Morgunblaðið - 19.04.1996, Qupperneq 10
10 D FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Álgluggar
Smiðjan
Ef endumýja þarf glugga í gömlu húsi eða
kaupa glugga í nýtt hús, er nauðsynlejgt að
*
þekkja fleiri en einn kost, segir Bjami Olafs-
son. Það þarf að bera saman verð og gæði.
ÉG HRINGDI í fyrirtæki sem
nefnist „Plast og álgluggar" til
þess að forvitnast um hvort þar
munu vera framleiddir gluggar úr
plastefni. Mér var svarað á þann
veg að þar væru framleiddir
gluggar úr áli sem húðað væri
með tveggja millimetra þykkri
plasthúð. Sennilegt þykir mér að
fleiri fýsi að vita eitthvað um slíka
glugga og ég skrifa þess vegna
um þá hér.
Þegar komið er að því að end-
umýja þurfi glugga í gömlU húsi,
eða að kaupa glugga í nýtt hús,
er nauðsynlegt að þekkja fleiri en
einn kost og bera saman verð og
gæði. Fyrirtækið Plast og ál-
gluggar framleiðir ýmislegt fleira
en glugga sem forvitnilegt er að
vita um.
Grannir rammar
í þessa glugga eru notaðir
nokkuð margbrotnir „prófíl“-listar
úr áli og eru þeir klæddir bæði á
úthlið og innhlið með tveggja mm
þykku PVC-plasti. Þessi plast-
klæðning málmsins dregur mikið
úr kuldaleiðni glugganna. Þarna
er boðið upp á fasta álglugga-
karma og auk þess er hægt að. fá
gluggana með opnanlegum römm-
um og póstum eftir því sem hver
og einn óskar.
Þetta fer auðvitað eftir glugga-
teikningu hússins. Þar sem ætlun-
in er að taka burtu gamla fúna
tréglugga er hægt að fá álglugga
með lóðréttum eða láréttum póst-
um, til samræmis við hina gömlu
glugga.
Loftræsting og litir
Plastklæðningin sem er yfir ál-
prófílnum, bæði utanverðum og
að innanverðu, fæst í mismunandi
litum. Það á því að vera óþarfi að
mála svona glugga og er viðhald
þeirra því lítið. Fyrirtækið hefur
einnig á boðstólum sérstaka út-
loftsventla sem hægt er að setja
ofan við rúður, hvort heldur sem
er í trékarma eða álkarma. Slíkur
búnaður, útloftsventill, er með ein-
angraða kuldabrú og gefur trekk-
lausa loftræstingu. Auk þess er
hægt/ að setja á þennan ventil
hljóðdeyfi, sem er nauðsyn við.
sumar götur. Þessa loftventla er
hættulaust að hafa opna jafnvel
allan sólarhringinn og engin hætta
er á að óboðnir gestir komist í
gegnum slíka loftopnun.
Opnanlegir gluggar,
svaladyr
í sambandi við þá glugga sem
ég hefi verið að segja frá hér að
framan er hægt að velja á milli
mismunandi opnunarmöguleika.
Á síðari árum hefur færst í vöxt
að notaðir séu svokallaðir tregðu-
sleðar. Þeir tíðkast bæði á tré-
körmum og álgluggum. Virðast
þessi járn, tregðusleðar, vera ör-
ugg til opnunar á tiltölulega stór-
um opum.
Þá er einnig boðið upp á svo-
nefnda punktaopnun. Með slíkum
búnaði er hægt að opna gluggann
bæði til hliðar og/eða að neðan
og ofan. Mikil þægindi geta fylgt
opnanlegum gluggum af þeirri
gerð, einkum ef þeir eru í háu
húsi á annarri, þriðju hæð eða
ofar, þar sem annars er erfitt að
hreinsa rúðurnar að utan, eða ef
skipta þarf um rúður. Fyrirtækið
hefur einnig framleitt allmargar
svalahurðir úr áli sem þykja hent-
ugar og reynast vel.
Sólstofur
Margir hafa komið sér upp sól-
stofu við íbúð sína og sumir eiga
sér draum um slíka sólstofu. Þar
má rækta blóm og jurtir sem ekki
geta vaxið utandyra og þar er
hægt að sitja úti án þess að vind-
ur næði og kuldi veki hroll.
Álprófílar eru töluvert mikið
notaðir til þess að byggja úr þeim
sólstofur við hús og einnig lítil
gróðurhús í görðum. Efnið er
sterkt og þolir veðrun vel. Auk
þess er plastklæðning prófílanna
beggja vegna til mikilla bóta, til
einangrunar og hlífðar og sparar
málun á málminn. Margar gler-
stofur hafa verið byggðar víðsveg-
ar, bæði hérlendis og erlendis, með
álgrind. Þær hafa gefíð góða raun
hvað styrkleika snertir og end-
ingu. Fleiri fyrirtæki eru til sem
hafa sérhæft sig í notkun á álpróf-
ílum.
Ekki kjósa allir að byggja stofu
úr sama efni og margar sólstofur
og garðhús hafa verið byggð með
yfir rúðu.
timburgrind sem einnig þykir
prýði að.
Samþykki þarf til
Hvort sem um er að ræða end-
urnýjun á gluggum eða byggingu
sólstofu þá þarf að leita samþykk-
is byggingafulltrúa til þeirrar
framkvæmdar áður en hafíst er
handa við verkið. Það er of seint
að sækja um heimild eftir á. Þetta
er líka mikilvægt til þess að vel
fari og hin nýja framkvæmd þarf
að verða til prýði fyrir húsið en
ekki til óprýði vegna smekkleysu
og ósamræmis.
Gluggabreyting hefur afar mik-
il áhrif á útlit húsa og getur burt-
felling pósta og sprossa haft nei-
kvæð áhrif á stíl og útlit húss.
Svipuðu máli gegnir um sólstofu
við hús hvort sem hún rís á jörðu
niðri eða á svölum. Nauðsynlegt
er að teikna gerð sólstofunnar upp
og leita síðan eftir heimild til bygg-
ingar hennar. Margar ástæður
geta valdið því að synjað er leyfis
til sólstofubyggingar. Það kemur
einnig til álits hjá eldvarnareftir-
liti, fremur þó á efri hæðum en á
jarðhæð.
* <«• * » 4 * *
áh ,
LAUF/
Fasteignasala
Suðurlandsbraut 12
S1mi5331111
Fax 5331115
Opið virka daga
frá kl. 9 - 18
HELGARSÍMI:
5 689 689
Símatími
iaugard. og sunnud.
frá kl. 11 -13.
2ja herbergja
ENGIHJALLI NÝTT
54 fm 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með
sérsuðurlóð. Smekkleg ibúð. Parket og
flísar. Áhvílandi 2,5 millj.
Auk þessara eigna höfum við fjölda
annarra á söluskrá okkar.
Hringið og fáið upplýsingar.
SAMTENGD
SÖLUSKRÁ
LAÍJFÁS
ÁSBYRGI
J.H-1111
Jtt-lllS
REYKAS NYTT
2ja herbergja ibúð ca 70 fm á jarðhæð í 6
íbúða húsi. Parket og flisar. Mjög björt
íbúð með miklu útsýni. LauS strax. Verð
6,2 millj. Áhvílandi 3,3 millj. byggingar-
sjóðslán.
NJÁLSGATA V. 5,7 M.
Vönduð og glæsilega hönnuð 2ja herbeigja
íbúð á jarðhæð í nýuppgerðu tvíbýlishúsi.
Vandaðar flísar og massrft parket. Glæsileg
innrétting í eldhúsí. Sérinngangur. Sérlóð.
Áhvílandi ca 3,2 millj. hagstæð lán. Skipti á
bíl koma vel til greina.
SKEIÐARVOGUR NÝTT
2ja herbergja ca 55 fm ibúð í kjallara i tví-
býlishúsi. Rúmgóð og björt herbergi. Sér-
inngangur. Verð 5 millj.
SKÓGARÁS V. 5,6 M.
65 fm 2ja herbergja íbúð með verönd fram-
an við stofu. Ibúðin er öll nýmáluð. Allar
vistarverur rúmgóðar. Sérhiti. Áhvilandi 2,7
millj. í hagstæðum lánum. Laus strax.
SKÚLAGATA V. 4,1 M.
Ca 60 fm 2ja herbergja íbúð í nýlega við-
gerðu fjölbýlishúsi. Parket og flisar á gólf-
um. Nýtt rafmagn. Áhvilandi ca 2,4 millj. í
hagstæðum lánum. Skipti möguleg á
stærri eign á Akureyri.
3ja herbergja
ÁLRÁMÝRI V. 6,4 M.
Erum með i einkasölu í þessu eftirsótta hver-
fi 3ja herb. rúmgóða 75 fm ibúð á 3. hæð í
fjölbýlishúsi. Suðursvalir. Góð sameign.
Húsið nýlega viðgert að utan. Laus strax.
LOKASTIGUR
NYTT
BALDURSGATA NYTT
3ja herbergja 69 fm risíbúð í 6-ibúða stein-
húsi sem hefur verið endurnýjuð að hluta,
m. a. nýtt gler og gluggar. Verð 5,7 millj'.
HRAUNTEIGUR V. 5,4 M.
Ca 75 fm 3ja herbergja íbúð í kjallara í þrí-
býlishúsi. Sérhiti. Sérinngangur. Nýtt gler
og gluggar. Húsið er nýlega viðgert að
utan. Áhvilandi ca 1.700 þús. hagstæð lán.
HRÍSRIMI V. 7,2 M.
Ca 75 fm falleg 2ja-3ja herbergja
íbúð á 2. hæð I fjölbýlishúsi. Glæsi-
legar viðarinnréttingar. Parket. Mikið
útsýni. Stæði í vel útbúnu bílskýli.
Skipti á ódýrari eign koma til gróina.
4ra herbergja og stærri
ÁLFHEIMAR V. 6,8 M.
Ca 90 fm mikið endurnýjuð íbúð á 4. hæð
í nýviðgerðu fjölbýlishúsi. 3 svefnherbergi
og stofa, flísalagt baðherbergi. Áhvílandi
ca 1,7 millj. í góðum lifeyrissjóðslánum.
ÁLFTAHÓLAR V. 7,4 M.
Mjög smekkleg ibúð á 2. hæð í lyftuhúsi.
Ljóst parket á öllum gólfum nema bað-
herbergi sem er flísalagt í hólf og gólf.
Lökkuð innrétting í eldhúsi. Suðursvalir.
Áhvilandi 4,5 millj. hagstætt lán.
HJALLABRAUT V. 9,4 M.
Glæsileg vönduð 140 fm ibúð á 2. hæð í
fjölbýlishúsi í Hafnarfirði. Parket og flísar.
Vönduð eikarinnrétting í eldhúsi. Þvotta-
hús og búr f ibúð. Stórar svalir í vestur.
Möguleiki á sólstofu. 4 svefnherbergi og 2
stofur. Áhvílandi ca 5 millj. hagstæð lán.
MAKASKIPTAMIÐLARINN
Við leitum að: í skiptum fyrir:
2ja herb. fb. f Rvlk. Verð 4,5-5,0 m. 75 fm fb. v. Hrísrima m.bflskýli.
2ja herb. Ib. 1 Rvfk. V. 4,9-5,5 m. 100 fm raðh. í Mosfellsb. V. 8,7m
2ja-3ja herb. ib. Parhús f Hveragerði. V. 5,6 m.
3ja herb. fb. í Háaleitishverfi. Sérhæð með bflsk. í Safamýri.
3ja herb. 70 fm fb. V. 6,5-7 m. 120 fm fb. v. Hrísrima m/bilsk. V.9,8
4ra herb. fb. innan Etliðaáa. 3ja herb. íb. i Múlahverfi.
Sérhæð i Hlíðunum 4ra herb. 1. hæð v/Barmahlíð m/bflskúr.
Sérhæð i Heimunum 4ra herb. fb. á 1. hæð v/Álfheima.
4ra herbergja 133 fm efri sérhæð i tveggja
íbúða fallegu steinhúsi. Parket, flisar og teppi.
Húsið hefur verið mikið endumýjað, m.a. nýtt
þak, nýtt gler og nýir gluggar. Verð 10,8 millj.
mávaHlíð nýtt
Björt og rúmgóð 4ra herbergja ca 100 fm
íbúð á 1. hæð. Nýtt gler. Ný eldhúsinnrétt-
ing. Laus strax. Verð 8.450 þúsund.
MIÐTÚN NÝTT
4ra herbergja íbúð á 1. hæð (aðalhæð) i
steyptu þribýlishúsi. Parket. Nýjar hurðir.
Nýtt bað. Bilskúr fylgir. Verð 7,6 millj.
Áhvílandi 3,6 millj. byggingarsjóðslán.
REYNIMELUR V. 7,3 M.
82 fm ibúð á 2. hæð í stórglæsilegu húsi
á einum besta stað í vesturbænum. Góð
lofthæð. Eldri stíll með listum i lofti og
massífum hurðum. Stórar stofur. Áhv. 4,3
millj. hagstæð lán.
Nýbyggingar
SMÁRARIMI NÝTT
" Rúmlega fokhelt, og tilbúið að utan, ca 160 fm
glæsilegt einbýlishús á einni hæð ásamt tvö-
földum bílskúr, á frábærum útsýnisstað. Hús-
ið er til afhendinga' strax. Verð 9,0 millj. Áhví-
landi 6,0 millj. i húsbréfum.
Einbýli
LANGHOLTSVEGUR NÝTT
Lítið forskalað timburhús á einni hæð ca
80 fm. Húsið stendur á stórri lóð. Áhv. 3,9
millj. Verð 6,9 millj.
SELVOGSGRUNN V. 29,0 M.
Mjög vandað og glæsilegt einbýlishús
með tveimur íbúðum. Húsið er mikið end-
urnýjað. Fallegur byggingarstill,
SOGAVEGUR NÝT
Erum með í einkasölu fallegt og gott hús
á tveimur hæðum og kjallara, samtals 6
herbergi. Húsið hefur nýlega verið mjög
vel endurnýjað að öllu leyti að innan. Fal-
lega ræktaður garður. Áhvilandi 5,4 millj.
byggingarsjóðslán.
Fyrirtæki
TÆKIFÆRI FYRIR JÁRN-
SMIÐ EÐA LAGINN MANN
Járnsmiðja i eigin húsnæði i Súðarvogi til
sölu. Góður tækjabúnaður, m.a. renni-
bekkur, fræsari, snittvél, plasmaskurðar-
vél, fjölklippa, bandsög, suðuvélar o.fl.
Möguleiki er að selja fyrirtækið og gera
leigusamning um húsnæðið.
Byggingalóð
FELLSÁS
NYTT
Eignarlóð á fallegum útsýnisstað við
Fellsás í Mosfellsbæ.