Morgunblaðið - 31.03.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 31.03.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MARZ 1996 B 19 ATVIN N WBAUGL YSINGAR Heilsugæslan í Reykjavík Laus er til umsóknar 50% til 100% staða Ijósmóður við mæðradeild Heilsuverndar- stöðvar Reykjavíkur. Staðan er þegar laus. Óskum einnig eftir Ijósmóður til sumarafleys- inga við mæðradeildina. Umsóknir sendist starfsmannastjóra, Barónsstíg 47, 101 Reykjavík á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem þar fást. Nánari upplýsingar um störfin gefur hjúkrunar- framkvæmdastjóri mæðradeildar í síma 552 2400. Heilsugæslan íReykjavík, stjórnsýsla. Hveragerðisbær auglýsir hér með eftir umsóknum í starf garð- yrkjustjóra. Starfið felur m.a. í sér umsjón með öllum opnum svæðum í bænum, skrúð- garði, hveragarði, stofnanalóðum og skóg- rækt. Umsjón með öllum framkvæmdum fyrr- nefndra svæða. Umsjón með sumarskóla, skólagörðum o.fl. Leitað er að starfsmanni með menntun frá Garðyrkjuskóla ríkisins. Æskilegt er að við- komandi sé útskrifaður af skrúðgarðyrkju- braut. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun maímánaðar nk. Umsóknum, sem innihalda upplýsingar um menntun, fyrri störf og annað, sem umsækj- andi vill að fram komi, sendist fyrir 12. apríl nk. til undirritaðs. Nánari upplýsingar veita skrifstofustjóri og undirritaður. Bæjarstjórinn í Hveragerði, Einar Mathiesen. G> KENNARA- HÁSKÓU ÍSLANDS Lausar stöður Við Kennaraháskóla íslands eru eftirtaldar stöður lausar til umsóknar: 1. Staða fastráðins stundakennara í upp- eldis- og kennslufræði. Helstu viðfangsefni eru undirbúningur, framkvæmd og mat á skólastarfi, námi og kennslu. Auk fullgilds háskólaprófs skal umsækjandi hafa viðurkennd kennsluréttindi eða hafa að öðru leyti nægilegan kennslufræðilegan undirbún- ing. Reynsla af kennslu og skólastarfi er nauðsynleg. Umsókn fylgi ítarleg skýrsla um vísindastörf, ritsmíðar og rannsóknir, svo og upplýsingar um námsferil og önn- ur störf. 2. Staða verkefnisstjóra vettvangsnáms. Verkefnisstjórinn skipuleggur og hefur umsjón með vettvangsnámi kennara- nema. Verkefnisstjórinn skal hafa kenn- aramenntun og víðtæka þekkingu og reynslu af skólastarfi. Umsókn skal fylgja greinargerð um menntun og fyrri störf. Staða þessi er veitt til fjögurra ára í senn. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rík- isins. Gert er ráð fyrir að stöðurnar verði veittar frá 1. ágúst 1996. Umsóknir berist Kennaraháskóla íslands v/Stakkahlíð, 105 Reykjavík, fyrir 20. apríl nk. Rektor Matreiðslumaður óskast Sumarhótel úti á landsbyggðinni óskar eftir að ráða faglærðan matreiðslumann til starfa í sumar. Umsóknum, með upplýsingum um fyrri störf, skal skilað til afgreiðslu Mbl., merktum: „M - 538“, fyrir 3. apríl nk. „Au pair“ - USA íslensk fjölskylda, með tveggja ára strák, óskar eftir reglusamri og barngóðri „au pair“ frá og með júní nk. Verður að hafa bílpróf og má ekki reykja. Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir 12. apríl, merkt: „Au pair í lowa City - 15599“. Markaðs- og rekstrarráðgjafi Laus er til umsóknar staða ráðgjafa hjá Atvinnu- þróunarfélagi Austurlands. Starfið er að veru- legu leyti fólgið í ráðgjöf og verkefnum sem tengjast útflutningi og markaðssetningu erlend- is, en felur einnig í sér almenna rekstrarráðgjöf og vinnu að atvinnuþróunarmálum. Leitað er eftir einstaklingi, sem öðlast hefur reynslu í atvinnulífinu, getur haft frumkvæði að verkefnum og hefur góða samskiptahæfileika. Gerð er krafa um að viðkomandi hafi menntun á háskólastigi í viðskiptagreinum og markaðs- fræði, hafi gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku auk eins Norðurlandamáls. Skrifleg umsókn, með greinargóðum upplýs- ingum um umsækjanda, þarf að berast á skrifstofu Atvinnuþróunarfélagsins í síðasta lagi 15. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri félagsins í síma 472 1287. Atvinnuþróunarfélag Austurlands, Ránargötu 6, 710 Seyðisfirði. VEÐURSTOFA ÍSLANDS Jarðeðlisfræðingur - tæknifræðingur Vegna alþjóðlegra rannsóknaverkefna eru eftirfarandi stöður á jarðeðlissviði Veður- stofu íslands lausar til umsóknar. Um er að ræða stöður til eins og hálfs til tveggja ára. Framlenging er hugsanleg. Staða jarðeðlingsfræðings/jarðskjálftafræð- ings frá 15. maí nk. Gert er ráð fyrir B.S.-prófi eða sambæri- legri menntun í jarðeðlisfræði, ásamt tölvu- reynslu. Starfið gæti tengst framhaldsnámi til Ph.D. prófs. Staða tæknifræðings frá 15. maí nk. Gert er ráð fyrir menntun og reynslu á sviði rafeindatæknifræði ásamt tölvureynslu. Starfið erfjölbreytilegt og krefst frumkvæðis. Staða jarðeðlisfræðings/jarðskjálftafræðings frá 1. september nk. Gert er ráð fyrir Ph.D. prófi eða sambæri- legri menntun og mikilli reynslu í gagna- vinnslu og tölvunotkun. Umsóknir þurfa að berast til Veðurstofu íslands í síðasta lagi 15. apríl nk. Starfsmenn Jarðeðlissviðs Veðurstofu íslands gefa nánari upplýsingar. Veðurstofa Islands, Bústaðavegi 9, 150 Reykjavík. Sími 560 0600. Skattstofa Vestur- landsumdæmis Laust er til umsóknar skrifstofustarf á Skatt- stofu Vesturlandsumdæmis. Starfið felst í álagningu, eftirliti og annarri framkvæmd við virðisaukaskatt. Æskilegt er að umsækjend- ur hafi lögfræði- eða viðskiptafræðimenntun eða a.m.k. reynslu og kunnáttu á sviði skatta- framkvæmdar. Laun eru skv. launakerfi opin- berra starfsmanna. Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf, þurfa að hafa borist skattstjóra 15. apríl 1996. Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stillholti 16-18, 300 Akranesi. Barnaverndarstofa í samvinnu við félagasamtökin Barnaheill auglýsa eftir aðila til að annast rekstur meðferðar- heimilis fyrir börn að Geldingalæk á Rangár- völlum. Um er að ræða einkarekið fjölskyldu- meðferðarheimili fyrir 6 börn á grunnskóla- aldri sem eru í þörf fyrir sérhæfða meðferð og umönnun. Heimilið er rekið skv. sérstök- um þjónustusamningi, gert er ráð fyrir fjórum starfsmönnum og að þeir búi á staðnum. Æskilegt er að meðferðaraðilar séu hjón þótt ekki sé það skilyrði. Æskilegt er að umsækjendur hafi háskóla- menntun á sviði uppeldis- eða sálarfræði eða aðra sambærilega menntun. Undirstöðugóð þekking og reynsla af vinnu með börn er skilyrði. Nánari upplýsingar veitir forstjóri Barna- verndarstofu í síma 552 4100. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil, ber að skila til Barnaverndar- stofu, Suðurgötu 22, eigi síðar en 22. apríl. Örtölvutækni ehf. umboðið á íslandi auglýsir eftir tæknimönnum f þjónustudeild Sóst er eftir tæknimönnum með menntun og reynslu á einu eða fleiri af eftirfarandi sviðum: • Open VMS • UNIX • Windows NT • Cisco netbúnaði • Internet prótókólum og þjónustu. • Novell í boði eru spennandi störf fyrir metnaðar- fullt fagfólk. Starfsþjálfun fer fram bæði inn- anlands og utan. Skriflegar umsóknir, merktar STARFS- UMSÓKN, sendist til Örtölvutækni ehf., Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til 10. apríi nk. pA-VHtv Örtölvutækni ehf. er framsækið fyrirtæki með trausta eiginfjár- stöðu. Félagið er m.a. umboðsaðili fyrir Digital Equipment Corp- oration og Cisco Systems sem eru leiðandi fyrirtæki hvort á sínu sviði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.