Morgunblaðið - 13.05.1997, Side 2

Morgunblaðið - 13.05.1997, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Úrskurður samkeppnisráðs um alnetsþjónustu Pósts og síma Keppinautar njóti sam- bærilegra viðskiptakjara SAMKEPPNISRÁÐ hefur úrskurðað að keppi- nautar samkeppnissviðs Pósts og síma hf. skuli njóta sambærilegra viðskiptakjara og sam- keppnissvið Pósts og síma hf. nýtur og sam- bærilegs aðgangs að búnaði og hvers konar tæknilegri aðstöðu sem tengist einkaréttarþjón- ustu Pósts og síma hf. í úrskurði samkeppnisráðs frá 7. maí síðast- liðnum segir að mismunur á kjörum í viðskipt- um við einkaréttarsviðið verði að byggjast á hlutlægum og málefnalegum ástæðum, s.s. mismunandi kostnaði vegna umfangs viðskipt- anna. Öll frávik varðandi aðgang að aðstöðu og búnaði verði að byggjast á hlutlægum og málefnalegum sjónarmiðum, s.s. sannanlegum tæknilegum ómöguleika. Keppinautar töldu sig ekki sitja við sama borð Vegna stöðu Pósts og síma, þ.e. stærðar fyrirtækisins og einkaréttar þess til að veita ýmiss konar þjónustu, og þar sem keppinautar samkeppnissviðs fyrirtækisins töldu sig að mörgu leyti ekki sitja við sama borð og sam- keppnissviðið hóf Samkeppnisstofnun athugun á endursölu Pósts og síma á alnetstengingum. Póstur og sími hóf sölu á alnetstengingum til einstaklinga og fyrirtækja 7. ágúst í fyrra, en fyrir á markaðnum voru um 19 íslensk einka- fyrirtæki sem stunduðu endursölu á alnetsteng- ingum. Samkeppnisstofnun bárust óformlegar athugasemdir frá nokkrum þeirra og beindist gagnrýni fyrirtækjanna einkum að því á hvem hátt viðskiptavinum Pósts og síma var gert kleift að hringja inn á alnetið í gegnum al- menna símakerfið. Póstur og sími auglýsti þessa þjónustu sina þannig að kostnaður við að hringja inn á netið væri sá sami alls staðar á landinu og gagn- rýndu aðrir endurseljendur alnetstenginga þessa ráðstöfun harðlega þar sem viðskiptavin- ir þeirra utan höfuðborgarsvæðisins þyrftu að greiða Pósti og síma utanbæjarskref þegar þeir hringdu inn á alnetið. Töldu endurseljend- ur að hér væri um aðstöðumun að ræða. Sam- keppnissvið Pósts og síma nyti þarna verulegra fríðinda og hætta væri á að niðurgreiðslur á alnetsþjónustunni ættu sér stað. Samkeppnissvið greiði markaðsvexti í úrskurði samkeppnisráðs er þeim tilmælum beint til Pósts og síma hf. að til viðbótar þeim fjárhagslega aðskilnaði sem þegar hefur farið fram á milli samkeppnissviðs Pósts og síma hf. og annarra sviða fyrirtækisins skuli sam- keppnissvið frá 1. janúar 1997 færa til gjalda og greiða markaðsvexti, samkvæmt mati lög- gilts endurskoðanda, af stofnframlagi einka- réttar sem er að upphæð 1.315.388.204 kr. Þá skuli skuldir samkeppnissviðs Pósts og síma hf. við önnur svið fyrirtækisins bera markaðs- vexti. Frá og með gildistöku ákvörðunar samkeppn- isráðs er samkeppnissviði Pósts og síma óheim- ilt að nota tekjur af rekstri GSM- og NMT-fjar- skiptakerfanna til að greiða niður kostnað við þjónustu eða aðra starfsemi sem rekin er í virkri samkeppni við aðra aðila. Kjaradeilan á Vestfjörðum Deiluaðilar sagðir hafa nálgast DEILUAÐILAR í kjaradeilunni á Vestfjörðum hafa nálgast eftir sáttaumleitanir sem fram fóru um helgina að sögn Péturs Sigurðsson- ar, forseta Alþýðusambands Vest- fjarða. Sáttafundur í deilunni hófst á laugardag og stóðu viðræður yfir alla helgina. Var þeim svo frestað klukkan þrjú í fyrrinótt þar sem aðilar urðu sammála um að gera tveggja daga hlé en viðræðunum verður haldið áfram í kvöld. Verk- fallið á Vestfjörðum hefur nú stað- ið yfir í rúmar þijár vikur. Greina ekki frá efni tillagna Einar Jónatansson, formaður Vinnuveitendafélags Vestfjarða, sagði að báðir aðilar ætluðu að skoða ákveðin mál sem rætt hefði verið um fram að næsta fundi en samkomulag væri um að fjalla ekki um efnisatriðin opinberlega. „Það er litið á þetta sem vopna- hlé. Menn fara með vinsamlegum huga yfir kröfur og tillögur hver annars. Báðir aðilar lögðu fram ákveðnar hugmyndir og það er metið þannig að menn hafi færst nær hver öðrum. Svo verður loka- tilraunin gerð annað kvöld,“ sagði Pétur Sigurðsson í gær. Að loknu góðu dags- verki ÍBÚAR við Engjasel í Breiðholti notuðu góða veðrið á laugardag og allir sem vettlingi gátu valdið tóku þátt í að hreinsa til á lóðum húsa og gangstéttum. Að loknu góðu dagsverki var mannskapur- inn orðinn svangur og þá var grillað af miklum móð og einnig keyptar flatbökur í tugatali, sem runnu greiðlega ofan í þreytta, en ánægða Engjaselsbúa. Morgunblaðið/Þorkell Hafnarverkamenn í Dagsbrún og Hlíf Samúðarvinnustöðvun ATKVÆÐAGREIÐSLA fór fram í gær meðal hafnarverkamanna í Dagsbrún og Hlíf í Hafnarfirði um boðun samúðarvinnustöðvunar á athafnasvæði Reykjavíkur- og Hafnarfjarðarhafnar vegna löndun- ar og afgreiðslu skipa sem gerð eru út frá Vestfjörðum af atvinnurek- endum sem yfirstandandi verkföll stéttarfélaga á Vestfjörðum taka til. Niðurstöður atkvæðagreiðslunn- ar í Hlíf urðu þær að mikill meiri- hluti þeirra sem þátt tóku sam- þykktu vinnustöðvun eða 23 en 7 greiddu atkvæði á móti. Hjá Dagsbrún tóku 59 hafnar- verkamenn þátt í atkvæðagreiðsl- unni, eða 27,7% þeirra sem voru á kjörskrá. 38 samþykktu samúðar- vinnustöðvun, eða 64,4%, en 21 var henni andvígur. Samúðarvinnustöðvunin á að hefjast þann 21. maí, ef samningar á Vestfjörðum hafa ekki tekist fyr- ir þann tíma, og gilda meðan verk- fall stéttarfélaganna þar varir. Rafiðnaðar- menn hjá P & S Verkfalli frestað til 26. maí SAMNINGANEFNDIR Raf- iðnaðarsambandsins og Pósts og síma hf. undirrituðu nýjan kjarasamning sl. laugardags- kvöld og var verkfalli raf- iðnaðarmanna frestað til 26. maí. Allsherjaratkvæðagreiðsla fer fram um samninginn og á talning að fara fram 23. maí. Að sögn Helga Gunnars- sonar, sem á sæti í samninga- nefnd RSÍ, hófust viðgerðir vegna þeirra bilana sem upp höfðu komið á meðan á verk- fallinu stóð strax að lokinni undirritun og var þeim að mestu lokið í gær. Helgi sagði að fjöldi beiðna um flutning á síma hefði einnig safnast upp og einhvem tíma tæki að afgreiða þær. „Viðunandiröðun í launaflokka" Megin ágreiningurinn í lqaradeilunni snerist um röð- un 150 rafiðnaðarmanna, sem gengu fyrir skömmu úr BSRB yfir í Rafrðnaðarsam- bandið, í launaflokka iðnaðar- manna. Helgi sagði að náðst hefði viðunandi röðun fyrir þessa starfsmenn. „Þeir voru áður sérhæfðir verkamenn en hafa fengið iðnréttindi og málið snerist um hvemig ætti að raða þeim í iðnaðarmanna- samninginn. Niðurstaðan varð sú að þeir munu fá iðn- aðarmannakjör í áföngum á samningstímanum, sem er þrjú ár,“ sagði hann. Aðspurður sagði Helgi launahækkanir einstakra starfsmanna mismunandi og því væri ekki unnt að greina frá um hversu mikla meðal- launahækkun væri að ræða í samningnum. - Farbanni á hendur Hanes-hjónum var hafnað Framsalsmálið kemur fyrir dómstóla í dag HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur hafnað farbannskröfu emb- ættis Ríkissaksóknara á hendur Hanes-hjónunum sem sett var fram í því skyni að útiloka að þau færu úr landi áður en umfjöllun um framsal þeirra til Bandaríkj- anna er leidd til lykta. Embættið gerði kröfu um að hjónin sættu farbanni meðan fjall- að væri um framsalskröfu á hend- ur þeim. Vildu gera varúðarráðstafanir „Krafan var varúðarráðstöfun af hálfu embættisins, því þótt hjón- in hafi verið svipt vegabréfum sín- um eru fleiri leiðir mögulegar til að komast úr landi en þær hefð- bundnu og alveg hugsanlegt að þau gætu orðið sér úti um önnur vegabréf. Við vildum einfaldlega fyrirbyggja að gripið væri í tómt þegar ákvörðun liggur fyrir um framsalskröfu bandarískra stjórn- valda. Héraðsdómur taldi hins veg- ar ástæðulaust að gera slíkar ráð- stafanir," segir Sigurður Gísli Gíslason, lögmaður hjá embætti Ríkissaksóknara. í dag mun Héraðsdómur jafn- framt fjalla um framsalsmálið, en Hanes-hjónin hafa mótmælt kröfu stjórnvalda í Bandaríkjunum um að íslensk stjómvöld framselji þau til Bandaríkjanna þar sem þeirra bíður handtökuskipun. Þau voru svipt vegabréfum sínum skömmu eftir að barnabarn Connie Jean Hanes var tekið úr þeirra vörslu og afhent móður sinni, Kelly Hel- ton. Væri þeim vísað úr landi væri þeim nauðugur einn kostur að snúa til Bandaríkjanna, en á grundvelli samkomulags við dómsmálaráðu- neytið var hjónunum heimilað að dvelja hér til 1. mars sl. Sá tími var síðan framlengdur um mánuð með samþykki íslenskra stjórn- valda. Bandarísk stjórnvöld töldu hins vegar að þau hefðu hrotið samkomulag um að snúa til Banda- ríkjanna ekki síðar en 1. mars og gerðu framsalskröfu á hendur þeim. Slík krafa hafði um hríð verið yfirvofandi, en beðið var með hana þar til ljóst var hvemig Ha- nes-hjónin hugðust haga gerðum sínum. Niðurstaða í júní? Sigurður Gísli segir útlit fyrir að úrskurður Héraðsdóms um framsal liggi fyrir síðar í þessum mánuði en að honum loknum geti hjónin kært úrskurðinn til Hæsta- réttar, sem gæti tafið niðurstöðu. Að lokinni endanlegri dóms- niðurstöðu komi málið hins vegar til kasta dómsmálaráðuneytisins, þvl það taki seinustu ákvörðun um hvort framsalið verði framkvæmt eða ekki. Lausn muni því ekki liggja fyrir fyrr en í fyrsta lagi í júní, miðað við þann farveg sem málið er í núna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.