Morgunblaðið - 28.08.1996, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 23
AÐSENDAR GREINAR
Læknamál á Vestfjörðum
I VIÐTALI í helgar-
blaði DV þann 17. ág-
úst lýsir fyrrverandi
heilbrigðisráðherra,
Sighvatur Björgvinsson
alþm., áhyggjum sínum
yfír mönnun læknishér-
aða á Vestíjörðum á
komandi vetri. Eg get
tekið undir margt sem
þar kemur fram en
tengsl við núverandi
læknadeilu eru meiri en
þar er gefið í skyn.
Læknadeilan er fyrst
og fremst afsprengi
þess ástands sem ríkt
hefur í málefnum heil-
sugæslunnar um árabil.
Mönnun læknishéraða
Hér á Vestfjörðum er mönnun
læknishéraða í uppnámi og hefur
verið lengi. Ég vil gera stöðu mála
á Þingeyri og Fiateyri sérstaklega
að umtalsefni, þar sem þessir staðir
eru lýsandi dæmi um hversu samn-
ingar okkar heilsugæslulækna eru
og hafa verið óraunhæfir um ára-
bil. Þeir hafa oftar en ekki beinlínis
stuðlað að flótta lækna úr héruðum.
í dag eru væntanlega öllum ljóst
hver mánaðarlaun okkar eru en
vaktlaunin byggjast á þeim, að
ógleymdum lífeyri þegar starfsæv-
inni lýkur. Þessi grunnlaun, sem eru
á bilinu 85-95 þús. eftir starfsaldri
og réttindum, valda því að fyrir það
að standa vakt alla daga og nætur
mánaðarins árið um kring, fær
læknirinn um 95 þús. sem deilast á
um 550 vakttíma. Að auki hefur
læknirinn tekjur af stofunni, svo
kallaðar gjaldskrártekjur, en vegna
fólksfæðar koma fáir á stofu og
þessar tekjur því ekkert
sem máli skiptir. Þetta
ástand olli því að eng-
inn læknir fékkst á
Þingeyri og Flateyri
árum saman nema þá
stuttan tíma í einu. All-
ir sáu að þetta gat ekki
gengið. Fyrir einum 7
árum, reyndar í kjölfar
baráttu lækna í ein-
menningshéruðum sem
hótuðu að segja upp,
voru gerðir svo nefndir
staðarsamningar fyrir
þau læknishéruð sem
verst voru sett, hér á
Vestfjörðum ásamt
nokkrum öðrum héruð-
um á landinu.
Allt frá þessum tíma hafa stjórn-
völd séð ofsjónum yfír þessum stað-
arsamningum og tálgað utan af
þeim sem mest þeir máttu. Fyrir
ári þreyttist læknirinn á Flateyri á
þessu eilífðar narti og nagi um sín
launakjör og fór. Enginn læknir
fékkst til að koma á Flateyri fyrr
en eftir snjóflóðin sl. haust en nú
er sá læknir einnig á förum. Ekkert
hefur verið spurt um læknisstöðuna
á Flateyri þrátt fyrir auglýsingar. Á
Þingeyri er læknirinn væntanlega á
förum til framhaldsnáms erlendis.
Á Patreksfírði er annar læknirinn
á förum um áramótin og hinn sem
hefur gegnt starfí yfírlæknis er far-
inn að hugsa sér til hreyfings. Tals-
verð umræða hefur farið fram um
tillögur um niðurskurð og vænt-
anlega minnkun þjónustu á starf-
svæði þeirra. Ekki verður séð að
þetta starfsumhverfí sé beint hvetj-
andi og því ekki undarlegt að menn
hugsi sér til hreyfíngs. Sjálfur er ég
Enginn læknir kemst
upp með annað, segir
—-------------------
Agúst Oddsson, en
að vera aðgengilegur
fyrirvaralaust allan
sólarhringinn.
á förum úr Bolungarvík með haust-
inu. Staða mín hefur ekki verið aug-
lýst enn, svo mark sé á takandi,
þannig að erfitt er að meta hvort
að hún verður mönnuð fyrir veturinn
eður ei. Á Isafírði hefur eini læknir-
inn með sérfræðiviðurkenningu í
heimilislækningum verið að hugsa
sér til hreyfings um nokkurt skeið,
þannig að útiitið er vægast sagt
dökkt. Isafjörður er fyrirsjánlegt
vandamál. Þeir heimilislæknar, sem
sótt hafa um stöður síðustu tvö árin,
hafa annaðhvort hætt við vegna
vandræða með að fá viðunandi hús-
næði eða verið stuttan tíma og horf-
ið út til Svíþjóðar aftur. Slíkt spyrst
út meðal kollega og gerir staðinn
vart eftirsóknarverðan. Hólmavík er
því eina læknishéraðið á Vestfjörðum
sem virðist vera í ró eins og er. Hér
eru ekki gerð sérstaklega að um-
ræðuefni þau viðvarandi vandræði
sem hafa verið árum saman með að
manna stöður hjúkrunarfræðinga og
ljósmæðra í fjórðungnum, það væri
efniviður í aðra grein.
Orsök vandans
En af hveiju erum við í þessum
sporum í dag? Eflaust er skýringin
margþætt. Eitt atriði er án efa
launakjörin en fleira kemur til. Á
fáum stöðum á landinu er einangr-
un, bæði félagsleg og fagleg, eins
þungbær og á Vestfjörðum. Fjögur
læknishéruð af sex eru einmenn-
ingshéruð. Þó að Patreksfjarðarhér-
að sé tvímenningshérað þá hefur
einn læknir verið þar iangtímum
saman þar sem enginn hefur feng-
ist til starfa með honum. Fá héruð
eru eins einangruð. að vetri til og
Patreksfjörður ef eitthvað snjóar að
gagni, slíkt gerist nokkuð oft á
Vestfjörðum. Sömu sögu er að segja
um önnur héruð á Vestfjörðum þó
að Vestfjarðagöngin hafí bætt hér
nokkuð úr. Hér standa því læknar
mjög einir á sínum sólarhringsvökt-
um, ár út og ár inn. Þeir eru örygg-
isnet samfélaganna sem þeir búa í
og verða að vera viðbúnir því að
kasta öllu frá sér fyrirvaralaust
hvað tíma sólarhrings sem er og
sinna bráðveiku fólki eða slysum.
Erfiðir sjúkraflutningar og sjúkra-
flug í tvísýnu veðri er einnig veru-
leiki okkar sem störfum hér.
Allt þetta veldur álagi og streitu
bæði fyrir lækninn og fjölskyldu
hans. Kröfur samborgaranna hafa
aukist með tilkomu símboða og far-
síma og í dag kemst enginn læknir
upp með annað en að vera aðgengi-
legur fyrirvaralaust allan sólarhring-
inn. Erfíðlega gengur að fá afleys-
ingar og vaktafrí er óþekkt fyrir-
brigði í okkar starfi. Yfírleitt eru
hvorki læknar á landsbyggðinni né
makar þeirra heimamenn að uppruna
þannig að fátt bindur þau við samfé-
lagið sem þau setjast að í. Ættingjar
og vinir búa í flestum tilfellum ann-
ars staðar á landinu og heimsóknir
til þeirra eru kostnaðarsamar vegna
fjarlægðarinnar. Oft eru erfíðleikar
fyrir makann að fá vinnu. Það er
algengara nú en áður að makar
lækna hafí langskólanám að baki og
vilji fá vinnu við sitt hæfí. Þetta er
Erfiðleikar óháð læknadeilu?
Ágúst
Oddsson
oftar en ekki erfíðleikum háð. Mögu-
leikar til framhaldsmenntunar á
Vestfjörðum eru takmarkaðir þannig
að þegar að börnin eldast fer að
koma los á læknisfjölskylduna sem
er vön því að gera talsverðar kröfur
til menntunnar. Slíkt vegur þungt
þegar upp er staðið.
Launakjör
Eftir þessa upptalningu er ljóst
að launakjör eru aðeins hluti þess
sem hér ræður ferðinni. Aftur á
móti er margt af því sem að ofan
er talið ekki í mannlegu valdi að
breyta, s.s. fámenni byggðarlaga
og einangrun. Því er mikilvægt að
launkjörin séu með þeim hætti að
þau virki hvetjandi á lækna að setj-
ast hér að þó að ekki væri nema
fyrir þau ein og sér. Þeim væri einn-
ig tryggt mannsæmandi starfsum-
hverfí í formi lengri leyfa á launum
og eins að möguleiki þeirra til end-
urmenntunnar verði aukinn.
Ástandið er alvarlegt og það þjón-
ar engum tilgangi að stinga höfðinu
í sandinn, hér verður að horfast í
augu við raunveruleikann. Læknar
eru í sjálfu sér hátekjumenn en það
byggist ekki á grunnlaunum þeirra,
tekjur þeirra byggjast á botnlausum
vöktum og vinnuálagi. Við læknar
höfum heyrt að við njótum ekki
samúðar almennings í baráttu okkar
fyrir bættu faglegu umhverfi og
launakjörum. Það er miður ef svo
reynist vera því að íbúar læknishér-
aða, sem ekki tekst að manna vegna
þeirra aðstæðna sem ég hef að ofan
lýst, eiga óskipta samúð okkar. Við
læknar erum mannlegir og leitum í
það starfsumhverfi þar sem okkur
og fjölskyldum okkar líður best. Við
erum eins og flestir íbúar þessa
lands, ef við eigum að leggja meira
á okkur en aðrir viljum við að það
sé metið að verðleikum og fyrir því
erum við að beijast í dag.
Höfundur erfyrrv. heilsu-
gæslulæknir í Bolungarvík og
héraðslæknir Vestfjarða.
Framlög til íþróttamála á
Norðurlöndum lægst á Islandi
Framlög til íþróttamála á íbúa á Norðurlöndum 1995
Land Framlög til íþr. í þús. Fjárframlag ISK íbúar framlag á íbúa
Noregur NKK 798.000 8.299.200.000 4.348.000 kr. 1.908
Svíþjóð SKK 566,100 5.560.000.000 8.816.000 kr. 630
Finnland FIM 396.000 5.860.800.000 5.099.000 kr. 1.149
Danmörk DKK. 516.000 5.985.600.000 5.216.000 kr. 1.147
ísland ISK 80,0 80.000.000 267.000 kr. 299
VIÐ SKOÐUN á
fjárframlögum rík-
isvaldsins til íþrótta-
mála í Danmörku, Sví-
þjóð, Noregi, Finnlandi
og á íslandi kemur í
ljós að framlög ríkis-
valdsins á íslandi eru
langlægst á íbúa. Þetta
kemur í sjálfu sér ekki
á óvart, Undanfarin ár
hafa framlög dregist
saman eða staðið í stað
og þannig minnkað að
raungildi. Fjárveit-
ingavaldið verður að
gera sér grein fyrir því
mikla starfi sem
íþróttahreyfingin innir
af hendi í þágu þjóðar og samfé-
lags. Frændur okkar á Norðurlönd-
um geta náð mun lengra í sínu
starfí, bæði í afreksíþróttum og al-
mennu útbreiðslustarfí, miðað við
okkur því þeir hafa meira fjármagn
og mun meiri skilning, að því er
virðist, á starfi sínu. Stefnumótun
og skilgreiningu vantar vegna fjár-
framlaga þannig að fjárveitinga-
valdið viti í hvað fjármagnið fer og
af hveiju. íþróttasamband íslands
hefur skilgreint fyrir fjárveitinga-
valdið í síðustu umsóknum í hvaða
verkefni aukið íjármagn gæti nýst.
Þessu litla fjármagni er deilt til
íþróttanna í margar smáar fjárveit-
ingar til margra aðila sem fyrir vik-
ið nýtast illa. Ég hef áður greint frá
þeirri stefnumótunarvinnu sem
Norðmenn gerðu og afgreiddu á
norska Stórþinginu varðandi hlut-
verk, skipulag og fjármál gagnvart
íþróttunum. Með þessari stefnumót-
un viðurkenndi norska þingið hlut-
verk íþróttahreyfíngarinnar, starf
og stöðu. Jafnframt rökstyður þing-
ið á annan hátt fjárframlög til
íþróttanna eftir að slík
stefnumótun hefur
verið mörkuð. Sjá
töflu.
Ódýr samningur í
heilbrigðismálum
Mikil umræða er
hérlendis á hveiju ári
um nauðsyn þess að
ná fram sparnaði í heil-
brigðiskerfí okkar Ís-
lendinga. Stærstur
hluti þeirrar umræðu
fer í að ræða niður-
skurð vegna spítala-
rekstrar og lyijakostn-
aðar. í umræðunni
gleymist að ræða um
forvarnirnar en þar hefur íþrótta-
hreyfingin algera sérstöðu-. Miðað
við það fjármagn sem ríkisvaldið
setur í íþróttastarfsemina þá má
í umræðunni um heil-
brigðiskerfið gleymist
oft að ræða um forvarn-
ir, segir Stefán Kon-
ráðsson, og telur að þar
hafi íþróttahreyfingin
algera sérstöðu.
með sanni segja að þar sé um að
ræða ódýran samning um heilsu-
vernd fyrir ríkið. Ekki má líta á fjár-
framlög til íþróttamála sem ölmusu
eða styrki. Iþróttahreyfingin sinnir
sannarlega gífurlega mikilvægu
starfí með tilliti til heilsuverndar
þjóðarinnar. Við lítum ekki á fjár-
framlögin sem ölmusu og við krefj-
umst þess að fá leiðréttingu á þess-
um grundvelli.
Starfsemi
íþróttahreyfingarinnar
í skoðun - sóknarfæri
Mikil umræða hefur verið innan
íþróttahreyfíngarinnar á undanförn-
um árum varðandi skipulag hennar.
Skipulag íþróttahreyfingarinnar
tengist að sjálfsögðu fjárveitingum
og fjármálum. Hæst í skipulagsum-
ræðunni ber að sjálfsögðu umræðan
um sameiningu íþróttasambands
íslands og Ólympíunefndar íslands.
1 þjóðfélagi þar sem búa aðeins
267.000 íbúar hlýtur að vera sterk-
ara fyrir íþróttahreyfingu sem telur
rúmlega 90.000 félagsmenn að vera
undir einni sameinaðri forystu. Til
dæmis er ég viss um að í þeirri
miklu vinnu sem framundan er að
fá leiðréttingu á íjárframlögum til
íþrótta er mun sterkara fyrir
-íþróttahreyfinguna að koma fram
sem ein heild í stað þess að ýmsir
hagsmunaaðilar séu að ota sínum
tota gagnvart ijárveitinganefnd.
Með einni skipulegri heild yrði jafn-
framt mun auðveldara fyrir ríkis-
valdið og íþróttahreyfinguna að
vinna saman að stefnumörkun hinna
ýmsu hagsmunamála. Ég nefni sem
dæmi uppbyggingu afreksíþrótt-
anna á Islandi en ljóst er að þar
verður að lyfta grettistaki í skipu-
Iagningu og ijármögnun. Önnur
dæmi sem nefna mætti eru hlutverk
íþróttahreyfingarinnar í skipulagn-
ingu almennrar heilsuverndar og
hreyfingar landsmanna og ekki síst
þátttaka barna í íþróttum í tengslum
við menntastefnuna. Umræðan í
skipulagsmálum íþróttanna hefur
tekið langan tíma og hefur jafn-
framt tekið mikinn toll hjá hreyfing-
unni. Ég hef miklar áhyggjur af því
að ef ákvörðun í skipulagsmálum
verði ekki tekin innan tíðar muni
það veikja stöðu okkar verulega á
komandi árum, ekki aðeins út á við
heldur ekki síst í hinu innra starfi
hreyfingarinnar. Ég vona að okkur
takist á næstunni að taka ákvarðan-
ir um skipulagsmálin og ná sáttum
í málinu og getum eftir það snúið
bökum saman að brýnum verkefn-
um.
Ljóst er að íþróttahreyfingin á
mjög mörg sóknarfæri sem stærsta
fjöldahreyfing landsins og getur
með samstilltu átaki innan sinna
vébanda og með fjárframlögum í
samræmi við starfsemi sína unnið
samfélagi og íslenskri þjóð vel á
komandi árum. Ég vil hvetja þing-
menn og ráðamenn að koma til liðs
við íþróttahreyfinguna og hækka
fjárframlög til jafns við hin Nörður-
löndin.
Höfundur er íþróttafræðingur og
framkvæmdastjóri
íþróttasambands íslands.
Stefán
Konráðsson
KitictienAicl
Draumavél
heimilanna!
5 gerðir
Margir litir
Fæst um land allt.
50 ára frábær reynsla.
er Borgartúni Einar Farestveit&Cohf 28 « 562 2901 og 562 2900