Morgunblaðið - 16.05.1996, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.05.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996 D 17 svonefnda, en þar er búið að byggja mikið af glæsilegu verslunar-og skrifstofuhúsnæði. Þegar byggðin þenst út, flytja iðnfyrirtækin sig meira út í útjaðrana. — Annars er mikil breidd í iðnað- arhúsnæði, hvað leiguverð snertir, enda er þetta húsnæði fjölbreyttara að allri gerð en annað atvinnuhús- næði, bæði að því er varðar stærð og gæði, sgir Ólafur. — Mér finnst samt eins og nú megi merkja ein- hvetjar breytingar til hækkunar á leigu á iðnaðarhúsnæði á vissum svæðum eins og t. d. í kringum Kringluna. Skrifstofuhúsnæði er yfirleitt á efri hæðum í byggingunum og leigu- verð þar því ódýrara heldur en á verzlunarhúsnæði. En mér sýnist sem leiga fyrir skrifstofuhúsnæði sé sízt að lækka en fari fremur hækk- byggja. — Slíkar vangaveltur koma ekki svo mjög inn á borð til okkar, en út frá auknum áhuga á könnun- inni hljótum við að álykta sem svo, að margir eru farnir að íhuga þennan möguleika í mun ríkari mæli en áð- ur, segir Ólafur. — Að fenginni reynslu undanfarinna ára, þar sem sumir hafa farið flatt á því að binda íjármagn í húsnæði, kann samt vel að vera, að margir kjósi frekar þann sveigjanleika í rekstri, sem felst í því að leigja. Að mati Ólafs er mun meiri þrótt- ur í atvinnulífinu en var. — Fólk hefur meiri Ijárráð nú, sem kemur fram í meiri eftirspurn eftir vörum og þjónustu, segit' hann. — Með auknum umsvifum í verzlun og þjón- ustu vex um leið eftirspurn eftir at- vinnuhúsnæði, bæði verzlunar- og iðnaðarhúsnæði. Það hefur þvi dreg- Morgunblaðið/RAX í Hálsahverfinu svonefnda hefur risið glæsilegt verzlunar- og þjónustuhverfi. Iðnfyrirtækin hafa gjarnan fært sig í önnur hverfi. IÐNFYRIRTÆKIN hafa hopað burt úr Skeifunni vegna ásóknar verzlunar- og þjónustufyrirtækja þangað, sem geta borgað hærri leigu. Mikill uppgangur hefur verið þar í verzlun og þjónustu. andi, ef nokkuð er þrátt fyrir mikið | framboð. í miðborg Reykjavíkur hefur átt sér stað sú þróun, að veitingastaðir hafa haslað sér völl á mörgum stöð- um, þar sem verzlanir voru áður. En með þessu dregur miðborgin til sín mikið mannlíf, bæði um miðjan dag og á kvöldin, sem er að sjálf- sögðu undirstaða verzlunar. Húsa- leiga er líka orðin mun hagstæðari ' í miðborginni en eitt sinn var. Þetta I hefur leitt til þess, að eftirspurn eft- I ir verzlunarhúsnæði 5 miðborginni hefur aukizt á ný. Betra að kaupa en að leigja? Ekki er nema stutt síðan, að nokkur verðbréfafyrirtæki tóku að veita langatímalán til kaupa á atvinnuhús- næði. Áður var yfirleitt ekki hægt að kaupa slíkt húsnæði nema með ' lánum til tiltölulega skamms tíma. | Greiðslubyrðin var þá gjarnan það I há, að mörg fyrirtæki treystu sér ekki til að kaupa en kusu heldur að leigja. Kosturinn við að kaupa er auðvitað sá, að þá eru fyrirtækin að eignast það húsnæði, sem þau nota. Á móti kemur minni sveigjanleiki. Fyrirtæki eru þá bundnari af hús- næðinu, sem þau eru í og eiga þá erfiðara með að flytja sig eða minnka við sig húsnæði, ef aðstæður breytast. < Með betri lánamöguleikum kemur ( sú spurning strax upp, hvort forráða- menn fyrirtækja í leiguhúsnæði séu ' í auknum mæli farnir að velta fyrir sér kaupum á húsnæði eða þá að ið mjög úr offramboði á atvinnuhús- næði. Um leið má búast við, að eigendur húsnæðis taki að endurskoða leigu- samninga, þegar þeir renna út, á grundvelli þess að eftirspurn er jafn- vel orðin meiri en framboðið og þá með hækkun í huga. En breytingar á húsaleigu á atvinnuhúsnæði gerast hægt, því að leigusamningar eru yfir- leitt gerðir til nokkurra ára og leigu- grunnurinn breytist ekki á meðan. Leigusamningar til 4-5 ára eru algengir, en oft eru þeir til mun lengri tíma, jafnvel til um og yfir tíu ára. Þetta ræðst svolítið af því, hversu há leigan eru, en samningar með lágri leigu eru frekari til lengri tíma. Eg hef t. d. séð leigusamn- inga, sem ná vel inn á næstu öld. Leigusalar eru að sjálfsögðu bundnir af slíkum samningum og geta ekkj hækkað leigugrunninn á meðan. I slíkum samningum hækkar leigan einungis í samræmi við verðbólgu. Ný viðhorf — En ef verðbólgan fer á skrið og eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði eykst til muna vegna aukinna um- svifa í atvinnulífinu, má gera ráð fyrir, að leigugrunnurinn sjálfur breytist til hækkunar og að húsaleiga verði þannig hlutfallslega hærri en hún var, segir Ólafur Þ. Gylfason að lokum. — Vegna hækkunar á vísi- tölugrunninum, sem allar breytingar á húsaleigu byggjast á, er óhætt að fullyrða, að ný viðhorf séu að skap- ast við leigu á atvinnuhúsnæði. BRYNJOLFUR JONSSON Fasteignasala ehf, Barónsstig 5,101 Rvk. Jón Ól. Þórðarson, hdl., lögg. fasteignasali Fax 552-6726 SÍMI511-1555 Opið kl. 9-12.30 og 14-18. Laugardaga kl. 10-14. Opið v.d. kl. 9-12.30, 14-18 og laugard. kl. 10-14. HLÍÐARBYGGÐ - GBÆ Fallegt og vel staðs. 210 fm endaraðh. m. innb. bílsk. á besta stað í Gbæ. RAUÐALÆKUR - 2 ÍB. Kaupendur athugið 180 fm parh. ásamt bílsk. 5 svefnh. Skipti á minna. Höfum fjölda góðra eigna á söluskrá sem ekki eru auglýstar Einbýli - raðhús VÍKURBAKKI Gott raðhús með bílskúr ca 180 fm + ca 40 fm í kj. 5 svefnh. Verð 12,2 millj. GRETTISGATA Ca 110 fm einbhús á einni hæð. Húsið er t mjög góðu ástandi. Verð 9,9 millj. Áhv. 3,4 millj. byggsj. Hæðir NÖKKVAVOGUR TVÆR ÍBÚÐIR 78,2 fm hæö ásamt 53 fm I ki. Verð 8,8 millj. Áhv. 4,7 millj. LAUGARNESVEGUR Sérlega falleg og mikið endurn. 130 fm efri sérhæð ásamt 50 fm bílsk. HOLTAGERÐI - KÓP. Sem ný glæsil. ca 160 fm sérh. í tvíb. Bílskréttur. Stór sérgarður. Eign í sérfl. AKURGERÐI Mjög falleg hæð/parh. Nýtt eldh. Bílskréttur. Skipti á minni eign í sama hverfi. Morgunblaðið/Þorkell. BREIÐÁS - GBÆ Mjög góð ca 120 fm neðri sérh. í tvíb. Góður bílsk. m. gryfju. Áhv. 5,8 millj. VÍÐIHVAMMUR - KÓP. Mjög góð efri sérh. í tvíb. 4 svefnh. Góður bílsk. 70 fm svalir. Verð 10,9 millj. Áhv. 5,3 millj. Ákv. sala. 4ra herb. og stærri EYJABAKKI Góð 4ra herb. útsýnisíb. Parket á stofu og gangi. Verð 6,2 millj. Áhv. byggsj. 2,3 millj. VESTURBÆR Var að fá vestast í vesturbænum ca 175 fm nýja útsýnisíb. á tveimur hæðum. Hagst. lán áhv. 5,5 millj. Verð 10,9 millj. HVASSALEITI Mjög góð 100 fm íb. ásamt bílsk. Skipti æskil. VIÐ BARÓNSSTÍG Falleg algjörl. endurb. ca 77 fm risíb. Gott útsýni. Verð 6,2 millj. Áhv. 3,0 millj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.