Morgunblaðið - 13.05.1997, Side 4

Morgunblaðið - 13.05.1997, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Ákveðið hefur verið að kafa fjórum sinnum í viðbót niður að flaki Æsu Skelplógur skípsins verður vigtaður og mældur Lagðir af stað ÍSLENSKU Everestfararnir iögðu af stað í morgun úr grunn- búðum áleiðis á tind Everest. Björn Ólafsson, einn leiðangurs- manna, sagði í gær að þeir ætluðu að sæta færis ofar í fjailinu og reyna að komast á toppinn strax og veður skánaði. Hann sagði að ný veðurspá kæmi í dag. Mjög þrálát norðvesturátt hef- ur verið efst í fjallinu síðustu daga og hafa fjallgöngumenn, sem áforma að klífa fjallið, ekki átt annan kost en að bíða eftir betra veðri. Björn sagði að marg- ir leiðangrar væru orðnir óþolin- móðir enda að brenna inni á tíma. Nokkrir ætluðu að leggja af stað á morgun og láta reyna á hvort aðstæður væru til að komast á topp fjallsins. Björn sagði að íslenski leiðang- urinn hefði tírna fram til 24. maí til að reyna við tindinn. Reynslan kenndi mönnum að eftir þann tíma væri mjög erfitt að fara á tindinn. Leiðinni yfir Khumbu skriðjökulinn væri haldið opinni fram til 25. maí. Hann sagði að jökullinn væri á mikilli hreyfingu. T.d. hefðu niu álstigar brotnað eða skemmst einn daginn. íslendingarnir þrír eru þraut- reyndir fjalla- og björgunarmenn. Björn Ólafsson er 30 ára og hefur verið félagi í Hjálparsveit skáta í Reykjavík í 12 ár. Einar K. Stef- ánsson er 31. árs og hefur verið félagi í Hjálparsveit skáta í Kópa- vogi í 14 ár. Hallgrfmur Magnús- son er 30 ára og hefur verið fé- lagi í Hjálparsveit skáta í Reykja- vík í fimm ár. Þeir hafa allir ára- langa reynslu af björgunarstörf- um í fjöllum og óbyggðum og hafa aflað sér reynslu í fjallgöngu víða um heim. Þeir gengu 1995 á Cho Oyu, sem er hæsta fjall sem íslendingar hafa gengið á, 8.201 metra hátt. LÍK skipstjórans Harðar Sævars Bjarnasonar á kúfiskskipinu Æsu, sem sökk á um 80 metra dýpi í blíðskaparveðri í Arnarfirðinum í fyrrasumar, var feijað frá varð- skipinu Óðni til Bíldudals á laugar- dagskvöld. Fulltrúar frá lögreglunni og Landhelgisgæslunni báru kistuna, sem var sveipuð íslenska fánanum, í land. Líkkistan var síðan flutt til Reykjavíkur á sunnudag, þar sem Kennslanefnd (ID-nefnd), skipuð lækni, tannlækni og rannsóknar- lögreglumönnum, mun formlega bera kennsl á líkið. Leitin að líki hins skipverjans, Sverris Halldórs Sigurðssonar, sem fórst með Æsu bar ekki árangur í köfun sem fram fór á sunnudagsmorgun. Var þá hafist handa við undirbúning rann- sóknarinnar _á því hvers vegna skipið sökk. í gær var vír festur við skelplóg skipsins, en óvíst hvort hann yrði hífður upp í dag eða á morgun. Að sögn Kristins Ingólfssonar, verkefnisstjóra _ og fulltrúa Sigl- ingastofnunar íslands, er búið að kanna þau rými í flakinu sem lík- legt þykir að lík skipverjans hefði getað verið í, en í upphafí leitarinn- ar var reynt að finna út hvar skip- veijar hefðu verið þegar skipið sökk og síðan reynt að meta hvert þeir hefðu getað farið þaðan. Krist- inn segir að fyrst seinna líkið hafi ekki verið á fyrrgreindum stöðum komi ótal aðrir möguleikar til greina og til þess að fínkemba allt skipið þurfí fjölda kafana. Ekki sé til dæmis nóg að fara einungis eina köfun inn í mörg þessara rýma, því aðstæður séu erfiðar og lítið megi út af bera til að eitthvað fari úrskeiðis. Varðskipið Óðinn hreyfðist úr Húsráðandi og gestir handteknir HANDTAKA þurfti húsráð- anda i Holtunum á sunnudags- morgun eftir ítrekaðar kvart- anir um hávaða frá heimili hans. Auk þess veittust gestir mannsins að lögreglumönnum. Flytja þurfti fímm á lög- reglustöð og fjórir voru vistaðir í fangageymslunum. Andlát SOLYEIG ÓLAFSDÓTTIR SÓLVEIG Ólafsdóttir andaðist í fyrradag á Landspítalanum á 94. aldursári. Sólveig var ekkja Hannibals Valdi- marssonar, fyrrum for- seta Alþýðusambands íslands, alþingismanns og ráðherra. Hannibal lést 1. september 1991. Sólveig fæddist 24. febrúar 1904 að Strandseljum við ísa- fjarðardjúp. Hún ólst þar upp, þar til hún fór til náms að Núpi við Dýrafjörð. Eftir það stundaði Sólveig nám við Kvenna- skólann á Blönduósi. Sólveig og Hannibal stofnuðu heimili á Isafírði árið 1934 og bjuggu þar til ársins 1952. Á Isafirði tók Sólveig dijúgan þátt í félags- störfum og var meðal annars formaður Kven- félags Alþýðuflokksins á ísafirði um skeið. Sólveig og Hannibal eignuðust fimm börn. Þau eru: Arnór, pró- fessor við Háskóla ís- lands, Ólafur blaða- maður, Elín, kennari á Flúðum, Guðríður bankastarfsmaður og Jón Baldvin alþingis- maður. Sólveig og Hannibal fluttust til Reykjavíkur árið 1952 og áttu eftir það heimili í Reykjavík og i Selárdal við Arnarfjörð. LÍKKISTA skipstjórans sem fórst með Æsu var borin á land á Bíldudal á laugardagskvöld, en flutt til Reykjavíkur daginn eftir. Morgunblaðið/Golli stað vegna hvassrar norðaustan- áttar aðfaranótt mánudags og þurfti því að stilla það aftur af daginn eftir til að staðsetja það yfír flakinu, að sögn Kristins. Af þeim sökum hófst fyrri köfunin í gær ekki fyrr en eftir hádegi. Þá var vír festur í skelplóginn og taldi Kristinn líklegast í gærkvöldi að hann yrði hífður upp á morgun, miðvikudag. Hann sagði þó að ef til vill yrði hægt að ná honum upp í dag, ef öryggiskeðja losnaði sjálf- krafa þegar plógnum yrði lyft. Að öðrum kosti þyrfti að kafa niður að honum og losa um keðjuna og þá yrði það ekki gert fyrr en á morgun. Fjórar kafanir í viðbót Að sögn Kristins verður rann- sakað hvort plógurinn gæti hafa átt þátt í að skipinu hvolfdi. Hann mun verða vigtaður um borð í Óðni en síðan verður kannað hvort hann sé eins og gert er ráð fyrir á teikningum og öðru sem viðkem- ur stöðugleika skipsins, en að sögn Kristins er hugsanlegt að nýr og stærri plógur hafi verið smíðaður á Æsu. í gær var búið að kafa tíu sinn- um að flakinu eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Kristinn sagði í gærkvöldi að ákveðið hefði verið að bæta við tveimur köfunum í dag og tveimur á morgun, til að rann- saka skipið betur. Hann sagði að við þær rannsóknir myndi enn þrengjast hringurinn við leitina að líki Sverris Halldórs, en hann gæti ekki svarað því enn hvort ráðist yrði í frekari kafanir ef líkið fynd- ist ekki. Fjórir strokuunglingar frá meðferðarheimili í Skagafirði náðust eftir mikinn eltingarleik Bundu starfskonu og stálu bifreið FJÓRIR unglingar struku af með- ferðarheimilinu Bakkaflöt í fyrri- nótt, rændu bifreið heimilisins og fjötruðu starfskonu þar sem hugð- ist stöðva för þeirra. Lögreglan á Sauðárkróki klófesti þá eftir elt- ingarleik sem stóð í um þijár klukkustundir en meðan á honum stóð óku unglingarnir á ofsahraða í tilraun sinni til að komast til Akureyrar. Unglingamir eru f|ortán og fimmtán ára gamlir, tveir piltar og tvær stúlkur, en þær tóku þátt í stroki frá heimilinu fyrir nokkrum vikum. Þá rændu þær einnig bif- reið í eigu heimilsins ásamt stall- systur sinni og veltu henni í Borg- arfirði með þeim afleiðingum að hún stórskemmdist og þær urðu fyrir lítilsháttar meiðslum. Þær komust síðan til Reykjavíkur þar sem þær fóru huldu höfði í nokk- urn tíma. Reyrðu útlimi með límbandi Unglingarnir réðust á starfs- konu sem ætlaði að meina þeim brottför og reyrðu hendur hennar og fætur með límbandi. Þau límdu einnig fyrir munn hennar sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins, en tóku límbandið af henni áður en þau héldu af stað. Þá tóku þau traustataki bifreið sem keypt var í stað hinnar er skemmdist og héldu af stað um klukkan hálfeitt í fyrrinótt. Þau óku á bíl eins starfsmannsins þeg- ar þau héldu af stað með þeim afleiðingum að hann varð fyrir lít- ilsháttar skemmdum. Maður kom að í sömu svifum, leysti konuna og gerði viðvart um strokið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Sauðárkróki. Lögreglumenn hófu strax eftirför en gættu þess að fara með gát. Lögregla króaði unglingana af „Þau óku mjög greitt fyrst í stað en við gættum þess að fylgja þeim ekki fast eftir, til að þau færu sér ekki að voða. Við vildum ekki að þetta færi úr böndunum," segir Kristján Jónsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Sauðárkróki. „Þau stefndu á Akureyri og við höfðum samband við lögregluna þar til að koma á móti þeim.“ Hægt var að stöðva för þeirra í Blönduhlíð og sneru þau þá við og hélt lögregla að þau ætluðu til Siglufjarðar. Unglingarnir reyndu hins vegar að stinga lögreglu af í Hegranesi þar sem er hringvegur, en við bæinn Beingarð í Hegranesi stukku þau út úr bílnum og hlupu út í móa. Með aðstoð sjö björgunar- sveitarmanna og tveggja leitar- hunda tókst lögreglu að komast á spor þeirra og færa þau aftur í hendur starfsfólks Bakkaflatar um klukkan fjögur í fyrrinótt. Bifreiðin sem þau notuðu við strokið skemmdist lítillega. „Þau sýndu klærnar þegar við náðum þeim, en þetta er svo sem ekki pastursmiklir krakkar þótt munnsöfnuðurinn sé ekki til fyrir- myndar. Manni finnst voðalegt að þetta gerist, en þetta er forhert lið og virðist vistað á heimilinu mót eigin vilja, enda krakkamir ekki sjálfráða. Við héldum að gæslan yrði hert eftir fyrra strokið en svo virðist ekki hafa verið gert,“ segir Kristján.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.