Morgunblaðið - 19.04.1996, Side 14
14 D FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Gott timburhús við
Bergstaðastræti
GÓÐ timburhús í gamla bænum
í Reykjavík eru eftirsótt af
mörgum. Hjá fasteignasölunni
Bifröst er nú til sölu húseignin
Bergstaðastræti 46. Þetta er
timburhús, kjallari, hæð og ris,
alls um 152 ferm. ogþví fylgir
19 fermetra bílskúr.
„Þetta er mikið endurnýjað
hús,“ sagði Sigfús Almarsson
hjá Bifröst. „Það var reist árið
1906 og er sex herbergja einbýl-
ishús. Utan á því er alveg nýtt
járn, allir gluggar eru nýir og
þakið er líka nýtt. Bílskúrinn,
sem er áfastur húsinu, er ný-
byggður."
Gengið er inn á miðhæð húss-
ins. Þar er eldhús, stofa, borð-
stofa og bað. í risinu, sem er
um 40 ferm., er allt nýlega klætt
að innan með timburpanel. Þar
HÚSIÐ er timburhús og stendur við Bergstaðastræti 46. Ásett
verð er 12,9 millj. kr., en húsið er mikið endurnýjað. Það er
til sölu hjá fasteignasölunni Bifröst.
FASTEIGNAMIÐLCIN
SUÐCIRLANDSBRACIT 46 (bláu húsin)
SÍMI 568-5556 • FAX 568-5515
Félag Fasteignasala
MAGNUS HILMARSSON
ELFAR ÓLASON
HAUKUR GUÐJÓNSSON
EYSTEINN SIGURÐSSON
lögg. fasteignasali.
TRÖLLABORGIR Höfum til sölu þrjú
raðh. 134 fm m. innb. bílsk. Fráb. útsýnisstað-
ur. Skilast fullb. að utan, fokh. að innan Verð
7,5 millj. 2186
HAFNARFJÖRÐUR Höfum til sölu í
lyftuhúsi við Fjarðargötu glæsil. nýjar lúxusíb. í
hjarta Hafnarfj. með fallegu útsýni yfir höfnina
og sjóinn. Fullb. 117 og 128 fm íb. með glæsil.
innr. Teikn. á skrifst. 2300
Sími 568 5556
Opið laugardag kl. 12-14
Guilsmári 8 - Kópavogi Glæsilegar
nýjar íb.- hagstætt verð. örfáar íb. eftir. 24 íb. í
sex hæða lyftuhúsi. Allar íb. skilast fullbúnar
án gólfefna. Sameign skilast fullbúin að utan
sem innan. Vandaður myndabæklingur á skrif-
stofu. 2299
EINBYLI OG RAÐHUS
5 HERB. OG HÆÐIR
85?
m 1
BERJARIMI Sérl. glæsil. nánast fullb. efri
sérhæð 210 fm Glæsil. sérsm. ínnr. Þrennar
svalir. Góður bílsk. Verð 12,9 millj. 2162
KAPLASKJÓLSVEGUR 2JA Ibúða
HÚS MEÐ TVEIMUR SAMÞ. ÍBÚÐUM-. Höfum
til sölu hús sem er kj. og hæð. Á hæðinni er 4ra
herb. íb. í kj. er góð 3ja herb íb. Sérinng. í báð-
ar íb. Bílskúrsréttur m. hæðinni. Verð 13,0
millj. 2161
FANNAFOLD Glæsilegt einb. 245 fm á
einni og hálfri hæð. 38 fm innb. bílsk Stórar
hornsvalir á þrjá vegu, góður staður með fal-
legu útsýni. Góður möguleiki á séríb. á neðri
hæð. Góð áhv. langtímalán. 2248
GRUNDARTANGI Glæsilegt 3ja herb.
endaraðh. á mjög góðum stað í Mos. Fallegai*
innr. Parket. Glæsilegur sérhannaður suður-
garður. Áhv. byggsj. og húsbr. 3,2 millj. Gott
verð 8,1 millj. 2247
KÖGURSEL Fallegt einbh. 180 fm ásamt
23 fm bílsk. Vandaðar innr. Parket. Áhv. bygg-
sj. 2 millj. Verð 14,2 millj. 2234
BREKKUTANGI - TVÆR ÍB. Fai-
legt endaraðh. 278 fm, sem er kj. oa tvær
hæðir með innb. bílsk. Fjögur svefnh. T kj. er
góð sér 2ja herb. íb. Fallegur suðurgarður með
timburverönd. Verð 12,9 millj. 2244
FANNAFOLD Failegt parh. á tveimur
hæðum 112 fm ásamt 25 fm bílsk. Fallegar
innr. Góður staður. Fallegt útsýni. Áhv. bygg-
sj. 3,6 millj. Verð 10,5 millj. 1448
BARRHOLT - MOS. Glæsil. 177 fm
einbhús á einni hæð m. innb. 36 fm bílsk. Fal-
legar innr. Parket. Verðlaunagarður m. nýl.
timburverönd og heitum potti. Verð 13,9 millj.
2225
I SMIÐUM
GUNNARSBRAUT Falleg 126 fm íb.
sem er hæð og ris í þríb. ásamt 38 fm bílsk. í
fallegu nýmál. húsi í Norðurmýrinni. Suðursv. 5
svefnherb. Laus strax. Lyklar á skrifst. Áhv.
húsbr. 6,6 millj. Verð 9,9 millj. 2202
REKAGRANDI Falleg 130 fm íb. hæð og
ris í nýl. blokk ásamt bílskýli. Fallegar eikarinnr.
Suðursv. Fjögur svefnherb. Áhv. 3,5 millj.
byggsj. Skipti mögul. á minni íb. 2256
GARÐABÆR Falleg efri hæð, 130 fm í
tvíb. ásamt 30 fm bílsk. 4 svefnh. Suðursv.
Húsið er mjög vel staðsett m. mjög fallegu út-
sýni. Verð 10,5 millj. 2120
4RA HERB.
FIFUSEL Mjög góð 4ra herb. íb. 100 fm á
2. hæð ásamt bílskýli. Góðar innr. Parket. Suð-
ursv. Verð 7,5 millj. 2216
KLEIFARSEL Mjög falleg 4ra-5 herb. íb.
á 1. hæð 122 fm í litlu fjölbhúsi. Fallegar innrv-.
Parket. Suðurgarður m. verönd. Þvhús í íb.
Sórinng. Sér bílastæði. Verð 8,9 millj. 2158
ENGJASEL Falleg 4ra herb. íb. 103 fm
ásamt bílskýli. Nýjar fallegar innr. Nýtt parket.
Sér þv. í íb. Nýtt flísal. bað. Stórkostlegt útsýni.
Verð 7,5 millj. 2239
ENGIHJALLI Falleg 4ra herb. íb. á 7.
hæð 108 fm. Góðar innr. Vestursv. Fráb. út-
sýni. Verð 6,8 millj. 2213
HOLTAGERÐI - KÓP. Falleg 105 fm
3ja-4ra herb. neðri sérhæð í góðu tvíbhúsi.
Fallegar innr. Parket. Sérinng. Sérhiti. Sérþv-
hús. Stór sérgarður m. timburverönd og
heitum potti. Áhv. byggsj. 3,5 millj. til 40 ára.
Verð 7,5 millj. 2199
DIGRANESV. - KÓP. Gullfalleg 112 fm
íb. á jarðh. í þríbhúsi m. sérinng. Nýlegt park-
et. Sérþv. og búr inn af eldh. Ný pípulögn. Sér-
hiti. Nýl. gler.Verð 8,3. millj. 2150
ENGIHJALLI Höfum til sölu mjög fallega
3ja herb. íb. á 2. hæð í nýl. mál. lyftuh. Fallegt
útsýni til vesturs. Stórar svalir. Nýtt parket og
flísar. .Laus fljótl. Verð 5,9 millj. 2109
HRÍSATEIGUR Falleg 3ja herb. efri hæð
í þríb. Fallegar innr. Nýtt eldh. Parket. Nýl. gler
o.fl. Áhv. húsbr. 3,9 millj. Hagst. verð 6,6
millj. 2194
FROSTAFOLD Glæsileg 3ja herb. íb. á
3. hæð ásamt góðum bílsk. Parket. Góðar innr.
Áhv. byggsj. 4,5 millj. til 40 ára. Verð 8,2.
millj. 2192
MERKJATEIGUR Höfum til sölu fallega
3ja herb. 83 fm efri hæð í fjórb. ásamt 34 fm
bílsk. Góðar innr. Sérþvhús. í íb. Sérinng. Fal-
legt útsýni. Verð 7,2 millj. 2103
NJÁLSGATA Höfum til sölu 65 fm 3ja
herb. íb. í kj. í 5 íb. húsi. Parket. Nýtt gler o.fl.
Laus strax. Verð 4,6 millj. 2238
VESTURBERG Mjög falleg 3ja herb 80
fm íb. á 3. hæð. Nýl. parket á allri íb. Fallegt út-
sýni yfir borgina. Suðvestursv. Áhv. byggsj.
3,4 millj. til 40 ára Verð 6,2 millj. 2228
ARNARSMÁRI Glæsileg ný 3ja herb. íb.
84 fm á 3. hæð í litlu fjölbhúsi. Tvennar svalir.
Fallegar innr. Sérþvhús í íb. Áhv. húsbr. 4,5
millj. Verð 7,2 millj. 2087
MARKHOLT Höfum til sölu 3ja herb. íb.
ásamt 51 fm bílsk. í litlu fjölbhúsi sem þarfnast
lagfæringa. Hagst. verð. 2250
EYJABAKKI Falleg 3ja herb. íb. 80 fm á
3. hæö. íb. er öll nýmáluð. Nýleg gólfefni. Tvær
geymslur. Þv. inn af eldh. Áhv. 4,7 millj. bygg-
sj. og húsbr. Útb. 1,7 millj., sem mætti gr. á 2
árum. Skipti mögul. á sérbýli í Mos. eða Vatns-
enda. 2024
HRINGBRAUT Falleg mikið endurn. 3ja
herb. 80 fm íb. á 4. hæð ásamt aukaherb. í risi.
Suðursv. Nýtt eldh. Nýtt rafm. Nýtt gler. Skipti
mögul. á stærri eign. Verð 6,2 millj. 1421
KÓNGSBAKKI Falleg 3. herb. íb. á 1.
hæð 80 fm með sér garði í suður. Sér þv. í íb.
Húsið nýlega viðg. og málað að utan. Verð 6,5
millj. 2243
BORGARHOLTSBRAUT Faiieg 3.
herb. risíb. í góðu tvíbýlishúsi. Parket. Fallegt
útsýni. Stór garður. Verð aðeins 5,5 millj.
2257
DALSEL Falleg 3ja herb. íb. 91 fm á jarðh.
í blokk. Nýjar fallegar innr. Gott sjónvhol. Nýl.
viðg. hús. Áhv. byggsj. 3,3 millj. til 40 ára.
Verð 6,5 millj. 1582
EYJABAKKI Falleg 3ja-4ra herb. íb. 80
fm á 3. hæð ásamt aukaherb. í kj. og svölum í
vestur. Þv. í íb. Verð 6,4 millj. 2171
HLÍÐARHJALLI Sérl. glæsil. 90 fm
endaíb. á 3. hæö ásamt 26 fm góðum bílsk.
Glæsil. Ijósar innr. Parket. Stórt marmaraklætt
bað m. innr. Suöursv. Fráb. útsýni. Áhv. bygg-
sj. 5,0 millj. til 40 ára og húsb. 800 þús. Verð
9,2 millj. 2185
3JA HERB
MOSARIMI Höfum til sölu þetta fallega
170 fm einbhús á einni hæð með innb. bílsk.
Húsið er til afh. fullb. að utan, fokh. að innan
nú þegar. 4 svefnh. Verð 8,8 millj. Teikn. á
skrifst. 1767
LAUFRIMI Höfum til sölu tvær óvenju
rúmg. 101 fm 3ja herb. endaíbúðir í þessu nýja
fallega húsi. Til afh. nú þegar tilb. til innr. Verö
6,6 millj. 2222
KRUMMAHÓLAR Falleg 3ja herb.
endaíb. á 6. hæð í lyftuh. Parket. Suðursv. Fal-
legt útsýni. Bílskýli. Verð 5,6 millj. 2144
SKIPASUND - LAUS. Falleg 3ja herb.
íb. á jarðh. 85 fm í tvíb. Merbau-parket, nýtt
rafmagn, nýtt gler að hluta. Sérinng., sérgarð-
ur. Áhv. byggsj. og húsbr. 4. millj. Verð 6,5
millj. Laus strax. 2123
2JA HERB.
ASPARFELL Falleg 2ja herb. íb. 50 fm á
3. hæð í lyftuh. Vestursv. Góðar innr. Þvhús á
hæðinni. Áhv. byggsj. 2,9 millj til 40 ára.
Verð 4,8 millj. 1702
ROFABÆR Falleg 2ja herb. íb. 51 fm á 1.
hæð (jarðh) m. sérgarði í suöur. Parket. Góðar
innr. Verð 4,4 millj. 2179
KAMBASEL Falleg rúmgóð 2ja herb. íb. á
1. hæð m. sérgarði. Sérþvhús. Sérgeymslur á
hæðinni. Góðar innr. Parket. Áhv. byggsj. 1,7
millj. Verð 5,2 millj. 2178
SKÚLAGATA - RIS Höfum til sölu fal-
lega 40 fm risíb. m. parketi og fallegu útsýni til
suðurs. Nýl. uppg. og mál. hús. Áhv. byggsj.
og húsbr. 1,8 millj. Tilvalin fyrsta íb. Verð 3,5
millj. 2028
MIÐHOLT - MOS. Höfum til sölu nýl.
2ja herb. 54 fm íb. á 3. hæð. Ljósar beykiinnr.
Parket. Áhv. 2,5 millj. til 20 ára. Til afh. nú
þegar. Verð 4,8 millj. 2204
HLÍÐARHJALLI ÚTBORGUN AÐEINS
1,8 MILLJ. Glæsileg 2ja herb. íb. á 2. hæð í nýl.
húsi. Parket. Fallegar nýl. innr. Suðvestursv.
Áhv. byggsj. 4,6 millj. til 40 ára. Verð 6,4
millj. 2197
ORRAHÓLAR Falleg 70 fm 2ja herb íb. á
1. hæð í lyftuh. Parket. Vestursv. Góður staður.
Ný viðgert hús. Áhv. 2,8 millj. byggsj. og hús-
br. Verð 5,3 millj. 2237
MÁNAGATA Falleg nýstandsett 2ja herb.
íb. á 2. hæð 50 fm í þríb. Nýtt parket. Nýir
gluggar og gler. Nýtt rafm. Sérhiti. Verð 5,2
millj. 2231
ASPARFELL Gullfalleg 2ja herb íb. 54 fm
á 7. hæð í lyftuh. Nýtt parket. Austursv. með
stórkostlegu útsýni. Verð 4,8 millj. 2242
ÁLFTAMÝRI Falleg 2ja herb. 55 fm íb. á
4. hæð, efstu. Parket. Suðursv. Áhv. húsbr.
3,1 millj. Verð 5,0 millj. 2220
HRINGBRAUT Mjög falleg 2ja herb. íb.
63 fm á 3. hæð. Nýlegar fallegar innr. Parket.
Áhv. byggsj. og húsbr. 3,2 millj. Verð 5,5
millj. 2252
FLYÐRUGRANDI Gullfalleg rúmg. 2ja
herb. íb. 70 fm á jarðh. Parket, sér suðurgarð-
ur m. verönd. Áhv. Byggingasj. 3,4 millj.
Verð 6,3 millj. 2246
BERGÞÓRUGATA Glæsileg nýl. 2ja
herb. 66 fm íb á 1. hæð í litlu fjölbhúsi. Steinfl.
á gólfum. Fallegar innr. Suðursv. Fallegt útsýni.
Áhv. byggsj. 3,4 millj. Verð 7,3 millj. 2187
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR Glæsileg2ja
herb. íb. á 2. hæð. íb. er öll nýgegnumtekin.
Nýtt eldh., nýtt bað, ný gólfefni. Nýtt rafm.
Laus strax. Verð 4,9 millj. 2219
SKIPASUND - LAUS Höfum til sölu
2ja herb. íb. í kj. í tvíb. Parket á allri íb. Sérinn-
gang. sérhiti. Góður garöur. Verð aðeins 3,6
millj. 2139
ATVINNUHUSNÆÐI
BOLHOLT 6 skrifstofuh. Höfum tii
sölu 90 fm skrifsthúsn. á 2. hæð í lyftuh. Nýl.
gólfefni. Gott útsýni. Vörulyfta. Verð 3,6 millj.
2203
SUMARBUSTAÐIR
MEÐALFELL - KJOS. Höfum til sölu
gullfallegan 52 fm sumacbústað ásamt 30 fm
svefnlofti, 8 fm útihúsi og 100 fm verönd. Hálf-
tíma akstur frá Rvík. Verð 4,9 millj. 2176
Gullsmári 8 - Kópavogi
Glæsilegar nyjai’ íb. - hagstætt verð
Örfáar íbúðir eftir
24 íbúðir í sex liæða
lyftuhúsi. Allar íb.
skilasl fullbúnar án
gólfefna. Sameign skil-
ast fullbúin að utan
sem innan.
Vandaður myndabæk-
lingur á skrifst. 2299
Verð 6.950 þ.
Verð 8,2 millj.
Verð 10,8 millj.
3ja herbergja
4ra herbergja
„Penthouse"
86 fm.
106 fm.
165 fm.
Byggingaraðili: Járnbending hf.
er gert ráð fyrir tveimur til
þremur svefnherbergjum og
góðri setustofu eða sjónvarps-
herbergi.
í kjallara er gert ráð fyrir
lítilli íbúð með eldhúsi, her-
bergi og snyrtingu, en sú að-
staða er þó ekki fullbúin.
Geymsla og þvottahús eru líka
í kjallara. Búið er að end-
urnýja rafmagn og leiðslur að
hluta til.
„Þetta er góð eign í hjarta
bæjarins og stutt í alla þjón-
ustu,“ sagðj Sigfús Almarsson
að lokum. Ásett verð hússins
er 12,9 millj. en áhvílandi eru
4,2 millj. kr.
------» ■*■ ■■*--
Fyrsti
vaxtadag-
ur fast-
eigna-
veðbréfa
AF GEFNU tilefni vill Húsnæðis-
stofnun ríkisins taka það fram, vegna
umræðna þar að lútandi, að svokölluð
„vinnuregla" stofnunarinnar, um
fyrsta vaxtadag fasteignaveðbréfa,
er alls ekki vinnuregla hennar. Kem-
ur þetta fram í fréttatilkynningu frá
Húsnæðisstofnuninni.
Hér er hins vegar um að ræða
venju, sem skapast hefur á fasteigna-
markaðinum í samningum á milli
kaupenda og seljenda íbúða, án af-
skipta Húsnæðisstofnunar. Samn-
ingar þessir eru henni því óviðkom-
andi og gerðir án hennar vitundar.
Þegar þeir berast henni hafa við-
komandi kaupendur og seljendur
komið sér saman um það hver skuli
vera fyrsti vaxtadagur fasteignaveð-
bréfanna og fer afgreiðsla Húsnæðis-
stofnunar alfarið fram í samræmi
við þá samninga.
Þegar um íbúðarkaup er að ræða
er það seljandi íbúðarinnar, sem er
að lána kaupanda hennar hluta af
andvirðinu. Allir vextir, sem falla á
skuldabréfið, fram að þeim tíma að
húsbréfin eru afhent seljandanum,
ganga því til seljandans, en ekki til
Húsnæðisstofnunar. Rétt er að benda
á að fyrsti vaxtadagur fasteignaveð-
bréfa hefur verulega þýðingu fyrir
seljendur fasteigna, við mat þeirra á
söluandvirði skv. kauptilboði.
Hlutverk Hús-
næðisstofnunar
Hlutverk Húsnæðisstofnunarinnar
er að skipta á skuldabréfum, í tengsl-
um við íbúðarkaup, og húsbréfum, í
samræmi við ákvæði þeirra kauptil-
boða, sem henni berast í hendur.
Einungis, þegar um það er að ræða
að kaupandi íbúðar uppfyllir ekki þau
skilyrði, sem löggjafinn setur fyrir
samþykki skuldabréfaskiptanna,
synjar stofnunin um skuldabréfa-
skipti.
En áður en til synjunar kemur er
viðkomandi aðilum gefínn kostur á
því að leggja fram gögn, sem sanna
að þeir uppfylli þessi skilyrði. Þá er
það undir þeim komið hvenær af-
greiðsla fer fram, þar sem afgreiðslu-
tíminn markast af því, hversu lengi
þeir eru að skila þessum gögnum til
stofnunarinnar. I þessu sámbandi
má benda á, að sl. eitt til eitt og
hálft ár hafa allar umsóknir, sem
hafa verið í lagi, verið afgreiddar frá
henni á einni viku til tíu dögum.
í þessu sambandi er rétt að benda
á, að á árinu 1991 könnuðu bæði
bankaeftirlit Seðlabankans og um-
boðsmaður Alþingis venju þá, sem
myndast hafði á fasteignamarkaðin-
um um fyrsta vaxtadag fasteigna-
veðbréfa, og afgreiðslu þessa mála
hjá Húsnæðisstofnun. Sá hvorugur
þeirra ástæðu til að gera neinar at-
hugasemdir við afgreiðslur hennar í
þessu efni.
Þar kom fram að hér er um að
ræða hlut, sem er samningsatriði
milli aðila fasteignaviðskiptanna og
henni óviðkomandi. Rétt er að taka
fram, að afgreiðslur stofnunarinnar
á þeim tíma voru með sama móti og
í gildi eru í dag, segir að lokum í
fréttatilkynningunni.