Morgunblaðið - 28.08.1996, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Innilegar þakkir fœri ég börnum, tengdabörn-
um, svo og œttingjum og vinum, fyrir gjafir,
blóm og skeyti og þeim, sem sýndu mér vin-
áttu á 70 ára afmœlinu mínu 31. júlí sl.
Guð blessi ykkur öll.
Helgi Einarsson,
Stóragerði 12, Hvolsvelli.
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra, sem glöddu
mig a áttatíu ára afmœli mínu með gjöfum,
blómum og skeytum.
GuÖ blessi ykkur öll.
Lúövík Jónsson,
Aðalgötu 5, Keflavík.
Vinningar í
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
|Heiti potturinn 27. dgúst '96
1
kom á miða nr. 5424
s
1.5 kW ... kr. 46.000
2.2 kW ... kr. 59.000
3.0 kW ... kr. 99.000
Eigum fyrirliggjandi rafstöðvar
fyrir afiútak dráttarvéla.
ÞÓR HF
Reykjavík - Akureyrl
Ath. Tilboð á
f}ögurra mánaða kortum
Heildarjóga
Ásmundur GunnlaUgsson
Y06A#
STUDIO
Jógafyrir alla
Grunnnámskeiö
Kenndar verða hatha-jógastöður, öndunartækni, slökun
og hugleiðsla. Fjallað verður um jógaheimspekina,
mataræði o.fl.
Næsta námskeið: .
23. sept. ( 7 skipti, mán. og mið kl. 16.30-18).
Leiðbeinandi Ásmundur Gunnlaugsson.
Hátúni 6A, 105 Reykjavík, jógakennari.
sími511 3100. ki. 11—18.30.
í
I
Við byggjum
UPP fÓlk og fólkið
byggir upp fyrirtcekin
I
I
FJÁRFESTING
ÍMENNTUN
SKILAR ÞÉR
ARÐIÆVILANGT
I
tttit Dale Carnegie®
|l’ þjálfun
Fólk-Arangur-Hagnaður
hjííípuy þéy abi
• Verða hœfari í starfi.
• Oðlast meiri eldmóð.
• Verða betri í mannlegum samskiptum.
• Lostia við dhyggjur og kvíða.
• Skerpa minnio.
• Veroa hetri rceðumaður
• Setja þér markmið.
KYNNINGARFUNDUR
FIMMTUDAG KL. 20:30 AÐ SOGAVEGI 69, REYKJAVÍK
Innritun og
upplýsingar í sima:
581 2411
I
I
0
STJORNUNARSKOLINN
Konráð Adolphsson - Einkaumboð á Islandi
I
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
ÍR-INGAR leita nú líkans
sem gert var fyrir áratug-
um af íþróttahúsi félagsins
við Túngötu, gegnt Landa-
kotsspítala, sem enn er í
notkun.
Líkanið var gert af
Magnúsi Baldvinssyni úr-
smið og var lengst af í
vörslu félagsins í húsinu
sjájfu en virðist nú glatað.
ÍR-ingum er mikið í
mun að fá líkanið aftur til
að geyma í hinu glæsilega
félagsheimili IR í Mjódd-
inni og hafa frammámenn
innan félagsins haldið uppi
spurnum um iíkanið víða.
Meira að segja hefur með
óformlegum hætti verið
leitað til „sjáanda“ sem
telur sig vita að líkanið sé
einhvers staðar í fórum
gamals stjórnarmanns fé-
lagsins eða einstakra
deilda þess en lengra hafa
ÍR-ingar ekki komist í því
að grafa upp núverandi
verustað líkansins. Þess
vegna lýsa þeir nú eftir
því í von um að upp rifjist
hjá einhveijum gömlum
félaga hvar það geti verið
niður komið.
Eru þeir sem einhveijar
upplýsingar geta veitt
beðnir um að láta vita í
síma umsjónarmanns fé-
lagsins í Mjóddinni
557-5013.
Tvö nöfn vantar enn
ÞESSI mynd af Dóm-
kirkjukómum í Reykjavík
var tekin í nóvember 1941
þegar kórinn flutti Requi-
em eftir Luigi Cherubini
undir stjórn dr. Páls ísólfs-
sonar en dr. Victor Ur-
bancic lék á orgelið.
Áformað er að birta
þessa mynd í Sögu Dóm-
kirkjunnar sem kemur út
í haust í tilefni af 200 ára
afmæli kirkjunnar. Enn
Tapað/fundið
hefur ekki tekist að nafn-
greina tvær konur í hópn-
um og er nú leitað liðsinn-
is lesenda Morgunblaðsins
við það verk.
Konurnar eru báðar í
annarri röð, þriðja frá
vinstri og sjötta frá vinstri.
Þeir sem þekkja konurn-
ar eru vinsamlega beðnir
að hafa samband við sr.
Hjalta Guðmundsson í
síma 551-4926.
vitja þeirra til Grétu í síma
431-1731.
inn 19. ágúst sl. í töskunni
var Canon-myndavél, lins-
ur og áteknar filmur sem
eru eigandanum afar dýr-
mætar.
Skiivís finnandi er vin-
samlega beðinn að hringja
í síma 562-6618 og er
fundarlaunum heitið.
Poki með
fatnaði í óskilum
PLASTPOKI var skiiinn
eftir fyrir tveimur árum í
risi á Hringbraut 37. í
pokanum er fatnaður og
fleira sem virðist tilheyra
ungum manni. Ungur
maður var leigjandi á þeim
tíma og er hann beðinn
um að hafa samband í
síma 552-7619 eftir kl. 18.
Göngustafur í
óskilum
FYRIR utan Háaleitis-
braut 50 hefur trégöngu-
stafur með oddum neðst
verið í óskilum í u.þ.b.
mánuð.
Eigandinn er beðinn að
sækja hann þangað.
Karlmannsf rakki
tapaðist
ÞÚ SEM tókst í misgripum
karlmannsfrakka í Risinu,
Hverfisgötu 105 sunnu-
dagskvöldið 11. ágúst ert
beðinn að skila honum og
fá þinn eigin. í frakkanum
voru persónulegir hlutir
sem eiganda eru mikil-
vægir.
I von um samvinnu ert
þú vinsamlegast beðinn að
hafa samband við skrif-
stofu Félags eldri borgara
í síma 552-8812.
Gæludýr
Páfagaukur í
óskilum
GRÆNN og gulur páfa-
gaukur með blátt nef
fannst á Háleitisbraut urn
fimmleytið sl. sunnudag.
Eigandinn má vitja hans
í síma 553-1645.
Týndur
kettlingur
GULBRÖNDÓTTUR og
hvítúr fjögurra mánaða
högni hvarf frá Vallar-
barði í Hafnarfirði fyrir
rúmri viku. Sést hafði til
hans í nágrenninu stuttu
eftir hvarfið en hann kom
ekki heim til sín.
Þeir sem gætu gefið
upplýsingar um hann vin-
samlega hringi í síma
565-1904.
Gleraugu
fundust Myndavéla-
NÆRSÝNISGLERAUGU • taska tapaðist
í nýlegu hulstri með smellu GRÆN myndavélataska
fundust sl. sunnudag í var skilin eftir í Hljóm-
Botnsdal. Eigandinn má skálagarðinum mánudag-
Víkveiji skrifar...
YÍKVERJI brá sér í frí á sólar-
strönd sem ekki er í frásögur
færandi og telst nú að dögum alls
ekki til tíðinda. Hann fór á vegum
Samvinnuferða/Landsýnar með
breiðþotu Atlanta til Miðjarðar-
hafs og átti hina ágætustu dvöl
þar ásamt fjölskyldu sinni og fjöl-
mörgum löndum. Víkverji heyrði
það einnig á samferðamönnum
sínum að mikil ánægja ríkti með
brottfarartímann héðan, en farið
var í loftið kl. 9.30 að morgni,
þannig að heilu fjölskyldurnar
þurftu ekki rífa sig upp um miðja
nótt til þess að koma sér til Kefla-
víkur — nóg var að vakna snemma
um morguninn. Sömu sögu var
að segja um heimkomutímann —
farið frá sólaströnd í eftirmiðdag-
inn og komið til Keflavíkur undir
kvöld. Það sem vakti hvað mesta
athygli og ánægju Víkveija við
ferðalagið með Atlanta bæði á
út- og heimleið var hversu elsku-
leg þjónustan var um borð í breið-
þotunni, flugfreyjurnar elskuleg-
ar í alla staði og einkar góðar við
hin fjölmörgu börn sem voru með
í för.
xxx
A* NÆGJULEGT var að fylgj-
ast með börnunum í fluginu,
sem voru ugglaust um helmingur
farþeganna, allt frá ungbörnum
upp í stálpaða unglinga. Þau voru
svo prúð í framkomu, stillt og
ánægð, að hvert foreldri gat stolt
verið. Flugstjórinn lét ekki sitt
eftir liggja í þessari ferð því hann
veit sem er að það er ekki á hverj-
um degi sem þessi aldursflokkur
(reyndar ekki aðrir aldursflokkar
heldur) ferðast með breiðþotu og
bauð ungviðinu að heimsækja sig
í flugstjórnarklefann. Það er ekki
nokkur vafi að Atlanta skildi eft-
ir ánægjulega minningu í huga
þessara viðskiptavina framtíðar-
innar.
EGAR sólarstrandarletilífið var
hafið jókst stolt Víkveija yfir
íslensku ungviði jafnt og þétt. Mik-
ið var af þýskum börnum á staðn-
um, sem voru óhemju yfirgangs-
söm, fyrirferðarmikil, hávaðasöm
og frek og samanburður á íslensku
börnunum og þeim þýsku var þeim
íslensku á allan hátt í vil. Athygli
Víkveija vakti að þýskir foreldrar
virðast vera nokkum veginn ónæm-
ir fyrir frekju, hávaða og yfirgangi
bama sinna. Jafnvel var það þann-
ig að þýskum foreldrum þætti tals-
vert til um framtakið þegar barni
þeirra eða börnum hafði tekist að
gera lífið nánast óbærilegt fyrir
nokkra tugi annarra. Vel má vera
að þýskir foreldrar ofdekri böm sín
því nú er það alls ekki svo að barna-
eign sé mjög útbreidd í Þýskalandi
og iðulega er um einbirni að ræða.
Ekki þorir Víkverji að staðhæfa að
hundaeign sé algengari í Þýska-
landi en barnaeign en hann grunar
þó að svo sé.