Morgunblaðið - 28.08.1996, Page 31

Morgunblaðið - 28.08.1996, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 31 ANNA SIG URÐARDÓTTIR + Anna Sigurðar- dóttir fæddist í Syðsta-Hvammi, Vestur-Húnavatns- sýslu, 12. janúar 1921. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 19. ágúst síð- astliðinn. Anna var dóttir hjónanna Sigurðar Davíðssonar kaup- manns, Hvamms- tanga, f. 13.9. 1896, d. 1978, og Margrét- ar Halldórsdóttur, f. 3.10. 1895, d. 22. 4. 1983. Alsystkini Önnu voru Davíð, f. 26.11. 1919, d. 24.1. 1981, Gunnar Dal, f. 4.6. 1923, Garðar, f. 6.10. 1924, Sumarliði Marino (dó í bernsku), Guð- mann, f. 18.8. 1928. Hálfsystk- ini: Jón, f. 20.12. 1930, Rjörn, f. 18.2. 1935, Soffía, f. 2.10. 1929. Hinn 19. október 1947 giftist Anna Sören Jónssyni frá Húsa- vík, f. 19. október 1925, d. 15. desember 1992, sölumanni hjá Sambandinu og síðan bókara hjá Goða. Foreldrar hans voru Jón Sörensson, f. 2.2. 1894, d. 2.5. 1979, og Guðbjörg Jóhannesdótt- ir, f. 10.10. 1904, d. 23.3. 1971. Bam þeirra er Gréta Björg Sör- ensdóttir, f. 28. desember 1949, og á hún 3 böm, þau em: Anna Gréta Eyrþórsdóttir, f. 24.5. 1969, Sigrún Ey- þórsdóttir, f. 9.12. 1972, sambýlismað- ur Sigurður Ingi Hauksson og eiga þau einn son, Hauk Þór, f. 23.7. 1993, Elías Örn Eyþórs- son, f. 11.6. 1976, og á hann eina dóttur, Birtu, f. 17.6. 1996. Anna ólst upp í Syðsta-Hvammi og á Hvammstanga til 19 ára aldurs, hún lauk barnaskólaprófi frá Barnaskóla Hvammstanga og gagnfræða- prófi frá Reykjaskóla, Hrúta- firði. Anna stundaði nám við Húsmæðraskólann í Sorö í Dan- mörku 1947-1948. Um 19 ára aldur flutti Anna suður til móð- ur sinnar og fór fljótlega að vinna i verslun Ragnars Blöndal í Austurstræti. Hún rak siðan verslunina Hraunbúð frá 1968- 1975. Anna var ötul í félagsmál- um og var einn af stofnendum Kirkjufélags Digranessóknar, samfrímúrari og var lengi í Fim- leikadeild ÍR, þar á meðal í sýn- ingarflokki. Þá var Anna um- boðsmaður Happdrættis Há- skóla íslands um margra ára skeið. Jarðarför Önnu fer fram frá Digraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Mig langar til þess að minnast Önnu vinkonu minnar með nokkrum orðum, nú þegar leiðir skiljast. Tilviljun réð því að við hjónin tók- um okkur bólfestu í Kópavogi eftir margra ára dvöl í útlöndum. Og þegar forystumenn Digranessafnað- ar gengust fyrir stofnun kirkjufélags í sókninni í febrúar 1975 kynntist ég sæmdarhjónunum Önnu Sigurð- ardóttur og Sören Jónssyni. Þá hófst samstarf okkar að málefnum Digra- nessafnaðar og þá hófst vinátta sem aldrei hefur borið skugga á. í félag- inu okkar gegndi Sören forystuhlut- verki um langt árabil, stýrði því af trúmennsku og árvekni og Anna tók heils hugar þátt í því brautryðjenda- starfi. Sören voru einnig falin trún- aðarstörf í sóknarnefnd og starfaði þar bæði sem varaformaður og for- maður. Á fyrstu árum kirkjufélags- ins var ekkert húsnæði til fyrir kirkjulegt félagsstarf. Þau hjón opn- uðu heimili sitt að Hrauntungu 34 upp á gátt fyrir fyrstu fjáröflunar- nefnd félagsins sem Sören stýrði, og það var mannbætandi að mæta þeirri alúð og gestrisni sem þau voru svo samtaka í að auðsýna öðrum. Og ekki leið á löngu áður en ég var orðin svo til daglegur gestur hjá Önnu í Hrauntungunni. Við vorum báðar heimavinnandi - Anna var þá um það bil að hætta verslunar- rekstri þar heima í bílskúrshús- næðinu - það var stutt á milli okkar og hjá Önnu var alltaf kaffi á könn- unni. Ég komst fljótt að raun um að Anna hafði skoðanir og þekkingu á ýmsum sviðum og það var gaman að ræða við hana um þjóðmál, menn- ingarmál og ekki síst trúmál. En hver var hún þessi kona, sem átti svo mikinn andlegan styrk, gat endalaust farið með vísur og kvæði, hafði lesið Biblíuna oftar og betur en ég veit dæmi um - og hafði þá sannfæringu varðandi lífið og tilver- una sem því miður er ekki mörgum gefin? Anna var fædd 12. janúar 1921. Foreldrar hennar voru hjónin Margrét Halldórsdóttir og Sigurður Davíðsson kaupmaður á Hvamms- tanga. Eins og öðrum börnum og unglingum á þeim tíma var Önnu kennt að vinna. En hún lærði líka að hugsa. Hún var eina dóttirin og þótt aldrei yrði há í loftinu grunar mig að hún hafi frá fyrstu tíð haft talsverða ábyrgðartilfinningu gagn- vart bræðrum sínum. Anna fékk ýmislegt í vöggugjöf. Hún var greind, glaðsinna, dugleg og býsna sjálfstæð. Eftir skólavist í Reykjaskóla í Hrútafirði starfaði hún hjá föður sínum í verslun hans á Hvammstanga. En þar kom að hún vildi hleypa heimdraganum og réðst til afgreiðslustarfa hjá Ragnari Blöndal í Reykjavík, þrátt fyrir veru- lega andstöðu föður síns sem vildi hafa hana heima. Önnu líkaði vel í nýja starfinu og lagði sig fram, eins og við allt sem hún tók sér fyrir hendur. En lífið var ekki eintóm vinna. íþróttir áttu líka sinn sess og á þessum árum var Anna í fímleikaflokki ÍR og tók með- al annars þátt í sýningarferð um Vestfirði sem varð henni minnisstæð. Svo kom draumaprinsinn og 19. október 1947 gengu þau Sören í hjónaband. Einhveijar áhyggjur hafði Anna af því að kunna ekki nógu vel til verka í heimilishaldi og í samráði við bónda sinn lagði hún land undir fót og settist í hinn virta hússtjórnarskóla í Soro í Danmörku. Þar voru fleiri íslenskar stúlkur og grunnurinn lagður að saumaklúbbn- um sem enn er virkur og árvissar ferðir í Munaðarnes ævinlega til- hlökkunarnefni. Sjálfsagt hefur ein- hveijum þótt það furðulegt uppátæki að gift konan færi til útlanda í hús- mæðraskóla. En Anna fór ekki alltaf troðnar slóðir. Þann 28. desember 1947 fæddist dóttirin Gréta Björg og fleiri urðu börnin ekki. En hún gaf þeim þijú barnabörn og tvö lítil barnabarna- börn hafa bæst í hópinn og er óhætt að segja að Anna og Sören hafi til hinstu stundar borið velferð þessarar fjölskyldu sinnar fyrir bijósti. Anna var leitandi sál og þar kom að hún gekk til liðs við þann félagsskap sem hún helgaði krafta sína í áratugi. Þetta var Sam-Frímúrarareglan. Þótt aldrei segði hún mér hvað þar fer fram innan dyra þá fór það ekki á milli mála að þar er starfað á kristilegum grundvelli. Ósjaldan hafði hún orð á því við mig hvað sá félagsskapur hefði gefið sér mikið og hjálpað sér í gegnum ýmsa erfið- leika. Áf þeim fékk Anna sinn skerf og fyrir kom að hún bognaði en hún brotnaði aldrei. Árið 1978 slasaðist Sören í bíl- veltu og lá á sjúkrahúsi hreyfingar- laus í marga mánuði. Líkurnar á bata voru vægast sagt tvísýnar. En með góðra manna hjálp og ótrúleg- um viljastyrk og þrautseigju tókst Sören að komast á fætur og ná þokkalegri heilsu, þótt kraftar og úthald yrðu aldrei sem áður. Þau áttu nokkur góð ár saman áður en næsta reiðarslag féll. Sören greind- ist með krabbamein og lést 15. des- ember 1992. Anna hafði sjálf átt við ýmiskonar heilsuleysi að stríða og þegar hér var komið sögu var heils- an alvarlega farin að bila. Síðustu árin hafa verið erfíð og í janúar s.l. gekkst Anna undir uppskurð og átti ekki afturkvæmt af sjúkrahúsi eftir það. Henni var það sjálfri Ijóst að hér var um hættuspil að ræða og bjó sig undir að svona gæti farið. Það tók mig nokkurn tíma að átta mig á hversu óvenjuleg kona Anna var. Hún var sprottin úr jarðvegi þjóðlegrar bændamenningar en við- mót hennar og yfirbragð gaf til kynna að hér væri heimsborgari á ferð. Heimsborgari af þeirri gerð sem lýsir sér í víðsýni og þekkingar- leit. Ekki leit að þekkingu sem fær- ir peninga og völd, heldur þekkingu á því sem þroskar mannsandann og færir hann nær því takmarki að nálgast sinn guðlega uppruna. Um það takmark var Anna í engum vafa. Hún efaðist heldur ekki um að til væru margar leiðir að því takmarki. Æviskeið hennar er nú á enda runn- ið. Ég kveð hana með söknuði og þakklæti fyrir vináttu sem auðgaði líf mitt í rúm tuttugu ár. Guð blessi minningu Önnu Sigurð- ardóttur. Birna Friðriksdóttir. • Fleiri minningargreinar um Önnu Sigurðardóttur bíða birt- ingar og munu birtast íblaðinu næstu daga. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts JÓHANNS P. JÓNSSONAR, Kirkjuvegi 37, Keflavík. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Gísladóttir og fjölskylda. + Öllum þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur hlýhug sinn og samúð með blómum, minningargjöfum og símtölum vegna fráfalls ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ELÍNAR HALLGRÍMSDÓTTUR, Aflagranda 40, Reykjavík, færum við alúðarþakkir og biðjum Guðs blessunar. Sveinn Guðmundsson, Ingunn Elín Sveinsdóttir, Stefán Magnússon, Ólafur Stefán Sveinsson, Helga Heimisdóttir, Gunnar Þór Sveinsson, Kristin Sveinsdóttir, Hallgrímur Tómas Sveinsson, Helga Jónsdóttir, Guðmundur Hilmar Sveinsson og barnabörn. t Eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BIRGIR HALLDÓRSSON verslunarmaður, Dalalandi 10, Reykjavík, lést á heimili sínu þann 26. ágúst. Sigriður Auðunsdóttir, Rut Guðmundsdóttir, Soffía Auður Birgisdóttir, Þorvarður Árnason, Halldór Þ. Birgisson, Steinunn Ragnarsdóttir, Birgir E. Birgisson, Eyrún Ingadóttir, Ægir Birgisson, Auður Björk Guðmundsdóttir og barnabörn. + Fósturfaðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR EYJÓLFSSON húsasmíðameistari, Grenimel 4, veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni á morgun, fimmtudaginn 29. ágúst, kl. 15.00. Sæmundur Bjarkar Árelfusson, Ása Laufey Sæmundsdóttir, Jón Óskar Sæmundsson, Ingibjörg Þóra Sæmundsdóttir, Stefanía Guðrún Sæmundsdóttir, og barnabarnabörn. Ásdís Hildur Jónsdóttir, Sigrfður Ólöf Sæmundsdóttir, Karólfna Einarsdóttir, Jón Ari Helgason, Bragi Vilhjálmsson + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRÐUR GUÐMUNDSSON, Jökulgrunni 14, áður Langholtsvegi 137, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstu- daginn 30. ágúst kl. 15.00. Þeir, sem vildu minnast hans, láti Krabbameinsfélagið njóta þess. ísgerður Kristjánsdóttir, Gunnar Ingi Þórðarson, Sigrún Þórðardóttir, Gunnar Hans Helgason, Ragnheiður G. Þórðardóttir, Björn Björnsson og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og jarðarför föðurbróður okkar, INGIVALDAR ÓLAFSSONAR frá Áshól. Starfsfólki hjúkrunarheimilisins Kumbaravogi þökkum við góða hjúkrun. Ólaffa Ólafsdóttir, Guðrún Karlsdóttir, Kristfn Óla Karlsdóttir, Trausti Karlsson, Jón V. Karlsson, Jóna H. Karlsdóttir, Sigurður Sigurðsson. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför MAGNÚSAR ÞORBJÖRNSSONAR, Kleppsvegi 62, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa heimahlynningu Krabbameins- félagsins fyrir einstaka umhyggju og hjúkrun. Halldóra Aðalsteinsdóttir, Magnús Magnússon, Kristfn H. Valdimarsdóttir, Vilborg Magnúsdóttir, Árni J. Hannesson, barnabörn og systur hins látna. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur vinsemd og hlýhug við andlát og útför INGIBJARGAR STEFÁNSDÓTTUR frá Bústöðum, Marklandi 16, Reykjavík. Fjóla Sigurgeirsdóttir, börn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.