Morgunblaðið - 19.04.1996, Blaðsíða 1
• MARKAÐURINN • SMIDJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓDUR OG GARDAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
2IIor$MnMítfoÍi>
Yfirtaka hús-
bréfalána
Greiðslumat í húsbréfakerfinu
er skilyrði fyrir yfirtöku á
húsbréfalánum, alveg á sama
hátt og greiðslumat er nauð-
synlegur undanfari nýrra lána,
segir Grétar J. Guðmundsson í
þættinum Markaðurinn. / 2 ►
Endurnýjun
glugga
Gluggabreytingar hafa afar
mikil áhrif á útlit húsa, segir
Bjarni Ólafsson í þættinum
Smiðjan, þar sem hann fjallar
m. a. um álglugga. Það verður
að gæta samræmis við endur-
nýjun. / 10 ►
Ú T T E K T
Vaxandi
viðhalds-
þörf
MIKIL aukning hefur
orðið í húsakosti fs-
lendinga síðustu
áratugi og er meðalaldur hús-
næðis hér á landi því tiltöiu-
lega lágur eða 29 ár. Nýbygg-
ingar hafa verið mest áber-
andi í byggingariðnaðinum
hér, en nú mun viðhalds
bygginga fara að gæta meira.
I grein eftir verkfræðingana
Björn Marteinsson og Bene-
dikt Jónsson hér í blaðinu í
dag segir, að árleg viðhalds-
þörf allra bygginga Iands-
manna nemi 15-75 milljörðum
kr., ef tryggja á verðmæti
þeirra. Er þetta mat byggt á
ítarlegum upplýsingum og út-
reikningum um viðhaldsþörf
fasteigna, bæði héðan að
heiman og erlendis frá.
Þetta eru háar tölur og
Ijóst, að gífúrleg verðmæti
eru í húfi. Þetta á eftir að
valda breytingum á bygging-
ariðnaðinum sem atvinnu-
grein og miklu máli skiptir
líka, að húseigendur geri sér
grein fyrir, hvernig viðhaldi
húsanna verði bezt háttað og
hversu mikil fjárþörf fylgir
aðgerðunum.
Nú er unnið að rannsóknar-
verkefni, sem ber heitið
„Ástand mannvirkja og við-
haldsþörf", hjá Rannsóknar-
stofnun byggingariðnaðarins.
Hefur upplýsingum verið
safnað með ástandskönnun
214 húsa á Reykjavíkursvæð-
inu og þessar upplýsingar yf-
irfærðar á allan húsakost
landsmanna. / 20 ►
Ávöxtunarkrafa hús
bréfa fer iækkandi
VEXTIR á veröbréfamarkaði hafa
lækkað að undanfórnu og ávöxtun-
arkrafa húsbréfa um leið. í byrjun
þessa mánaðar var ávöxtunarkraf-
an á húsbréfum til 25 ára 5,75%, en
í gær var hún komin niður í 5,58%
og líklegt talið, að hún fari enn lækk-
andi á næstunni. Á húsbréfum til 15
ára hefur hún verið sú sama og á 25
ára bréfum, en á húsbréfum til 40
ára hefur hún verið þremur punkt-
um lægri og var því komin í 5,55% í
gær.
Teikningin hér til hliðar sýnir
þróun ávöxtunarkröfunnar frá því í
byrjun september í fyrra. í október
og nóvember lækkaði ávöxtunar-
krafan talsvert og komst lægst í
5,57% hinn 17. nóvember. Þá var um
tíma mikil eftirspurn eftir húsbréf-
um, en lækkunin gekk fljótlega til
baka, er meira jafnvægi komst á
milli framboðs og eftirspurnar.
Ávöxtunarkrafan fór því hækk-
andi á ný og komst í 5,90% um miðj-
an janúar. í febrúar lækkaði hún
nokkuð, en hækkaði síðan að nýju.
Frá síðustu mánaðamótum hefur
ávöxtunarkrafan svo aftur farið ört
lækkandi. Af þessu má sjá, að
nokkrar sveiflur hafa verið á ávöxt-
unarkröfunni í vetur.
Ávöxtunarkrafan skiptir miklu
máli, því að hún ræður afföllum af
húsbréíúnum hverju sinni. Hækki
ávöxtunarkrafan um aðeins einn
punkt eins og kallað er eða 0,01%,
hefur það t. d. í fór með sér um 1.000
kr. meiri afföll af hverri milljón kr.
í húsbréfum til 25 ára.
Afföllin hafa mikil áhrif á bygg-
ingamarkaðinn. Með lækkandi af-
fóllum má búast við, að eftirspurn
eftir húsnæði geti aukizt vegna
minni fjármagnskostnaðar að öðru
óbreyttu.
Líkur eru á, að þær vaxtalækk-
anir, sem þegar eru orðnar á verð-
bréfamarkaði, verði nokkuð varan-
legar og að vextir geti jafnvel enn
lækkað. Fari svo, á ávöxtunarkrafa
húsbréfa enn eftir að haldast lág og
afföllin um leið.
(Heimild: Landsbréf)
5,58%
' ávöxtunarkrafa við kaup
Ávöxtunarkrafa* húsbréfa
sept. 1995 til 18. aprfl 1996
6,1 %------:---------
ASTEIGNALAN SK ANOI A
o
Sendu inn
umsókn eða
fáöu nánari
upplýsingar
hjá ritógjöjum
Skandia
Skandia
Skandia býður þér sveigjanleg lánskjör ef þú þatft að skuldbreyta eða stcekka við þig
Fyrir hverja ern Fasteignalán Þá sem eiga lítið veðsettar,
Skandia? auðseljanlegar eignir, en vilja lán
fasteignalán Skandia eru fyrir alla á stór-Reykjavíkursvæðinu sem eru til annarra fjárfestinga.
að kaupa sér fasteign og: Kostir Fasteignalána Skandia
Vilja kaupa stórar eignir en fá ekki Lánstimi allt að 25 ár.
nægilega hátt lán í húsbréfakerfinu. Hagstæð vaxtakjör.
Þá sem vilja breyta óhagstæðum Minni greiðslubyrði.
eldri eða styttri lánum. Stuttur svartími á urnsókn.
Dœmi um mánaðariegar
ajhorganir af /.000.000 kr.
Fasleignaláni Skandia*
\foctir(v.) 10ár 15ár 25ár
7.0 11.600 9.000 7.100
7,5 11.900 9.300 7.400
8,0 12.100 9.500 7.700
Miðað cr við jafn^péiðsldlán.
*Auk vcrðbóta
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA HF.. LAUGAVEGI 170. 105 REYKJAVlK. SlMI 56 19 700. FAX 55 2B 177