Morgunblaðið - 09.03.1997, Síða 6
6 F SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
GRAFARVOGSSÓKN er sú
fjölmennasta á landinu og
fermingarbörn þar í ár eru
um 250 talsins. Séra Vigfús Þór
Árnason sóknarprestur segir að
þetta sé stærsti hópur fermingar-
barna frá upphafi, en Grafarvogs-
sókn var stofnuð sumarið 1989.
Síðustu tvö ár hefur séra Sigurð-
ur Arnarson þjónað í Grafarvogs-
kirkju við hlið séra Vigfúsar og
annast þeir báðir fermingar-
fræðslu og fermingar sem alls
verða 11 að þessu sinni.
Hópur verðandi fermingar-
barna horfir á myndband um líf
og starf Krists þegar Morgun-
blaðsfólk ber að garði. Ungling-
arnir horfa af athygli á mynd-
bandið og skrá glósur öðru hvoru.
Fermingarfræðsla hefur verið í
allan vetur og mæta börnin í hana
einu sinni í viku, auk þess sem
þeim er gert að mæta í guðsþjón-
ustur 16 sinnum yfir veturinn.
Að auki eru haldnir fundir með
fermingarbörnum og foreldrum
þeirra og í lok fermingarfræðslu
taka börnin próf. Því má segja
að undirbúningur fyrir fermingu
þeirra sé verulegur.
Þurfa að þekkja trúna áður
en þau fermast
„Við viljum að krakkarnir
undirbúi sig vel fyrir ferminguna
og þeir kunni undirstöðuatriði
kristinnar trúar áður en þeir lýsa
því yfir að þeir vilji gera Jesúm
Krist að leiðtoga lífs síns,“ segja
prestarnir. Þeir segja fermingar-
börnin almennt dugleg og áhuga:
söm í fermingarfræðslunni. „í
upphafi, á haustin, eru sum svolít-
ið óörugg og finnst til dæmis
asnalegt að hópurinn þurfi að
kijúpa á kné, spenna greipar og
loka augum fyrir framan altari
og fara með bænir. Þá gjóa þau
augunum hvert á annað og glotta
eða flissa, en eftir nokkur skipti
verður þetta eðlilegur hluti af því
að koma í kirkjuna. Við teljum
mikilvægt fyrir þau að kynnast
mætti bænarinnar og að þau viti
að þau geti leitað til Guðs.“
Þegar myndbandið um líf og
starf Krists er búið setjast verð-
andi fermingarbörn ásamt presti
sínum í hring og ræða um efni
myndarinnar. Séra Sigurður leiðir
umræðurnar og fer yfir spuming-
ar sem krakkarnir hafa svarað
af nokkuð mikilli samviskusemi
og nákvæmni. Séra Vigfús tekur
einnig þátt í umræðunum að
þessu sinni, en að öllu jöfnu skipta
þeir með sér fermingarfræðslunni
og kenna hvor í sínu lagi. Síðan
ferma þeir börnin saman.
Fræðslan tengd atburðum
líðandi stundar
Það kemur komufólki á óvart
að í hópnum verða umræður um
Þriggja daga ferð í Vatnaskóg
Morgunblaðið/Kristinn
SÉRA Sigurður Amarson og séra Vigfús Þór Ámason í helgistund með verðandi fermingarbörnum.
Tvö hundruð og fimm-
tíu fermingarböm í ár
Fermingarfræðsla í Grafarvog
Veróandi fermingarböm búa sig meóal annars
undir ferminguna meó því aó sækjg fermingar-
fræóslu til sóknarpresta sinna. Fylgst var meó
nokkrum krökkum í Grgfgrvogi í fræóslu hjó séra
Vigfúsi Þór Arnasyni og séra Sigurói Arnarsyni.
F ARIÐ yfir spurningar og svör um líf og störf Krists
í fermingarfræðslu í Grafarvogskirkju.
öllu flóknari málefni en þau sem
sýnd voru á myndbandinu, til
dæmis um fréttir af óeirðum í
ísrael sem prestur tengir listilega
við fræðslu á gyðingatrú. Séra
Vigfús og séra Sigurður segja að
krakkarnir leggi mikla áherslu á
umræður og þeir velti talsvert
fyrir sér öðrum trúarbrögðum.
„Við reynum að fjalla um þessi
málefni þegar kostur gefst og það
skiptir okkur miklu máli að and-
rúmsloftið sé gott,“ segja þeir.
Þegar líða tekur á kennslu-
stundina fara sumir að _________
ókyrrast í sætum sínum
og gjóa augum á klukk-
una. Prestar bjóða böm-
um þá til helgistundar
við altari kirkjunnar,
eins og venja er í lok
hvers tíma. Einhver, sem orðinn
er þreyttur á fræðslunni, missir
út úr sér „Jesus Christ“ með til-
heyrandi bandarískum framburði
og verður svolítið kindarlegur á
svipinn þegar hann áttar sig á
að ákallið á óvíða betur heima en
í Guðs húsi.
Kveikt er á kertum við altarið,
krakkarnir kijúpa og fara með
bænir og trúaijátningu. Að svo
búnu fá þeir að fara heim, en eru
minntir á að lesa vel næstu tvo
kafla í kennslukverinu.
Ekkert óeðli
legt að þau
hlakki til
að fá gjafir
„Eitt af meginmarkmiðum okk-
ar með fermingarfræðslunni er
að unglingarnir skilji, skynji og
meðtaki kristna trú og þeir fínni
að það er jákvætt og gott að koma
í kirkjuna sína,“ segja klerkar. í
upphafi fermingarfræðslu á haust-
in er farin þriggja daga ferð _ í
Vatnaskóg. „Þangað fara prestar
og fræðarar með krökkunum, auk
kennara og þessar ferðir gefa okk-
ur gott tækifæri til að nálgast
börnin og kynnast þeim nánar.
Þarna er einatt mikið ijör og auk
kristinnar fræðslu er mikið um
útiveru og alls kyns leiki, að
ógleymdum kvöldvökum."
Séra Vigfús og séra Sigurður
eru spurðir hvort þeir verði ekki
varir við að - í það minnsta í
sumum tilvikum - annað sé að
baki ákvörðunar um fermingu en
einlæg kristin trú. „Jú, auðvitað
eru börnin spennt fyrir gjöfum,
veislu og því sem tilheyrir ferm-
ingunni, en það er skiljanlegt.
Sjálfír höfum við gaman af að
halda veislur og verðum spenntir
þegar það stendur til. Innst inni
verðum við líka bæði spenntir og
glaðir þegar við fáum gjafir. Því
skyldu krakkarnir ekki finna fyrir
þessu líka? Það væri rangt að
afneita þessari veraldlegu um-
gjörð kringum fermingu, því hún
er hluti af hefð sem fæstir hafa
áhuga á að ijúfa. Við höfum öll
gaman af að gera okkur dagamun
þegar tilefni gefst og þótt vissu-
lega þurfi að gæta hófs í veislu-
höldum kringum fermingar, hefur
komið skýrt fram hjá fermingar-
börnum okkar að eitt af því sem
skiptir þau mestu máli er að á
fermingardaginn sameinast fjöl-
skylda og vinir til að samfagna
þeim. Þetta skiptir þau meira
máli en gjafírnar.
Réttur aldur til að fermast
Talið berst að gelgjuskeiði og
þeim þroskabreytingum sem
verða á krökkum á fermingar-
aldri. Séra Vigfús hefur
mjög ákveðnar skoðanir
á málinu: „13-14 ára
krakkar eru á mjög við-
kvæmu skeiði sem mér
fínnst rétt að kirkjan
komi inn í. Þess vegna
væri ég mótfallinn hærri ferming-
araldri. Við vitum hvað er krökk-
unum fyrir bestu og meðan við
höfum enn tækifæri til að hafa
áhrif á þá ber okkur að kynna
fyrir þeim það besta og halda því
að þeim. Þess vegna eigum við
að leggja áherslu á kristinfræðslu
til krakka á þessum aldri og
hvetja þá til að fermast og gera
Krist að leiðtoga lífs síns. Það
styrkir börn að finna fyrir festu
trúarinnar á þessum umbrotatím-
um í lífi sínu.“
Áö9%U5ID
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Bílastæði v/búðarvegginn.
Ulpur, ullarj'akkar
Stuttar og síðar
kápur fyrir ungu
stúlkuna, mömmuna
og ömmuna.
Opið laugardaga
frá kl. 10-16
ais
MYNDAVELAR
Skipholti 50B, Simi 553 9200.
YFIR 100 GERÐIR FRÁ
Minolta, Nikon, Olvmpus,
Canon, Konica, Ricoh,
Samsung og Sigma.
SlGMA LINSUR FRÁ 14 MM TIL ÓOO
MM Á LAGER FYRIR CANON EOS,
Minolta AF og Nikon vélar.
í MYNDAVÉLUM ERUM
VIÐ SÉRFRÆÐINGAR
FCÍO
VAL
I
I
I
>
i
í
i
.
\
I
t
B
l
I
B
B