Morgunblaðið - 28.08.1996, Blaðsíða 16
16 MÍÐVIKUdXGUR 28. ÁGÚST 1996
VIÐSKIPTl
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Silli
EIMSKIP gerir nú tilraunir með beina flutninga á kísilgúr frá
Húsavík til Evrópu.
Beinar siglingar frá Húsavík
Morgunblaðið. Húsavík.
EIMSKIPAFÉLAG íslands, sem
annast hefur allan útflutning á
kísilgúr, er nú að gera tilraun til
að flytja framleiðsluna beint frá
Húsavík til Evrópu, en þangað er
svo til öll framleiðslan flutt. Und-
anfarið hefur kisilgúrinn verið
fluttur með strandferðaskipum
Eimskips til Reykjavíkur eða Ak-
ureyrar og umskipað þar til út-
flutnings.
Friðrik Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Skipaafgreiðslu
Húsavíkur, sem er umboðsaðili
Eimskips á Húsavík, segist vona
að þessi tilraun takist vel, svo
Húsavík verði eins og undanfarin
28 ár útflutningshöfn kísilgúrsins,
sem framleiddur er við Mývatn.
Einnig sé gott að þurfa ekki að
umskipa framleiðslunni því kaup-
endur leggi mikla áherslu á að
ekki verði skemmdir á umbúðum
í flutningi.
Suður-Afríka
Fleiri glæpir fæl-
ir ferðamenn frá
Jóhannesarborg. Reuter
SUÐUR-AFRÍSKIR ferðamálafröm-
uðir hafa miklar áhyggjur af minnk-
andi ásókn erlendra ferðamanna til
landsins. Meginorsök fækkunarinnar
er talin vera alda ofbeldisglæpa, sem
ríður nú yfir Suður-Afríku. í fæstum
tilvikum beinast glæpirnir þó gegn
ferðamönnum.
Gistinætur á Suður-afrískum hót-
elum voru 4,4% færri í júní sl. en í
sama mánuði í fyrra. Þá Qölgaði
komum ferðamanna til landsins
fyrstu fimm mánuði ársins aðeins
um 0,2% en á sama tíma í fyrra nam
aukningin 30%. Framámenn í ferða-
iðnaðinum telja að fjölgun ofbeldis-
glæpa í landinu á síðustu misserum
og neikvæð umfjöllun, sem Suður-
Afríka hefur hlotið í heimspressunni
í kjölfarið, fæli ferðamenn frá. Hótel-
eigendur óttast að ástandið eigi eftir
að versna, ekki síst vegna þess að
myndir af átökum glæpagengja í
úthverfum Höfðaborgar, helstu
ferðamannaborgar landsins, eiga
greiða leið í sjónvarp víðs vegar um
heim. Ferðamálafrömuðir standa
ráðþrota frammi fyrir vandanum og
benda á að ferðamenn verði fyrir
færri glæpum í Suður-Afríku en víð-
ast hvar annars staðar. Tölur sýni
að aðeins tvö prósent erlendra ferða-
manna verði fyrir glæpum og í flest-
um tilvikum sé um að ræða minni
háttar afbrot eins og töskuþjófnað.
Þrátt fyrir að ferðamenn séu yfir-
leitt látnir í friði sýna opinberar tölur
að glæpir eru mikið vandamál í Suð-
ur-Afríku. Á síðasta ári voru tæpar
tvær milljónir glæpaverka tilkynntar
til lögreglu og aðeins helmingur
þeirra er upplýstur. Tilkynnt var um
66 þúsund nauðganir, 18 þúsund
morð og 66 vopnuð rán.
Á síðasta ári kom 1,1 milljón
ferðamanna til Suður-Afríku og nam
aukningin 50% frá 1994. Til saman-
burðar má geta þess að 40 milljónir
ferðamanna flykkjast til Spánar á
ári hverju. Miklir möguleikar eru
taldir vera í ferðamannaiðnaðinum í
Suður-Afríku og er stefnt að því að
milljón ný störf skapist innan hans
fyrir árið 2005. Höfðaborg hefur
sótt um að fá að halda Ólympíuleik-
ana árið 2004 og ljóst er að það
yrði mikill happadráttur fyrir iðnað-
inn ef af yrði.
Dagbók
Fundað um áhættu í
verðbréfa viðskiptum
FIMMTUDAGINN 29. ágúst kl.
13:15 flytur dr. Jón Daníelsson,
dósent í hagfræði, fyrirlestur undir
titlinum: Stóráhætta í verðbréfa-
viðskiptum. Stýring áhættu í verð-
bréfaviðskiptum er mjög mikilvæg
fyrir fjárfesta, fyrirtæki, og stjóm-
völd. Flest tæki til mælingar áhættu
eru sérhönnuð fyrir algenga atburði
þar sem áhætta er lítil, en oft er
mikilvægt fyrir fjárfesta að gera sér
grein fyrir stóráhættu. Hverjar eru
líkur á að gengi falli um t.d. 30%
næsta árið?
Dr. Jón Daníelsson hefur á síðustu
árum rannsakað áhættuþátt verð-
bréfa, og í nýjustu rannsóknum sín-
um kannar hann sérstaklega stórá-
hættu með nýjum tölfræðiaðferðum,
sem hann hefur þróað.
Dr. Jón hefur birt fjöida greina
um áhættumælingar á fjármála-
mörkuðum í erlendum fagtímaritum,
m.a. Journal of Eeonometrics, Jo-
urnal of Empirical Finance, Jour-
nal of Business and Economic
Statistics, Communication in Stat-
istics og Journal of Applied Ec-
onometrics.
Hann hefur einnig haldið tugi er-
inda við virta háskóla í Bandaríkjun-
um, Hollandi, Sviss, Þýskalandi,
Danmörku, Noregi og á Spáni, og á
ársþingum evrópskra hagfræðinga
og hagrannsókna. Þá hefur Jón verið
gestaprófessor við háskóla og stofn-
anir í Hollandi, ísrael og á Spáni.
Að auki stýrir hann verkefni innan
viðskipta- og hagfræðideildar Há-
skóla íslands um smíði þjóðhagslík-
ans sem hentar við rannsóknir á ís-
lenska skattakerfinu. Verkefnið er
styrkt af RANNÍS.
Dr. Jón rannsakar nú, eins og
áður er getið, stóráhættu í verðbréfa-
viðskiptum í samstarfi við kollega í
Bandaríkjunum og Hollandi. Rann-
sóknir þessar eru styrktar af ESB,
Fulbright og Háskóla íslands. Jón
verður við háskólann í Pennsylva-
níu í Bandaríkjunum í vetur við þess-
ar rannsóknir.
Barnaklámsmálið í Belgíu
Leitað í garði við
eitt húsa Dutroux
Reuter
CLAUDE Thirault, einn þeirra, sem hafa verið handteknir vegna
rannsóknar á barnaklámsmálinu, kom fyrir rétt í Neufchateau
í Belgíu í gær. Dró hann peysuna upp yfir höfuð þegar lögregl-
an leiddi hann í réttarsalinn.
Jumet, Bratislava. Reuter.
LÖGREGLAN í Belgíu jók í gær
uppgröft í og við hús í eigu Marcs
Dutroux, sem handtekinn hefur
verið fyrir að ræna og myrða ung-
ar stúlkur. Var komið með Dutro-
ux í húsið seint í fyrrakvöld og
er haft eftir saksóknara, að hann
hafi gefið óljósar uppiýsingar um
hvar skyldi grafið en leitað er
tveggja stúlkna, sem hurfu fyrir
ári.
Michel Bourlet saksóknari
sagði, að Dutroux hefði samvinnu
við lögregluna en hann kvaðst
hafa það á tilfinningunni, að hann
reyndi um leið að villa um fyrir
henni. Allt svæðið í 300 metra
radíus frá húsinu var girt af og
notaði lögreglan hunda og full-
kominn tæknibúnað til að ákveða
hvar skyldi grafið en leitin hafði
engan árangur borið í gærkvöld.
Fyrir rúmri viku fundust lík
tveggja stúlkna, Melissu Russo og
Julie Lejeune, og eins karlmanns,
Bernard Weinsteins, grafin í garði
annars húss, sem Dutroux á, og
hefur hann viðurkennt að hafa
myrt þau. Weinstein var áður sam-
starfsmaður Dutroux.
10 konur frá Slóvakíu
Tveimur stúlkum, Laetitia Del-
hez og Sabine Dardenne, tókst að
bjarga úr leyniherbergi í þriðja
húsinu af alls sex í eigu Dutroux
en hann hefur játað að hafa rænt
tveimur öðrum, An Marchal og
Eefje Lambrecks, sem voru 19 og
17 ára þegar þær hurfu.
Upplýst hefur verið, að Dutroux
fór nokkrum sinnum til Slóvakíu
og vitað er, að 10 slóvakískar
konur þágu boð hans um að koma
til Belgíu. Rudolf Gajdos, yfirmað-
ur Alþjóðalögreglunnar, Interpol,
í Slóvakíu, segir, að konurnar, sem
voru rúmlega tvítugar, muni þó
lítið eftir vistinni í Belgíu vegna
eiturlyijaneyslu og viti ekki hvort
þær hafi verið notaðar við klám-
myndagerð.
Aberdare. The Daily Telegraph.
ÍBÚUNUM í Ysguborwen, dval-
arheimili aldraðra í Aberdare í
Wales, hafði lengi verið í nöp við
viðvörunarskiltin í grennd við
heimilið og loksins ákváðu þeir
að grípa til sinna eigin ráða.
Opinbera skiltið sýnir lúið fólk
og lasburða, sem styðst fram á
staf, en nýju skiltin, sem íbúarn-
ir hafa komið upp, sýna „ungt“
fólk á áttræðis- og níræðisaldri
Ungir öld-
ungar í
Wales
á fljúgandi ferð.
„Við erum ekki eins litilfjörleg
og opinberu skiltin sýna,“ sagði
einn ibúanna, Eddie Tovey, 83
ára að aldri. „Við erum flest vel
á okkur komin og nýju skiltin
sýna hve ung við erum, að
minnsta kosti í anda.“
Nýju skiltin sýna ömmu gömlu
þjóta um á hjólastól eða hjóla-
bretti og afi sprettir úr spori á
einhjóli eða gormstöng.
Forstjóri dvalarheimilisins,
Jacqui Coombes, segist vona, að
þessum skiltum verði einnig
komið fyrir við
önnur elliheimili í
landinu.
„Við erum viss
um, að þau hafi
miklu meiri áhrif
en gömlu skiltin.
Þau eru skemmti-
leg og því líklegri
til vekja athygli
ökumanna og vara
þá við að fara of
hratt.“