Morgunblaðið - 13.05.1997, Side 17

Morgunblaðið - 13.05.1997, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 17 LANDIÐ Aðalfundur Félags eyfirskra nautgripabænda Alþjóðlegir samningar móta umhverfi kúabænda Eyjafjarðarsveit - Aðalfundur fé- lags eyfirskra nautgripabænda, FEN, var haldinn í vikunni. Frum- mælendur voru Guðbjöm Árnason framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, LK, og Jónas Bjarnason forstöðumaður hagþjónustu land- búnaðarins. í máli Jónasar kom fram að heildarverðmætasköpun í landbún- aði árið 1995 hafi verið 18 milljarð- ar, þar af var hlutur nautgripa- ræktar um 7 milljarðar eða sem nemur rúmlega 37% og er greinin hlutfallslega stærst meðal bú- greina í íslenskum landbúnaði. Til samanburðar má nefna að þáttur sauðfjárræktarinnar var 4 milljarð- ar eða 22%. Samalagður þáttur hefðbundinna búgreina var því um 60%. Studdist Jónas við tölur frá Hagstofu íslands. Mjólkurvörur hækkað um 0,7% en vísitala matvara um 9,3% Framlög hins opinbera hafa fall- ið úr 9,5% af heildarútgjöldum rík- isins 1989 í 5,4% 1994 og er í sam- ræmi við þá stefnu stjórnvalda að draga úr beinum ijárhagslegum stuðningi við landbúnað. Þá benti Jónas á að alþjóðlegir samningar svo sem GATT væru þegar byijað- ir að marka ytra starfsumhverfi kúabænda á íslandi. Til dæmis er áætlað að innflutningur á vörum úr mjólk hafi samsvarað 500 þús- und lítrum í innlendri mjólkurfram- leiðslu 1995 og einni milljón lítra 1996. Þá minnti Jónas á að núver- andi búvörusamningur fellur úr gildi 31. ágúst 1998 og framundan væru kjaraviðræður við ríkisvaldið. Eitt innlegg í þær umræður verður líklega samanburður á þróun grundvallarverðs mjólkur til bænda og neysluverðsvísitölu, en saman- burður af því tagi leiðir í ljós að töluvert vantar upp á að grundvall- arverð hafi haldið í við vísitöluna. Ef svo hefði verið ættu bændur að fá 60,63 krónur fyrir mjólkurlítr- ann en fá nú 55,76 krónur. Á tíma- bilinu febrúar 1991 til febrúar 1997 hækkaði mjólk, ijómi, ostar og egg um 0,7%. Verðvísitala mat- vara hækkaði á sama tíma um 9,3%. Að óbreyttum forsendum stefnir kúabúskapur á íslandi nið- ur á við hvað afkomu varðar. Mið- að við rekstrarafkomu 77 kúabúa á árinu 1991 til 1995 dragast búgreinatekjur saman um nær 8%, skuldir aukast um 23,5% og höf- uðstóll rýrnar um 25%. Launa- greiðslugetu búanna er haldið uppi á kostnað lækkaðs eiginfjár- hlutfalls, en eiginfjárhlutfall bú- anna var 60,4% á árinu 1991 en var 48,1% árið 1995. Þótt breyti- legur kostnaður og fastur kostnaður lækki er sú lækkun ekki nægjanleg. Á hinn bóginn er jákvætt að fjármagnskostnaður lækkar um þriðjung á sama tíma- bili en miður jákvætt að liðurinn aðrar tekjur dregst saman um einn þriðja á sama tíma. Loks nefndi Jónas að það vekti áhyggjur að bú sem ekki hafa fjárhagslegar forsendur til að kaupa aukinn framleiðslurétt væru eigi að síður að taka þátt í slíkum viðskiptum. Morgunblaðið/Hallgrímur KRAKKARNIR frá Tromsö fóru m.a. á hestbak í heimsókn sinni til Grundarfjarðar. Bréfaskriftirnar end- uðu með heimsókn Grundarfirði - í fjögur ár hafa nemendur í einni af bekkjardeild- um Gruunskóla Eyrarsveitar skrif- ast á við jafnaldra sína í Tromsö í Noregi. Nemendurnir hafa skipst á ýmsum upplýsingum um um- hverfi sitt og þjóðhætti. Góður kunningsskapur tókst með bekkj- ardeildunum tveim og var ákveðið að Norðmennirnir kæmu í heim- sókn nú í vor. Krakkamir komu hingað úr snjónum í Tromsö og dvöldu í Grundarfirði í þijá daga og fóru í báðtsferð um Breiðafjörð, á hest- bak og að sjálfsögðu var haldið á diskótek. Heimsóknir af þessu tagi eru til þess fallnar til að auka viðsýni nemendanna og kenna þeim að bera virðingu fyrir öðrum samfé- lögum. Með tilkomu tölvupósts getur nám af þessu tagi orðið að- gengilegt flestum skólum. í fótspor gömlu Strandapóstanna Drangsnesi - Nemendyr 8.-10. bekkjar Drangsnesskóla fara í heimsókn til Danmerkur þann 19. maí. Svona ferð kostar heil- mikið og hafa krakkarnir verið nyög duglegir að safna fyrir ferðinni. Lokaátak i söfnuninni var áheitaganga með póst frá Drangsnesi norður í Kjörvog, tæplega 90 km leið. Söfnun áheita gekk mjög vel og það voru um 170 bréf sem borin voru þessa leið föstudaginn 2. maí. Allir sem styrktu krakk- ana fá umslag til minja stimplað bæði á Drangsnesi og í Kjör- vogi og í umslaginu er að finna útdrátt úr sögu landpósta á Ströndum sem krakkarnir tóku saman. Byggðasafnið á Reykj- um lánaði þeim gamla póst- tösku og lúður sem blásið var í við hvern bæ og eyðibýli á leiðinni. Ferðin hófst við pósthúsið á Drangsnesi laust eftir klukkan tíu á föstudagsmorgun. Níu hressir krakkar eru í þessum þremur efstu bekkjum skólans og fóru þeir allir í þessa ferð. Arnlín Oladóttir, kennari þeirra, aðstoðaði við alla skipu- lagningu og hún og maður hennar, Magnús Rafnsson, fylgdu þeim frá Drangsnesi og norður i Bjarnarfjörð. Þau lögðu af stað í einum hóp og gengu fyrst inn í Hveravík og fóru þaðan yfir háls eins og kallað er. Bleytuslabb var á hálsinum eins og búast mátti við á þessum árstíma svo flestir voru votir upp að hnjám þegar komið var í Bjarnarfjörð 4 tím- um seinna. í Baldurshaga beið þeirra pysluveisla en ekki var gert þar langt stopp. Tók nú við boðganga og gengu þau tvö og tvö saman klukkutíma í senn og var nú ekki stoppað fyrr en komið var á leiðarenda. Eftir að farið er fram þjá Ásmundarnesi eru engir bærir í byggð fyrr en komið er í Djúpuvík. Foreldrar barnanna tóku þátt í þessu með þeim og voru alltaf minnst tveir bílar með í för. Á þessari leið er víða hætta á gijóthruni og er leiðin um Kaldbakskleif sérstaklega varasöm á þessum árstíma. Guðmundur góði vígði leiðina undir Kaldbakshornið á sinum tíma og með það í huga og ör- yggishjálma frá björgunar- sveitinni á höfðinu var lagt í kleifina. Þegar komið var norður fyr- ir Spena var grillað en á meðan héldu þeir áfram göngunni með póstinn tvíburarnir Steinar og Sölvi, einu strákarnir í hópnum. Um klukkan ellefu um kvöldið var komið i Djúpuvík og var vel tekið á móti hópnum á hótel- inu og slöppuðu stelpurnar af með hressingu en strákarnir voru aftur óheppnir, þeir áttu gönguna einmitt þá! Nú voru allir orðnir þreyttir og með blöðrur á hælum eða tám. Leið- in út Reykjarfjörð virtist aldrei ætla að taka enda og nú leið styttra á miUi skiptinga en áður. Heldur léttist yfir hópn- um þegar sáust ljósin í Kjörvogi og síðasta spölinn gekk allur hópurinn saman. Klukkan tvö aðfaranótt laug- ardags eftir 16 tíma göngu var komið í Kjörvog og þar beið hópsins hlaðið veisluborð. Póst- urinn var afgreiddur fljótt og vel þótt ekki væri á auglýstum afgreiðslutíma pósthúsa al- mennt. Og heim var haldið þá um nóttina þó ekki fótgang- andi. Veðrið var yndislegt, fjöll- in spegluðust i sjónum, morgun- sólin roðaði himininn og grá- sleppubátarnir voru að tínast á miðin. klukkan var að nálgast fimm þegar komið var að Klúku í Bjarnarfirði og var tilvalið að bregða sér í heita pottinn þar til að lina stífa og auma vöðva. Ferðalaginu lauk um klukkan hálfsjö um morguninn en þá komu þau heim þreytt, en ánægð og stolt eftir ógleym- anlega en erfiða ferð. Morgunblaoio/Jenný Jensdóttir GÖNGUFÓLKIÐ sem hélt í erfiða ferð í spor gömlu póstanna í Strandasýslu. Selfossi - Sumarið er komið með allt sitt yndi og börnin á Sel- fossi kunna svo sannarlega að meta hin ýmsu uppátæki sem fullorðna fólkið tekur upp á þegar sól hækkar á Iofti. Hestvagninn sem sést á mynd- inni var notaður í tengslum við prúttmarkað sem var haldinn á vegum Fijálsíþróttadeildar UMF Selfoss. Krakkarnir gátu keypt sér rúnt á hestvagninum. Uppátækið heppnaðist einkar vel og nýttu krakkarnir tæki- færið til hins ýtrasta, enda ekki á hveiju degi sem börnin fá tækifæri til að komast á hesta- kerru. muiguiiuiauiuuj1^. i auuai. SARA Hilmarsdóttir ásamt afa sínum, Hafsteini, tilbúin í hestaferð með knapa dagsins. Hestvagn á götum bæjarins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.