Morgunblaðið - 31.03.1996, Blaðsíða 20
20 B SUNNUDAGUR 31. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAi 'V .1 YSÍNGAR
New Jersy
Aðstoð óskast við heimilisstörf hjá þriggja
manna fjölskyidu í New Jersy frá 1. júní í
eitt ár. Má ekki reykja. Bílpróf skilyrði.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
10. apríl, merktar: „NJ - 63“.
Offsetprentarar
Offsetprentari óskast til starfa sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 2. apríl.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merkt-
ar: „Offset - 4224“.
Vélavörður
Vélavörður óskast á mb. Aðalvík KE-95.
Þarf 1000 ha. réttindi.
Upplýsingar veittar í síma 421 4500 til
kl. 17 og 421 3083 á kvöldin.
Vélvirki eða
bifvélavirki
vanur viðgerðum á vörubílum og lyfturum
óskast á lítið verkstæði.
Þarf að geta unnið sjálfstætt.
Upplýsingar í símum 557 7217 og 588 4970.
Sölustarf
Ört vaxandi innflutningsfyrirtæki leitar að
starfskrafti til sölustarfa.
Um er að ræða 50% starf til að byrja með.
Æskilegt er að viðkomandi sé stundvís, hress
og áhugasamur. Reynsla af sölustörfum
nauðsynleg.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl., merktar:
„SS - 121“, fyrir 10. apríl.
Rafeindavirki
Viljum ráða rafeindavirkja til að starfa við
siglinga- og fiskleitartæki.
Starfið er laust þann 1. maí.
Vinsamlegast sendið umsókn til Friðriks A.
Jónssonar ehf., pósthólf 362, 121 Rvík,
fyrir 10. apríl.
Sölumaður
Fasteignasala á fljúgandi fart óskar að ráða
harðduglegan og útsjónarsaman sölumann.
Leitað er að sölumanni, sem hefur náð mjög
góðum árangri í sölustörfum og ætlar að
selja fasteignir.
Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og
helstu afrek, sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
4. apríl, merktar: „Svaka góður - 99.“
Útkeyrsla
- sölumennska
Óskum að ráða starfskraft til útkeyrslu og
sölustarfa sem fyrst. Dugnaður og reglusemi
áskilin.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, skilist inn á af-
greiðslu Mbl., merktar: „BS - 1215“.
Lager
Fyrirtæki í ferðaþjónustu óskar að ráða
starfsmann til lagerstarfa frá 15. júní til 1.
október. Við leitum að dugmiklum starfs-
manni sem getur starfað sjálfstætt.
í umsókninni skulu koma fram uppl. um ald-
ur, fyrri störf og meðmæli. Umsóknum skal
skila til afgreiðslu Mbl., merktar:
„Lager - 4229“ fyrir 15. apríl.
Framkvæmdastjóri
Laust er til umsóknar starf framkvæmdastjóra
ungmennasambandsins Úlfljóts (Austur-
Skaftafellssýslu) og ungmennafélagsins Sindra
(Höfn). Um er að ræða fullt starf allt árið.
Umsóknir um starfið berist skriflega fyrir 15/4
1996 til USÚ, pósthólf 124, 790 Hornafirði.
Nánari upplýsingar veittar í síma 478 1415 í
vinnutíma, en 478 1868 og 478 1524 á kvöldin.
Tannsmiður
Tannsmiðjan Króna auglýsir eftir tannsmið í
undirbúnings- og postulínsvinnu.
Skriflegar umsóknir óskast sendar til
afgreiðslu Mbl. merktar: „T - 1003“ fyrir
14. apríl nk.
Símavarsla
- skrifstofuvinna
Starfskraftur óskast í símavörslu og aðstoð
á skrifstofu á Sendibílastöð í Reykjavík.
Viðkomandi þyrfti að byrja 15. apríl nk.
Vinsamlegast skilið umsóknum inn á af-
greiðslu Mbl., merktum: „S - 2019“, fyrir
9. apríl nk.
Laus staða
Laus er til umsóknar staða rektors við
Menntaskólann við Sund.
Staðan veitist frá 1. ágúst 1996.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og starfsferil, sendist menntamálaráðuneyt-
inu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík fyrir
27. apríl.
Menntamálanáðuneytið,
29. mars 1996.
Framsækinn
Við leitum að framsæknum og hæfum aðila
til að leiða sölu- og markaðsmál vélaverslun-
ar. Starfið felst í sölu og þjónustu ásamt
heimsóknum til viðskiptavina. Einhver mark-
aðs- og tæknimenntun æskileg, ásamt þekk-
ingu á rafsuðuvélum og rafsuðuvörum.
Þeir sem áhuga hafa leggi inn umsókn með
upplýsingum á afgreiðslu Mbl. merkta:
„Framsækinn - 15598“ fyrir 12. apríl nk.
Símvarsla
- sendiferðir
Innflutningsfyrirtæki óskar eftir að ráða
starfskraft til framtíðarstarfa við símvörslu,
sendiferða í toll og banka svo og annarra
almennra skrifstofustarfa. Verslunarmennt-
un æskileg svo og einhver starfsreynsla.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merkt-
ar: „Símvarsla - 541“, fyrir 10. apríl nk.
Leikskólar
Garðabæjar
Leikskólakennarar, þroskaþjálfar eða starfs-
menn með aðra uppeldismenntun óskast til
starfa á eftirtalda leikskóla:
Bæjarból v. Bæjarbraut, sími 565 6470.
Hæðarból v. Hæðarbraut, sími 565 7670.
Kirkjuból v. Kirkjulund, sími 565 6322.
Lundarból v. Hofstaðarbraut, sími 565 6176.
Nánari upplýsingar veitir einnig leikskólafull-
trúi í síma 565 6622.
Vélfræðingur
Orkubú Vestfjarða óskar eftir að ráða
vélfræðing til starfa á ísafirði tímabundið.
Uplýsingar veitir Kristján Pálsson
í síma 456 3201.
Létt lagerstörf
- útkeyrsla
Óskum eftir að ráða starfskraft til léttra lag-
erstarfa ásamt útkeyrslu og fleiru er til fellur.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl., merktar:
„EE - 211“, fyrir 10. apríl.
Matreiðslumenn
Vanur matreiðslumaður óskast til starfa sem
fyrst. Einnig vantar aðstoðarmann í eldhús.
Upplýsingar á staðnum.
Matstofa Miðfells sf.,
M
W
„Au pair“
í Þýskalandi
Þýska fjölskyldu í Bremen, hjón með 5 ára
strák og hálfs árs gamla tvíbura, vantar reyk-
iausa „au pair“ í eitt árfrá og með 1. ágúst nk.
Upplýsingar gefur Erna Jónsdóttir, núverandi
„au pair" í síma 00-49-421-3469898.
Familie Diederichsen,
Bernquestrasse 15,
28209 Bremen, Þýskaland.
Heilsugæslulæknir
Staða heilsugæslulæknis við Heilsugæslustöð
Suðurnesja, Keflavík, er laus til umsóknar.
Æskilegt er að umsækjendur hafi viðurkenn-
ingu sem sérfræðingar í heimilislækningum.
Umsóknum skal skilað til undirritaðs fyrir
1. maí nk. á sérstökum eyðublöðum, sem
látin eru íté á skrifstofu Heilsugæslustöðvar-
innar, Mánagötu 9, Kelfavík, og á skrifstofu
landlæknis.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður
og yfirlæknir stöðvarinnar í síma 422 0500.
Keifavík, 27. mars 1996.
Framkvæmdastjóri.
Gæðaeftirlit
Óskum eftir starfsmanni á rannsóknastofu í
fullt starf. Viðkomandi þarf að vera röskur
og duglegur og hafa mikinn áhuga á störfum
við gæðaeftirlit og vöruþróun.
Stúdentspróf lágmarksmenntun.
Áhugasamir sendi umsókn til Sólar hf. fyrir
10. apríl, merktar: „Gæðaeftirlit".
Þverholti 19-21,
105 Reykjavík.