Morgunblaðið - 28.08.1996, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.08.1996, Blaðsíða 25
24 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ fttairgfttfiMgiWfr STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. BLEKKINGAR MÁLFLUTNINGUR talsmanna Pósts og síma hefur verið með ólíkindum undanfarnar vikur er þeir hafa reynt að verja það fyrirkomulag, sem stofnunin hefur á samkeppni sinni við einkafyrirtæki í sölu alnetstenginga. Frá upphafi hefur verið gagnrýnt að Póstur og sími skuli hafa ruðzt inn á markað, þar sem einkafyrirtæki buðu þegar ágæta þjónustu. Einnig hefur stofnunin legið undir ámæli fyrir að bjóða þjónustuna á lægra verði en einkafyrirtækin geta, í krafti stærðar sinnar og aðstöðu. Stofnunin lýsti því yfir að þetta hygðist hún gera með því að koma upp svoköll- uðum innhringibúnaði, sem gerði fólki kleift að greiða sama verð fyrir notkun á alnetssambandi sínu, hvar sem er á land- inu. Viðskiptavinir einkafyrirtækjanna úti á landi greiða hins vegar Pósti og síma gjald fyrir langlínusamband, þann tíma sem þeir nota alnetstengingu sína. I Morgunblaðinu á sunnudag voru yfirlýsingar P&S, fram til þessa, raktar. Fram kom að í Morgunblaðinu 8. ágúst lét Karl Bender, yfirverkfræðingur gagnaflutningadeildar stofn- unarinnar, í það skína að gengið hefði verið frá tæknibúnaði þessum á tuttugu stöðum úti á landi. „Tilgangurinn með því að setja upp búnað á þessum stöðum var að losa okkar við- skiptavini við að borga langlínuskref,“ sagði Karl í Morg- unblaðinu daginn eftir. í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag viðurkenndi blaða- fulltrúi Pósts og síma, Hrefna Ingólfsdóttir, hins vegar að ekki væri búið að koma innhringibúnaðinum upp alis staðar og þess í stað væri notaður símtalsflutningur til Reykjavíkur, sem Póstur og sími greiðir fyrir. í sunnudagsblaði Morgunblaðsins sagði Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri, að þetta misræmi í upplýsingum frá stofnuninni væri „hrein mistök“. „Menn héldu að búið væri að setja þetta upp. Þeir hafa kannski verið einum of fljótir að auglýsa þetta þannig, en tækin eru komin og spurning um daga hvenær þau verða sett upp,“ sagði póst- og síma- málastjóri. í Morgunblaðinu í gær viðurkennir Karl Bender svo að Póstur og sími hafi enn ekki komið upp neinum innhringibún- aði fyrir alnetsþjónustu sína á landsbyggðinni, heldur sé alls staðar notazt við símtalsflutning! Hann bætir við að aðeins hluti búnaðarins sé kominn til landsins, ands’tætt við það sem póst- og símamálastjóri hélt fram tveimur dögum áður. Pósti og síma virðist liggja svo á að komast í samkeppni við einkafyrirtæki á alnetsmarkaðnum að fyrirtækið tekur á sig að greiða símtalsflutning og mismuninn á verði staðar- og langlínusímtals, fyrst tæknibúnaður þess er ekki kominn til landsins. Þetta gæti ekkert einkafyrirtæki gert, en Pósti og síma virðist það kleift í krafti stærðar og aðstöðu. Þetta hefur þó ekki verið gert fyrir opnum tjöldum, heldur hefur fyrirtækið beitt blekkingum til að breiða yfir samkeppnis- hætti sína. Vonandi er að Samkeppnisstofnun, sem hefur mál þetta nú til meðferðar, stöðvi þetta framferði Póst- og símamála- stofnunarinnar. Jafnframt er orðið brýnt að nú heyrist eitt- hvað frá ráðherrum ríkisstjórnarinnar eða þingmönnum stjórn- arflokkanna um málið. Er það stefna ríkisstjórnarinnar að láta viðgangast að ríkisstofnun troði einkafyrirtækjum um tær með þessum hætti? SKORTUR A UMRÆÐUM ÞAÐ ER talað _um allt milli himins og jarðar í opinberum umræðum á íslandi en engu að síður er skortur á alvar- legum umræðum um hin stóru framtíðarmál þjóðarinnar. Þijú stór mál blasa við en eru lítið rædd. Veiðileyfagjaldið hefur að vísu verið mikið til umræðu en flestir stjórnmálaflokkanna hafa haldið þeim umræðum utan við sinn vettvang. Það er skaði vegna þess, að flokkarnir eru þrátt fyrir allt mikilvægasti vettvangurinn fyrir skoðana- skipti um stórmál af þessu tagi. Þær spurningar, sem hafa vaknað undanfarna mánuði um eignarrétt að óbyggðasvæðum eru bæði gamlar og nýjar. Nú er augljóst að atburðarásin þrýstir á urn ákvarðanatöku en þrátt fyrir miklar umræður frá ársbyrjun er varla hægt að segja, að stjórnmálaflokkarnir hafi tekið það til meðferðar á sínum vettvangi. Afstaðan til Evrópusambandsins hefur verið mun meira rædd og flestir flokkanna sammála um, að aðild sé óhugs- andi að óbreyttri fiskveiðistefnu ESB. Hins vegar er nýr þátt- ur að koma inn i þessa mynd, sem eru áformin um sameigin- legan gjaldmiðil. Á vettvangi stjórnmálaflokkanna eru litlar sem engar umræður um það hvort og þá hvernig sameiginleg- ur gjaldmiðill annarra Evrópuríkja snertir íslenzka hagsmuni. Á þessu þarf að verða breyting enda óþarfi fyrir stjórnmála- flokkana að láta samtök atvinnulífsins um að móta nánast allar hugmyndaumræður í þjóðfélaginu. FLOKKSÞIIMG DEMÓKRATA í CHICAGO Chicago. Reuter. BILL Clinton er enn ekki kominn til Chicago, en hann ræður engu að síður lögum og lofum á flokks- þingi demókrata, sem þar hófst á mánudag. Clinton ferðast nú um miðvesturríki Bandaríkjanna í lest og reynir markvisst og vísvitandi að tryggja að hann njóti meiri athygli en þingið. Þingmenn demókrata hafa ekki átt sjö dagana sæla frá því að þeir misstu meirihluta sinn í báðum deildum Bandaríkjaþings i hendur repúblikana fyrir tveimur árum. Nú líta þeir svo á að þeir eigi ekki annars kost en að binda allar sínar vonir við það að Clinton takist að verða fyrsti demókratinn til að ná endurkjöri frá því að Franklin Roosevelt sat í forsetastóli. „Clinton er Demókrataflokkurinn um þessar mundir," sagði Allan Lic- htman, stjórnmálafræðingur við American University í Washington- borg. „Enginn kemst með tærnar þar sem hann hefur hælana.“ Demókratar eiga hvorki marga slynga ræðumenn, né atkvæðamikla stjórnmálaforingja, en Clinton fyllir upp í tómarúmið. Á meðan lítt þekktir stjórnmálamenn úr flokkn- um stíga í ræðustól í Chicago mun Clinton tryggja að fyrirsagnirnar verði tileinkaðar sér. „Þegar ég, sem 32 ára gamall ráðgjafi, lít í kringum mig verð ég að viðurkenna að fleiri spennandi [stjórnmálamenn] eru að ryðja sér til rúms hjá repúblikönum," sagði Jennifer Laszlo, pólitískur ráðgjafi, sem hefur unnið fyrir stjórnmála- menn úr báðum flokkum. Daniel Ilallin, prófessor í fjöl- miðlun við Kaliforníu-háskóla í San Diego, var sammála um að demó- kratar gætu ekki státað af mörgum stjörnum. Stjórnmál látín víkja fyrir tilfinningiim Clinton ræður lögum og lofum Chicago. Reutcr. FLOKKSÞING demókrata hófst á mánudag og það voru ekki stjórnmálamenn, sem voru í sviðsljósinu, held- ur tilfínningar um leið og áhersla var lögð á baráttuna gegn glæpum og byssueign. í kvöld mun Hillary Clin- ton, eiginkona Bandaríkjaforseta, stíga á svið, en það verður erfitt fyrir hana að gera betur en Elizabeth Dole, eiginkonu forsetaframbjóðanda repú- blikana, sem sló í gegn á þingi Repú- blikanaflokksins fyrr í mánuðinum. Demókratar í Chicago gera nú sitt ítrasta til að slá við repúblikönum, sem héldu þaulskipulagt flokksþing í San Diego, en stjórnmálaskýrendur sögðu að þeim hefði ekki tekist jafn vel upp á mánudag. Þúsundir manna voru saman komnar í ráðstefnusalnum, þar sem Chicago- búar eru vanari að sjá Michael Jordan leika listir sínar með körfubolta, en stjórmálaflokka ráða ráðum sínum. Ákaft var fagnað í salnum og virt- ust menn vissir um að Bill Clinton myndi sigra Bob Dole í forsetakosning- unum 5. nóvember. Margir gengu svo langt að spá því að demókratar myndu vinna þrefalt í ár, halda forsetaemb- ættinu og endurhéimta méirihluta sinn í báðum deildum Bandaríkjaþings. Það voru hins vegar ekki stjórnmál, sem voru í fyrirrúmi á mánudag, held- ur tilfinningar. Tveir menn, sem báðir eru lamaðir, fengu mesta athygli. Repúblikani lýsir yfir stuðningi James Brady, fyrrverandi blaðafull- trúi í Hvíta húsinu, sem varð fyrir byssukúlu tilræðismanns Ronalds Re- agans 1981 og lamaðist, kom fram og var ákaft fagnað. Brady steig úr hjólastól sínum og gekk við staf inn á sviðið ásamt Söruh, konu sinni. Þar lýsti Brady, sem allt sitt líf hefur ver- ið repúblikani, yfir stuðningi við Clin- ton. Clinton undirritaði lög, sem kennd eru við Brady og kveða á um að kaup- Reuter BILL Clinton Bandaríkjaforseti heilsar fólki á kosningafundi í Bowling Green í Ohio á mánudagskvöld. „Clinton verður fréttamaturinn hvern dag þessarar viku,“ sagði Hallin og bætti við að forsetinn hefði sérstakt lag á því að ná til almennings. Vísun til Trumans Lestarför Clintons og Chelsea, dóttur hans, er bein tilvísun til þess þegar Harry Truman fór í kosninga- ferð um Bandaríkin í lest 1948 og veittist að aðgerðarlausum repú- blikönum á þingi. Truman átti þá á brattann að sælqa, en sigraði, og í sömu kosningum tókst demókrötum að fella meirihluta repúblikana í báðum deildum Bandaríkjaþings. „Lestarferðarlíkingin er raun- veruleg endurómun sögunnar, en hún myndi ekki ganga upp ef Clint- on hefði ekki tekist að fá fram góð- ar undirtektir fjöldans og vekja raunverulegan áhuga,“ sagði Licht- man. Clinton kemur fram á kosninga- fundum án þess að hvert andartak sé skipulagt, en Dole, sem er 73 ára og 23 árum eldri en forsetinn, kýs að láta skipuleggja fundi í þaula og velja áhorfendur. Wayne Fields, sagnfræðingur og höfundur bókar um ræður Banda- ríkjaforseta, sagði að lestarferð Clintons væri slyngur leikur. Reuter LEIKARINN Christopher Reeve, sem lamaðist er hann féil af hestbaki, ávarpar flokksþing demókrata í Chicago. endur skammbyssa þurfi að bíða fimm daga eftir að fá þær afhentar. „Við gerðum okkur fljótt grein fyrir gildi þess að hafa forseta, sem er í raun staðráðinn í að binda enda á of- beldi með skotvopnum," sagði Sarah Brady. „Fyrir fjórum árum kusu Bandaríkjamenn slíkan forseta.“ Clinton, sem nú er á kosningaferða- lagi til Chicago í járnbrautarlest, lagði einnig áherslu á glæpi á mánudag og kvaðst ætla að tryggja það að þeir, sem dæmdir hefðu verið fyrir ofbeldi innan veggja heimilisins, fengju ekki að kaupa skammbyssur. Bill Clinton forseti lýsti yfir því í MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 25 FF Alþjóðleg ráðstefna um kynferðislega misbeitingu barna í ágóðaskyni gær að hann hygðist leggja fram fimm ára áætiun um að veita 2,5 milljörðum dollara (175 milljörðum króna) til að draga úr ólæsi Bandaríkjamanna. Hann hyggst einnig leggja fram áætlanir um að hreinsa eiturefni í stór- borgum og hvetja fyrirtæki til að ráða til vinnu fólk, sem er á opinberu fram- færi, á lestarferð sinni. Á undan Brady-hjónunum komu fram Mike Robbins lögregluþjónn, sem hafði verið skotinn 11 skotum og var einn með þijár byssukúlur í líkaman- um. „Ég. get engu breytt um það,“ sagði Robbins um örlög sín. „En ég get hjálpað öðrum með því að rísa upp og beijast með forsetanum." Reeve vel tekið Leikarinn Christopher Reeve, sem þekktastur er fyrir leik sinn í hlut- verki „Ofurmennisins" og er nú lamað- ur fyrir neðan háls eftir að hafa dott- ið af hestbaki, kom síðastur fram á mánudag og brutust þá út mestu fagn- aðarlæti kvöldsins. Reeve þurfti oft að gera hlé á máli sínu vegna öndunartækis, sem hann er tengdur vegna lömunar sinnar, og forðaðist að mestu leyti flokkadrætti. Eini forsetinn, sem hann nefndi með nafni var Franklin Roosevelt: „Roose- velt forseti sýndi okkur að maður, sem getur varla hafið sig upp úr hjólastól getur lyft heilli þjóð úr örvæntingu. Og ég trúi - eins og sitjandi stjórn - á mikilvægasta grundvallarlögmálið, sem Roosevelt kenndi okkur: Banda- ríkjamenn þurfa ekki að láta nauð- þurfta borgara bjarga sér óstuddir." Ákveðið var að biðja Reeve að ávarpa flokksþingið eftir að demó- kratar höfðu komist að því með því að bera lista þekkts fólk undir að- spurða í skoðanakönnun að hann væri eftirsóttasti ræðumaðurinn. Þegar Reeve hafði lokið máli sínu dimmdi í salnum og skyndilega birtust myndir af Bill Clinton á þremur stöðum þar sem hann var á kosningafundi í Toledo í Ohio. Þakkaði Clinton ræðu- mönnum kvöldsins og þótti þessi beina útsending bera því vitni að í Ijarveru sinni stjórni forsetinn engu að síður framvindu flokksþingsins í Chicago. í gærkvöldi var ráðgert að Hillary Clinton tæki til máls. Einnig átti blökkumannaleiðtoginn Jesse Jackson að flytja ræðu. Jackson er mikill ræðu- maður^ en hefur ekki sömu ítökin og áður. I kvöld verður Clinton formlega tilnefndur forsetaframbjóðandi demó- krata og annað kvöld lýkur flokksþing- inu með ávarpi forsetans. „Það er engin spurning að Clint- on er öflugasta vopn demókrata um þessar mundir," sagði Fields. „Þótt sumir vantreysti honum kunna margir vel við hann. Þeim líkar að vera nálægt honum og hlustaá hann.“ Fields spáði því að kosningastjór- ar Clintons myndu nýta þennan hæfileika Clintons út í ystu æsar allt fram á kjördag, 5. nóvember. Repúblikanar tóku annan pól í hæðina þegar flokksþing þeirra var haldið í San Diego fyrr í mánuðin- um. Þá fór lítið fyrir Dole allt þar til hann flutti ávarp sitt á loka- kvöldi þingsins til að taka við út- nefningu flokksins til forsetafram- boðs. Hina dagana leyfðu repúblik- anar ungum og upprennandi sljórn- málamönnum að njóta sín. Clinton ávarpaði flokksþingið úr lestinni þar sem liann var staddur í Ohio á mánudagskvöld og slær sér upp með daglegum yfirlýsing- um á för sinni. Demókratar fara allajafna sínu fram, en á þinginu í Chicago sætta þeir sig auðmjúkir við yfirráð Clint- ons og eiga sennilega ekki annars kost eins og staðan er í bandarísk- um stjórnmálum. „Það finnast fé- lagar í flokknum, sem hafa ólíkar skoðanir, en þeir hafa ákveðið að betra sé að þeirra sannfæring víki fyrir sannfæringu Clintons til þess að halda velli,“ sagði Robert Holsw- orth, sljórnmálafræðingur við Virginíu-háskóla. Demókratar leyfa sér meira að segja að vona að Clinton hafi næg- an niátt til að leika sama leikinn og Truman fyrir 48 árum og end- urheimta meirihluta demókrata í annarri deild þingsins, ef ekki báð- um. 4- Reiknað er með að á hverjum degi stundi ein milljón bama vændi. Bamavændi er millj arðafyrirtæki, nær um allan heim og nær- ist á efnalegri og and- legrí fátækt. Sigrún Davíðsdóttir segir hér frá því sem alþjóðleg ráðstefna í Stokkhólmi um kynferðislega mis- beitingu bama í ágóða- skyni tekur fyrír en það setur svip á hana að hún er haldin í skugga voðaatburð- anna í Belgíu. Reuter FRÁ setningarathöfn alþjóðlegu ráðstefnunnar gegn kynferðislegri misbeitingu barna, sem sett var í Stokkhólmi í gærmorgun við hátíðlega athöfn. ÞEGAR um þúsund ráð- stefnugestir komu saman í gær í Stokkhólmi til að ræða kynferðislega mis- notkun barha í ábataskyni er það ekki síst árangur óháðra barna- verndunarsamtaka víða um heim. Frumkvæðið áttu ECPAT, End Child Prostitution in Asian Tour- ism. Sænska stjórnin heldur ráð- stefnuna í samvinnu við ECPAT, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og samtök er sinna réttindum barna. Þess vegna er ráðstefnan heldur ekki með hefðbundnu sniði ráð- stefna Sameinuðu þjóðanna þar sem fulltrúar ríkisstjórna funda sér og fulltrúar óháðra samtaka sér. Allir hittast á sama vettvangi. Þegar skipulagða misnotkun barna ber á góma í Norður-Evrópu beinist athyglin iðulega að svoköll- uðum sex-túrisma, skipulögðum ferðum á staði, þar sem neyðin er slík að börn eru föl til kynferðislegs samneytis við hvern sem vill greiða fyrir það. Slíkar ferðir eru þó að- eins brot af vandanum, sem felst í því að fátækt og hörmungar upp- ræta fjölskyldur og börn hrekjast út á götumar, þar sem þau eru auðveld bráð fyrir illa þenkjandi fólk og skipulagða glæpastarfsemi. Nýlegir atburðir í Belgíu, þar sem börnum var rænt og þau misnotuð og myrt sýna að siðferðisbæklun af því tagi sem leiðir fólk til ^líkra verka er ekki einskorðuð við þriðja heiminn. Ráðstefnan snýst um þrjá þætti kynferðislegrar misnotkunar barna í ágóðaskyni: Barnavændi, skipu- lagða verslun með börn í vændis- skyni og klámefni með börnum. Tilgangurinn er að vekja athygli á þessum efnum. í lokin ------------ verður undirrituð yfirlýs- ing um aðgerðir til að taka á vandanum. Níu efni verða rædd: Þeir sem mis- nota börn, börn í klám- ___________ efni, kynlífsferðir, heilsu- gæsla, lagalegar umbætur og lög- gæsla, fyrirbyggjandi aðgerðir og andleg og félagsleg endurhæfing, hlutverk menntunar, íjölmiðlar og manngildi. Kynlífsferðir: brot af vandanum Kynlífsferðir, þar sem fullorðnu fólki, mest körlum, er stefnt til staða eins og Tælands, hafa undan- farið verið í leitarljósi fjölmiðla í Norður-Evrópu. Mest er um að ræða ferðir frá auðugum löndum eins og Þýskalandi, Bretlandi og Norðurlöndum. Pattayaströndin í Bömin em auðveld bráð i á W Siðferðis- bækiun ekki bundin við þriðja heiminn Tælandi var til skamms tíma vinsæll áfanga- staður. Þar komst ferðamannaiðnaðurinn á legg fyrir nokkrum áratugum og margir ferðamennirnir voru þá bandarískir hermenn í Asíu. Hömlulaus upp- bygging hefur leitt af sér hrikalegan um- hverfisvanda, svo sem mengun og vatnsskort, svo strandlífið þarna er víða langt frá heillandi myndum af hvítum ströndum og bláu hafi. Á Pattæja eru svo staðir eins og Sírenu- barinn, þar sem mið- aldra evrópskir karl- menn sitja yfir bjórglasi og litlir strákar á aldrinum 10-15 ára skottast í kring. Strákarnir vita hveiju karlarnir, sem láta eins og ekkert sé, eru á höttunum eftir. Þegar líður á kvöldið og eftir hvísl- ingar og bendingar ramba karlarn- ir út, einn og einn, og strákarnir, einn og einn, í humátt á eftir. Það má sjá að samtök eins og ECPAT hafa haft árang- ur sem erfiði í baráttu sinni, því það hefur fækk- að til muna á barnum og öðrum stöðum á Pattaya _________ miðað við það sem var fyrir nokkrum árum. Karlarnir vita að tælenska lögregl- an snýr ekki lengur blinda auganu að athæfinu. Áður fyrr gátu þeir fundið sig óhulta, því þó athæfi þeirra væri refisvert heima fyrir náði armur laganna þeim ekki fjarri heimkynnum þeirra þar sem lög- reglan var oft gjörspillt. Nú hafa nokkur fræg sakamál, bæði á Norð- urlöndum og í Bretlandi, gefið for- dæmi fyrir að mennirnir séu sóttir til saka heima fyrir þó brot þeirra hafi verið framin á erlendri grund. I júní 1995 var 68 ára Svíi dæmd- ur í þriggja mánaða fangelsi fyrir kynmök við fjórtán ára strák sem voru dæmdar 300 þús- und íslenskar krónur í skaðabætur. Handtaka mannsins var liður í átaki hóps sænskra lögreglumanna í sam- vinnu við tælensku lög- regluna. Sjónvarps- menn fylgdu lögregl- unni og mynduðu einn- ig aðkomuna í hótel- herberginu þar sem maðurinn var með drengnum. Liðið sem stóð að sjónvarpsþætt- inum sagðist hafa hitt menn frá öllum Norð- urlöndum þarna á hött- um eftir strákum og þá einnig íslendinga. En þó það fækki á börunum í Pattaya þýðir það ekki að vandinn sé upp- rættur. Það hefur spurst í þessum hópum að Kambódja sé nú eins og Tæland var áður fyrr. Stríð í land- inu um árabil hefur haft það í för með sér að helmingur landsmanna eru undir 15 ára aldri. Skarar af heimilislausum börnum leita sér lífsviðurværis á götum höfuðborg- arinnar Phnom Penh. Og ---------- með upplausninni í Austur- Evrópu hefur fjöldi barna flosnað upp og reikar um göturnar án nokkurs fasts samastaðar. Götubörnin _ eru alls staðár auðveld bráð fyrir alls kyns misindismenn glæpalýð. Barnavændi angi af alþjóðlegu vandamáli fátæktar og eymdar En það væri misskilningur að halda að kynlífsferðir frá ríkum þjóðum til fátækra séu höfuðvand- inn. Kjarninn er neyð barna víða um heim. Börn fátæklinga flosna upp eða eru send ung í vinnu fjarri heimkynnum sínum. Vinnan er oft yfirskin yfir að börnin eru í raun seld í vændi. Ein og í ókunnu um- liverfi eiga þau sér varla viðreisnar von og oft er þeim haldið undir og áhrifum eiturlyfja. Barnavændi í Asíu og Afríku er fyrst og fremst til vegna þess að innfæddir leita eftir því. Ottinn við eyðni hefur gert það að verkum að vændiskon- ur á barnsaldri þykja eftirsóknar- verðar. Giskað er á að daglega leið- ist ein milljón barna út í vændi. En það er einnig misjafnt eftir svæðum hversu mikil brögð eru að barnavændi, Spurningin er af hveiju sumir foreldrar virðast ekki hugsa um afdrif barnanna, meðan aðrir foreldrar, jafn fátækir og illa stæðir, eru tilbúnir að vaða eid og brennistein til að halda börnunum frá líferni í vændi og óreiðu. En vandinn er ekki bundinn við þriðja heiminn. Á síðasta ári sýndi ítölsk rannsókn að tíu prósent vændiskvenna þar voru undir fimmtán ára aldri. Nýlega komst upp um innflytjendafjölskyldu í Napólí, sem stundaði skipulagt barnavændi. Þeir sem þekkja til í Danmörku segja að þar séu dæmi um barnungar stúlkur í vændi. I Evrópu eru til skipulagðir hópar karla, er sækjast eftir mökum við börn. í blaðaskrifum um Stokkhólms- ---------- ráðstefnuna birti danska blaðið Berlingske Tid- ende viðtal við svokall- aðan formann þeirra er sækjast eftir mökum við __________ börn, þar sem hann rétt- lætti gerðir þeirra með að til væru börn, sem sæktust eftii slíkum mökum og þau væru ekk: endilega slæm fyrir börnin. Þessii menn neita að horfast í augu vió þá staðreynd að í slíku sambandi eru það alltaf þeir fullorðnu, sem hafa töglin og hagldirnar á kostnað barnsins. Önnur hlið þessa er svo að það eru aðilar og skipulögð sam- tök, sem samviskulaust gera út á börnin. Barnavændi og allt sem því tengist er stóriðnaður, sem erfitl er að koma höndum yfir rétt eint og eiturlyfjasölu og aðra glæpa- starfsemi sem mikið er upp úr að hafa. Samtök sem samvisku- laust gera út á börnin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.