Morgunblaðið - 12.04.1996, Side 1

Morgunblaðið - 12.04.1996, Side 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • |SliOV!0MtxI>lCíX®liÍíjl Prentsmiðja Morgunblaðsins Föstudagur 12. aprfl 1996 Blað D Er húsið óþétt? ÞAR sem skafreimingur sækir á, getur snjór komizt inn undir þakbrún og síðan fer að leka inni, þegar hlýnar, segir Bjarni Ólafsson í þættinum Smiðjan. Þar bendir hann á ýmis góð ráð til að þétta rifur eða göt. / 20 ► Aðstoð hins opinbera SANNGJARNAR reglur um að- stoð hins opinbera við íbúðar- kaupendur, sem taka mið af tekjum og eignum, tryggja fólki bezt öruggt íbúðarhúsnæði, seg- ir Grétar J. Guðmundsson í þættinum Markaðurinn./ 26 ► Ú T T E K T Iðnaðar- hverfi í Kópavogi NÚ eru að heíjast fram- kvæmdir við sérhann- að iðnaðarhverfi við Dalveg í Kópavogi, en í því verða fjögur hús með 36 ein- ingum. Þar eru að verki þeir Kristinn Ragnarsson arkitekt, sem hannað hefur húsin, Sig- urður Gunnarsson hagfræð- ingur og Gunnar R. Gunnars- son trésmiður. Einingarnar eru fremur litl- ar, ýmist 120 eða 144 ferm. og með háum innkeyrsludyr- um. Eftirspurn eftir þessu húsnæði hefur verið mikil og er þegar búið að selja 14 bil eða einingar af þeim 36, sem byggðar verða. Húsin eru steypt upp og einangruð að utan með 10 cm. einangrun, en síðan klædd með rauðum múrsteini frá Danmörku. Með því fæst varanlegt slitlag utan á þau, en múrsteinninn mun einnig gefa hverfinu mjög sjálfstætt og fallegt yfirbragð. í viðtalsgrein við þá Kristin Ragnarsson og Sigurð Gunn- arsson er fjallað um þessar byggingarframkvæmdir. Þar kemur fram, að verð á fer- metra er47.000-48.000 kr. í þessu nýja iðnaðarhúsnæði, sem verður skilað með mjög góðum útbúnaði. Kaupendum er boðið upp á sérstök kjör. Þeir greiða 15% útborgun af kaupverðinu, en fá síðan 20% lánuð til fimm ára og 65% til fimmtán ára. Fimmtán ára lánin fást í gegnum Vestnorræna lána- sjóðinn./ 16 ► Heildarútlán Hús- næðisstofnunar hærri í ár en í fyrra HEILDARÚTLÁN Húsnæðis- stofnunar ríkisins jukust til muna á síðasta áratug, frá því sem áður var. Með lánakerfi því, sem tekið var upp 1986, komust þau upp í 12-14 milljarða kr. á ári og eftir tilkomu húsbréfakerfisins 1989 jukust þau enn og komust upp í rúml. 27,7 millj- arða kr. árið 1991. Það ár voru húsbréfalán vegna greiðsluerfiðleika mjög umfangs- mikil eða rúml. 2,8 milljarðar ki-. og um 16,5% af húsbréfaútgáfunni. Lán úr Byggingarsjóði ríkisins hafa aftur á móti dregizt saman, eftir því sem húsbréfakerfinu hefur vaxið ás- megin. Teikningin hér til hliðar sýnir skiptingu húsnæðislána frá árinu 1980 milli lána úr almenna kerfinu, það er lána úr Byggingarsjóði ríkis- ins og húsbréfakerfinu annars veg- ar og lána úr félagslega kerfinu, það er Byggingarsjóði verkamanna, hins vegar. Eldri tölur eru færðar til verðlags í marz sl. í ár er gert ráð fyrir, að lánveit- ingar í almenna kerfinu verði tæp- lega 14 milljarðar kr. í fyrra voru þær rúml. 13,2 milljarðar kr. og nokkru minni en árið þar á undan, en þá voru þær nær 16 milljarðar. Þetta gæti bent til minni umsvifa á fasteignamarkaðnum, en þá verð- ur að gæta þess, að þeim íbúðum og húsum fer stöðugt fjölgandi, sem búið er að taka húsbréfalán út á og þegar svo er, þarf ekki að gefa út ný húsbréf, þegar þessar eignir eru seldar á ný nema kannski að litlu leyti, því að kaupandinn yfirtekur þau húsbréfalán, sem þegar hvíla á eigninni. Lán úr Byggingarsjóði verka- manna (félagslega kerfinu) hafa verið að dragast saman á undan- fórnum árum. Árið 1992 voru þau mest eða nær. 5,9 milljarðar kr. í fyrra námu þau rúml. 3,7 milljörð- um kr. og gert er ráð fyrir, að þau verði svipuð í ár. 22.350 m.kr. 22 milljarðar kr. 0 1980 á verðlagí í mars 1996 árið 1996 eráætlað Félagslega kerfið, Byggingarsjóður verkamanna -é' 1995 1980 1985 1990 1995 16 Almenna kerfíð, 14 Byggingarsjóður og húsbréfadeild Húsnæðis- stofnunar 1980-96 Greiðslu- erfiðleikalán F /V S T E I G l\I A L. Á l\l S K /V l\l Scndu iim umsókn eöa fáöu núnari upplýsingar hjáráögjöfum Skandia Skandia Skandia býður þér sveigjanleg lánskjör efþn þarft að sknldbreyta eða stækka við þig Dcvmi um mánaðartegar ajborf-anir af1.000.000 kr. Fasteignaláni Skandia* \fcxtir(%) 10 ár 15 ár 25 ár 7,0 11.600 9.000 7.100 7,5 11.900 9.300 7.400 8,0 12.100 9.500 7.700 Miðað cr við jafngreiðslulán. *Auk vcrðbóta FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA HF., LAUGAVEGI 170, 105 REYKJAVlK. SlMI 56 1S TOO. FAX 55 26 177 Fyrir hverja era Fasteignaián Þá sem eiga lítið veðsettar, Skandia? auðseljanlegar eignir, en vilja lán Rrsteignalán Skandia eru fyrir alla til annarra Qárfestinga. á stór-Reykjavíkursvæðinu sem eru að kaupa sér fasteign og: Kostir Fasteignalána Skandia Vilja kaupa stórar eignir en fá ekki Lánstími allt að 25 ár. nægilega hátt lán i húsbréfakerfinu. Hagstœð vaxtakjör. Þá sem vilja breyta óhagstæðum Minni greiðslubyrði. eldri eða styttri lánum. Stuttur svartími á umsókn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.