Morgunblaðið - 28.08.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.08.1996, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Reuter Bygging jöfnuð við jorðu í Jerúsalem PALESTÍNSK kona í rústum byggingar sem ísraelskir Iög- reglumenn brutu niður í Jerúsal- em eldsnemma í gærmorgun. Byggingin var innan múra gömlu borgarinnar, og sögðu ísraelskir lögreglumenn hana hafa verið reista fyrir fé sem heimastjórn Palestínumanna hefði lagt fram. Borgarstjórnin í Jerúsalem sagði að ekki hefði verið fengið leyfi fyrir byggingunni og því hefði hún verið jöfnuð við jörðu. Full- trúi Palestínumanna sagði hús- inu hafa verið ætlað að þjóna Palestínumönnum í gömlu Jerú- salem og hefði Israelum ekki stafað nein ógn af þvi. BIG PACK GRIZZLY Meiriháttar fleece- buxur • Mjúkar og hlýjar • Með reim í mitti og smellum að neðan Stgr. kr. 8.218 FÁLKINN Suðurlandsbraut 8, sími 581 4670, Þarabakka 3, Mjódd, sími 567 0100. - kjarni málsins! Súdanskri farþegaþotu rænt og flogið til Bretlands Iraskir flugræningjar leita pólitísks hælis Stansted, Amman. Reuter. Reuter ÁHÖFN súdönsku þotunnar gengur frá borði um hádegisbil í gær eftir að ræningjarnir höfðu gefist upp. AIRBUS 310 þotu súdanska flugfélagsins Sudan Airways var rænt á leið frá Khartoum í Súdan til Amman í Jórdaníu í fyrrakvöld. Um borð voru 199 farþegar og flugliðar. Flogið var til Bretlands með viðkomu á Kýpur. Um hádeg- isbil í gær höfðu allir farþegar og áhafnarmeðlimir verið látnir lausir. Engan sakaði. Ræningjarnir voru sjö talsins og vopnaðir handsprengjum og öðru sprengiefni. Þegar þotan var lent í Larnaca á Kýpur til þess að taka eldsneyti reyndu yfirvöld að fá ræningjana til þess að sleppa kon- um og börnum, en þeir hótuðu að sprengja þotuna í loft upp. Þeir tjáðu lögreglu að þeir myndu krefj- ast pólitísks hælis í Bretlandi og láta alla farþegana lausa er þangað kæmi. Fyrstu farþegunum sleppt Þotan lenti á Stansted-flugvelli skammt norðaustan við London, áleiðis til Cambridge, klukkan hálf fjögur í fyrrinótt að íslenskum tíma. Var vélinni lagt í um þriggja km fjarlægð frá flughöfninni. Um það bil tveim klukkustund- um síðar var fyrstu farþegunum sleppt, og að sögn lögreglu var eldra fólki og mæðrum með ung börn leyft að fara fyrst frá borði. Var fólkið rólegt þrátt fyrir undan- gengnar hremmingar. Tveir farþegar voru fluttir á sjúkrahús, en lögreglumenn sögðu veikindi þeirra ekki stafa af illri meðferð um borð í vélinni. Meðal farþega voru 146 Súdan- ir, 23 írakar, 14 Jórdanir, Palest- ínumaður, Sýrlendingur og Saudi- Arabi. Þrettán voru í áhöfn, flestir Súdanir. Samkvæmt upplýsingum frá Sudan Airways í Amman voru súd- önsku farþegarnir flestir á leið þangað til læknismeðferðar. Lögregla yfirheyrði þá farþega sem fyrst voru látnir lausir í því skyni að afla upplýsinga um ræn- ingjana. Einni klukkustund eftir að þotan lenti á Stansted var kom- ið á símasambandi við ræningjana með milligöngu flugstjóra þotunn- ar. Fulltrúi lögreglunnar í Stansted, Kim White, sagði fréttamönnum að ræningjarnir væru áreiðanlega íraskir. Sumir þeirra hefðu fjöl- skyldur sínar með sér. Vildu ræða við íraka í London Ræningjarnir fóru fram á að fá að tala við íraka að nafni Sadiqi, sem búsettur er í London og hefur veitt íröskum borgurum í Bretlandi ýmsa aðstoð. Lögreglumenn urðu við þessari kröfu ræningjanna, og er það talið hafa greitt fyrir lausn farþeganna. Ekki var í gær að fullu ljóst hveijar formlegar kröfur þeirra voru, en meðal þess sem haldið var fram var að þeir væru íraskir dipló- matar með aðsetur í Khartoum, og vildu ekki snúa aftur til Baghdad. Fréttaskýrendur segja að örygg- isgæsla á alþjóðaflugvellinum í Khartoum, þaðan sem þotan lagði upp, sé með eindæmum léleg og ekki erfitt að koma vopnum um borð í flugvélar þar. Dýrasta slysarann- sókn flugsögunnar RANNSÓKNIN á flugslysinu þar sem breiðþota bandaríska flugfélagsins TWA sprakk á flugi skömmu eftir flugtak frá Kennedy-flugvellinum í New York fyrir sex vikum er þegar orðin dýrasta flugslysarannsókn Bandaríkjanna, að sögn The New York Times. Kostnaðurinn nálgast óðum 10 milljónir doll- ara; jafnvirði 660 milljóna króna. Agreiningur er þegar risinn um hvernig kostnaði skuli skipt. Öryggisstofnun samgöngumála (NTSB) hefur farið þess á leit við TWA, Boeing-flugvélaverk- smiðjurnar, Pratt&Whitney, framleiðendur hreyfla þotunnar og tryggingarfélög að þau greiði hluta hans. Þannig hefur TWA verið beðið um 5 milljóna dollara framlag, en talsmaður flugfé- lagsins sagði það ekki hlutskipti þess að borga niður ríkisútgjöld. Tr y ggingarf élag hafnar þátttöku Þá hefur tryggingafélag TWA sömuleiðis synjað beiðninni. Venjan er hins vegar sú, að aðil- ar, sem beinan hag hafa af því að orsakir óhappa verði leiddar í ljós, s.s. framleiðendur flugvéla og hreyfla, leggi talsvert af mörkum. Komi í ljós að um ill- virki hafi verið að ræða er þotan fórst þurfa stjórnvöld hins vegar að borga brúsann að mestu. Kostnaður NTSB vegna rann- sóknarinnar nemur um 100 þús- und dollurum á dag, er orðinn meira en þijár milljónir dollara. Af árlegu 38 milljóna dollara ráðstöfunarfé var reiknað með einni milljón dollara til flugslysa- rannsókna á árinu. Sérfræðingur í flugmálum seg- ir að gera megi ráð fyrir því að útgjöld vegna rannsóknar á or- sökum TWA-slyssins geti numið 50 milljónum dollara. Að henni vinna margar opinberar stofnan- ir, m.a. 500 starfsmenn alríkis- lögreglunnar FBI. Börn og ungling'ar kjósa DANSKA sjónvarpsstöðin TV2 hef- ur ákveðið að gefa börnum og ungl- ingum kost á því að kjósa í næstu þingkosningum. Mun stöðin, í sam- ráði við menntamálaráðuneytið, standa fyrir kosningabaráttu í skól- um og því að nemendur greiði at- kvæði degi áður en sjálfar kosning- amar fara fram. Um 700.000 börnum og ungling- um á aldrinum 6-18 ára gefst kost- ur á því að kjósa, svo fremi sem skólayfirvöld eru því samþykk að leyfa kosningabaráttu í skólum. Er ætlunin með þessu að auka áhuga barna á samfélagsmálefnum og að fá einhverja hugmynd um hveijar pólitískar skoðanir þeirra eru, að því er fram kemur í Politiken. Simitis um þingkosningarnar í Grikklandi „Við viljum engan hanaslag“ Aþenu. Reuter. COSTAS Simitis forsætisráðherra og grískir sósíalistar þykja líklegir til að fara með sigur af hólmi í þingkosningum, sem fram fara 22. september næstkomandi, að sögn stjórnmálaský- renda. Þeir telja stjórnarandstöðuna sundurlausa og hafa upp á fáa stefnukosti að bjóða. Samkvæmt könnunum að undanförnu eru 70% grískra kjósenda ánægð með frammistöðu Simit- is en Miltiadis Evert, leiðtogi hægriflokksins Nýs lýðræðis og helsti keppinautur hans, kemur mun verr út. Háir það Evert að hann nýtur ekki óskor- aðs trausts meðal íhaldsmanna. Simitis hvatti til þess í gær, að kosningabar- áttan yrði á lægri nótunum og flokkar einbeittu sér að málefnalegri umræðu í stað þess að efna til stórra útifunda og persónulegra árása. „Við viljum engan hanaslag, engin fölsk og innihaldslaus loforð, enga tilgangslausa úti- fundi. Við erum andvígir neikvæðum áróðri, plastflöggum og höggum undir beltisstað," sagði Simitis. Hann hvatti hins vegar ti! kappræðna stjómmálaleiðtoga um vanda þjóðarinnar í sjón- varpi. Með þessu tekur forsætisráðherrann í raun undir með Evert, sem áður hafði Iagt til að farn- ar yrðu nýjar leiðir í kosningabaráttunni og hún gerð málefnalegri en áður. Einnig lagði hann til að efnt yrði til skoðanaskipta í sjónvarpi milli þeirra Simitis og þingmannsefna. Simitis sagðist myndu skiptast á skoðunum við Evert í sjónvarpssal, en það yrðu fyrstu kappræður sinnar tegundar í Grikklandi. Andre- as Papandreou, forveri Simitis, byggði kosninga- baráttu venjulega á því að flytja þrumuræður á íjölmennum útifundum þar sem höggin dundu á andstæðingnum. Kom hann sér hjá sjónvarps- kappræðum við forvera Everts, Konstantín Mit- sotakis fyrrverandi forsætisráðherra, og bar jafnan við persónulegri andúð sinni á honum. Fjölmiðlar töluðu jafnan um þá sem áflogahunda og skiptust þeir á um að úthrópa hvor annan sem landráðamann, lygara eða þjóf. „Ég lít ekki á fund okkar Everts sem ein- vígi, heldur tækifæri til samtals og skoðana- skipta. Þjóðin þarf ekki á áflogamönnum að halda. Hún þarf að geta valið milli stefnuskráa, lausna og leiðtoga," sagði Simitis. Hann sagði, að á næstunni myndi hann og þingmenn sósíalistaflokksins, PASOK, ferðast um landið á rútu og útskýra stefnu sína. „Það verður sigurhraðlest nýrrar vonar,“ sagði Simitis. Ráð- gerir hann að skera niður ríkisútgjöld sem nemur 700 milljörðum króna á ári til þess að draga úr ríkissjóðshalla og vinna á hárri verðbólgu. Ákvörðun Simitis um að efna til kosninga eftir mánuð kom stofnunum sem fást við gerð skoðanakannana í opna skjöldu. Gert er ráð fyr- ir að fyrstu marktæku kannanir á fylgi flokka og stjórnmálaleiðtoga vegna kosninganna verði ekki tilbúnar fyrr en um 10. september.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.