Morgunblaðið - 13.05.1997, Page 11

Morgunblaðið - 13.05.1997, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 11 ___________________________________FRÉTTIR__________________________________ Þróunarsamvinna íslands gagnrýnd í skýrslu fulltrúa Norðurlandanna í stjórn Alþjóðabankans j ’ÓNAS H. Haralz, fyrrverandi bankastjóri og fulltrúi Norðurlandanna í stjórn Alþjóðabankans, leggur til að íslan'd auki framlag sitt til þró- unaraðstoðar úr 0,1% í 0,15% af þjóðarframleiðslu á næstu fimm árum. Sú tala yrði þó enn miklu lægri en í flestum öðrum iðnríkjum. í nýrri skýrslu Jónasar um þróun- arsamvinnu íslands kemur einnig fram nokkur gagnrýni á þróunar- verkefni í Afríku á undanförnum árum. Skýrsla Jónasar var unnin á veg- um utanríkisráðuneytis- ins í samráði við Þróun- arsamvinnustofnun ís- lands (ÞSSÍ). í henni er meðal annars rakinn árangur af verkefnum ÞSSI í Afríkulöndunum Namibíu, Grænhöfðaeyj- um, Malawi og Moz- ambique. Þróunarsam- vinnan hefur einkum beinzt að því að efla sjávarútveg í þessum löndum. Rannsóknaskip í niðurníðslu og áhöfnin fákunnandi Niðurstaða Jónasar um árangur þróunar- starfsins er m.a. þessi: „í öllum þeim löndum, þar sem ÞSSÍ hefur starfað, hefur starfsem- in gengið erfiðlega fram- an af. Ókunnugleiki og erfiðar aðstæður hafa að sjálfsögðu átt sinn þátt í þessu. Samkvæmt þeim álitsgerðum, sem unnar hafa verið um einstök verkefni, hefur ófull- nægjandi undirbúningur þó einnig komið til sög- unnar. Stefnumörkun hefur ekki ætíð verið skýr, samráð við heima- menn ekki alltaf nægi- legt, né verklýsingar og starfsreglur eins greini- legar og skyldi. Nokkurs bráðræð- is hefur gætt við að hrinda fram- kvæmdum af stað eftir áeggjan heimamanna. Þá hefur ekki alltaf verið fast eftir því gengið að skyld- ur samstarfsaðila væru ótvíræðar og við þær staðið." Jónas segir hins vegar að það eigi við um öll verkefnin að á vandamálunum hafi verið tekið. „Markmið voru skýrð, eða skil- greind að nýju, samningar endur- skoðaðir og framkvæmd þeirra tekin fastari tökum. Með þessum hætti hefur öllum verkefnunum verið komið í viðunandi horf, nema í Cabo Verde [á Grænhöfðaeyj- ura], þar sem kringumstæður eru sérstaklega erfiðar." í umfjöllun sinni um þróunar- verkefnið á Grænhöfðaeyjum segir Jónas að það hafi gengið „illa, í sannleika sagt hörmulega illa“. Þótt þróunarsamvinnan sé talin hafa skilað jákvæðum árangri varðandi mat á fiskstofnum, getu til hafrannsókna og þjálfun fiski- manna, sé uppskeran harla rýr hvað það varði að koma á fót stofn- unum, sem haft geti með höndum rannsóknir sjávar og fiskstofna og stjórnun fiskveiða. Vitn- ______ að er til skýrslu frá í október sl., þar sem segi að „hafrannsóknar- stofnunin INDP sé ung og óreynd stofnun, sem “ sé ekki fær um að veita erlendum ráðunautum hæfilega aðstoð. Á sama tíma var rannsóknaskipið Islandia talið vera í niðurníðslu, og áhöfn þess ný, áhugalaus og fákunnandi“. Sem veigamestu skýringuna á slökum árangri nefnir Jónas að auðlindir sjávar við Grænhöfðaeyj- ar hafi reynzt mun rýrari en svo að grózkumikill sjávarútvegur gæti þróazt. Leggur hann til að íslend- ingar skoði „af fullri hreinskilni Framlag íslands til þróunarmála það lægsta í iðnríkjunum FISKIMENN á Grænhöfðaeyjum. í skýrslu Jónasar H. Haralz segir að þróunarsamvinnuverkefnið á Grænhöfðaeyjum hafi litlu skilað, en i öðrum Afríkuríkjum hafi tekizt að taka á byijunarörðugleikum með góðum árangri. Samþykktir Alþingis markleysa hveiju hafi verið ábótavant af þeirra hálfu“ við uppbyggingu sjáv- arútvegs á Grænhöfðaeyjum. Lögbundnu framlagi til þróunarmála aldrei náð í skýrslunni er fjallað um opin- ber framlög Islendinga til þróunar- mála. Rifjað er upp að það hafi verið sett í lög árið 1971, í sam- ræmi við samþykkt allsheijarþings Sameinuðu þjóðanna, að framlög íslands til þessara mála skyldu nema 0,7% af þjóðarframleiðslu. Árið 1985 hafi þetta markmið ver- ið ítrekað með þingsályktun og þá stefnt að því að ná því á sjö árum. Reyndin hafi orðið sú að framlagið hafi hækkað úr 0,05% í 0,12% á árunum 1985-1992. „Nefnd og starfshópur um þróunarmál, sem skiluðu áliti á árinu 1992, hvöttu eindregið til þess að stefnumiðinu yrðu gerð betri skil. Með hliðsjón af því hversu erfitt þetta hafði reynzt, var þó í þetta skipti farið vægar í sak- irnar og lagt til að framlagið yrði komið í 0,3 til 0,4% af þjóðarfram- leiðslu um aldamót. Ekki gekk það eftir, og fór framlagið hlutfallslega _________ lækkandi á næstu árum. Samkvæmt fjárlagatölum mun það vera nálægt 0,10% af þjóðarfram- leiðslu á árinu 1997,“ “““““ segir Jónas. Hann bendit- á að aðeins fjögnr ríki hafi tekið stefnumið allsheijar- þingsins í fullri alvöru, þ.e. Dan- mörk, Noregur, Svíþjóð og Holland. Meðaltal framlaga til þróunarmála í 21 iðnvæddu ríki hafi verið 0,41% af þjóðarframleiðslu fyrir tveimur árum. Framlög iðnríkja hafí reyndar lækkað nokkuð á undanfömum árum, annars vegar vegna erfiðleika í ríkisfjármálum og hins vegar vegna vonbrigða með árangur þró- unarstarfs. „Minnkandi áherzla á þróun- araðstoð meðal iðnvæddra ríkja er þó lítil afsökun fyrir íslendinga," skrifar Jónas. „Framlag þeirra hef- ur alla tíð verið það langlægsta allra þjóða sem þeir vilja líkja sér við. Samþykktir Alþingis hafa reynzt markleysa ein og fram- kvæmdir hafa ekki fylgt í kjölfar aðgerða." Jónas segir að ástand efnahags- mála undanfarna áratugi hafi lík- ast til beint athygli stjórnvalda, jafnt og landsmanna sjálfra, í aðrar áttir en til þróunaraðstoðar. Þessi skýring sé þó ekki einhlít. ísland hafi lagt fremur lítið til marghliða þróunaraðstoðar á vegum alþjóð- legra stofnana, sem skýrist af þeirri skoðun, að starfsemi þessara stofn- ana þjóni lítt íslenzkum hagsmun- um, og þá einkum að framlög skili sér ekki að neinu leyti aftur til landsins í kaupum þróunarlanda á vöru og þjónustu, eins og þau geri að verulegu leyti til stærri landa. Þá telur Jónas að tvíhliða þróun- araðstoð hafi farið illa af stað með Grænhöfðaeyjaverkefninu og varla hafi verið von til að hún ykist nema það tækist að koma á laggirnar árangursríkari verkefn- um í öðrum löndum. Hins vegar hafi verulegir byijunarörðugleikar komið fram bæði í Malawi og Namibíu og það sé ekki fyrr en á síðustu árum, sem góðum tökum hafi verið náð á þróunarsamvinnu- verkefnum í þessum löndum. „Það hafa því lengst af verið ærnar ástæður til að fara sér hægt í aukningu tvíhliða þróunaraðstoð- ar, enda þótt strangt aðhald í fjár- málastjórn landsins hefði ekki komið til,“ segir í skýrslunni. Lagt til að auka tvíhliða aðstoð í 375 millj. á fímm árum Jónas leggur fram drög að áætl- un um þróunaraðstoð árin 1998- 2003, þar sem gengið er út frá því að pólitískur áhugi sé á að auka tvíhliða þróunaraðstoð íslands, en að framlög til marghliða aðstoðar standi í stað og verði áfram um 0,07% af þjóðarframleiðslu. í þessari áætlun er gert ráð fyrir að á næstu þremur árum, þ.e. fram til ársins 2000, geti ÞSSÍ undirbúið og hrint af stað nýjum verkefnum, sem svari að umfangi til þeirra verkefna, sem hafi verið í gangi árið 1997. Á næstu þremur árum þar á eftir megi bæta við nýjum verkefnum, sem svari til þeirra verkefna, sem verði í gangi árið 2000. „Umfang verkefna, sem í gangi væru árið 2003, yrði þá 375 m.kr. samanbor- ið við 150 m.kr. árið 1997, reiknað á sama verðlagi. Samanborið við þjóðarframleiðslu myndi tvíhliða aðstoðin hafa náð 0,08% og öll þróunaraðstoðin 0,15%, sem enn myndi vera lægri tala en í flestum öðrum iðnvæddum löndum," segir Jónas. Hann segir að þessar hugmyndir séu ekki settar fram sem æskilegt markmið, heldur sem markmið er gæti verið raunhæft að teknu tilliti til aðstæðna og aðgátar. _____________ Þá íeggur hann tii að ófullnægjandi nyrra verketna veröi_____. fyrst og fremst leitað í und.rbunmgur þeim löndum, þar sem verkefna ÞSSÍ hafí starfað áður, þekking á staðháttum orðið til og gagnkvæmt trúnaðartraust mynd- azt. Tekið undir tillögurnar Hilmar Þ. Hilmarsson, aðstoðar- maður Halldórs Ásgrímsson utan- ríkisráðherra og formaður stjórnar ÞSSÍ, segir að skýrsla Jónasar hafi verið lögð fyrir ríkisstjórnina til kynningar. Þá hafi stjórn ÞSSÍ fjallað um hana og skilað utanríkis- ráðherra tillögum, þar sem tekið sé undir flest í skýrslunni. Utan- ríkisráðherra muni síðan ræða þær tillögur í ríkisstjórn og málið að því loknu sennilega koma til kasta Alþingis. Hilmar segist telja markmiðið um að auka hlutfall þróunaraðstoð- ar af þjóðarframleiðslu úr um 0,1% í 0,15% á fimm árum raunhæft og skynsamlegt. Ekki sé hægt að und- irbúa ný verkefni mikið hraðar en gert sé ráð fyrir í drögum Jónasar að starfsáætlun fyrir ÞSSÍ. Varðandi gagnrýni Jónasar á þau þróunarverkefni, sem þegar er unnið að, einkum verk- efnið á Grænhöfðaeyjum, segir Hilmar að reynsla íslendinga af þróun- arsamvinnu í Afríku sé lítið frábrugðin reynslu annarra ríkja og ýmissa alþjóðastofnana. Alþjóða- bankinn leggi til dæmis áherzlu á að starfsmenn hans reyni að kynnast staðháttum í viðkomandi landi og læra af mistök- um áður en farið sé að búast við árangri af þró- unarverkefnum. ÞSSÍ hafi unnið með svipuðum hætti. Hilmar segist þó ekki eiga von á að verkefninu á Grænhöfðaeyjum verði haldið lengi áfram. Hins vegar sé búið að gera góða hluti í landinu. „Þegar fiskurinn er ekki til staðar verður ekki til öflugur sjávarútvegur. Ég held jafnvel að það megi segja að við höfum forðað Grænhöfðaeying- um frá offjárfestingu í sjávarútvegi með rann- sóknum, sem sýndu að væntingar um verulegar fískiauðlindir voru ekki á rökum reistar," segir hann. Að sögn Hilmars telur stjórn ÞSSÍ sömuleiðis skynsamlegt að hefja ný þróunarsamvinnuverkefni í þeim löndum, þar sem stofnunin starfí nú þegar. Þannig megi nýta fjár- munina betur. Hilmar segir það sína skoðun að færi íslendingar út kvíarnar í þró- unaraðstoð eigi þeir ekki að ein- skorða sig áfram við sjávarútveg. Full ástæða sé til að skoða önnur svið, til dæmis mennta- og heil- brigðismál. Þar hafi ísland mikið að bjóða og fjárfestingarkostnaður sé ekki sá sami og t.d. vegna þróun- arstarfs í orkumálum eða sjávarút- vegsmálum. Áherzla alþjóðlegra þróunarmálastofnana hafí á undan- förnum árum verið að færast frá fjárfestingum í t.d. vegum, flug- völlum og verksmiðjum. Menn hafí áttað sig á því að uppbygging mannauðs sé mikilvægasta for- senda þess að stuðla megi að öflugri atvinnuuppbyggingu og hagvexti í þróunarríkjunum og ÞSSÍ búi nú þegar yfír mikilvægri reynslu af slíku starfí. Þá segist Hilmar þeirrar skoðunar að stefna eigi að því að skapa gagnkvæm viðskiptatengsl við þróunarríki, þar sem slík tengsl séu líklegust til að efla hagvöxt ________ til lengri tíma. „Sjálf- bær þróun efnahagslífs í þróunarríkjunum verð- ur ekki tryggð með því að gera eitt ríki háð öðru um aðstoð," segir Það er mun vænlegra til að koma á viðskipta- Hilmar. árangurs sambandi, sem báðir hagnast á. ísland er lítið land og nær ekki efnahagslegum tökum á öðrum ríkjum. Það má segja að blessun felist í smæðinni að því leyti. Namibíska hagkerfið er til dæmis álíka stórt og það íslenzka, þótt Namibíumenn séu mun fleiri en íslendingar. Þar hefur orðið til viðskiptasamband, sem er verð- mætt fyrir báða aðila.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.