Morgunblaðið - 13.05.1997, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997
UR VERIIMU
IMEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Albert Kemp
FAXI RE landaði fullfermi á Fáskrúðsfirði á laugardag. Auk hans komu mörg síldveiðiskip þang-
að með rifnar nætur og smáslatta sem landað var hjá Loðnuvinnslunni hf.
Lítil síldveiði um helgina
SÍLDVEIÐI gekk illa um helgina,
síldin stendur djúpt og er mjög
stygg. Nokkur íslensk skip fengu
þó síld í færeysku lögsögunni í
fyrrakvöld en nótaskipaflotinn hef-
ur að mestu verið að veiðum í Síld-
arsmugunni síðustu daga.
Nokkur skip lönduðu síld um
helgina. Amamúpur ÞH landaði
um 500 tonnum af síld á Raufar-
höfn í gær. Aflinn fékkst í tveimur
köstum en Gylfi Baldvinsson stýri-
maður segir að lítið hafi verið kast-
að, því þótt mikil síld sé á svæðinu
standi hún mjög djúpt. „Það er
hægt að ná ágætum köstum með
lagni. Það er samt erfitt að loka
torfurnar inni því síldin er ógurlega
stygg. Það er sama og engin áta
í henni ennþá og greinilegt að það
vantar fyrir hana átu. í fyrra hófst
veiðin um þetta leyti og var þá
mun betri. Það hefur einnig verið
leiðinda gola á miðunum til þessa
og það getur haft nokkuð að segja
um veiðarnar. I vikunni var nánast
logn í einn dag og þá var mikið
kastað með þokkalegum árangri,“
segir Gylfi.
5.600 tonnum landað
á Fáskrúðsfirði
Á þriðja þúsund tonnum af síld
var landað á Fáskrúðsfirði um
helgina og samtáls hefur Loðnu-
vinnslan hf. nú tekið á móti 5.600
tonnum það sem af er síldarvertíð-
inni. Kap VE landaði 1.200 tonnum
og Faxi RE fullfermi. Fleiri lönd-
uðu smáslöttum af síld þar um
helgina og létu þá gera við rifnar
nætur í leiðinni. Að sögn Magnús-
ar Ásgrímssonar verksmiðjustjóra
gengur loðnubræðslan vel. Hægt
er að bræða um 800 tonn á sólar-
hring.
Þá hefur alls verið landað um
53.500 tonnum af norsk-íslensku
síldinni á vertíðinni. Langmest hef-
ur verið landað af síld hjá verk-
smiðju SR Mjöls á Seyðisfirði, tæp-
um 10 þúsund tonnum. Sex skip
lönduðu þar um síðustu helgi, alls
um 4.000 tonnum
Útflutningshópur FÍS telur saltfiskmarkaði að tapast
vegna afnáms línutvöföldunar
„Könnumst ekki við
þetta vandamál“
AFNÁM línutvöföldunar hér á
landi hefur orðið til þess að íslend-
ingar geta ekki annað eftirspurn
á helstu saltfiskmörkuðum sínum,
einkum á Spáni, Ítalíu og Grikk-
landi sem falast nær eingöngu eft-
ir krókaveiddum físki. Þess í stað
leita kaupendur á þessum mörkuð-
um nú til Noregs og Færeyja eftir
hráfefni þar sem engar hömlur eru
á veiðum smábáta á króka. Islend-
ingar eru því að missa mikilvæga
saltfiskmarkaði vegna pólitískrar
veiðistjórnunar.
Þetta kom m.a. fram á blaða-
mannafundi, sem útflutningshópur
Félags íslenskra stórkaupmanna
efndi til um helgina, en innan vé-
banda FÍS eru um 50 útflutnings-
fyrirtæki ef undan eru skilin sölu-
samtökin SH, ÍS og SÍF.
20% söluaukning
í Katalóníu
„Við höfum svo sannarlega ekki
orðið varir við þessa þróun og
könnumst ekki við þetta vandamál
enda hefur okkar hlutdeild í Ka-
talóníu vaxið um tæp 20% fyrstu
þrjá mánuði þessa árs miðað við
sama tímabil í fyrra,“ segir Gunn-
ar Örn Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri SÍF. „Ég held að máljð snú-
ist hreinlega um það að FÍS hafi
misst markaðshlutdeild hér heima
og þar af leiðandi á mörkuðum
ytra vegna harðrar samkeppni.
Menn vilja nefnilega hafa hag-
kvæmnina af samkeppninni, en
ekki vandamálin sem henni fylgja.
Að mínu viti á þetta kvein ekki
við rök að styðjast," segir Gunnar
Öm.
Hann tekur hinsvegar undir
þær staðhæfingar að línufiskur
fari að uppistöðu til í bestu afurð-
irnar sem spikfiskur, en reyndin
væri ekki sú að skortur sé á spik-
fiski. „í öðru lagi er það alveg Ijóst
að Norðmenn og Færeyingar hafa
ekki hlaupið í skarðið fyrir okkur
vegna þess að þeir hafa einfald:
lega aldrei framleitt spikfisk. í
þriðja lagi er útflutningur Norð-
manna 30-40% minni á þessu ári
heldur en hann var í fyrra og út-
flutningur frá Færeyjum er mun
minni í ár en í fyrra í söltuðum
afurðum þar sem að megnið af
þeirra afla er flutt ferskt inn á
Bretlandsmarkað.
Gunnar Örn telur sömuleiðis
óraunhæft að bera saman nóvem-
ber til febrúarmánuði síðastliðna
þar sem að menn dreifi veiðinni
nú á allt fiskveiðiárið í stað aðeins
fjögurra mánaða áður. „Þegar öllu
er á botninn hvolft og þrátt fyrir
afnám línutvöföldunar, höfum við
línuveiðarnar áfram, en hinsvegar
fékk línubátaflotinn úthlutuðum
60% af tvöfölduninni sem út-
gerðarmenn þeirra hafa getað
verslað með að eigin vild.“
í fréttatilkynningu, sem sjávar-
útvegsráðuneytið sendi frá sér í
gær, segir að í fréttum fjölmiðla
um helgina hafi m.a. verið haft
eftir talsmanni útflutningshópsins,
Jóni Ásbjörnssyni, að afnám lín-
utvöföldunar hefði haft í för með
sér að íslendingar hefðu misst
markaðshlutdeild fyrir saltfisk til
Norðmanna og Færeyinga. Þessum
upplýsingum beri engan veginn
saman við gögn Hagstofu íslands
og norsku Hagstofunnar.
Ennfremur segir: „Samkvæmt
upplýsingum Hagstofu íslands
hafði útflutningur á saltfiski frá
íslandi aukist um 25,47% fyrstu
þijá mánuði þessa árs miðað við
sama tímabil í fyrra. Þar af nam
aukinn útflutningur þurrkaðs salt-
fisks 48,42%, blautverkaðs salt-
fisks 31,97% og saltfiskflaka og
bita 1,11%.
Samkvæmt upplýsingum norsku
Hagstofunnar minnkaði útflutn-
ingur Norðmanna af söltuðum
þorski úr 19.699 lestum á tímabil-
inu janúar til mars 1996 í 12.269
lestir á sama tímabili í ár. Nemur
þessi samdráttur í útflutningi
Norðmanna tæpum 40%. Þá liggur
fyrir að sáralítið mun vera saltað
af þorski í Færeyjum enda mun
vaxandi hluta af afla færeyskra
fiskiskipa vera landað óunnum er-
lendis,“ segir í fréttatilkynningu
frá sjávarútvegsráðuneytinu.
Garðeigendur
eitra of mikið
Morgunblaðið/Sigga
FJÖLDINN allur er af nytsamleg-
um dýrum í garðinum og eitt þeirra
er hunangsflugan. Hún ber frjó
milli plantna.
„ÍSLENDINGAR eitra allt-
of mikið í görðum og fyrir
nokkrum árum má segja
að vorboðinn í Reykjavík
hafi verið gulir eiturmiðar,“
segir Guðmundur Halldórs-
son skordýrafræðingur hjá
Rannsóknarstöð Skógrækt-
ar ríkisins. „Á þessu hefur
orðið breyting til betri veg-
ar en þó er enn of mikið
um að menn úði allt sem
fyrir verður í görðum. Garð-
eigendur ættu að leggja sig
fram um að kynnast plönt-
unum sínum og komast að
því hvort um vandamál er
að ræða _áður en farið er
að eitra. Á íslandi eru 1.245
skordýrategundir og ein-
ungis um 10 sem eru vara-
samar. Þau skordýr sem verst verða
úti í úðun eru einmitt þau dýr sem
halda meindýrum í skefjum þ.e.a.s.
svokallir náttúrulegir óvinir sem
halda blaðlús og lirfum í burtu,“
segir hann.
„íslendingar eru mjög skordýra-
hræddir og vilja helst láta drepa
allt sem hreyfíst, jafnvel kóngulær.
Ég bjó í mörg ár í Danmörku og
þar þekkist það varla að garðar séu
úðaðir og svipaða sögu er að segja
í öðrum löndum.
Kynnist gróðrinum
og meindýrum
„Kynnist fólk gróðrinum í garði
sínum lærir það að þekkja hvenær
um vanda er að ræða og hvenær
ekki,“ segir Guðmundur. „Ef við tök-
um greni sem dæmi þá eru bara
tvær tegundir af blaðlúsum á því,
önnur er græn og hin gráleit. Þessi
græna er sitkalúsin og hún er á
gömlu nálunum og þessi gráleita er
grenisprotalús og hún er á nýju nál-
unum. Yfírleitt þarf eingöngu að
hafa áhyggjur af sitkalúsinni og hún
gerir einungis vart við sig sum ár
og þá á haustin. Það er því vita
gagnslaust að úða sitkagreni árlega
og er einungis slæmt fyrir umhverfið.
Á birkinu eru bara tvær blað-
lúsartegundir, önnur er gulgræn á
blöðunum og hin aðeins stærri og
blágræn og mjög oft vængjuð. Þessi
gulgræna skemmir stundum birkið
og oft þarf að vinna bug á henni.
„Geri þessi tegund vart við sig er
ekki þar með sagt að þurfi að úða
öll tré í nágrenni við umrætt birki
og hvað þá heldur allan garðinn.
Það kann að vera nóg að úða eitt
tré.“ Guðmundur segir að brögð séu
að því að þeir sem eru að úða séu
ekki nógu vel að sér um skordýr
og haldi því jafnvel á lofti að það
sem hreyfist sé skaðlegt.
Öspin laus
við skordýr
- Hver eru hættumerkin í garðin-
um?
„Garðeigendur ættu að fylgjast
með hvort blöð fari að rúllast upp
á gróðri og þá aðallega á birki eða
víði en skordýrin sækja aðallega í
þær tijátegundir. Öspin fær yfir-
leitt að vera í friði fyrir skordýrum. I
Rúllist blöð birkis og víðis upp þá j
er það oft merki um að þar sé lifra
fiðrildis að éta. Þar eru þrjár teg-
undir sem koma til greina, græn
lirfa sem heitir haustfeti eða grá
sem heitir tígulvefari og svört sem
heitir víðifeti. „Þær geta verið vara-
samar því þær eiga til að hreinsa
allt af trénu. Tígulvefarinn er hins-
vegar eingöngu á birki og víðifetinn
eingöngu á víði.“ Guðmundur tekur
fram að þessi lirfa, haustfeti, sé '
alæta og kunni því að leggjast á \
annan trjágróður. j
Á hinn bóginn þarf fólk að vita
að lirfa verður að púpa einhvern-
tíma og það gerist yfírleitt í byijun
júlí. Eftir það éta þær ekki meira
og út skríða bara fiðrildi sem lifa
yfirleitt á blómasafa."
Náttúrulegir óvinir fara
verst útúr úðun
Úði garðeigendur allan garðinn
fara náttúrulegir óvinir verst útúr f
því, eins og til dæmis sníkjuvespur, \
bjöllur og köngulær. „Það eru alls-
Nýtt
Kóreu ginseng
KOMIÐ er á markað nýtt Kóreu
ginseng frá fyrirtækinu IL HWA
Ltd. Co. í Kóreu. Ginsengið er líf-
rænt ræktað og til vinnslu fara 6
ára fullþroska og valdar rætur. í
fréttatilkynningu frá Logalandi ehf.
segir að fyrirtækið noti háþróaða
framleiðslutækni og hafi hlotið
æðslu viðurkenningu yfirvalda fyrir
framleiðslu sína. Staðlað gæðaeftir-
lit er á framleiðslunni og lághita-
stig er notað. Sérhveijum pakka
af ginsenginu fylgir áprentaður og
lotunúmeraður seðill sem er gæða-
viðurkenning frá yfirvöldum í
Kóreu. Umbúðirnareru 50 og 100
hylkja pakkar og hvert hylki inni-
heldur 500 mg af ginsengi. Helstu
sölustaðir eru apótek, heilsuvöru-
verslanir og heilsuhorn verslana.
Fellibústaður á
30 sekúndum
EVRÓ á Suðurlandsbraut hefur
undanfarið kynnt nýja gerð af felli-
bústöðum, svokallaða Á-bústaði en
þeir eru framleiddir í Bandaríkjun-
um. Tekur innan við 30 sekúndur
að reisa vagninn og ekki er um að
ræða tjalddúk heldur eru veggir og
loft einangruð. Fellibústaðnum
fylgir staðalbúnaður eins og eldhús,
borðkrókur, tvö rúm og inniljós.
Minnstu vagnarnir vega um 300
kíló og hægt er að fá bústaðina frá
2-4 manna.
L
I