Morgunblaðið - 13.05.1997, Side 10

Morgunblaðið - 13.05.1997, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Svín frá Finnlandi til Akur- eyrar FYRIR hádegi í dag eru vænt- anleg til Akureyrar með þotu Atlanta 25 svín frá Finnlandi sem Svínaræktarfélag íslands hefur fest kaup á til kynbóta. Verða þau flutt með Sæfara til Hríseyjar og höfð í einangrun þar næstu fimm til sex mánuði. Um er að ræða 8 svín af Landkyni og 17 af Yorkshire- kyni. Segir Kristinn Gylfi Jóns- son, formaður Svínaræktarfé- lagsins, að skepnurnar séu frá 6 góðum búum í Finnlandi en hingað eru dýrin flutt frá Hels- inki. Innflutningurinn er liður í kynbótastefnu sem fagráð í svínarækt hefur samþykkt en fyrir nærri þremur árum voru flutt hingað svín úr norsku kyni sem Kristinn segir að hafi reynst vel. Líða mun hálft ann- að ár þar til reynsla fæst af þessum nýju svínakynjum. Fuglinn í fjörunni Morgunblaðið/Golli Notaði bílar hjá Brimborg Allt að 250 þús. kr. af- sláttur BRIMBORG hóf í gær að selja notaða bíla með allt að 250 þús- und króna verðlækkun miðað við skráð verð. Til að byrja með verða um fjörutíu notaðir bílar boðnir til sölu með þessum kjörum. Að sögn Egils Jóhannssonar hjá Brimborg er um að ræða bíla af öllum algengustu tegundum sem teknir hafa verið upp í nýja bíla. Afslátturinn er miðaður við það verð sem bílarnir hafa verið metn- ir á og er hann allt frá 100 þús- und krónum upp í 250 þúsund krónur á hvem bíl. BÁTAR vagga við bryggju á sinni, enda aldrei að vita nema Patreksfirði í bliðskaparveðri og æti gefist þegar gert er að aflan- fuglinn í fjörunni heldur vöku um. Tilboð Stöðvar 2 og Samvinnuferða-Landsýnar til áskrifenda Leita meiri tryggðar SALA hófst á sunnudag hjá Samvinnuferðum-Landsýn á farseðlum til Lundúna með flug- félaginu Atlanta handa áskrif- endum Stöðvar 2 á 9.900 kr. að viðbættum flugvallarskatti sem er 2.790 kr. Ferðirnar standa til boða þeim áskrifendum Stöðvar 2 sem halda áfram áskrift sinni í sumar og þeim sem kaupa nýja áskrift til a.m.k. þriggja mánaða. Miðað er við að allir á heimil- inu geti notið þessara kjara, þ.e. allir þeir sem eiga lögheim- ili þar sem keypt er áskrift að Stöð 2 í sumar. Alls er um að ræða 17 ferðir og eru 250 sæti á viku frátekin fyrir áskrifend- ur Stöðvar 2 eða í allt 4.250 sæti. Aðspurður hvort afföll sum- arsins í áskriftum væru það mikil að þetta uppátæki borgaði sig, sagði Hilmar S. Sigurðsson, markaðsstjóri íslenska útvarps- félagsins, að það væri ákveðin tilraun til að fá meiri tryggð hjá HELGI Jóhannsson, forsljóri Samvinnuferða-Landsýnar, og Hilm- ar S. Sigurðsson, markaðsstjóri íslenska útvarpsfélagsins, takast í hendur að aflokinni undirritun samnings um ódýrar Lundúna- ferðir fyrir áskrifendur Stöðvar 2. viðskiptavinum. „Við erum að sýna það í verki að okkur sé annt um áskrifendur okkar og miðað við þær viðtökur sem við höfum fengið nú þegar erum við mjög ánægðir,“ sagði hann. Engin viðbrögð hjá Flugleiðum Pétur J. Eiríksson, fram- kvæmdasfjóri markaðssviðs Flugleiða, sagði í samtali við Morgunblaðið að þar á bæ stæði ekki til að bregðast á nokkurn hátt við þessu tilboði. „Auðvitað hefur svona lagað alltaf einhver áhrif en við teljum ekki að það sé neitt sem skipti sköpum. Þetta er lokað tilboð og ákveð- inn sætafjöldi en menn mega gera það sem þeir vilja og við getum ekkert verið að amast við því. Auk þess erum við með nyög vel bókað til Bretlands í sumar,“ sagði Pétur. Skemmdir unnar á golfvelli Kópa- vogs og Garðabæjar Hestar tröðk- uðu niður flatir HESTAR ollu talsverðu tjóni á Víf- ilsstaðavelli aðfaranótt föstudags og leikur grunur á að þeir hafi ekki hlaupið lausir. Gunnlaugur Sigurðs- son formaður Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar segir að hófför séu á þremur flötum og brautum og séu skemmdimar verulegar. „Við vitum ekki fyrir víst hvort einhveijir sátu hestana en hlaupa- leið þeirra er einkennileg hafi þeir verið einir á ferð. Hestarnir tóku meðal annars snarpar beygjur á fyrstu flötinni, hlupu fram og til baka á fjórðu flötinni og fóru einn- " ig yflr þriðju flötina," segir Gunn- laugur. Aldrei í fyrra horf? Hann segir ekki bæta úr skák að flatirnar séu sérstaklega vel úr garði gerðar, þar sem þær eru undirbyggðar samkvæmt Evrópu- staðli og því viðkvæmari en ella. Hann kveðst einnig telja víst að lausir hestar hefðu freistast til að gæða sér á grængresinu sem þarna vex vel, en hrossin hafi ekki litið við því sem bendi til að þau hafí lotið stjóm manna. „Þessar flatir eru mjög við- kvæmar og þurfa að vera eggslétt- ar, þannig að Ijóst er að hófförin í sverðinum valda miklu tjóni. Við settum fjóra menn í að lagfæra það sem hægt er, en við óttumst að geta aldrei fært þetta til fyrra horfs og að ýmsir golfarar eigi eftir að verða óánægðir þegar þeir pútta á svæðinu og kúlan lendir ofan í gömlu hóffari," segir Gunnlaugur. Völlurinn er girtur að hluta og segir Gunnlaugur kostnaðarsamt að loka af jafn stórt svæði og 18 holu golfvöllur þekur, en kannski sé það eina lausnin. Hins vegar nægi vart girðingar tii að útiloka að hestamenn stýri dýrunum inn á svæðið af ráðnum hug, ef sú er raunin. Hestamenn miður sín „í kjölfarið höfðum við samband við forráðamenn hestamannafé- laga í nágrenninu og sýndum þeim verksummerki, enda viljum við eiga gott samstarf við hestamenn. Þeir voru miður sín yflr þessu at- viki, sem við skulum kalla slys. Engir lausir hestar eiga að vera á ferð og eru það ekki nema í undan- tekningartilvikum, en við skulum vona að þetta endurtaki sig ekki,“ segir Gunnlaugur. Framkvæmdastjórn ESB aðhefst ekki vegna spænsks ríkisstyrks til endurnýjunar íslenzks togara Tekið fyrir sams kon- ar styrki í framtíðinni FR AMKVÆMD ASTJ ÓRN Evr- ópusambandsins hefur ákveðið að aðhafast ekki frekar í máli gegn skipasmíðastöðinni P. Freire SA í Vigo á Spáni. Framkvæmdastjóm- in hafði áður talið að ríkisstyrkur, sem stöðinni var veittur vegna endurnýjunar á togara Granda, Snorra Sturlusyni, væri óheimilí samkvæmt svokallaðri sjöundu til- skipun ESB um skipasmíðar. Kom- ið hefur í ljós að framkvæmda- stjórnin hafði sjálf samþykkt spænsku löggjöfina, sem heimilaði styrkinn, en spænsk stjórnvöld hafa nú fallizt á að breyta lögun- um, þannig að styrkir af þessu tagi verði ekki heimilir í framtíð- inni. Styrkur til útgerðar, ekki skipasmíðastöðvar Samtök iðnaðarins gerðu á sínum tíma fyrirspurn vegna ríkisstyrks- ins, sem þau töldu andstæðan regl- um ESB og að með honum væri samkeppnisstaða skipasmíðastöðva í EFTA-ríkjunum skekkt gagnvart spænskum stöðvum. Bæði íslenzkar og norskar skipasmíðastöðvar buðu í endumýjun Snorra Sturlusonar, auk spænsku stöðvarinnar sem fékk verkið. Framkvæmdastjómin birti í októ- ber síðastliðnum það álit sitt, að óheimilt hefði verið að veita skipa- smíðastöðinni styrk vegna smíða flskiskips; slíkur styrkur hefði átt að fara til útgerðarinnar að því gefnu að starfsemi hennar félli undir sjávarútvegsstefnu ESB. Jafnframt taldi framkvæmdastjóm- in að ekki mætti veita styrki til smíði fískveiðiskipa nema þau væru ætluð til útflutnings til lands utan Evrópska efnahagssvæðisins. Spænskum stjómvöldum var gef- inn kostur á að taka til vama í málinu. Af hálfu þeirra kom fram að Spánn hefði veitt styrkinn til endumýjunar á Snorra Sturlusyni samkvæmt áætlun um styrkveiting- ar, sem framkvæmdastjórnin hefði sjálf samþykkt. Framkvæmda- stjómin féllst á þennan rökstuðn- ing. „Þar af leiðandi er styrkur sá sem Spánn veitti skipi því er könnun þessi tók til lögmætur, enda þótt áætlun sú sem fyrir hendi er sé ekki í samræmi við grundvallar- reglu þá sem framkvæmdastjórnin hafði sett fram né það hvemig önn- ur aðildarríki halda á þessum mál- um,“ segir í bréfí Karels van Miert, samkeppnismálastjóra ESB, til Abel Matutes, utanríkisráðherra Spánar, en Morgunblaðinu hefur borizt afrit af bréfínu. I bréfinu kemur hins vegar einn- ig fram að Spánn hafi í framhaldi af málinu aðlagað áætlun sína um styrkveitingar til skipasmíða regl- um ESB og frá og með þessu ári muni löggjöf landsins verða í sam- ræmi við fyrirmæli framkvæmda- stjórnarinnar, þ.e. að eingöngu sé hægt að sækja um styrki vegna fískiskipa, sem verði flutt út til landa utan EES. Framkvæmdastjórnin hyggst einnig fara fram á það við Eftirlits- stofnun EFTA (ESA) að hún tryggi að aðildarríki EFTA beiti sömu meginreglum varðandi styrkveit- ingar til fiskiskipa og að fiskveiði- skip, sem ætluð séu flota einhvers aðildarríkis EES, séu einnig útilok- uð frá áætlunum einstakra ríkja um styrki. Guðlaugur Stefánsson, hagfræð- ingur hjá ríkisstyrkjadeild Eftirlits- stofnunar EFTA, segir að ESA muni koma tilmælum fram- kvæmdastjórnarinnar á framfæri við íslenzk og norsk stjórnvöld. Hann segist gera ráð fyrir að ís- lenzkar skipasmíðastöðvar telji samkeppnisstöðu sína hafa styrkzt eftir að niðurstaða málsins lá fyrir. Viljum silja við sama borð Sveinn Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segist ánægður með niðurstöðu málsins. „Tilgangurinn með fyrir- spurn okkar var að kanna hvort Spánverjarnir færu að reglum. Ef þeir sitja nú við sama borð og við, er það nákvæmlega það sem við viljum," segir Sveinn. „Við höfum aldrei haft bolmagn til að keppa við þessar þjóðir í styrkjum, þannig að okkar eina von til að fá eðlileg starfsskilyrði er að takmarka styrk- ina. Reglur ESB eru settar til að takmarka þá og við viljum auðvitað að því sé fylgt eftir að aðrar þjóðir fari að reglunum.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.