Morgunblaðið - 09.03.1997, Qupperneq 30
30 F SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ORIENT úr með
sjálfvinduúrverki sem þýðir
að rafhlöðuskipti eru úr
sögunni - vatnsþétt.
Verð kr. C). 980
Ef þú gerir kröfur um gæði,
veldu pá ORIENT
— ^ott úr er <^ód
fermin^af ^jöf -
úrsmiðaveslun
Karls ^udmundssonaf
Austurvegi 11, Selfossi, sími 482 1433.
cx spcnnandi og smart
hálsmen fyrir ungar dömur
6/, simi óo2 4<)/0
r s 1 u n
mi 561-5077
Tvískiptir
kjólar
Dragtir
Lax á austurlenska vísu,
salöt, léttsaltað lambalæri
0 g heimabakað brauð
Hugmynd af fermingarhlaðborði
Ef hátíóaréttirnir eru vel valdir má undirbúa
sem mest fyrirfram og eftirleikurinn
auóveldur. Eftirfarandi matseóill er
valinn meó þetta í huga, en auk
þess er þetta ekki sérlega dýr matur
og frábrugóinn því, sem oftast sést
á hlaðborðum.
essar uppskriftir duga fyrir
um 20 manns, en réttirnir
eru fyrir um 10-12 manns,
ef þeir eru bornir fram stakir. Á
matseðlinum er lax á austurlenska
vísu og fiskur í hlaupi með sósu
úr sýrðum ijóma. Þá léttsaltað
lambalæri með tvenns konar salati
úr hvítum baunum með þurrkuðum
tómötum og hins vegar kartöflusal-
at með kapers og selleríi. Gott
heimabakað brauð er sjálfsagt með-
læti. Loks er uppskrift að ítölsku
núggati, undurgott með kaffinu.
Þá fer vel á að velja saman góða
osta t.d. með vínbeijum, eplum,
stöngulselleríi og ósætu kexi.
Best er að fisk-, kjötréttir, salöt
og ostarnir séu saman á borðinu,
en kökur og eftirréttir sér og þá
með sérstökum diskum. Hin gull-
væga regla til að njóta hlaðborðs
er að einbeita sér að fáum tegund-
um, svo að ekki ægi saman físki,
kjöti og eftirréttum.
Auðvelt er að útbúa mat fyrir
20-40 manns, ef skipulagt er í tæka
tíð og best er að eiga góða að til
aðstoðar. Það er misjafnt hvað fólki
er gefið ríkulega af skipulagsgáfu.
Lax á salatbeð á
austurlenska vísu
Sojasósa og engifer ljá laxinum
austurlenskan svip og bragðið er
sérlega ljúffengt. Laxinn er bestur,
ef hann er matreiddur samdægurs.
3 væn flök af roðflettum
_________Iqxi, um 1,5 kg________
_______1,8 dl japönsk sojasósa
1,8 dl vinberjakjarnaolía
3 msk vodka, brennivín eóa
annað ófengi af þessu tagi
4 fínsöxuð hvítlauksrif
um 5 cm ný engiferrót
rifinn börkur af 1 sítrónu
Blandið saman öllu nema laxin-
um. Leggið laxinn í fat, ofnskúffa
hentar vel, þannig að hann liggi
flatur og jafnið leginum yfir flökin.
Látið hann standa í klst. í kryddleg-
inum, en gjarnan nokkrar klst. ef
tækifæri er til.
Stillið ofninn á hæsta og glóðar-
stillingu (eða á háan hita, ef þið
hafið ekki glóðarstillingu). Setjið
laxinn inn í heitan ofninn í um 10
mín. Tíminn fer eftir þykkt og ofn-
hita, en galdurinn er að laxinn
skreppi saman og bakist, en þann-
ig að hann sé enn við að vera hrár
innst, þá er áferðin rétt.
Takið laxinn út og látið hann
kólna áður en hann er borinn fram.
Hann má vera við það að vera
volgur og á alls ekki kaldur úr
kæliskáp.
Salat
2 væn og föst jöklasalathöfuð
500 gr grófrifnor gulrætur
rifinn börkur gf sítrónu
________salatsóso úr 1 dl____
vínberjakjarnaolíu og 1/2 dl
sítrónusafa
Hreinsið og saxið jöklasalatið.
Gætið þess að ekki sé vatn í því.
Þeytið salatsósuna með gafli,
blandið henni saman við salatið
og gulrófurnar og stráið salatinu á
fat og komið flökunum fallega fyrir
á salatinu. Dreypið kryddleginum
yfir fiskinn og rífið sítrónubörk yfir
til bragðs og skrauts.
Fiski- og rækjurönd með
fennel og gúrkum
Hér er stungið upp á að nota
skötusel, því hann er fastur í sér
og bragðgóður. Rækjurnar bæta
hann enn og fennel og gúrkur gefa
góða áferð og gott bragð. Ef þið
fáið ekki fennel, getið þið sleppt
því og bætt við aðeins meiru af
gúrku, en fennel gefur firna gott
bragð. Hlaupið er ekki meira en
svo að allt festist vel saman og
einfaldast er að nota hlaup, sem
fæst í pökkum og er ætlað til að
útbúa fisk í hlaupi. Og allra einfald-
ast er að útbúa þennan rétt í formi,
sem þið berið hann fram í, svo
ekki þurfi neinar kúnstir til að fá
hlaupið í heilu lagi úr forminu.
Þennan rétt getið þið útbúið dag-
inn áður en hann er snæddur.
Með fiskiröndinni er gott að
bera fram sósu úr sýrðum rjóma
og þið getið notað hvaða upp-
skrift, sem ykkur líst á að slíkri
sósu. Sýrður rjómi, sítróna, salt,
pipar og dill er einföld og góð út-
gáfa slíkrar sósu.
1 kg skötuselur, beinlaus og
______________roðlaus____________
_________2 væn fennelhnýði_______
______________4 gúrkur___________
500 g stórgr rækjur, afþíddar
um 1 I gf fljótgndi fiskhlgupi,
útbúið eftir leiðbeiningum ó
pakkanum, en meó heldur minna
gf vökvo, svo þið getið notað
soðið af fisknum