Morgunblaðið - 28.08.1996, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
-n MORGUNBLAÐIÐ
______________________________FRÉTTIR________________
Engin hreyfing í kjaraviðræðum samninganefnda LÍ og ríkisins
Unnið á bak við tjöldin
að lausn deilunnar
Búist við deilum um valfrjálsa stýri-
kerfið á auka-aðalfundi LÍ
FORSVARSMENN Læknafélags ís-
lands og ríkisins eru svartsýnir á
lausn kjaradeilu heilsugæfelulækna
og samninganefndar ríkisins. Auk
strangra fundarhalda í húsnæði rík-
issáttasemjara hefur þó einnig verið
unnið á bak við tjöldin að lausn
málsins, en þau samtöl hafa enn sem
komið er skilað litlum árangri, sam-
kvæmt upplýsingum Sverris Berg-
mann, formanns LÍ.
„Við berum mikið traust til samn-
inganefndarinnar, sem hefur ekki
látið sig vanta neitt frumkvæði að
því hvernig mætti leysa málið, en
það hafa vissulega aðrir reynt að
koma að lausn líka, og það verður
að segjast eins og er að það horfir
þunglega. Kjarninn í lausn deilunnar
er sá að það þarf að leiðrétta föst
iaun.og um leið og það er gert, þarf
að taka á þáttum sem í dag byggja
upp heildarlaunin. Lokaniðurstaðan
þarf þannig ekki að þýða einhveija
óraunhæfa kauphækkun miðað við
það sem gerst hefur og þar af leið-
andi ekki ófyrirsjáanleg útgjöld ríkis-
ins langt umfram það sem vænta
mátti,“ segir Sverrir.
Samninganefndir LI og ríkisins
komu saman til fundar hjá ríkissátta-
semjara kl. 13 í gær og stóðu fundir
fram á kvöld án þess að nokkuð þok-
aðist í samkomulagsátt. Viðmælendur
Morgunblaðsins sögðu ekkert nýtt
hafa komið fram, ekkert haggaðist í
viðræðunum sem væru í sömu stöðu
og um seinustu mánaðamót þegar
heilsugæslulæknar hættu störfum.
11 læknar hafa ráðið sig til
starfa í öðrum löndum
Ellefu heilsugæsluiæknar hafa
þegar ráðið sig til starfa á öðrum
Norðurlöndum. Eru margir fleiri að
skoða málið og munu taka ákvörðun
á næstu dögum um hvort þeir ráða
sig til starfa í öðrum löndum, að
sögn Katrínar Fjeldsted, formanns
Félags íslenskra heimilislækna. Af
þeim sem þegar hafa ákveðið að fara
til starfa í öðrum löndum eru fjórir
af höfuðborgarsvæðinu en sjö af
landsbyggðinni.
„Það er nóg af störfum. Víðast
hvar í Norður Evrópu, þar sem er
svipað menningarstig og á íslandi,
er mikil áhersla lögð á frumheilsu-
gæslu og heimilislækningar. Það
skýtur því skökku við hér á landi ef
menn láta sér detta í hug að hægt
sé að vera án hennar," sagði Katrín.
Læknar taka vel bréfi
fjármálaráðherra
Fjármálaráðherra sendi stjórn LÍ
bréf fyrir skömmu og bar upp þá
tillögu að gerður verði einn kjara-
samningur fyrir alla lækna í þjón-
ustu ríkisins, þannig að læknafélögin
kæmu sameiginlega að gerð grunn-
atriða kjarasamninga. Læknafélagið
hefur nú svarað erindi ráðherrans
og var því vel tekið af hálfu forystu-
manna lækna að sögn Sverris Berg-
mann. í gær áttu forystumenn LÍ
svo fund með fjármálaráðherra
vegna þessara mála.
„Við erum tilbúnir að hefja slíkar
umræður en það þarf ákveðinn undir-
búning. Jafnvel þótt menn séu sam-
mála um að leita að sameiginlegri
niðurstöðu þá yrði það talsvert mikil
vinna,“ sagði Sverrir en bætti því
við að yfirstandandi kjaradeila væri
óháð þeirri vinnu.
Auka-aðalfundur Læknafélags ís-
lands verður haldinn 4. september
en reglulegur aðalfundur er boðaður
20. september. Megin umræðuefni
fundarins er stefnumörkun um upp-
byggingu heilsugæsluþjónustunnar
og valftjálsa stýrikerfið sem heil-
brigðisráðherra.kynnti í júlí en veru-
legur ágreiningur er á milli heilsu-
gæslulækna og Sérfræðingafélags
íslenskra lækna um málið. Er boðað
til fundarins að ósk sérfræðilækna
og er skv. heimildum Morgunblaðsins
búist við deilum um þetta mál á fund-
inum.
„Læknar eru ekki allir alveg sam-
mála. Ég lít svo á að verkefni þessa
fundar sé að reyna að ná sameigin-
lega að landi,“ sagði Sverrir Berg-
mann. Aðspurður hvort leiðir væri
hugsanlega að skilja á milli sérfræð-
ingafélagsins og heilsugæslulækna
sagði Sverrir: „Það er ekkert leynd-
armál að sérfræðingar í hinum ýms-
um greinum og sérfræðingar í jjeim-
ilislæknum hafa ekki eitt og sama
viðhorfið til uppbyggingarinnar en
me'nn eru þó sammála um ákveðin
markmið, þannig að ég vona að það
sé ekki að koma til neinna slíkra
ákvarðana. Læknar eru að eðlilsfari
friðsamir og skynsamir menn.“
Áratuga uppbygging að fara í
súginn
Fjölmargar ályktanir hafa borist
undanfarna daga frá stjórnendum
innan heilbrigðiskerfisins vegna
kjaradeilu heilsugæslulækna, þar
sem lýst er þungum áhyggjum vegna
ástandsins í heilsugæslu landsmanna
og skorað er á samninganefndirnar
að ganga til samninga hið fyrsta.
„Hjúkrunarfræðingar hafa orðið
varir við aukið óöryggi fólks og vax-
andi vanda þeirra sem leita til heilsu-
gæslustöðva. Því lýsum við vanþókn-
un okkar á því alvöruleysi sem ríkt
hefur í viðræðum samninganefnda
heilsugæslulækna og ríkisins og ger-
um kröfur til þeirra og stjórnvalda
að þeir sýni þá ábyrgð gagnvart al-
menningi að leysa deiluna um kjör
heilsugæslulækna nú þegar,“ segir í
sameiginlegri ályktun stjórnar Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga og
stjórnar fagdeildar hjúkrunarfor-
stjóra og hjúkrunarframkvæmda-
stjóra í heilsugæslu.
Stjóm sjúkrahúss og heilsugæslu-
stöðvar á Egilsstöðum ályktar svo:
„í umdæmi stofnananna, 11 sveitar-
félögum er hvergi læknir á slysavarð-
stofu og enginn læknir á neyðar-
vakt. Þetta lítur stjórnin á sem neyð-
arástand og krefst þess að deila við
heijsugæslulækna verði leyst.“
í bréfi Landssamtaka heilsugæslu-
stöðva til fjármálaráðherra og LÍ
segir að áratugastarf að uppbygg-
ingu heilsugæslustöðva sé að fara í
súginn vegna þeirrar stöðu sem upp
er komin í deilu heilsugæslulækna
og ríkisins.
„Ef þessi deila Ieysist ekki á næstu
dögum, mun það hafa ófyrirsjáanleg-
ar afleiðingar fyrir íslenska heil-
brigðiskerfið. I fyrsta lagi mun alvar-
legur læknaskortur verða á lands-
byggðinni vegna flutnings margra
lækna af landi brott. Það mun leiða
til þess að almennt heilsufar lands-
manna versnar og að fleiri á lands-
byggðinni en ella flytji búferlum í
þéttbýlið vegna óöryggis í heilbrigð-
ismálum. I öðru lagi mun kostnaður
við heilbrigðiskerfið hækka mikið
með tímanum. Fyrir liggur að kostn-
aður við heilbrigðiskerfið getur orðið
allt að 30% minni en ella þar sem
heilsugæsla er oflug,“ segir m.a. í
bréfinu.
Leifur Einksson a veggspjaldi SAS-flugfélagsins
Sagður hafa
siglt frá
Noregi til
Vínlands
Eiður Guðnason
VEGGSPJALD SAS á Fornebuflugvelll sem sýnir ferðir yfir
Atlantshafið á ýmsum tímum. Brúna línan ofarlega á kortinu
sýnir siglingu Leífs frá Noregi til íslands, Grænlands og Vín-
lands. Vinstra megin við kortið stendur textinn: „Vikingaskip
Leifs Eiríkssonar. Samtals u.þ.b. 20-25 dagar.“
Andlát
BIRGIR
HALL-
DÓRSSON
BIRGIR Halldórsson verslunarmað-
ur lést þann 26. ágúst á heimili sínu
í Reykjavík, 58 ára að aldri. Birgir
var fæddur 21. september 1937 í
Reykjavík en ólst upp á Akranesi.
Birgir hefur síðastliðin 25 ár rek-
ið verslunina Búsáhöld og gjafavörur
ásamt eiginkonu sinni. Síðastliðinn
áratug hefur sonur hans Birgir einn-
ig rekið verslunina. Áður en Birgir
hóf verslunarrekstur starfaði hann
um tveggja áratuga skeið á Haf-
rannsóknastofnun.
Birgir kvæntist eftirlifandi eigin-
konu sinni, Sigríði Auðunsdóttur,
23. janúar 1960. Þau eignuðust fjög-
ur börn sem öll eru uppkomin. Eftir-
lifandi ’móðir Birgis er Rut Guð-
mundsdóttir frá Helgavatni.
Á FORNEBUFLUGVELLI í Nor-
egi hefur verið sett upp vegg-
spjald þar sem sagt er að Leifur
Eiríksson hafi siglt á víkinga-
skipi sínu frá Noregi til Ameríku
á 20-25 dögum. í Eiríks sögu
rauða og Grænlendingasögn seg-
ir að Leifur hafi siglt frá Bratta-
hlíð á Grænlandi til Vínlands.
Faðir hans, Eiríkur rauði, kom
á sínum tíma til Grænlands frá
Noregi en með viðdvöl á íslandi.
Heimildum ber ekki saman um
hvort Leifur hafi fæðst í Noregi,
á íslandi eða jafnvel á Grænlandi.
Veggspjaldið er hluti af sögu-
sýningu SAS-flugfélagsins í til-
efni af fimmtíu ára afmæli fé-
lagsins. Sagt er frá því hversu
langan tíma tekið hafi að komast
yfir Atlantshafið á mismunandi
öldum. Fyrst er talin ferð Leifs
en endað á flugi Concordeþotu.
Þykir miður að valda
misskilningi
Simon Revold, blaðafulltrúi SAS
í Noregi, segir að ekki hafi verið
ætlunin að segja til um þjóðerni
Leifs. „Það má misskilja upplýs-
ingarnar á kortinu, en ætlunin
var alls ekki að stela Leifi frá
íslendingum eða nokkrum öðr-
um. Tilgangurinn var einfald-
lega að sýna hversu Iangan tíma
hefur tekið að fara yfir Atlants-
hafið á ýmsum öldum. Okkur
þykir miður ef þetta hefur leitt
til miskilnings."
Revold fletti Leifi Eiríkssyni
upp í norskri sögubók. Þar segir
að Eiríkur rauði hafi farið frá
Noregi til Islands og Grænlands
og að í för með honum hafi ver-
ið Leifur heppni, sem þá var
aðeins barn að aldri. Blaðafull-
trúinn játaði í framhaldi af því,
að ekki væri rétt að tala um
Leifur hafi siglt á eigin skipi frá
Noregi til Ameríku.
Stefán Skjaldarson, sendiráðu-
nautur í íslenska sendiráðinu í
Osló, segir að í Noregi sé það
ráðandi viðhorf að bæði Leifur
heppni og Snorri Sturluson hafi
verið norskir menn.
„Við höfum oft reynt að leið-
rétta þetta, en með litlum
árangri. Fyrir nokkrum árum
kom út hjá virtu bókaforlagi rit-
röð með Heimskringlu, íslend-
ingasögum og fleiri sögum sem
ritaðar voru á íslandi. Þar voru
þær kynntar sem norrænar bók-
menntir en Snorri Sturluson
sagður norskur. Snorri var þó
íslendingur í fimmta ættlið.“
¥
Morgunblaðið/Golli
Bústaða-
vegur
breikkaður
Á BÚSTAÐAVEGI framan við
verslunarmiðstöðina í
Grímsbæ er verið að breikka
götuna til norðurs, endurbæta
aðkeyrslu að verslunarmið-
stöðinni og koma fyrir útskot-
um fyrir strætisvagna. Að
sögn Sigurðar Skai-phéðins-
sonar gatnaniálastjóra, hefur
borið á að umferð að versl-
unarmiðst öðinni hafi tafið
aðra umferð um Bústaðaveg.
„Gatan verður breikkuð inn í
brekkuna ofan við götuna á
þessum kafla,“ sagði hann.
„Umferðin færist nær húsun-
um en mun ekki hafa áhrif á
hávaðamengun, þar sem hún
liggur með bakkanum ofan við
götuna. Hefur verið reiknað
út að hljóðstig í húsunum
verður það sama og það var
fyrir breytinguna."
Áskrift
að Stöð 2
hækkar
ÁSKRIFT að Stöð 2 hækkar
um næstu mánaðamót um 5%.
Fyrir áskrift septembermánað-
ar þurfa áskrifendur að greiða
3.350 krónur í stað 3.190 króna
fyrir hækkun. Magnús Krist-
jánsson markaðsstjóri hjá ís-
lenska útvarpsfélaginu segir að
hækkunin nú sé í samræmi við
verðlagsbreytingar sem hafi
orðið frá því í mars 1994 þegar
síðast varð breyting á áskrift-
argjaldi Stöðvar 2.
Magnús sagði að gjaldhækk-
unin hefði ekki verið sérstak-
lega auglýst nú. Það hefði áður
verið gert í Sjónvarpsvísi en
hann væri ekki lengur gefinn
út. „Við endurgreiðum að sjálf-
sögðu hækkunina til þeirra sem
greiða með greiðslukorti og
telja að sér hafi ekki verið gert
nægilega vel ljóst að gjaldið
hækkaði núna,“ sagði Magnús.
Sljórn SUS
Harmar
aukningu
ríkisútgjalda
STJÓRN Sambands ungra
sjálfstæðismanna harmar þá
þriggja milljarða króna aukn-
ingu á ríkisútgjöldum sem rík-
isstjórnin ráðgerir nú í kjölfar
óvæntrar tekjuaukningar ríkis-
sjóðs, að því er segir í ályktun
stjórnar SUS.
Skorar stjórn SUS á ríkis-
stjórnina að minnka Qárlaga-
hallann á þessu ári um fyrr-
greinda upphæð og stefna að
afgangi af ríkissjóði á næsta
fjárlagaári. Jafnframt hvetur
stjórn SUS ríkisstjórnina til að
minnka umsvif ríkisins með
sölu ríkisfyrirtækja, frekari út-
boðum og áframhaldandi hag-
ræðingu í rekstri ríkisstofnana.