Morgunblaðið - 13.05.1997, Page 1
112 SÍÐURB/C
105. TBL. 85.ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR13. MAÍ1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Vill hengja
spillta stjórn-
málamenn
París. Reuter.
SPILLTIR stjómmálamenn eiga
skilið að verða hengdir, eins og á
tímum keisara og konunga fyrir
1789, sagði Jean-Marie Le Pen,
leiðtogi Þjóðfylkingarinnar, í sjón-
varpsviðtali í gær.
Le Pen hélt því fram, að um
þessar mundir sættu á annað þús-
und franskra stjómmálamanna,
frá ráðherrum ofan í sveitarstjóra,
lögreglu- eða dómsrannsókn vegna
spillingar eða skyldra brota. Hann
sagði 9 af hveijum 10 stjórnmála-
mönnum spillta.
Mobutu sagður til-
búinn að gefa eftir
Brussel, Höfðaborg;. Reuter.
N’ZENGA Mobutu sagði föður
sinn, Mobutu Sese Seko, forseta
Zaire, reiðubúinn að koma að vem-
legu leyti til móts við Laurent
Kabila, leiðtoga uppreisnarmanna,
til þess að binda enda á stríðið í
landinu. Thabo Mbeki, aðstoðar-
forseti Suður-Afríku, sagði að ráð-
gerður fundur Mobutus og Kabilas
á morgun væri síðasta tækifærið
sem gæfist til að komast hjá blóð-
ugu lokauppgjöri í Zaire.
N’Zenga Mobutu sagðist í við-
tali við belgíska sjónvarpsstöð,
RTL-TVI, ekki geta sagt hvort
faðir sinn væri tilbúinn að afsala
sér völdum í hendur bráðabirgða-
stjómar undir forystu Laurents
Síðasta tækifærið
til að komast hjá
blóðbaði
Monsengwos erkibiskups sem
stuðningsmenn hans hefðu lagt til
um helgina. Samtök uppreisnar-
manna, ADFL, hafa hafnað þeirri
tillögu. Einnig hafa þeir hótað að
hætta frekari samningaumleitun-
um taki Monsengwo boði þingsins
um að gerast forseti þess og þar
með arftaki Mobutus yrði hann af
völdum andláts eða annarra orsaka
ófær um að gegna forsetastarfi.
Uppreisnarmenn lýstu því sömu-
leiðis í gær að Mobutu fengi ekki
annað tækifæri en á fundinum með
Kabila á morgun til þess að sam-
þykkja friðsamlega lausn deilunn-
ar. Þar réðist hvort uppreisnar-
menn lentu mjúkri lendingu í höf-
uðborginni Kinshasa eða hvort
þeir.yrðu að taka hana með öflugu
heráhlaupi.
Kinshasa innan seilingar
Joseph Kabila, sonur uppreisnar-
leiðtogans, er stjómar framlínu-
sveitum uppreisnarmanna, sagði í
gær að Kinshasa væri aðeins í seil-
ingarfjarlægð og spáði falli hennar
á næstu dögum, semdist ekki um
friðsamlega uppgjöf Mobutus.
BANDARÍSKIR sjóliðar búa Cobra-þyrlur undir að aðstoða við
brottflutning vestrænna manna frá Kinshasa. Hersveitir frá
nokkrum löndum bíða í Brazzaville í Kongó þeirra erinda.
Jeltsín heldur
kröfum á lofti
Moskvu.Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
sagðist í gær myndu freista þess
með símhringingum til vestrænna
stjómarleiðtoga að knýja fram kröf-
ur Rússa í þeim atriðum samkomu-
lags við Atlantshafsbandalagið
(NATO) sem enn væri ósamið um.
Jeltsín reið á vaðið með því að
hringja í Jacques Chirac Frakk-
landsforseta. „Áhersla var á það
lögð í samtalinu að samkomulag
næðist um það sem enn stendur
út af,“ sagði talsmaður Jeltsíns.
Von er á Javier Solana, fram-
kvæmdastjóra NATO, til Moskvu
í dag til samningaviðræðna við
Jevgení Prímakov utanríkisráð-
herra. Sá síðamefndi sagði í við-
tali við dagblaðið Ízvestíu í gær,
að enn ætti eftir að hnýta nokkra
lausa enda í fýrirhuguðu sam-
komulagi NATO og Rússa, m.a.
um hvemig breyta ætti samningi
frá 1990 um hefðbundin vopn í
Evrópu og heiti samkomulagsins.
Friða pólitíska andstæðinga
Talið er að með yfirlýsingum
sínum vilji Jeltsín og Prímakov
láta í lengstu lög líta út fýrir að
niðurstaða samningaumleitana sé
í óvissu. Yfirlýsingunum sé fyrst
og fremst ætlað að friða pólitíska
andstæðinga heima fyrir.
Prímakov sagðist gera ráð fyrir
að það yrði ljóst eftir fundi þeirra
Solana í dag og á morgun hvort
samkomulag NATO og Rússa
vegna stækkunar bandalagsins
yrði undirritað í París 27. maí nk.
Fannst lifandi
eftir tvo daga
Ardakul. Reuter.
Lentuá
röngnm
flugvelli
Houston. Reuter.
BOEING 737-500 þota frá
Continental-flugfélaginu á leið
frá Houston til Corpus Christi
í Texasríki á sunnudag lenti á
röngum flugvelli en enginn veit
hvers vegna, að sögn tals-
manns flugfélagsins.
Þotan, sem var með 51 far-
þega innanborðs, lenti á aflögð-
um velli úr seinna stríðinu sem
er í 6,5 kílómetra fjarlægð frá
alþjóðaflugvellinum í Corpus
Christi.
Talsmaður Continental sagði
ekki ljóst hvers vegna þotan
lenti á röngum velli en málið
væri í rannsókn. Hann sagði
að flugmennirnir hefðu verið
settir í starfsbann þar til rann-
sókn lyki.
Engar skemmdir urðu á
flugvélinni. Farþegum var ekið
á rútum á leiðarenda og nýir
flugmenn fengnir til að fljúga
þotunni til heimavallar Contin-
ental í Houston.
Reuter
Betra
seint en
aldrei!
FÁGÆTRI bók, Sögu Eng-
lands, konunga þess og
drottninga, sem gefin var út
1706, var skilað í Houghton-
bókasafn Harvardháskóla í
gær, 223 árum eftir að hún
var fengin að láni í safninu.
Á myndinni er bókin í hönd-
um Rogers Stoddards safn-
varðar.
MEÐ berum höndunum einum grófu
íbúar í fjallaþorpinu Ardakul í íran
í rústum húsa og björguðu konu lif-
andi út úr þeim tveimur sólarhringum
eftir að 7,1 stiga jarðskjálfti jafnaði
Ardakul og 200 önnur þorp við jörðu.
Talið er að um 2.400 manns hafi
beðið bana í skjálftanum og 6.000
slasast. Um 50.000 manns misstu
heimili sín. íranir fóru fram á það
við stofnanir Sameinuðu þjóðanna,
að þeir yrðu aðstoðaðir við neyðar-
flýðu til Suður-Kóreu á fiskibáti og
er það fyrsti flótti sinnar tegundar
frá hungursneyðinni í Norður-Kóreu.
Skipstjóri og vélstjóri hins 32
tonna trébáts dulbjuggu hann sem
kínverskan togbát og tókst með
þeim hætti að sneiða hjá eftirliti
hjálp og uppbyggingarstarf. Mörg
grannríki þeirra hétu matvælum,
Frak'kar sendu björgunarsveitir og
lyf, Bandaríkjamenn hétu hjálpar-
gögnum fyrir 100.000 dollara og
Þjóðveijar fyrir hálfa milljón marka.
í gær skók 4,8 stiga eftirskjálfti
norðvesturhluta írans, m.a. borgirn-
ar Ardabil og Nir, en fréttir af tjóni
höfðu ekki borist.
■ 2.400 manns fórust/22
norður-kóresks strandgæsluskips.
Suður-kóreskt herskip sigldi til
móts við bátinn skammt suður af
vopnahléslínunni við vesturströnd
landsins og hélt með flóttafólkið
áleiðis til Inchon.
■ Hugðust ráða/23
Reuter
Synti frá
Kúbu til
Flórída
ÁSTRÖLSK langsundskona,
Susie Maroney, gengur á land
í Key West í Flórída í gær
eftir að hafa orðið fyrst allra
til að synda frá Kúbu til
Flórída. Sundið þar á milli er
145 km breitt en vegalengdin,
sem Maroney lagði að baki,
var 174 km. Hún var 24Vi
stund á leiðinni og til þess að
verða ekki fyrir hákarlaárás
synti hún mestan tímann inni
í flotbúri. Varð hún vör
tveggja hákarla á sundinu en
marglyttur gerðu henni einnig
lífið leitt. Við landtöku sagði
Maroney sterka strauma hafa
auðveldað sér þreksundið og
flýtt förinni. Átti hún erfitt
með að tala vegna munnbólgu
af völdum sjávarseltu. Maron-
ey, sem er 22 ára, sagði að
næst myndi hún líklega reyna
að synda frá Mexíkó til Kúbu.
Dulbjuggu bát til
flótta frá N-Kóreu
Inchon, Seoul. Reuter.
TVÆR norður-kóreskar flölskyldur