Morgunblaðið - 28.08.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.08.1996, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ BISKUPAR og prestar ganga frá kirkju að lokinni hátíðarguðsþjónustunni. Morgunblaðið/Theodór FRÁ hátíðarguðþjónustu í Akraneskirkju sl. sunnudag í tilefni aldarafmælis hennar. BRYNJAR Þór Magnússon úr Víði í Garði sigraði mótið en hann fór völlinn á fjórum spyrnum undir pari. Með honum eru Sigurður Guðnason, þjálfari Reynis og Guðni Kjartansson. Fótboltagolf í Sandgerði Aldar- afmælis Akranes- kirkju minnst FJÖLMENN hátíðarguðþjónusta var haldin sl. sunnudag í Akranes- kirkju í tilefni aldarafmælis kirkj- unnar. Biskup íslands, herra Ólaf- ur Skúlason predikaði og sóknar- presturinn, sr. Björn Jónsson, þjón- aði fyrir altari. Vígslubiskup, sr. Sigurður Sigurðarson, sr. Kristinn Jens Sigurþórsson, prestur á Saurbæ, og sr. Friðrik J. Hjartar, prestur í Olafsvík, aðstoðuðu við altarisgönguna. Að messu lokinni bauð sóknamefndin kirkjugestum til samkvæmis í Safnaðarheimilinu Vinaminni, þar sem kirkjukór Akraness söng og boðið var upp á veitingar. í predikun sinni sagði biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, meðal annars: „Akranes átti sína kirkju. íbúar sjávarþorpsins vissu að helgidómurinn stóð þeim opinn, hvort heldur gleði ríkti í sinni, eða syrt hafði að vegna voðafregna af miðum eða við sjávarströnd. Kirkj- an í hjarta bæjarins var ekki að- eins góð til skjóls í veðrum og ágjöf, andlegri sem líkamlegri, heldur einnig viti íbúum öllum og viðmiðun. Og sem slík, ekki síðri ljósmerlg'um frá öðrum vitum sem vörðuðu innsiglingu og vöruðu við skeijum og öðrum hættum sem fleyjum gat stafað af og greinum við í slíku hreint ekki lítið hlutverk kirkjunnar. Og enn stendur hún að heilli öld liðinni, enn gegnir hún sama hlutverki og þótt bæjarbrag- ur hafi breyst við fjölþættara at- vinnulíf og aukinn fólksfjölda, þá stendur kirkjan jafnt fyrir sínu, svo sem hún gjörði við upphaf og er jafnþörf núna. Kirkjan reist á „Bjargi". I ræðu sinni í Safnaðarheimilinu Vinaminni, sagði sóknarprestur- inn, sr. Björn Jónsson meðal ann- ars: „Svo sem flestum eða öllum þeim sem hér eru staddir er kunn- ugt þá er kirkjan okkar eina kirkjuhúsið sem reist hefur verið hér á Skipaskaga. Fyrri sóknar- kirkjur Akurnesinga voru allar staðsettar í Görðum. Þar voru þær reistar hver af annarri, allt frá því á landnámsöld. Þar átti því kristin trú frá upphafi sinn fagra gróður- reit, eins og eitt sinn var að orði komist á helgri hátíðarstundu hér á Akranesi. En svo þegar byggðin tók að þéttast hér niðri á Skaga fóru raddir að heyrast sem töldu það ekki einvörðungu æskilegt, heldur beinlínis brýna nauðsyn að færa kirkjuna þangað sem fólkið var. Ekki voru þó allir þar á einu máli en niðurstaðan varð sú að kirkjan okkar leit dagsins Ijós á þeim stað sem henni hafði verið valinn á Bjargslóðinni í hjarta bæjarins. Þess vegna sagði líka sr. Jón Sveinsson í vígsluræðunni; „kirkja þessi er reist á Bjargi, hinu sama nafni og kristindómurinn er reistur á; hyrningarsteinn hans er Jesús Kristur." I tilefni aldarafmælis kirkjunnar og 10 ára afmælis félagsheimilisins Vopnafirði - Nýlega var fyrsta skóflustungan tekin að nýrri lög- reglustöð á Vopnafirði. Þar mun verða til húsa lögreglan á Vopnafirði og útibú sýsluskrifstofu. Lögreglan hefur verið með starfsemina fram til þessa vítt og breitt um bæinn og fangageymsiumál verið í miklum ólestri og heilbrigðiseftirlit lokaði húsnæðinu endrum og sinnum en heimilaði notkun jafnharðan. Vinaminnis, báiust margar gjafir. Kvennanefnd kirkjunnar gaf þijár númeratöflur til kirkjunnar, hann- aðar af Hjörleifi Stefánssyni arki- tekt og til safnaðarheimilisins Vinaminnis gáfu þær glerlistaverk eftir Leif Breiðfjörð, verkið er í vinnslu og verður afhent síðar. Þá efndi kirkjukórinn til sjóðsmynd- unar, með 50 þúsund króna fram- lagi, til tækjakaupa vegna end- umýjunar á hljóð- og sjónvarp- skerfi í kirkjunni og safnaðarheim- ilinu, sóknarnefndin lagði til sömu upphæð og Bæjarstjórn Akraness gaf 100 þúsund krónur í sama sjóð sem Gísli Gíslason bæjarstjóri af- henti. Þá gáfu prestshjónin, sr. Bjöm Jónsson og kona hans Sjöfn Jónsdóttir, safnaðarheimilinu mál- verk sem er eftir listakonuna Sossu. Veglegt afmælisrit Komin er út bók um Akranes- kirkju, ásamt ágripi af sögu Garða og Garðakirkju á Akranesi í sam- antekt Gunnlaugs Haraldssonar þjóðháttafræðings. í formála að afmælisritinu segir Gunnlaugur m.a. „Það er von mín að þetta rit verði söfnuði Akraneskirkju og öllum lesendum til nokkurs fróð- leiks og ánægju, en um leið verð- ugur minnisvarði um alla þá sem lagt hafa kirkjum Garðasóknar lið og sótt til styrk frá árdögum kristnihalds á Akranesi." Lárus Bjarnason, sýslumaður á Seyðisfirði, tók fyrstu skóflustung- una og sagði þá m.a.: „í dag hefur Sandgerði - Fyrsta mótið í fót- boltagolfi var haldið á vegum Reynis, Sandgerði sl. laugardag. Það voru lið Reynis, Víðis, Garði, Keflavíkur og Njarðvíkur í 4. flokki karla sem öttu kappi í golf- inu eftir hefðbundið fótboltamót. Strákarnir skemmtu sér hið besta þó fæstir þeirra hefðu kynnst þessu áður. Brynjar Þór Magnús- son úr Víði sigraði á fjórum undir pari. Guðni Kjartansson, landsliðs- þjálfari, var fenginn til að vígja völlinn með því að taka upphafs- spyrnuna en það var einmitt hann sem átti hugmyndina að fótbolta- golfinu. Hann segir hugmyndina hafa kviknað fyrir mörgum árum þegar menn æfðu sig að sparka boltanum í hornfánann en enginn hefði hrundið henni í framkvæmd endanlega verið gengið frá samn- ingamálum þessum á milli verktaka og Framkvæmdasýslu ríkisins með fyrr en nú og væri þetta áreiðan- lega í fyrsta skipti í heiminum sem svona mót er haldið. Það var Sigurður Guðnason, yngri flokka þjálfari hjá Reyni, sem fékk lánað svokailað Bensat- ún og sló sjálfur teiga og flatir og gróf stórar holur fyrir boltana. Hann segir þetta skemmtilega leið til að þjálfa boltameðferð. Völlurinn er sex holu völlur með 25-90 metra löngum brautum, par 3, 4 og 5, þannig að mögu- leiki er að fara holu í höggi. Fæt- urnir eru notaðir í stað kylfa og venjulegir fótboltar í stað golf- kúla. Upphafshöggið er tekið með risaspyrnu og púttið er að sjálf- sögðu innanfótarspyrna. Þessum velli hefur verið vel tekið af Sand- gerðingum og má sjá heilu fjöl- skyldurnar æfa sig fram í myrkur. undirritun samninga og í trausti þess að ekki verði fallið frá fram- kvæmdaáætlunum og að fengnu leyfi dómsmálaráðuneytis mun ég hér og nú taka fyrstu skóflustunguna að nýrri lögreglustöð á Vopnafirði sem rísa mun hér að Lónabraut 2.“ Það er Mælifell ehf. sem reisa mun húsið samkvæmt -teikningum Gylfa Guðjónssonar arkitekts. Verkinu skal að fullu lokið 31. ágúst 1997. Morgunblaðið/Hrefna Björg Óskarsdóttir FRÁ fótboltagolfinu í Sandgerði. Ný lögreglustöð í byggingu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.