Morgunblaðið - 12.04.1996, Side 2
2 D FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Selur húsið til að byggja
listaskála í Hveragerði
HJÁ Eignamiðluninni er nú til
sðlu stórt hús að Vogaseli 1
í Reykjavík. Þetta er einbýlishús,
328 ferm. að stærð, en auk þess er
í húsinu um 30 ferm. lagerrými.
Eigandi er Einar Hákonarson list-
málari.
„Þetta er hús möguleikanna,"
segir Magnea Sverrisdóttir hjá
Eignamiðluninni. „Um er að ræða
íbúð auk aðstöðu sem gæti hentað
fyrir listamann, iðnaðarmann, tón-
listarmann, kennara, fyrir heilsu-
rækt, trúfélag eða hvers konar fé-
lagsstarfssemi.
Þetta er steinsteypt hús byggt
árið 1978. íbúðin sjálf er fimm til
sex herbergja, á tveimur hæðum.
Neðri hæðin skiptist í arinstofu, tvö
svefnherbergi, eldhús, borðstofu,
þvottahús, snyrtingu, hol og for-
stofu. Úr borðstofu er gengið út á
hellulagða verönd sem snýr í suður.
Úr hoii iiggur vandaður tréstigi
upp á efri hæðina, en þar er stór
stofa með mikilli lofthæð, svefnher-
bergi og baðherbergi. Parket er á
öllum gólfum nema á snyrtingu.
Vandaðar innréttingar eru í húsinu.
Úr holi fyrstu hæðar er gengið í
gegnum tengibyggingu og þaðan
er hægt að ganga út í garð. Tengi-
byggingin er sjálf einn stór, parket-
lagður salur með mikilli lofthæð og
stórum gluggum og býður því upp
á ýmsa möguleika. Inn af þessum
sal er svo vinnurými og innbyggður
bílskúr, auk 30 ferm. lagerrýmis og
þar er einnig snyrting.
„Úr húsinu er glæsilegt útsýni
og staðsetning þess afar góð, en
það stendur innst í botnlanga á frið-
sælum stað, sagði Magnea ennfrem-
TÖLVUTEIKNING af listaskála þeim, sem Einar Hákonarson hyggst reisa í Hveragerði. Hann
verður um 860 ferm., en hönnuður er Jón Róbert Karlsson arkitekt. Byggingarframkvæmdir eiga
að hefjast í vor, en áformað er að opna listaskálann 1. maí á næsta ári.
HÚS Einars Hákonarsonar listmálara stendur við Vogasel 1.
Þetta er einbýlishús, 328 ferm. að stærð, en auk þess er í hús-
inu um 30 ferm. lagerrými. Húsið er til sölu hjá Eignamiðlun-
inni, en ásett verð er 19,9 millj. kr. Skipti á minni eign eru
möguleg.
ur. „Húsið hefur verið í eigu sama
eiganda frá upphafi og mikið kapp
lagt á að halda því vel við. Fallegur
garður er í kringum húsið og hann
er í góðri rækt.“
Ásett verð er 19,9 millj. kr. og
skipti möguleg á minni eign.
860 ferm. menningarmiðstöð
Einar Hákonarson listmálari, eig-
andi Vogasels 1, kvaðst í viðtali við
Morgunblaðið vera að selja hús sitt,
vegna þess að hann ráðgerir að
flytja senn búferlum tii Hveragerðis.
„Hveragerði er gamall lista-
mannabær og mér hefur alltaf fund-
ist viss rómantík yfir þeim bæ. Ef
nægilegt fjármagn fæst ætla ég að
byggja þar 860 fermetra„menning-
armiðstöð", eins konar fjölnota hús,
undir nafninu Listaskálinn í Hvera-
gerði,“ sagði Einar.
„í því verður stór sýningarsalur,
Gott hús á góðum stað í Kópavogi
HÚSIÐ stendur við Víghólastíg 12 í Kópavogi. Það er til sölu
hjá fasteignasölunni Valhöll og ásett verð er 14,5 millj. kr.
TIL sölu er hjá fasteignasölunni
Valhöll húseignin Víghólastígur 12
í Kópavogi. „Þetta er einbýlishús,
hæð og ris og 180 ferm. að stærð,"
sagði Bárður Tryggvason hjá Val-
höll. Húsinu fylgir bílskúr sem er
annars vegar 25 ferm. nýstandsett
einstaklingsíbúð og hins vegar hinn
hluti skúrsins, sem nýttur er sem
bílskúr og er einnig 25 ferm. að
stærð.
„Garðurinn er allur nýstandsett-
ur,“ sagði Bárður ennfremur. „Bak
við húsið er stór timburverönd með
heitum potti og gosbrunni á móti
suðri. Meginhluti íbúðarinnar er á
aðalhæð. Þar er forstofa, nýstand-
sett og flísalagt baðherbergi og enn-
fremur parketlögð stofa og borð-
stofa auk eldhúss með nýlegri eikar-
innréttingu og rúmgóðs herbergis.
í risi er sjónvarpshol og tvö stór
svefnherbergi. I kjallara er eitt gott
svefnherbergi, lítið flísalagt bað og
þvottahús. Allar rafleiðslur og öll
inntök eru ný og húsið er að öðru
leyti í mjög góðu ástandi.
Tvær hliðar hússins eru nýein-
angraðar og verið að hrauna þær
að nýju. Umhverfið er mjög mið-
svæðis í Kópavogi, en þama er frið-
sælt og gott að vera með börn, því
að ekki er yfir neinar umferðargötur
að fara í skóla. Ásett verð er 14,5
millj. kr., en skipti á ódýrari eign
möguleg."
HÚSIÐ stendur við Grettis-
götu 22 í Reykjavík. Ásett
verð er 10,9 millj. kr., en hús-
ið er til sölu hjá fasteignasöl-
unni Borgum.
Endurnýjað
timbur-
hús við
Grettisgötu
TIL sölu er hjá fasteignasölunni
Borgum einbýlishús við Grettisgötu
22 í Reykjavík. Að sögn Karls
Gunnarssonar hjá Borgum er þetta
bárujárnsklætt timburhús, sem er
kjallari, hæð og ris. Húsið er byggt
árið 1908 og er um 135 fermetrar
að stærð.
„Hús þetta er nýlega uppgert og
hefur allt verið endurnýjað," sagði
Karl. „Búið er m.a. að skipta út
gleri og lögnum og ýmsu öðru en
þó ekki „anda hússins". Þetta er
eitt af hinum gömlu, góðu húsum
í miðbæ Reykjavíkur.
Innra skipulag hússins er þannig
að á hæðinni er eldhús, stofur og
snyrting. í kjallara er sjónvarps-
stofa, þvottahús og geymslur. í risi
eru þrjú til fjögur svefnherbergi.
Vandað hefur verið vel til alls
við endurnýjun hússins og er um-
hverfið orðið allt hið snyrtilegasta.
Ásett verð er 10,9 millj. kr.
Fasteignalán Landsbréfa
til allt að 25 ára
Vextir af lánunum eru á bilinu 6,75 til 8,25%.
Lánin henta t.d. þeim sem vilja skuldbreyta eldri lánum,
kaupa stærri eignir eða vilja taka lán til framkvæmda.
Ráðgjafar Landsbréfa hf. veita allar frekari upplýsingar . lanpsbréfjjf
SUDURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVIK, SIMI 588 9200, BREFASIMI 588 8598
ráðstefnusalur, salur fyrir listiðnað
og veitingastofa í tengslum við ráð-
stefnu- og sýningarsalinn. Einnig
verður þar listmunaverslun og loks
mitt eigið málarastúdíó. Hönnuður
hússins er Jón Róbert Karlsson arki-
tekt, en verkfræðingur er Þorsteinn
Magnússon. Rafhönnuður er Helgi
Kr. Eiríksson og byggingarmeistari
verður Guðmundur Hervinsson.
Einar sagði þessa hugmynd hafa
verið að fæðast með sér sl. fimm ár.
„Fyrst leitaði ég hófanna í Reykjavík
og þar bauðst mér aðstaða í Grafar-
vogi, en fannst hún of afskekkt.
Hveragerði er vaxandi bær og enginn
bær á Islandi eins íjölsóttur og hann.
Samkvæmt áreiðanlegum tölum
koma til Hveragerðis um 500 þúsund
manns á ári hveiju.
Lóðin sem ég hef fengið er á
mjög góðum stað, við aðal ferða-
mannagötuna í Hveragerði, annað
hús frá Eden í vesturátt. Áformað
er að byija á byggingu þessa húss
í lok maí nk. og að það opni form-
lega 1. maí á næsta ári. Síðan er
ráðgert að hafa þar sýningar, sem
standa mánuð í senn, en þarna verð-
ur aðstaða fyrir alls konar sýningar.
Ný listpólitík
nauðsynleg
Einar kvað listpólitík Reykjavík-
urborgar, sérstaklega hvað varðar
sýningarhald myndlistarmanna,
hafa verið með slíkum eindæmum
hvað varðar þröngsýni í sýningar
vali að ekki væri hægt að una við
það Iengur. „í Hveragerði verður
annað upp á teningnum og meira í
samræmi við það, sem var á Kjar
valsstöðum, áður en það listfræð-
ingaafturhald kom til sögunnar sem
nú ríkir á Kjarvalsstöðum," sagði
Einar.
„Bæjaryfirvöld í Hveragerði hafa
sýnt þessu framtaki mínu mikinn
áhuga og velvilja. Húsið verður létt
bygging, stálgrindarhús og mjög
hreyfanlegt innanstokks. Þetta
verður mér vitanlega eina menn-
ingarmiðstöðin í einkaeigu á Norð-
urlöndum fyrir utan Luisiana-safnið
í Hummelbæk í Danmörku."
Fasteignasölur
í blabinu
í dag
Agnar Gústafsson bls. 7
Almenna fasteignas. bls. 24
Ás bls. 28
Ásbyrgi bls.24
Berg bls. 19
Bifröst bls. 8
Borgir bls. 25
Borgareign bls. 17
Brynjólfur Jónsson bls. 13
Eignamiðlun bls. 9-10
Eignasalan bls. 10
Fasteignamarkaður bls. 18
Fasteignamiðstöðin bls. 12
Fold bls. 5
Fjárfesting bls. 7
Framtíðin bls. 13
Gimli bls. 3
H-Gæði bls. 16
Hátún bls. 27
Hóll bis 14-15
Hraunhamar bls. 11
Húsakaup bls, 26
Húsvangur Bt bls. 6
Kjöreign ' bls 4
Laufás ■ bls. 28
Óðal bls. 20
Skeifan bls. 21
Stakfell bls. 24
Valhús bls. 7
Valhöll bls. 22
Þingholt bls. 23