Morgunblaðið - 26.01.1997, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Kceru viðskipavinir!
ífebrúar flyt ég á
Hársmiðjuna.
Hlakka til að sjáykkur
Hársmiðjan
Smiðjuvegl 2 ■ 200Kðpiwogi
Sími 5573232
Skattaþjónustan ehf.
Bergur Guðnason hdl.
Suðurlandsbraut 52, Reykjavík
Undirritaður hefur nú starfað í 35 ár að
skattamálum, fyrst 15 ár hjá Skattstofunni í
Reykjavík og síðan 20 ár við framtals- og
skattaaðstoð sem lögmaður.
Nýtið ykkur reynslu mína til að tryggja bestu
útkomu fyrir ykkur sjálf, þegar talið er fram.
Innifalið er að leiða ykkur í gegnum sífelldar
breytingar á skattalögunum, endurgjaldslaust,
allt árið 1997.
Hvernig œtlar þú t.d. aÖ haga ávöxtun
fjármagns þíns með tilkomu
fjármagnstekjuskatts?
Tímapantanir kl. 09-17 í síma 568-2828.
Skattaþjónustan ehf.
Bergur Guðnason hdl.
Nómskeiíií er í 1 klukkustund, einu sinni í viku i 8 vikur og fer frnm í
Félagsmiðstöðinni Tónobæ, i síðasta timonum veriur upptaka í fullkomnu
hljóðveri og fær hvert bnrn snældu með sinum söng.
Fyrsfo nómskeiðið hefst þann 1. febrúur 1997.
Nómskeið fyrir 13 - 16 óro hefst 1S. febrúor
Innritun er hofin i símo 565 4464
HUC
SMIOJAIM
UTGAFA
I DAG
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á Exc-
elsior Cup-mótinu í Gauta-
borg sem lauk í síðustu
viku. Helgi Ass Grétars-
son (2.470) hafði hvítt og
átti leik, en Svíinn Karl
Johan Moberg (2.335) var
með svart og lék síðast 25.
— Bb7—c8? Þar með gat
Helgi Áss brotist í gegn á
svörtu reitunum.
26. Rxd6 (26. Bxd6 var
einnig sterkt) 26. —
Hxd6 (Eða 26. -
cxd6 27. Dxb6n—
Bb7 28. He6 - Dc7
29. Bxd6 - Hxd6
30. Dxd6 og með
þrjú samstæð frí-
peð vinnur hvítur
endataflið auðveld-
lega) 27. Hxd6 -
Dg5 28. Df4 -
Dxf4 29. Hxf4 -
Rxc4 30. bxc4 —
cxd6 31. Bxd6+ —
Ka8 32. h4 og með
tveimur peðum
meira _ í endatafli
vann Helgi Áss auðveld-
lega.
Úrslitaviðureignin á at-
skákmóti Islands, Lands-
banka-VISA mótinu, fer
fram í dag og er sýnd beint
í ríkissjónvarpinu.
HVÍTUR leikur og vinnur.
Með morqunkaffinu
Áster...
... nálægð.
TM Reg. U.S. Put. 0«. — all ngtUs raserved
(c) 1996 Los Angeles Tlmes Syndicate
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Ung börn og
kvikmyndahús
HERDÍS hringdi og var
að velta því fyrir sér
hvort það sé hollt fyrir
4 ára börn og yngri að
fara á kvikmyndasýn-
ingar. Hún upplifði það
að foreldrar voru á kvik-
myndasýningu með ung
börn með sér, á mynd
sem var ekki við hæfi
barna, og fór hún þá að
hugleiða hvort það væri
enginn sem hefði eftirlit
með því að svo ung börn
færu á kvikmyndasýn-
ingar. Hún segir að á
Norðurlöndunum séu
fulltrúar frá barna-
verndarnefnd við inn-
ganginn sem fylgist með
því að ung börn fari ekki
á kvikmyndasýningar
sem er ekki við þeirra
hæfi.
Hún vill einnig beina
því til foreldra að þeir
hugsi sig um áður en
þeir fari með svo ung
börn í kvikmyndahús.
Tapað/fundið
Leikfimifatnaður
fannst
UNGA stúlkan sem tap-
aði leikfimifötunum sín-
um við Skógarhlíð hringi
í síma 552-2618.
Veski tapaðist
UNG stúlka tapaði pen-
ingaveski í Kringlunni
föstudaginn 24. janúar.
Veskið er svart öðru meg-
in og köflótt hinu megin.
Skilvís fínnandi vinsam-
lega hafið samband í
síma 551-3669.
Dýrahald
Kisa er týnd
BRÖNDÓTTUR högni,
ársgamall, hvarf að heim-
an frá sér frá Hrísateigi
laugardaginn 18. janúar.
Hann er ekki með ól en
svarar nafninu Pippi. Þeir
sem hafa orðið hans varir
eru vinsamlega beðnir
um að hringja í síma
588-1911.
Farsi
,/ t/iftiAöAf/rt f&tgiif öll þessiorðÍEf \/t% bcuU
Qsctun? kom/ðeinheerrt skJpan d þau.~"
01995 Farcu» Cartoons/dBl. by Unfvertal F^rass Syndkate
Víkveiji skrifar...
LEIÐARI blaðsins sl. fimmtudag
fjallar um læknisfræðilegar
rannsóknir hér á landi, m.a. á
áhættuþáttum krabbameins. Þar
segir að ísland sé kjörland fyrir
rannsóknir af þessu tagi, enda góð-
ar faraldsfræðilegar upplýsingar
fyrir hendi. Auðvelt sé að rekja
ættir manna langt aftur í tímann
og sjúkraskrár hafi verið færðar
hér lengur en víðast annars staðar.
Víkverji fletti tímaritinu Hjarta-
vernd nokkru eftir lestur leiðarans.
Þar segir dr. Vilmundur Guðnason
læknir og erfðafræðingur frá því
að rannsakaðar hafi verið 20 ís-
lenzkar ættir með arfbundna kól-
esterólhækkun í blóði. Sextíu pró-
sent af þessum ættum hafa sömu
stökkbreytingu. Vísindamönnum
lék forvitni á að sjá, hvort rekja
mætti þær saman. Síðan segir:
„Mynd 10 [skýringarmynd sem
greininni fylgdi] sýnir ættrækningu
á fjórum ættum sem allar koma
saman í einstaklingi sem er fæddur
árið 1772 ... Með þessari ættrækn-
ingu sjást þeir möguleikar í grein-
ingu nýrra sjúklinga útfrá ættar-
trénu sjálfu. Þar er unnt með því
að fara nokkrar kynslóðir aftur að
finna ættleggi sem síðan má kalla
í fólk frá til DNA greiningar. DNA
greining sem slík gæti því hjálpað
okkur til að finna þessa einstakl-
inga. En hvers vegna viljum við
finna þessa einstaklinga? Jú, vegna
þess að í dag er til mjög öflug lyfja-
meðferð til að lækka kólesteról í
blóði þessara einstaklinga. Þannig
má seinka kransæðasjúkdóm og
jafnvel koma í veg fyrir að einstakl-
ingar fái kransæðastíflu."
xxx
ORRINN, fjórði mánuður vetrar
að fomu tímatali, hefst með
bóndadegi, fóstudegi í 13. viku vetrar
[24. janúar sl.]. Góan, fímmti vetrar-
mánuðurinn, hefst með konudegi,
sunnudegi í 18. viku vetrar [23. febr-
úar nk.]. Þessir myrku, köldu og
veðurhörðu vetrarmánuðir settu
mark sitt á fyrri tíðar fólk, lífshætti
þess og tungutak. Það talaði um „að
þreyja þorrann og góuna“, sem merk-
ir að þola örðugleikana þar til ástand-
ið batnar.
ísland var veglaust og hafnlaust
land fram á þessa öld, utan nokkur
skipalægi frá náttúrunnar hendi.
Opnir árabátar einir til sjósóknar.
Öll nútímatækni, rafmagn, hitaveit-
ur, sjúkrahús, fjarskipti [útvarp, sjón-
varp, sími, o.s.frv.] óþekkt. Húsa-
kynni og vinnuaðstaða vægt sagt
léleg. Það þarf að setja sig í fótspor
genginna kynslóða til að skynja
þungann sem fólst í þessum orðum:
„að þreyja þorrann og góuna“!
ORRINN hefur aðra og mildari
ásýnd í augum nútímafólks.
Tengslin við fortíðina eru nánast
þau ein að snæða þjóðlegan mat,
með tilheyrandi drykk og söng.
Þannig blótum við þorrann á tækni-
og velferðaröld.
Formæður okkar og forfeður
höfðu sínar aðferðir við að varð-
veita matföng vetrarmánuði. Þau
hertu físk, reyktu kjöt, súrsuðu kjöt
og blóðmör, kæstu hákarl o.s.frv.
Þessar hefðir eru í heiðri haldnar á
þorra. Það er vel.
í huga Víkvetja kemur staka
eftir þann orðheppna og góðkunna
hagyrðing Helga Sæmundsson:
Inni á Nausti aldrei þver
ánægjunnar sjóður.
Þorramatur þykir mér
þjóðlegur og góður.
XXX
INHVERJAR pempíur eður
teprur taka sjálfsagt fyrir
nefið með ilmvatnsvættum silki-
pjötlum við þorraborðið. Það er
þeirra mál. Ekkert er við því að
segja þótt matarsmekkur fólks sé
mismunandi. Það er á hinn bóginn
gott og blessað að varðveita þjóð-
legar íslenzkar matarhefðir, eins
og reyndar danskar, franskar, kín-
verskar o.s.frv. Fjölbreytnin lifi!