Morgunblaðið - 12.04.1996, Page 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
|SliOV!0MtxI>lCíX®liÍíjl
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Föstudagur 12. aprfl 1996
Blað D
Er húsið
óþétt?
ÞAR sem skafreimingur sækir á,
getur snjór komizt inn undir
þakbrún og síðan fer að leka
inni, þegar hlýnar, segir Bjarni
Ólafsson í þættinum Smiðjan.
Þar bendir hann á ýmis góð ráð
til að þétta rifur eða göt. / 20 ►
Aðstoð hins
opinbera
SANNGJARNAR reglur um að-
stoð hins opinbera við íbúðar-
kaupendur, sem taka mið af
tekjum og eignum, tryggja fólki
bezt öruggt íbúðarhúsnæði, seg-
ir Grétar J. Guðmundsson í
þættinum Markaðurinn./ 26 ►
Ú T T E K T
Iðnaðar-
hverfi í
Kópavogi
NÚ eru að heíjast fram-
kvæmdir við sérhann-
að iðnaðarhverfi við
Dalveg í Kópavogi, en í því
verða fjögur hús með 36 ein-
ingum. Þar eru að verki þeir
Kristinn Ragnarsson arkitekt,
sem hannað hefur húsin, Sig-
urður Gunnarsson hagfræð-
ingur og Gunnar R. Gunnars-
son trésmiður.
Einingarnar eru fremur litl-
ar, ýmist 120 eða 144 ferm.
og með háum innkeyrsludyr-
um. Eftirspurn eftir þessu
húsnæði hefur verið mikil og
er þegar búið að selja 14 bil
eða einingar af þeim 36, sem
byggðar verða.
Húsin eru steypt upp og
einangruð að utan með 10
cm. einangrun, en síðan
klædd með rauðum múrsteini
frá Danmörku. Með því fæst
varanlegt slitlag utan á þau,
en múrsteinninn mun einnig
gefa hverfinu mjög sjálfstætt
og fallegt yfirbragð.
í viðtalsgrein við þá Kristin
Ragnarsson og Sigurð Gunn-
arsson er fjallað um þessar
byggingarframkvæmdir. Þar
kemur fram, að verð á fer-
metra er47.000-48.000 kr. í
þessu nýja iðnaðarhúsnæði,
sem verður skilað með mjög
góðum útbúnaði.
Kaupendum er boðið upp á
sérstök kjör. Þeir greiða 15%
útborgun af kaupverðinu, en
fá síðan 20% lánuð til fimm
ára og 65% til fimmtán ára.
Fimmtán ára lánin fást í
gegnum Vestnorræna lána-
sjóðinn./ 16 ►
Heildarútlán Hús-
næðisstofnunar hærri
í ár en í fyrra
HEILDARÚTLÁN Húsnæðis-
stofnunar ríkisins jukust til muna á
síðasta áratug, frá því sem áður var.
Með lánakerfi því, sem tekið var
upp 1986, komust þau upp í 12-14
milljarða kr. á ári og eftir tilkomu
húsbréfakerfisins 1989 jukust þau
enn og komust upp í rúml. 27,7 millj-
arða kr. árið 1991.
Það ár voru húsbréfalán vegna
greiðsluerfiðleika mjög umfangs-
mikil eða rúml. 2,8 milljarðar ki-. og
um 16,5% af húsbréfaútgáfunni.
Lán úr Byggingarsjóði ríkisins hafa
aftur á móti dregizt saman, eftir því
sem húsbréfakerfinu hefur vaxið ás-
megin.
Teikningin hér til hliðar sýnir
skiptingu húsnæðislána frá árinu
1980 milli lána úr almenna kerfinu,
það er lána úr Byggingarsjóði ríkis-
ins og húsbréfakerfinu annars veg-
ar og lána úr félagslega kerfinu, það
er Byggingarsjóði verkamanna,
hins vegar. Eldri tölur eru færðar til
verðlags í marz sl.
í ár er gert ráð fyrir, að lánveit-
ingar í almenna kerfinu verði tæp-
lega 14 milljarðar kr. í fyrra voru
þær rúml. 13,2 milljarðar kr. og
nokkru minni en árið þar á undan,
en þá voru þær nær 16 milljarðar.
Þetta gæti bent til minni umsvifa
á fasteignamarkaðnum, en þá verð-
ur að gæta þess, að þeim íbúðum og
húsum fer stöðugt fjölgandi, sem
búið er að taka húsbréfalán út á og
þegar svo er, þarf ekki að gefa út ný
húsbréf, þegar þessar eignir eru
seldar á ný nema kannski að litlu
leyti, því að kaupandinn yfirtekur
þau húsbréfalán, sem þegar hvíla á
eigninni.
Lán úr Byggingarsjóði verka-
manna (félagslega kerfinu) hafa
verið að dragast saman á undan-
fórnum árum. Árið 1992 voru þau
mest eða nær. 5,9 milljarðar kr. í
fyrra námu þau rúml. 3,7 milljörð-
um kr. og gert er ráð fyrir, að þau
verði svipuð í ár.
22.350 m.kr.
22 milljarðar kr.
0
1980
á verðlagí í mars 1996
árið 1996 eráætlað
Félagslega kerfið,
Byggingarsjóður
verkamanna
-é'
1995 1980 1985 1990 1995
16
Almenna kerfíð,
14 Byggingarsjóður
og húsbréfadeild
Húsnæðis-
stofnunar
1980-96
Greiðslu-
erfiðleikalán
F /V S T E I G l\I A L. Á l\l S K /V l\l
Scndu iim
umsókn eöa
fáöu núnari
upplýsingar
hjáráögjöfum
Skandia
Skandia
Skandia býður þér sveigjanleg lánskjör efþn þarft að sknldbreyta eða stækka við þig
Dcvmi um mánaðartegar
ajborf-anir af1.000.000 kr.
Fasteignaláni Skandia*
\fcxtir(%) 10 ár 15 ár 25 ár
7,0 11.600 9.000 7.100
7,5 11.900 9.300 7.400
8,0 12.100 9.500 7.700
Miðað cr við jafngreiðslulán.
*Auk vcrðbóta
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA HF., LAUGAVEGI 170, 105 REYKJAVlK. SlMI 56 1S TOO. FAX 55 26 177
Fyrir hverja era Fasteignaián Þá sem eiga lítið veðsettar,
Skandia? auðseljanlegar eignir, en vilja lán
Rrsteignalán Skandia eru fyrir alla til annarra Qárfestinga.
á stór-Reykjavíkursvæðinu sem eru að kaupa sér fasteign og: Kostir Fasteignalána Skandia
Vilja kaupa stórar eignir en fá ekki Lánstími allt að 25 ár.
nægilega hátt lán i húsbréfakerfinu. Hagstœð vaxtakjör.
Þá sem vilja breyta óhagstæðum Minni greiðslubyrði.
eldri eða styttri lánum. Stuttur svartími á umsókn.