frá upphafi eru aðeins fjórar erlend- ar og sum verkanna hafa verið frumflutt í leikhúsinu," segir Asa Richardsdóttir, fram- kvæmdastjóri Kaffileikhússins, þar sem hún hreiðrar um sig uppi í sófa á Hótel Borg og ræðir um leikhúsið. „Annars má segja að Kaffileikhúsið sé orðið annað og meira en leik- hús, því hér hafa allar listgreinar fengið inni. Það ætti fremur að kalla það fjöllistahús," segir hún. „Sögukvöldin okkar eru dæmi um nýjung sem fallið hefur í góðan jarðveg. Við fáum fólk úr öllum áttum til þess að koma saman og segja sögur og ræktum um leið þá sagna- hefð sem býr með þjóðinni. Meðal þeirra sem slógu í gegn voru prestar og þingmenn sem sögðu sögur úr starfi sínu. Sýningin sem við bjuggum til upp úr glóðvolgri jólabók, Hjarta- stað eftir Steinunni Sigurðardóttur, vakti mikla athygli. Við brugðum upp myndum úr bókinni og settum þær á svið,“ segir Ása. Hvernig ætli starfsemin sé skipulögð, hver ræður til dæmis vali á leikritum? . Ása segist fara með listræna stjórn leik- hússins en stjórn Hlaðvarpans hefur umsjón með starfinu. „Síðan á ég góða bakhjarla sem ég get alltaf leitað tii,“ segir hún. „Þetta gengur þannig fyrir sig að leikhópar koma með verk til okkar sem þeir vilja setja upp eða við fáum hugmyndir og leitum eftir samstarfsfólki. íslendingar eiga frábæra lista- menn og margir þeirra hafa viljað starfa í Kaffileikhúsinu og eiga stóran þátt í vinsæld- um þess. Þeim þykir gaman og spennandi að starfa í þessu litla leikhúsi þar sem nálægðin við áhorfandann er svona mikil. Áhrifin eru sterk, ekki síst fyrir listamanninn sjálfan.í Hvað gerist svo þegar verkefnin hafa verið ákveðin? „Þeir fá húsnæðið endurgjaldslaust til æf- inga og geta notað þann búnað sem þar er. Annað verða leikararnir að skaffa sjálfir." Höfum farið hægt í að leita eftir styrkjum Leiklistarstarfsemi hér á landi verður seint rekin með gróða enda kannski ekki tilgangur- inn. Ása segir að Hlaðvarpinn Jiurfi ennþá að borga með Kaffileikhúsinu. I upphafi hafi verið lagt í nokkurn stofnkostnað og framund- an séu kostnaðarsamar framkvæmdir sem þoli ekki langa bið. „Leigutekjur frá leikhópum og veitingasölu hrökkva skammt og því er ljóst að við þurfum að Ieita annarra leiða. Fijótlega eftir að leikhúsið var stofnað fengum við 700 þúsund króna styrk frá Reykjavíkurborg sem kom sér ákaflega vel og auðveldaði okkur að greiða niður stofnkostnaðinn. Einnig höfum við notið góðs af átaksverkefni Reykjavíkur- borgar. í byrjun ársins var ráðinn til okkar einn starfsmaður til sex mánaða á þess veg- um, gengur hann í öll störf,“ segir Ása. „Annars höfum við viljað fara hægt í að leita eftir styrkjum því við höfum fyrst viljað sýna okkur og sanna. Við erum með nokkrar styrkumleitanir í gangi og lofa fyrstu viðbrögð góðu. Ég tel að atvinnurekendur skilji mikil- vægi þess að styrkja íslenska menningarstarf- semi. Menningin er sá grunnur sem samfélag okkar er byggt á. Án hennar værum við ekki þjóð. Minn draumur er sá að geta raðið fólk til verkefna sem við höfum áhuga á að setja upp og borga því laun. Fólk getur ekki enda- laust sett upp metnaðarfullar sýningar með því að treysta á stopula styrki eða vinna kaup- laust. Það er allt of algengt að fólk líti á það sem sjálfsagðan hlut að listamenn vinni án greiðslu. Þessu viðhorfi þurfa listamenn sjálf- ir að breyta. Kosturinn við að sýna hjá okkur nú er sá að leikhópar eða aðrir hópar taka litla fjárhagslega áhættu við að setja upp sýn- ingar hér. Það er einfaldlega ekki rúm í hús- inu fyrir plássfrekar sýningar. Ef vel gengur hagnast allir en ef illa gengur þá er áhættan lítil." Hugmyndaauðgi og framkvæmdagleði Ása segist1 hafa ákaflega mikla ánægju af starfi sínu sem framkvæmdastjóri Kaffileik- hússins. „Þetta er skemmtilegasta starf sem ég hef haft með höndum,“ segir hún. „Það er gefandi að fá hugmynd að verki og geta látið hana rætast. Geta fylgst með undirbún- ingijeikverks, hvernig það smám saman breyt- ist í meðförum leikaranna og tekur á sig heil- steypta mynd. Þegar kemur að frumsýningu grípur mig alveg sérstök tilfinning sem oftast er mjög ánægjuleg. Það verða líka ýmsar uppákomur í þessu litla leikhúsi. í vetur þegar við ætluðum að sýna Sápu Z'h eftir Eddu Björgvinsdóttur, kom í ljós að ein leikkona í verkinu, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, átti að leika í leikriti í Þjóðleikhús- inu þá um kvöldið. Við vorum með fullt hús svo góð ráð voru dýr. Við veltum fyrir okkur hvað við gætum gert til að skemmta gestunum þar til Ólafía Hrönn kæmi og kölluðum í vin okkar sem kann ýmislegt fyrir sér í töfra- brögðum og hann skemmti gestunum til klukk- an ellefu en þá gat sýningin hafist.“ Svo við víkjum 'að Ásu sjálfri þá er hún menntuð í alþjóðastjórnmálum frá Bretlandi. Eftir að skólagöngu hennar lauk starfaði hún á fréttastofu Sjónvarpsins í erlendum fréttum. Um tíma vann hún sem upplýsingafulltrúi Jafnréttisráðs. Ása er gift Hjálmari H. Ragn- arssyni tónskáldi og eiga þau tvö börn. Upp- haflega var Ása ráðin sem framkvæmdastjóri Hlaðvarpans sem er hlutafélag í eigu 2.000 kvenna. Hlaðvarpinn er menningar-og félags- miðstöð kvenna en leigir jafnframt út hús- næði undir fjölbreytta starfsemi s.s. vinnustof- ur Iistamanna, ve'rslunina Fríðu frænku, Kvennaráðgjöfina og Stígamót. Fljótlega eftir að Ása tók við starfinu kom upp sú hugmynd að lífga upp á starfsemina með því að stofna þar Kaffileikhús en á fyrstu árum Hlaðvarp- ans voru settar upp nokkrar vinsælar Ieiksýn- ingar í húsinu. Hvað þarf leikhússtjóri í Kaffileikhúsinu að hafa til brunns að bera? „í starfi framkvæmdastjóra lítillar menn- ingarstofnunar sem þessarar er tvennt sem skiptir máli, hugmyndaauðgi og framkvæmda- gleði. Hann þarf Iíka að vera ferskur og hafa athyglisgáfuna í lagi og geta skynjað tíðarand- ann. Ég er svo heppin að hafa í kringum mig ákaflega gott samstarfsfólk sem er bæði frjótt og frumlegt. Mér finnst ég hafa lært mikið af því góða fólki. Menntun er góð og gild sama á hvaða sviði sem hún er en ég hef jafn- mikla trú á meðfæddum hæfileikum fólks. Ég sjálf er lítið menntuð á þessu sviði og það kann að vera að ég þurfi að leita frek- ari menntunar ef ég ætla að starfa áfram á hinum listræna vettvangi. Ég er ekki efni í góðan listamann en hugsanlega efni í góðan liststjórnanda. Það er þáttur sem við íslend- ingar höfum ekki hugað nægilega vel að, að ala upp góða liststjórnendur og skapa um- hverfi fyrir þá að starfa í. Við eigum nokkra en of fáa. Það nægir ekki að eiga góða lista- menn, það þarf líka fólk sem kann að koma hlutunum í kring. Of mikið af orku lista- manna fer í alls kyns framkvæmdaþætti þeg- ar þeir eiga að vera að búa til góða list. Fólk heldur að hlutirnir gerist af sjálfu sér en þeir gera það ekki. Listamenn telja sig vera að spara peninga með því að gera allt sjálfir. Ég held í raun að það megi spara mikinn tíma, orku og peninga með því að fela framkvæmdafólki framkvæmdir og lista- mönnum hina eiginlegu list og útkoman verði margfalt betri.“ Fastur leikhópur Kaffileikhúsið er ungt leikhús í þróun og möguleikar þess margir svo við spyijum Ásu hvernig framtíðin líti út í hennar augum. „Hér eftir sem hingað til munum við leggja áherslu á að bjóða upp á nýjungar og fara ótroðnar slóðir, það hefur verið lykillinn að vinsældum okkar. Ég veit ekki hvort ráðlegt sé að segja frá framtíðaráformum okkar, það er aldrei að vita nema að hugmyndirnar skjóti upp kollinum í einhverju öðru leikhúsi. Þó get ég sagt frá því að við ætlum okkur að leita eftir leikverkum frá fjarlægari menningar- heimum og þá sérstaklega verkum eftir kon- ur. Önnur hugmynd er að setja upp íslenska nútímarevíu. Hvað hagnýtu hliðina varðar höfum við áhuga á að kaupa nýja stóla fyrir áhorfendur. Óneitanlega væri gaman að kom- ast í þá aðstöðu að geta ráðið fastan leikhóp við leikhúsið eins og ég nefndi hér að fram- an. Hér er frekar um framtíðarósk mína að ræða en að nokkuð hafi verið rætt um það enda höfum við ekki fjármuni til að koma því í kring.“ Hvað er það sem gerir Kaffileikhúsið svona vinsælt að mati Ásu? „Fjölbreyttar og metnaðarfullar sýningar. Svo má ekki gleyma þeirri staðreynd að Kaffi- leikhúsið er skapað af konum. Það eru konur sem ráða leikhúsinu. Konur eru í meirihluta þeirra sem setja hér upp verk og einnig í hópi leikara. Það eru líka konur sem sjá um veitingasöluna. Ef Kaffileikhúsinu væri stjórn- að af körlum væru áherslur allt aðrar. Hið kvenlega yfirbragð Kaffileikhússins hefur fall- ið í kramið og það e.r.gptt.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.