Morgunblaðið - 28.08.1996, Page 48
•UYUNDAI
HÁTÆKNI TIL FRAMFARA
Tæknival
SKEIFUNNI 17
SlMI 550-4000 • FAX 550-4001
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTíIÓLF 3040, NETFANG MBL(5XENTRUM.IS / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI 1
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Starfsfólk vantar á leikskóla Reykjavíkurborgar
Þensla hefur áhrif
á mannaráðningar
ERFIÐLEGA hefur gengið að ráða
starfsfólk til starfa á nokkra leik-
skóla Reykjavíkurborgar í haust.
Bergur Felixson, framkvæmdastjóri
Dagvistar barna, telur að ástæðuna
megi m.a. rekja til þenslu í þjóðfélag-
inu. Laun í opinbera geiranum séu
illa samkeppnishæf á vinnumarkað-
inum. Benti hann á að síðastliðin tvö
ár hefði gengið vel að manna skól-
ana en að erfítt ástand hefði verið
á þenslutímabilinu á árunum 1986
og 1987.
Bergur sagði að verst væri
ástandið í nokkrum leikskólum í
vesturbænum. „Það hefur orðið að
breyta vistun milli 20 til 30 barna
sem búið var að úthluta plássum á
þessum leikskólum en við erum að
vona að ekki þurfí að svíkja neinn
um pláss og fljótlega rætist úr
starfsmannaskortinum," sagði hann.
„Við höfum ennþá getað fundið aðr-
ar leiðir og fólk hefur tekið því sem
í boði er. Við keyptum leikskólapláss
af Sjúkrahúsi Reykjavíkur á þeirra
leikskóla við Landakot og það hjálp-
ar okkur mikið í vesturbænum.“
Laun ekki samkeppnishæf
Bergur sagði að á haustin væri
mikið um lausar stöður og leikskóla-
kennarar væru yfirleitt þegar búnir
að ráða sig til starfa. „Þrátt fyrir
skráð atvinnuleysi er ekki atvinnu-
leysi hjá því fólki sem vill leggja
fyrir sig að starfa á leikskólum,"
sagði hann. „Auk þess sem allir vita
að í launum erum við ekki sam-
keppnisfærir þegar þensla er í þjóð-
féiaginu.“
Bendir hann á að þrír nýir leik-
skólar hafi verið teknir í notkun á
þessu ári og að á síðasta ári hafí
15 nýjar leikskóladeildir á eldri leik-
skólum verið teknar í notkun, sem
svarar til fjögurra leikskóla, og loks
hafi verið fjölgað nokkuð á þeim
leikskóladeildum sem fyrir eru.
Auglýst eftir fagfólki
Lögum samkvæmt er auglýst eft-
ir fagfólki og þá leikskólakennurum.
„Leikskólastjórar vilja láta reyna á
það fyrst hvort ekki fáist leikskóla-
kennarar til starfa áður en Sóknar-
fólk er ráðið,“ sagði Bergur.
Morgunblaðið/Þorkell
Skipt um skólabækur
SENN líður að því að skólarnir
hringi inn í fyrstu kennslustund-
ir haustsins. Ef slíkt er hægt er
eins gott að vera búinn að útvega
sér nauðsynlegustu námsbækur.
Ekki spillir fyrir ef hægt er að
fá þær á góðum kjörum. Myndin
er tekin á skiptibókamarkaði hjá
Eymundsson.
—
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
A bílslöng-
um niður
Blöndu
Blönduósi. Morgunblaðið.
SJÖ ungmenni sigldu á bílslöng-
um niður jökulána Blöndu á dög-
unum. Ferðin hófst við laxastig-
ann í Blöndu um þrjá kílómetra
fyrir ofan Blönduós og ferðinni
lauk rétt fyrir neðan Blöndubrú.
Ferð ungmennanna gekk áfalla-
laust og voru þau við öllu búinn
m.a. íklædd flotgöllum.
Blanda er svipur hjá sjón frá
því sem hún var óvirkjuð. Þessa
dagana er áin vatnslítil og tær
þrátt fyrir hlýindi og bráðnun
úr Hofsjökli. Astæðuna fyrir
vatnsleysinu má eflaust rekja til
vatnssöfnunar í Blöndulón á Auð-
kúluheiði.
Nýtt sjúkrarými
fyrir 40 milljón-
ir á Blönduósi
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA og
fjármálaráðherra hafa heimilað hér-
aðsnefnd Austur-Húnavatnssýslu
að taka lán á þessu ári til að hefja
framkvæmdir við 600 fermetra
sjúkrarými Sjúkrahússins á Blöndu-
ósi, að sögn Bolla Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra sjúkrahússins.
Sjúkrarýmið er á efstu hæð við-
byggingar sjúkrahússins og hefur
verið tilbúið undir tréverk frá 1986.
Kostnaður er talinn vera rúmar 40
milljónir króna og áætlað að taka
rýmið í notkun um mitt næsta ár.
Samkvæmt samningnum endur-
greiðir ríkissjóður kostnaðinn á
nokkrum árum.
Bolli kveðst ekki telja að það
skjóti skökku við að fara út í þess-
ar framkvæmdir nú. Aðstaða fyrir
sjúklinga, starfsfólk og aðstandend-
ur sjúklinga nú sé algjörlega óvið-
unandi.
Heilsugæslan fluttist inn á fyrstu
hæð hússins 1992 og önnur hæð
hússins var tekin í notkun um síð-
ustu áramót. Þar er röntgendeild,
rannsóknardeild, endurhæfingarað-
staða ásamt fundar- og skrifstofu-
aðstöðu. Á efstu hæð byggingarinn-
ar er viðbótarrými við núverandi
sjúkradeild sem tengist um tengi-
gang. Með því að taka hana í notk-
un verður til rými fyrir 20 sjúkra-
rúm. Sjúkrahúsið hefur heimild til
þess að reka 40 sjúkrarúm.
Alls ófullnægjandi aðstæður
Bolli segir að meðalnýting á und-
anförnum árum hafi verið 36 rúm
og seinnipart síðastliðins vetrar
hafi nýtingin verið yfir 40 rúm.
Hann segir að sjúkrai-ýmið sem nú
er fyrir hendi hafi verið tekið í notk-
un í árslok 1955 og sé elsta óbreytta
sjúkradeildin á landinu.
„Á fjórðu hæð gamla hússins
undir risi er rými sem var upphaf-
lega notað undir dvalarheimili en
vegna þrengsla á sjúkradeildinni
hafa á undanförnum misserum
verið 8-10 sjúklingar þar við al-
gjörlega ófullnægjandi aðstæður.
Það á reyndar einnig við um deild-
ina sjálfa þar sem við þurftum í
vetur að hafa langtímum saman
4-5 rúm á ganginum. Engin mat-
stofa er á sjúkrahúsinu og hafa
sjúklingar matast í rúmum sínum,“
sagði Bolli.
Aðstoðarlandlæknir segir ástandið fara versnandi vegna læknaskortsins
Oryggisnetið farið að gisna
Forysta LI tekur vel hugmyndum
fjármálaráðherra vel
Tillögur
um SR
kynntar í
dag
ÞRIGGJA manna starfshópur
sem vinnur að tillögum um
lausn á fjárhagsvanda Sjúkra-
húss Reykjavíkur (SR) og
aukna samhæfingu milli SR
og Ríkisspítala skilar tillögum
sínum fyrir hádegi í dag. Var
nefndinni falið að vinna hratt
og litu nefndarmenn svo á að
þeir þyrftu að skila tillögum
sínum í seinasta lagi í dag, ef
komast ætti hjá þvi, að aðgerð-
um sem stjórn SR samþykkti
í seinasta mánuði, yrði hrint í
framkvæmd 1. september.
FORYSTA Læknafélags Islands (LÍ)
hefur tekið vel hugmyndum sem
fjármálaráðherra setti fram í bréfi
til félagsins fyrir skömmu, um að
unnið verði að því í framtíðinni að
gerður verði einn kjarasamningur
fyrir alia lækna í þjónustu ríkisins.
Stjómarmenn í LÍ áttu í gær fund
með fjármálaráðherra en að sögn
Sverris Bergmann, formanns LÍ, er
yfírstandandi kjaradeila heilsu-
gæslulækna og ríkisins þó óháð
þessum umræðum.
Matthías Halldórsson, aðstoðar-
landlæknir, sagði aðspurður í gær-
kvöldi að til þess gæti komið að land-
læknisembættið færi fram á það við
stjórnvöld að gripið verði til ein-
hverra ráðstafana vegna skorts á
læknisþjónustu út á landi. Embætti
landlæknis kannar nú hvort sjúkling-
ur á Suðurlandi hafi beðið heilsutjón
vegna þess hversu erfitt er að nálg-
ast lækni.
„Það öryggisnet sem við höfðum
er farið að gisna. Fleiri læknar á
landsbyggðinni eru að segja upp og
hætta hver á fætur öðrum auk þess
er þunginn að verða meiri,“ sagði
hann. Aðspurður taldi hann þó laga-
setningu á vinnudeiluna ekki fram-
kvæmanlega og sagði að læknisþjón-
ustan yrði aðeins tryggð í samvinnu
við lækna.
11 heiisugæslulæknar hafa þegar
ráðið sig til starfa í nágrannalönd-
unum og fleiri læknar eru að íhuga
hið sama, að sögn Katrínar
Fjeldsted, formanns Félags íslenskra
heimilislækna.
Unnið hefur verið á bak við tjöld-
in að lausn kjaradeilunnar, að sögn
Sverris, en það hefur skilað litlum
árangri. „Kjarninn í lausn deilunnar
er sá, að það þarf að leiðrétta föst
laun og um leið og það er gert, þarf
að taka á þáttum sem í dag byggja
upp heildarlaunin. Lokaniðurstaðan
þarf þannig ekki að þýða einhveija
óraunhæfa kauphækkun miðað við
það sem gerst hefur og þar af leið-
andi ekki ófyrirsjáanleg útgjöld rík-
isins langt umfram það sem vænta
mátti," sagði hann.
Hvorki gengur né rekur í samn-
ingaviðræðum samninganefnda LÍ
og ríkisins, að sögn Þóris Einarsson-
ar ríkissáttasemjara. Samninga-
menn komu saman til fundar hjá
sáttasemjara kl. 13 í gærdag og stóð
fundurinn fram á kvöld án þess að
nokkuð þokaðist í samkomulagsátt.